Morgunblaðið - 23.05.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.05.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1989 19 Útflutningnr á gámafiski hefur dregist saman firá í fyrra segir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra vísar á bug staðhæfingum Kristjáns Ragnarssonar, formanns Landsambands íslenskra útvegs- manna, í þá veru að um of mikinn útflutning á gámafiski sé að ræða, vegna stjórnunar utanríkisviðskiptaráðuneytisins á þessum útflutningi. Hann segir að gámaútflutningur hafi dregist saman fyrstu flóra mán- uði ársins, miðað við sama tíma i fyrra, en ísfikslandanir erlendis auk- ist, undir stjórn Krisljáns Raganarssonar. Jón Baldvin segir að fullyrðingar Kristjáns Ragnarssonar, formanns LÍÚ í Morgunblaðinu 17. mai sl. um of mikinn útflutning á gámafiski á köstnað annarra útflytjenda séu rangar. „Sem dæmi má nefna,“ seg- ir utanríkisráðherra, „að fyrstu fjóra mánuði þessa árs, var útflutningur á ísuðum þorski á Bretlandsmarkað 2.500 tonnum minni, en á sama tíma í fyrra. Aðra sögu er að segja af ísfisklöndunum fiskiskipa, sem lúta stjóm Kristjáns Ragnarssonar. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs, þá hafði hlutur físklandana skipa, sam- kvæmt ákvörðunum LÍÚ aukist úr 60,3% í fyrra í 73,3%. Á Bretlands- markaði, hafði hlutur ískfisklöndun- ar skipanna, samkvæmt ákvörðun Kristjáns Ragnarssonar, aukist úr 23% í 30%. Það hefur því dregið úr gámaútflutningi, samkvmt stjómun ráðuneytisins." Jón Baldvin sagði að ef þessar breytingar hefðu stuðlað að lægra verði, þá væri það á ábyrgð LIÚ. Iþróttamálaráðherrar aðildarríkja Evrópuráðsins fimda í Reykjavík: Ofbeldi á knattspyrnu- völlum ofarlega á baug'i SJÖTTI fúndiir íþróttamálaráðherra aðildarríkja Evrópuráðsins verður haldinn í Reykjavík daganna 30.mai til l.júní. Fundur þessi er fyrsti ráðherrafúndur Evrópuráðsins sem haldinn er hér á landi, en ráðið varð 40 ára 5. maí síðast liðinn. Alls verða 160 erlendir þátttakendur, þar á meðal 20 ráðherrar. Að sögn Svavars Gestssonar menntamálaráðherra vekur athygli hversu almenn þátttakan er að þessu sinni, Nú koma í fyrsta skipti fulltrú- ar frá Ungveijalandi og Póllandi sem áheymarfulltrúar. Að sögn Svavars verða ofbeldi og róstur á knattspymuvöllum í Evrópu óhjákvæmilega ofarlega á baugi, en einnig verður unnið að gerð sáttmála um ólöglega lyfjanotkun íþrótta- manna svo og kynþáttamisrétti í íþróttum. Efnahagslegt mikilvægi íþrótta yrði einnig umræðuefni og í því samhengi myndi hann í ræðu á fundinum greina frá ýmsum niður- stöðum sem dr. Þórólfur Þórlindsson hefur komist að eftir athuganir á mikilvægi íþrótta á íslandi. „Það hefur alltaf verið tilhneiging til að hafa íþróttir sér, þær eru sér í fjöl- miðlum og yfirleitt sér alls staðar, en það er mikilvægt að skoða þær í meira heildarsamhengi," sagði Svav- ar. í tengslum við þennan fund hefur farið fram samkeppni meðal lista- manna um viðfangsefni tengt íþrótt- um. Er samkeppnin á vegum menntamálaráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, ÍSÍ og Olympíu- nefndar íslands. Sýning á innsendum verkum verður á Kjarvalsstöðum. Fleiri menningarviðburðir verða tengdir fundinum, til dæmis verður frumflutt tónverk eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Þess bæri þó að geta, að það væri fleira sem réði verðinu. „Verðlag á þorski er lægra í ár en í fyrra um allan heim. Til dæmis á Bretlands- markaði, m.a. vegna aukins fram- boðs frá öðrum aðilum," sagði ut- anríkisráðherra. „Ásakanir um að ráðuneytið hygli einhverjum sérstök- um aðilum og fari ekki eftir reglum, eru slúður," sagði ráðherra og kvaðst hafa svarað fyrirspurn á Alþingi um þessi mál og gefið um það ýtarlegar upplýsingar. Áhersla væri lögð á að veita öllum einhveija.