Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 35
35 MÖRGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JUNÍ 1989 Minning: Ingibjörg Sumarliða dóttirfrá Valshamri Fædd 3. desember 1899 Dáin 3. júní 1989 í dag er til moldar borin frá Fossvogskirkju sæmdarkonan Ingi- björg Sumarliðadóttir. Ingibjörg var gjarnan kennd við bæinn Vals- hamar í Geiradal, en þar ól hún mestan sinn aldur. Ingibjörg var orðin háöldruð er hún kvaddi þennan heim og langur dagur að baki, sem hefur skilað miklu í rann þeirra, er nú eru fullir saknaðar. Ingibjörg var mannkostakona og bjó yfir einstakri stefnufestu og þolgæði, sem entist henni allt fram á hinstu stundu. í mörgu barðist hún áfram með vindinn í fangið og hennar heita trú og ákveðna af- staða með krossi Jesú Krists gerði veg hennar oft torfarinn, en hjá henni var ekki að finna hik eða undanslátt, enda var hún einlæg og taugin er tengdi hana við frels- ara hennar var sterk. Ingibjörg var orðinn fullorðin kona, þegar ég kynntist henni og manni hennar, Karli Guðmunds- syni, sem dó fyrir nokkrum árum, en ég er þakklátur fyrir þann sterka vitnisburð sem hennar líf og fram- ganga öll hefur verið mér og mínu húsi. Það er löstur í landi okkar hversu skilin eru mikil á milli þeirrar kyn- slóðar sem er að fara og þeirra, sem er að koma. Það vill gjarnan verða að gamla fólkið einangrast og sá mikli Tjársjóður reynslunnar, sem það býr yfir, verður ekki öðrum að veganesti. Slíkt er ekki þar sem Ingibjörg átti í hlut. Hún var sístarf- andi og vökul augu hennar fylgdust með börnum og barnabörnum og barnabarnabörnum og hún tók full- an þátt í lífi þeirra og starfi eins og hún hafði þrótt og getu til. Til að þetta gæti orðið var hún borin á kærleiksörmum á heimili dóttur sinnar og tengdasonar á Svalbarði 12 í Hafnarfirði. Hjá Rúti og Siggu hafði hún þann sess sem ber konu, sem hefur lagt sig alla fram um langa ævi öðrum til blessunar og farsældar. Ingibjörg átti sitt andlega heim- ili hjá okkur hér i Krossinum í Kópavogi um nokkurt skeið og það má með sanni segja að líf hennar var vitnisburður og fordæmi fyrir alla. Þrátt fyrir háan aldur og las- burða líkama var hugur hennar og andi að starfi og hún leitaði ætíð fram og höndlaði meira í samfélag- inu við Drottin. Margur gæti ætlað að kona kom- in á efri ár, sem hefur gengið með Guði meginþorra ævi sinnar, hefði tekið út allan sinn þroska, en svo var ekki; hún hélt áfram að drekka af þeim nægtarbrunni sem er að finna í samfélaginu við Drottin Jes- úm Krist og aldrei verður þurraus- inn og var þannig öðrum til eftir- breytnj og ábendingar um að á göngunni með Guði er engin stöðn- un, heldur verður dýrðarljóminn æ meiri þeim mun nær sem dregur endalokunum. Á þessari stundu er þakklæti efst í huga mínum fyrir konu sem var góð amma konunnar minnar, góð langamma barnanna minna, trúarhetja og stólpi í söfnuði Guðs. Megi minning Ingibjargar Sum- arliðadóttur lengi lýsa. Gunnar Þorsteinsson Ingibjörg Sumarliðadóttir fædd- ist að Bakka í Geiradal. Foreldrar hennar voru Jóhanna Friðrikka Loftsdóttir og Sumarliði Guð- mundsson, póstur frá Krossfjarðar- nesi, austur á Bíldudal. Fyrstu hjú- skaparárin bjuggu foreldrar Ingi- bjargar í Geiradal en fluttu svo á Borg í Reykhólasveit og þar ólst Ingibjörg upp. Tæplega tvítug að aldri hélt hún til Reykjavíkur þar sem hún stundaði nám við Kvenna- skólann í tvo vetur og reyndist af- burða góður nemandi. Að námi loknu starfaði hún við kennslu í nokkur ár. Veturinn 1947—48 stundaði hún nám við handavinnu- deild Kennaraskólans og fékk J)ar réttindi til handavinnukennslu. Árið 1925 giftist Ingibjörg Guðmundi Karli Guðmundssyni frá Arnkötlu- dal í Strandasýslu en hann lést árið 1982. Þau bjuggu fyrstu 2 árin á Patreksfirði og þar eignuðust þau tvíburana Guðmund og Loft, en Loftur lést aðeins 2ja sólarhringa gamall. 1928 fluttust þau að Borg og þar fæddist Jóhanna 1928, Guð- björg fæddist að Valshamri 1929 og Sigríður að Borg 1934 en þar bjuggu Ingibjörg og Guðmundur Karl á meðan þau unnu að upp- byggingu á Valshamri, en þar bjuggu þau síðan allan sinn bú- skap, liðlega 40 ár. Það var gestkvæmt að Valsham ri og oft þröngt setið. Foreldrar Ingibjargar og 2 önnur gamalmenni bjuggu hjá þeim í mörg ár og nutu þau hjónin þá hjálpar Þóreyjar, systur Ingibjargar, við umönnun þeirra. 