Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGAROAGGRlS-; ABRÍIí'W89 . 7 SAMNINGAR BSRB OG RÍKISINS Frá undirritun sanmingsins i húsakynnum BSRB. Getur ekki talist til fyrirmyndar - segir formaður BHMR „Samningur BSRB getur með engu móti talist til fyrirmyndar fyrir okkar samningaviðræður. Við erum að reyna að saekja fram í kjörum. Ef við myndum gera hliðstæðan samning, vær- um við í raun að skrifa upp á það kaupmáttarhrun, sem sett hefur verið yfir okkur með tveimur bráðabirgðalögum," sagði Páll Halldórsson, formað- ur Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, í samtali við Morgunblaðið. „Háskólamenntaðir menn hjá ríkinu eru að reyna að nálgast þau laun, sem greidd eru annars staðar í þjóðfélaginu. Til þess að gera það raunhæfara, höfum við lagt fram tillögu að þriggja ára samning og viljum við láta reyna á það til þraut- ar.“ Páll sagði að auknar niður- greiðslur á landbúnaðarafurðir og aukið aðhald í verðlagsmálum bættu ekki upp það kaupmáttar- hrun sem þegar er orðið. Hinsvegar væru slíkar aðgerðir að sjálfsögðu að hinu góða. „Við leggjum samt sem áður megináherslu á launa- hækkanir og bætur þar sem við erum að vinna hlutina aftur í tíma,“ sagði formaður BHMR. Gengisfelling ekkiumflúin - segir formaður VSÍ „Gangi BSRB-samningurinn yfir allan vinnumarkaðinn, verður gengisfelling ekki umflúin. Hversu mikif gengisfelfing er nauðsynleg, er ekki hægt að segja til um fyrr en við vitum nákvæmlega hvað í samningnum felst,“ sagði Gunnar J. Friðriks- son, formaður Vinnuveitenda- sambands íslands, í samtali við Morgunblaðið. Eftir helgina mun VSÍ láta reikna út hváð samningurinn hefur í för með sér fyrir hinn almenna vinnumarkað. Að því búnu myndu VSÍ-menn gera upp hug sinn, en Gunnar átti ekki von á neinum samningafundum fyrr en eftir miðja næstu viku og þá jafnvel eftir fund með ríkisstjóminni. Gunnar sagði að samningur á við BSRB-samninginn væri þung- bærari fyrir hinn almenna vinnu- markað en fyrir ríkið þar sem um krónutöluhækkanir væri að ræða en ekki prósentuhækkanir. „Það á líka eftir að koma í ljós hvort við- semjendur okkar ætla að gera kröf- ur BSRB að sínum eða ekki. Við emm hvorki tilbúnir að ganga til samninga um það né neitt annað fyrr en við höfum skoðað hvað í samningnum felst og hvaða áhrif hann myndi hafa á stöðu atvinnu- veganna,“ sagði Gunnar. „Tel samn- ingana við- unandi“ Steingrímur Her- mannsson, forsætis- ráðherra STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra segist telja niðurstöður kjarasamninga BSRB og rikisins vera viðun- andi. Samnmgarnir séu nijög nálægt því sem fjárlagaraniminn geri ráð fyrir. „Þetta fer að vísu eitthvað aðeins fram úr Qárlög- unum, sem er alltaf slæmt, en það er ekki mikið,“ sagði forsæt- isráðherra í samtali við Morgun- blaðið. „Ég er mjög hlynntur krónutölu- hækkun og tel að láglaunafólkið fái þannig auknar bætur. Auk þess em engar kvaðir settar á ríkissjóð, sem hann getur ekki staðið við. En ég hef sagt það allan tímann að hinn almenni vinnumarkaður þurfti að vera á undan og hafa fmmkvæðið. Þess vegna þykir mér það mjög slæmt að aðilar hans hafa dregið lappimar allan þennan tíma, eins og gerst hefur,“ sagði Steingrímur. „Auðvitað er þetta ekki samn- ingur sem sjálfkrafa gengur yfir allan vinnumarkaðinn," sagði for- sætisráðherra, „hinir verða að semja sjálfir. Hvort þeir vilja semja um ákveðna krónútölu, prósentur, eða taka þetta allt inn í bónus, það er þeirra mál.