úrlausn, helst vikulega, þó þáð tækist ekki alltaf. Tekið væri tillit til stærðar veiðiskipa og fjölda þeirra hjá viðkomandi út- flytjenda. Þá væri litið til þess hvaða verkunaraðstöðu útfljdjandi hefði í landi til þess að koma afla í vinnslu og tillit væri tekið til forgangs ísfisk- landana fiskiskipa, sem Kristján Ragnarsson stjómaði sjálfur og því hefði útflutningur fisks í gámum þrengst sem því næmi. Ráðherra sagði að utanríkisvið- skiptaráðuneytið teldi sig fá upplýs- ingar, samkvæmt lögum um útflutn- ingsleyfi, á þeirri forsendu að þar væri um trúnaðarmál að ræða. Litið væri þannig á að viðskipti einstakra fyrirtækja væru trúnaðarmál og ráðuneytinu væri því ekki heimilt að sundurgreina nákvæmlega hvaða aðilar hefðu sótt um leyfi, hvenær og hversu mörgum gámum hveijum og einum hefði verið úthlutað viku- lega. „Upplýsingar um magnið og hveijir hafa annast þennan flutning eru hins vegar veittar - að sjálf- sögðu," sagði Jón Baldvin. „Af þessu má ljóst vera að það er farið fijálslega með staðreyndir í þessu viðtali Morgunblaðsins við Kristján Ragnarsson. Hitt er svo annað mál, að ýmsar hugmyndir eru uppi um breytingar á þessu fyrir- komulagi. Hugmynd sjávarútvegs- ráðherra, sem hann reifaði í desem- ber sl. um að koma upp sérstöku kerfi aflamiðlunar hér innanlands er flókið mál og viðamikið, en það snýst hins vegar ekki um það að afhenda Kristjáni Ragnarssyni einkaleyfi á útflutningi á öllum ferskum fiski,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra. Fimm ballettar verða sýndir á nemendasýningu Listdansskóla Þjóð- leikhússins í kvöld. Listdansskóli Þjóðleikhússins: Fimm ballettar sýndir á nemendasýningu í kvöld Nemendasýning Listdansskóla Þjóðleikhússins verður í kvöld, þriðju- dag, kl. 20.00 á stóra sviðinu undir sljórn Ingibjargar Björnsdóttur. Flestir nemendur skólans taka þátt í sýningunni, sem bæði er byggð upp með klassískum ballett og nútímadansi. Nú eru 115 nemendur í skólanum. Sýndir verða fimm ballettar. Sá fyrsti nefnist Ommusögur og er hann saminn við tónlist eftir Sig- urð Þórðarson, en danshöfundur er Ingibjörg Bjömsdóttir. Ömmusögur skiptast aftur í 5 þættir. í þeim fyrsta, sem heitir Grýla, dansa 17 nemendur forskólans hlutverk ömmubama og óþekku bamanna en Brynja Scheving Heimisdóttir fer með hlutverk ömmunnar. í öðrum þætti, Dvergum, dansa 22 nemendur í I. flokki. í 3. þætti, Móðir mín í kví kví, dansa 16 nemendur í II. flokki og Hrefna Björk Hallgríms- dóttir sóló. í 4. þætti, Álfum, dansa nemendur úr V. flokki og piltar úr VI. flokki, alls 16 dansarar og í 5. og síðasta þætti ömmusagna, Tröll- unum, dansa 16 nemendur úr IV. flokki-og Ingibjörg Agnes Jónsdóttir dansar sóló. Annar ballettinn nefnist Himinn höndum tekinn. Dansinn er eftir Karl Barbee og tónlistin eftir Level 42. í honum dansa þær Anna María Pitt, Helena Jónsdóttir, Hrefna Björk Hallgrímsdóttir, Katrín Ingvadóttir og Svala Guðmundsdóttir. Þriðji baliettinn er Arabínur, arabískur dans úr Hnotubijótnum við tónlist Tsjækovskís. Danshöfundur er Ingibjörg Pálsdóttir og dansarar em Björg Ólafsdóttir, Bryndís R. Brynjólfsdóttir, Hildur Óttarsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Klara Gísladóttir, Katrín Johnson, Kristj- ana Brynjólfsdóttir, Kristjana B'. Guðbrandsdóttir, Sigríður Anna Ámadóttir, Unnur Berglind Guð- mundsdóttir og Vilborg Daníelsdótt- ir. Fjórða ballettinn, Talað við glugga, samdi Guðrún Pálsdóttir við tónlist eftir Bubba Morthens. Dans- arar eru Brynja Scheving Heimis- dóttir, Hrefna Björk Hallgrímsdóttir, Fanney Magnúsdóttir, Katrín Ingva- dóttir og Jarþrúður Guðnadóttir. Fimmti og síðasti ballettinn heitir Árstíðirnar. Dansinn samdi Ingibjörg Björnsdóttir og tónlistina Atli Heimir Sveinsson fyrir barnaleikritið Dim- malimm. Þær Brynja Vífilsdóttir, Helena Jónsdóttir, Þóra Katrín Gunnarsdóttir og Ánna María Pitt dansa hlutverkin Vetur, Sumar, Vor og Haust, en alls taka 53 tilvonandi ballettdansarar þátt í þeirri sýningu. Ljósahönnuður sýningarinnar er Ásmundur Karlsson og sýningar- stjóri er Kristín Hauksdóttir. HELGARFERÐIR FUJG • SIGUNG • GISTING Flug til Helsinki, með siglingu til Stokkhólms og til baka. * Verð miðast við einstakling í 2ja manna klefa í 2 nætur og á hóteli í 2 nætur. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. FLUGLEIÐIR Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju, Kringlunni og Leifsstöð. Upplýsingar og farpantanir í síma 25 100.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.