1969 brugðu þau hjónin búi og fluttu til Jóhönnu dóttur sinnar í Hafnarfírði, þar sem þau bjuggu í 1 ár en þá keyptu þau hús á Strandgötu 35b í Hafnarfirði. Þau bjuggu þar til ársins 1978, en þá fluttu þau til Sigríðar, dóttur sinnar, og Rúts þar sem þau voru sín síðustu æviár. Yngri kynslóðir ræða gjarnan um eldra fólkið sem svo gott og elsku- . ríkt. Oft heyrast setningar sem þessar: „Hún amma, hún er svo góð“ — „afi var alveg yndislegur maður“ — „þau voru svo trúuð.“ Staðreyndin er sú að í flestum til- fellum má greina einhveija snert- ingu þessa aldraða fólks við kristna trú og verðmætamat. Án kristninn- ar dvínar fegurð mannlífsins og verðmætamatið breytist til hins verra. — Ingibjörg hafði ekki aðeins einhverja snertingu við kristna trú, hún helgaði líf sitt allt Kristi og ríki hans. Hvar sem hennar naut við geislaði hún anda Krists, kær- leika hans, hlýju og þjónustulund. Hún var ekki fjarlægur vitnisburður um Jesú Krist, heldur var líf henn- ar þannig að það smitaði allt og alla í kring. Það sést best á hennar nánustu, sem flestir hafa einnig fetað veg trúarinnar og líf allrar fjölskyldunnar ríkti af því sem ein- kenndi hana sjálfa. Þetta sáum við vel og sjáum, þó svo við hefðum ekki þekkt Ingibjörgu í mjöglangan tíma. Við minnumst og geymum með okkur þau ljóð sem hún orti og blessaði fólk með. Við minnumst þeirra stunda sem við áttum með henni á heimili þeirra Rúts og Siggu þar sem Ingibjörg bjó til síðasta dags hér á jörðu. Við lásum og ræddum orð Drottins, áttum bæna- stundir saman og það fór ekki fram- hjá okkur að við vorum í návist guðskonu. Þér finnst kannski, les- andi góður, að nú sé nóg komið af lofræðunni og að svona fólk finnist nú varla. Jesús sagði „Af ávöxtun- um skuluð þið þeklq'a þá“ og Ingi- björg bar þennan ávöxt trúarinnar þannig að allir sáu sem til þekktu. Við biðjum Föðurinn að blessa ykk- ur sem misst hafið og heilagan anda að hugga þá sem söknuðinn finna. Ingibjörg er ekki dáin, hún er horfin úr húsi þvi sem hún lifði í hér á jörð, en hún lifir, því Drott- inn Kristur lifir. Halldór og Arný Þegar ég sest niður og festi á blað nokkur minningabrot við æfi- lok Ingibjargar Sumarliðadóttur, verða fyrst fyrir orð manns sem ferðast hafði mikið um landið og veitt athygli náttúrufegurð ein- stakra staða og byggðarlaga, en hann sagði að innsveit Reykhóla- hreppsins væri fallegasta sveit á íslandi. Þar er ég honum fyllilega sammála að öðru leyti en þvi, að ég vil láta þessi fallegu ummæli ná yfir Reykhólasveit alla, að Geiradal meðtöldum. Á þessu svæði sem löngum var skipt í tvo hreppa er náttúrufegurð slík að nánast hvert einasta bæjarstæði er stórkostlegt. Ingibjörg var dóttir þeirra gagn- merku hjóna Jóhönnu Loftsdóttur og Sumarliða Guðmundssonar pósts en þau bjuggu lengst á Borg í Reyk- hólasveit. Ekki ætla -ég mér þá dul að geta sagt um hver áhrif það hefur á lífsstíl fólks, sem elst upp í slíku umhverfi sem áður getur. Ingibjörg átti góða foreldra og eitt er víst að nefnd byggðarlög vestra áttu í henni mikil ítök. Ingibjörg Sumarliðadóttir giftist athafnarmanninum Karli Guð- mundssyni og fluttu þau að Vals- hamri í Geiradal á fyrstu hjúskap- arárum sínum. Karl er látinn fyrir nokkrum árum síðan. Þau eignuð- ust fimm börn og lifa fjögur þeirra foreldra sína, einn drengur dó í frumbernsku. Á Valshamri var starfsvettvang- ur Ingibjargar um áratuga skeið. Þar var hún hin sanna húsmóðir. Öll umsvif heimilisins virtust húsfreyj- unni á Valshamri leikur einn, þar með talið uppeldi barnanna. Ég kom að Valshamri Ijórtán ára gamall og var þar mikinn partinn úr þremur árum hjá þeim Ingi- björgu og Karli. Taldi mig þá þegar vera þar á góðu heimili enda heimil- isbragur allur til fyrirmyndar. í tíð Ingibjargar var ætíð margt manna á Valshamri. Á dvalarárum mínum þar vorum við sex óviðkomandi manneskjur til heimilis þar, sem sagt tólf