“ „Kjarasamn- ingar ráðist á almennum vinnu- niarkaði“ — segir Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra JÓN Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra segist persónu- lega vera eindregið þeirrar skoðunar að kjarasamningar eigi með mótandi hætti að ráð- ast á hinum almenna vinnumark- aði og kjör ríkisstarfsmanna síðan að miðast við það. „Þannig ættu þau kjör væntanlega að endurspegla greiðslugetu at- vinnuvega," sagði Jón Baldvin í samtali við Morgunblaðið og bætti við að ekki væri við ríkis- stjórnina að sakast nú, að þetta ekki tókst. Jón Baldvin sagði að í fyrsta lagi þyrfti að meta BSRB samning- ana á þann hátt hvort þeir væru kollsteypusamningar ef þeir yrðu ráðandi á almenna vinnumarkaðn- um. „Þá blasa við eftirfarandi stað: reyndir í viðræðum VSÍ og ASÍ hafði margsinnis komið fram að vinnuveitendur teldu sig skuld- bundna til þess að ganga til samn- inga senr færðu almennu kjara- samningana að Iqarasamningum iðnaðarmanna, sem standa til 1. ágúst, en slíkir samningar fælu í sér a.m.k. 4% kauphækkun," sagði utanríkisráðherra. Hann sagði að BSRB samningurinn væri innan þeirra marka, á þessum samnings- tíma, þ.e. fram til 1. ágúst og í þeim skilningi hefði hann því ekk- ert viðbótarfordæmisgildi fyrir al- menna markaðinn. „Það sem BSRB samningamir eru umfram þetta fram til ára- móta, myndi rýra afkomu fisk- vinnslunnar um 0,5%, eða svo,“ sagði Jón Baldvin. Hann sagði að á það bæri að líta að það væri ekkert náttúrulögmál að nákvæm- lega sama útfærsla kjarasamnings skyldi gilda fyrir opinbera geirann oj* almenna vinnumarkaðinn, enda væru samningakerfín ósambæri- leg. Þvi væri gagnrýni vinnuveit- enda ekki fyllilega á rökum reist Ráðherra benti á að hér væri verið að semja um fasta krónutölu, sem bætti fyrst og fremst kjör þeirra lægst launuðu. Auk þess væri verið að semja um fastar greiðslur í krónutölu, sem kæmu ekki nema að hluta inn í kaup- taxta. Loks væru þessir samning- ar, þegar litið væri til ársins í heild innan ramma flárlaga. „Að öllu samanlögðu þá tel ég að þessir samningar séu nokkuð raunsæir," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra. Tökum mið afkaup- hækkunum BSRB - segir forseti ASÍ „Við þurfúm að skoða málin betur áður en við förum að semja á svipuðum nótum og BSRB. Hinsvegar eru í samningi BSRB kauphækkanir, sem við hljótum að taka mið af. Ég vænti þess að engin ágreiningur sé á milli okkar og atvinnurekenda um að okkar fólk þurfi ekki síður á kauphækkunum að halda. Því á ég ekki von á að ágreiningur verði um það að okkar fólk fái sömu hækkanir og eru i samningi ríkisstarfs- manna,“ sagði Ásmundur Stef- ánsson, forseti Alþýðusambands Islands, í samtali við Morgun- blaðið. Asmundur 'sagði að samnings: tíminn væri mun lengri en ASÍ hefði gert ráð fyrir. „Við vorum að miða við samninga fram í sept- embermánuð og í öðru lagi er spuming hveijar forsendur kaup- tiyggingar eru, hvemig menn ætla að ná þeim kaupmætti, sem stefnt er að á samningstímanum. „Ljóst er að ekki virðast vera mjög traust- ar tryggingar í BSRB-samningnum og það mál hljótum við að þurfa að skoða frekar. Okkar fólk þarf ekki síður á kauphækkunum að halda og því er útilokað að bjóða okkur upp á minni launahækkan- ir. “ Ásmundur sagði að ASÍ hefði verið fullkomlega reiðubúið að semja á undan BSRB ef þannig hefði staðið á. Hinsvegar hefðu viðræður BSRB við ljármálaráðu- neytið farið á meira skrið en hjá öðmm launþegasamtökum og end- að í samningi. „Það má líka minna á það að samningar opinberra starfsmanna voru allir lausir 15. febrúar, en stórir hópar hjá okkur eru enn með bundna samninga. Verkamannasambandið og iðn- verkafólk er ekki með lausa samn- inga fyrr en á mánudag til dæm- is, “ sagði Ásmundur. Skoðaðu Renauk bðana um hehána. ^ nta O Þerenia Um hetgina sýnum viö RenaulC bila af árgerð 1988 og 1989, sem nú eni faanlegir á Viö bjööum þér allt að 18 mánaða greiöslukjör. LágmarfcsúCborgun í Renault 5 er aöeins 100 þúsund krönur. Leggöu dæmiö fyrir þig! Þaö er einfalt mái aö semja viö okkur! RENAULT 18 mánaöa greiðslukjör OPID LAUGARDAG FRA 13—17. Bílaumboðið hf Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633 i !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.