Morgunblaðið - 04.06.1989, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.06.1989, Blaðsíða 32
32 -C -MOEGUNHLAÐia SUNNUIÍAGbRU.: JÚNt 1389. - Eba var hann skotinn nibur 1941 og tvífari hans veginn í Spandau? SÍÐAN RUDOLF HESS, staðgengfill Hitlers, lézt í Spandau-fangelsi í hitteðfyrra hefur því verið haldið fram að hann hafi verið myrtur, en ekki framið sjálfsmorð, eins o g brezk heryfirvöld í Berlín tilkynntu á sínum tíma. Brezkur læknir, Hugh Thomas (ekki sagnfræðingurinn), hélt þessu meðal annars fram í bók, sem hann sendi frá sér í fyrra, A Tale ofTwo Murders, og ásakanir hans voru endurteknar í fréttaþætti í BBC í lok febrúar sl. Eftir að sá þáttur var fluttur staðfesti brezka lögreglan að hún væri að kynna sér þessar fúllyrðingar, en varðist allra frétta. ■■ ERLENDH HRlNCSffl eftir Gubm. Halldórsson Hugh Thomas, sem var herlæknir í Berlín á síðasta áratug og skoðaði Hess á þeim árum, telur ekki einungis að fanginn í Spandau hafi verið myrtur — hann segir full- um fetum að fanginn hafí alls ekki verið Rudolf Hess, heldur tvífari hans. Fyrstu ásakanir hans komu fram í bókinni Morðið á Ru- dolf Hess 1979 og nú virðist einnig verið að rannsaka þær. Samsæri gegn Hitler? Bretar tóku Hess til fanga í maí 1941 þegar hann hafði varpað sér til jarðar í fallhlíf í Ayrshire í Skot- iandi. Tilgangur hans virtist vera sá að semja frið við Breta áður en Þjóð- veijar réðust inn í Sovétríkin. Hugh Thomas heldur því hins vegar fram að hinn raunverulegi Hess hafi verið skotinn niður i flugvél yfir Norð- ursjó og tvífari hans hafi farið í gervi hans og verið sendur til Bret- lands í hans stað, Hann telur að Heinrich Himmler hafi látið skjóta Hess niður og að það hafí verið liður Flugvélarf lakið í Skotlandi: „tvífari sendur í staðinn fyrir Hess. í ráðabruggi um að hann tæki við af Hitler og semdi sérfrið við Breta. Aðdragandi flugferðarinnar var mjög einkennilegur og Hugh Thom- as taldi upplýsingar sínar staðfesta að hinn raunverulegi Hess hefði aldr- ei farið til Bretlands. Hann kvað ljós- myndir sýna að flugvélin, sem Hess fór með, hefði ekki verið með elds- neytisgeyma undir vængjunum, eins og flugvélin sem kom til Skotlands. Hann hélt því einnig fram að jafn- vel þótt slíkum geymum hefði verið komið fyrir á vél Hess hefði hún ekki haft flugþol til að komast til Skotlands. Þá kvað hann ratsjárupp- lýsingar hafa sýnt að flugmaðurinn hefði ekki flogið þá leið, sem hann sagðist hafa flogið. Nú, 10 árum eftir að bók Hugh Thomas um „morðið á Rudolf Hess“ kom út, virðast sérfræðingar brezka flughersins hins vegar hafa fullviss- að sig um að flugþol flugvélarinnar, sem Hess fiaug með, hafí verið nógu mikið til þess að hann hafí getað náð til Skotlands að sögn sagnfræð- ingsins M.R.D. Foots í ritdómi um síðari bók Hugh Thomas. Aðrar Hess fyrir brottförina frá Ágsborg: var hann skotinn niður yfir Norðursjó? upplýsingar Thomas um flugferðina hafa verið dregnar í efa, þótt enn sé margt á huldu um för Hess, ekki sízt vegna þess að skjöl um hana hafa ekki fengizt birt. Dularfull ör Önnur helzta röksemd Hughs Thomas er sú að hinn raunverulegi Hess hafi borið ör eftir skot gegnum lungun í orrustu 1917, en enginn slík örþafi verið að finna á mannin- um í Spandau, eins og hann hafí sjálfur gengið úr skugga um. Franskur fangelsisprestur, sem ræddi við Hess á laun í Spandau, Charles A. Gabel, er hins vegar á öðru máli samkvæmt bók, sem kom út í París í fyrra, Conversations int- erdites avec Rudolf Hess. Þar segir hann að tveir læknar Bandamanna hafi heimsótt Hess eftir að fyrri bók Hugh Thomas kom út 1979 og fund- ið örin, þótt það hafi verið erfítt. Thomas hélt því líka fram að fang- inn í Bretlandi og Spandau hefði verið óheflaður kjáni, en hinn raun- verulegi Hess greindur, kurteis og fágaður. Gabel er ekki sammála dómi hans um fangann og heldur ekki fær vestur-þýzkur blaðamaður, Wolf Schwarzwáller, höfundur bók- ar um Hess, sem kom út í enskri þýðingu i fyrra. Gabel komst að raun um að fanginn í Spandau var velies- inn og velgreindur. Schwarzwáller segir einnig að hann hafí verið greindur vel og gefur skýringar á undarlegri framkomu hans í fangels- Schwarzwáller telur útilokað að Hess hafí farið til Skotlands án sam- þykkis Hitlers og segir eðlilegt að leyfíð hafí verið munnlegt, en ekki skriflegt. Að dómi Schwarzwállers urðu Hess og Hitler sammála um að Hess skyldi afgreiddur sem geð- sjúklingur, ef tilraunin til að semja frið við Breta færi út um þúfur. Þetta skýri alls konar sérvizku Hess í fangelsinu. Thomas telur aftur á móti að sér- vizka „fangans nr. 7 í Spandau" hafí stafað af því að hann hafi viljað dylja fortið sína. Thomas nefnir til dæmis að fanginn neitaði að hitta konu sína, Ilse, og einkason sinn, Wolf-Riidiger, í rúm 20 ár, borðaði alls konar mat, þótt hann hafí verið grænmetisæta fyrr á árum, virtist ekki kunna tennis þrátt fyrir leikni í þeirri íþrótt fyrir stríð og kannað- ist ekki við ritara sinn í stríðsglæpa- réttarhöldunum í Niimberg 1946. Einnig hélt Hugh Thomas því fram að maðurinn, sem kom til Skot- lands, hefði ekki borið skilríki og verið í öðru vísi einkennisbúningi en

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.