Morgunblaðið - 29.03.1989, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1989
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra:
Þarf sérstakar ástæð-
tíl þess að stöðva slíkar
reglubundnar æfingar
Varnarliðið:
Þúsund manna heræfing
hérlendis næsta sumar
RÁDGERT er »ð tftit lil hercf-
lnr«r mrð þátttðku um 1000
manna liftufti frá Randa-
Hkjunum hér á landi lurata
aumar, að þH er argir f nýjaaU
hefti bandaHaka vikurítaina
Ariation Wetk 4 Spacr Trc-
hnology I ritinu er iUrier 6t-
tekt á vamaratftðinni á
Keflavikurflurveili og hlut-
verkl hennar, aetn Ulið er
ðmeUnlejft lyrír varair AU-
I bandariaka vikuritinu er eink-
um rwU um hlutverk flugvéla tii
vemdar landinu ojt til að fylgjaat
með ferðúm kafbáta umhverfia
það. Kemur fram, að fierri aovésk-
ir kafbátar legKja nd loið alna um
hftfln umhverfls Island en áður.
Er meðal annara bent á, að kaf-
bátarair hafa ml langdrairari eld-
flaugar en eldri gerðir. l»á acjjir
Erie A. MeVadon, floUforingi,
yflrmaður varaariiðiina, I aamtali
við ritið, að aovésku kafbátarnir
aéu hljöðlátari nú en áður og þvf
erfiðara að flnna þá en fyrr. bá
kemur einnig fram, að ferðum
aovéskra flugvéla hefur tekkað
slðan 1986. Telur McVadon að
hugsanlcga aéu Sovétmenn að
átta sig á getu F-15 orrustuþotna
vamariiðsins, aem komu hingað
Ul lands 1985.
Kaemi Ul áUka yrði 187. atftr-
fylki ffttgönguliða I varaliði hcrs-
ins sent hingað Ul lands. Ef viðvft-
runartlmi yrði akammur yrði virkt
stftrfylki hersins sent hingað
akyndi og slðan myndi varaliðið
lcysa það af hftlmi. Hér á lnndi
eru engar birgðir fyrir stftrfylkið.
Uðsmenn úr 187. stftrfyikinu hafa
stundað Kfíngar hér á landi og
er artlunin að 1000 menn úr þvf
komi hingað Ul eflnga á na-sU
sumri. Uðið notar ekki þung vopn
við a’fingar hér. Stftrfylkið ra*ður
yfir eigin flugvélum, bryndrekum
og fallbyasum en æfir notkun
þess búnaðar f Kanada.
Frétt Morgunblaðsins frá 17. nóvember 1988 um fyrirhugaða
æfíngu varaliðs bandaríska landhersins á sumri komanda.
FYRIRHUGUÐ æfing 187. stórfylkis fótgönguliða í varaliði banda-
riska landhersins á Islandi á sumri komandi kom til umræðu á fundi
ríkisstjórnarinnar í gærmorgun. „Það fer ekki saman að gera kröfu
tíl þess að varnarliðið verði í stakk búið, ef á reynir, að veija, ekki
aðeins ísland, heldur líf og limi íslenskra borgara, ef því er hins veg-
ar meinað að framkvæma æfingar af þessu tagi. Til slíkra æfinga
er efnt með reglubundnum hætti í öllum öðrum löndum Atlantshafs-
bandalagsins, “ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, utanrikisráðherra í
samtali við Morgunblaðið i gær. Hann sagði að fréttir þess efhis að
heræfingar ættu að hefjast hér þann 17. júní næstkomandi væru úr
lausu loflá gripnar. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra segir
ekki koma til greina að æfíngin hefjist þennan dag, þjóðhátiðardag
íslendinga og kveðst reyndar vona að ekki komi til slíkrar æfingar
hér á landi.
„Það þarf sérstakar ástæður til
þess að stöðva reglubundnar æfing-
ar af þessu tagi, fyrirvaralaust,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson. „Á
hitt ber að leggja áherslu, að það
er að sjálfsögðu á valdi utanríkisráð-
herra að ákveða hvort þær verði. Á
það verður hins vegar lagt faglegt
mat, þegar allar upplýsingar liggja
fyrir um fjölda, búnað og nákvæma
framkvæmdaáætlun.
Af hálfu vamarliðsins hefur verið
tilkynnt um áform um hefðbundnar
æfingar innan vamarsvæðisins á
komandi sumri. Sú tilkynning var
bókuð á fundi vamarmálanefndar
30. ágúst síðastliðinn, í utanríkisráð-
herratíð Steingríms Hermannsson-
ar,“ sagði utanríkisráðherra. Hann
sagði þessa tilkynningu vera afar
fáorða og þar kæmi ekkert fram um
tímasetningu. Ástæðuna fyrir því
að endanleg ákvörðun hefði ekki enn
verið tekin, sagði hann vera þá að
upplýsingar um umfang og fram-
kvæmd fyrirhugaðra æfinga lægju
ekki enn fyrir. Nú væri verið að
taka saman ítarlega greinargerð um
málið af hálfu vamarmálaskrifstofu
og engin ákvörðun yrði tekin fyrr
en sú greinargerð lægi fyrir.
„Af fréttum hefur mátt skilja að
hér væri um að ræða afhjúpun á
hinum óttalega leyndardómi. Stað-
reyndin er hins vegar sú, að lesend-
ur Morgunblaðsins gátu fræðst um
þetta á liðnu ári, vegna þess að þar
var ítarlega um málið fjallað," sagði
Jón Baldvin. „Æfingar varaliðsins
hafa verið haldnar hér á landi tvisv-
ar áður. Þær eiga rót sína að rekja
til ákvörðunar frá árinu 1983, um
að mynda og þjálfa sérstakt varalið,
sem nota megi til að treysta vamir
íslands á hættutímum. Hér er ekki
um að ræða reglulega hermenn,
heldur óbreytta borgara sem hafa
sem sjálfboðaliðar tekið á sig þá
kvöð að búa sig undir þetta hlut-
verk.“
Utanríkisráðherra sagði að um
þetta segði svo í skýrslu Steingríms
Hermannsson, utanríkisráðherra til
Alþingis fyrir árið 1987: „Ef til
átaka drægi er ljóst að vamarliðið
þyrfti aukinn liðsafla. Hersveit í
varaliði bandaríska landhersins hef-
ur verið þjálfuð og búin undir að
koma til landsins á hættu- eða ófrið-
artímum. Hluti hennar tók þátt í
umfangsmiklum æfingum í Kanada
í sumar og fylgdust fulltrúar Varna-
málaskrifstofu með þeim æfingum.
Til að slík þjálfun komi að fullu
gagni er nauðsynlegt að íslensk
stjórnvöld hafi hönd í bagga og
tryggi að allar vamaráætlanir séu í
sem bestu samræmi við íslenska
hagsmuni og staðhætti. Samræmis
þarf að gæta milli almannavarnaá-
ætlana okkar og skipulags lögreglu
og landhelgisgæslu, og þessara
varnaráætlana. Að því hefur verið
unnið, en eðli málsins vegna verður
ekki greint frekar frá því.“
Jón Baldvin sagði jafnframt:
„Eins og fram kemur í þessum orð-
um Steingríms Hermannssonar,
fyrrverandi utanríkisráðherra, er hér
um hefðbundnar aðgerðir, sam-
kvæmt skuldbindingum vamar-
samningsins um öryggi og vamir á
íslandi á hættutímum. Álitamál er
hvort þessar æfíngar geti borið hei-
tið hemaðaræfíngar. Að minnsta
kosti er það tæplega, ef litið er til
samanburðar á reglubundnar her-
æfingar í öðrum löndum Atlants-
hafsbandalagsins. Þannig má nefna
sem dæmi heræfingu í Norður-
Noregi árið 1988. Þar gafst fulltrú-
um íslendinga kostur á að fylgjast
með þeim æfingum, þar á meðal
þáverandi formanni utanríkismála-
nefndar, Eyjólfi Konráð Jónssyni."
Utanríkisráðherra sagði að þær
æfingar hefðu m.a. tekið til heils
flugvélamóðurskips, og freigátuflota
frá a.m.k. 9 Atlantshafsbandalag-
slöndum. Þar hefði verið æfð innrás
i Norður-Noreg og heilu héruðin
verið undirlögð af „hermönnum, tól-
um þeirra og tækjum." Hér væri
einungis um það að ræða að gefa
sjálfboðaliðum, sem ætlunin væri að
grípa mætti til á hættutímum, kost
á að kynnast aðstæðum innan varn-
arsvæðisins á Keflanvíkurflugvelli.
Ekki yrði um nokkurn flutning á
nýjum vopnum að ræða, né þátttöku
orustuþotna, utan varnarsvæðisins.
Mikil áhersla yrði lögð á starfsemi
björgunarþyrlna og flutningatækja.
„Eg tel mjög vafasamt að halda
svona heræfingu hér á landi og hún
verður að sjálfsögðu ekki fram-
kvæmd nema utanríkisráðherra
samþykki hana,“ sagði Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra,
„auk þess kemur alls ekki til greina
að hún hefjist 17. júní, það er algjör-
lega öruggt mál. Ég vona að það
verði ekkert af þessari æfingu.“
Síldarvagninn
+ B-matseðill
alla virka daga
VESTURGÖTU 10, 101 REYKJAVÍK
Afsláttur frá 25—50% í
aðeins örfáa daga!
Vegna flutninga.
I lver hefur efni á að
missa af
rýmingarveislunni?
VMMRM6ITI
'l/Uttarimetfjan'&wtttd/utÁaéiinH
25-50%
AFSLATTUR
2 5 - 50 %
AFSLATTUR
OG SVO ALLT
A FULLT VERÐ
AFTUR
Laugavegi 45 - sími 11388
MYNDAMÓT HF