manns í heimili. Ékki ætla ég að hallmæla þessu vandalausa fólki sem ég var samtíða á Vals- hamri svo andstætt sem það væri minningu Ingibjargar. Ég minnist þess alls með góðum hug, en það gefur að skilja að mikið álag hefur það verið húsmóðurinni að sjá svo um að öllu þessu fólki liði vel og væri jafn ánægt og raun bar vitni. Vetrarkvöldin á Valshamri voru löng, svo sem annarsstaðar inn til dala á íslandi, en húsmóðirin réði yfir hæfileikum til að koma af stað sameiginlegri glaðværð sem bægði myrkri og hríðarbyljum frá hugum manna. Meðal þess vandalausa fólks sem áður er nefnt voru tvær konur á áttræðis og níræðis aldri. Til dæm- is um það hve tillitssöm og góð Ingibjörg var þessum konum þá hjálpaði hún þeim hvorri fyrir sig til að halda heimilisfólkinu veislu oftar en einu sinni á vetri. Þá var á borðum súkkulaði og kaffi ásamt alls kyns meðlæti en sú sem fyrir taldist hveiju sinni lagði til veislu- föngin eftir efnum og ástæðum og réð um alla tilhögun. Þriðja konan, þó hún væri mun yngri, hafði einnig sama sið. Hús- móðirin sem venjulega stjórnaði af mikilli röggsemi, þó alla tíð án há- vaða, var á þessum veislukvöldum aðeins lipur aðstoðarmanneskja og ég þori að fullyrða að þessi tilbreyt- ing var Ingibjörgu ekki minni gleði en gömlu konunum og öðru heimil- isfólki. Þess ber að geta að á þessum árum sem ég var á Valshamri er Ingibjörg aðeins á fertugs aldri og átti eftir að vinna mikið að líknar- störfum á heimilinu. Ingibjörg Sumarliðadóttir var sannkölluð fyrirmyndar manneskja sem grundvallaðist á stórum, áber- andi einkennum. Engri manneskju sem ég hefi þekkt hafa þessi ein- kenni farið jafn vel og henni. Hún var skapstór en kunni svo vel með að fara að það voru henni hreinustu töfrar. Ingibjargar frá Valshamri er gott að minnast og kemur þá aftur upp í huga minn náttúrufegurð byggðarlaganna hennar fyrir vest- an. Blessuð sé minning hennar. Júlíus Þórðarson Hún lést að morgni 3. júní á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði eftir stutta legu þar. Við höfum öll misst mikið og hennar nánustu þó mest. Hún var svo heil og trúföst í öllu sínu lífi og starfi í gegnum árin. Hún var fjölhæf til munns og handa. Ljóðagerð hennar, og þá sérstak- lega er hún minntist látinna vina, á sér engan samjöfnuð. Þannig mætti margt upp telja en ég læt öðrum það eftir. Margs er að minn- ast og margt að þakka þegar ég lít til baka og hlugleiði hálfrar ald- ar kynni mín af Ingibjörgu Sumar- liðadóttur. Það er mikið happ að fá að kynnast slíkri manneskju og að eiga hana að vini. Þegar Jesús Kristur kallaði hana til fylgis við sig var það hennar gæfa að taka því boði af þakklátum og einlægum huga og þar var enginn nafnkristni á ferð, hún fann og skildi að með því að játa Jesúm Krist sem frels- ara sinn hlaut það að kosta daglegt líf í anda hans, sem henni var svo ljúft að uppfylla. Og eins og fleir- um, sem hafa þegið þessa stórkost- legu gjöf — frelsið í Jesú Kristi — nægði henni ekki að sitja þar ein að. Hún þráði að sem flestir nytu þeirra náðar sem hún. Hún var mikil bænarkona og hennar bænir voru heyrðar og nutu þar margir góðs af. Hún vissi að sá sem biður og vill auðmýkja sig frammi fyrir Guði fær svar, hún vissi líka að Guð er hinn trúfasti Guð, sem held- ur sáttmálann og miskunnsemina í þúsund ættliði við þá, sem elska hann og varðveita boðorð hans. Við sem þekktum Ingibjörgu Sumar- liðadóttur, Jóhönnu móður hennar og annað skyldfólk, og svo börn hennar og alla þeirra afkomendur, sem feta í fótspor móður og ömmu, höfum séð að Biblían hefur svör við öllum þörfum mannsins. Hún las mikið í bók bókanna og sótti þang- að styrk og fróðleik, sem ekki sveik. Ég á Ingibjörgu heitinni mikið að þakka, mitt líf hefði orðið snauðara hefði ég ekki kynnst henni, Karli, eiginmanni hennar, og þeirra börn- um. Ég gat sótt til hennar ráðlegg- ingar við ýmsum vanda, sem oft vill steðja að, og alltaf var hún hinn trausti og sanni ráðgjafi. Ég þakka allar samverustundirnar á heimili hennar, bama hennar og þeirra maka þær stundir gleymast ekki. Og nú síðustu árin er hún var aldur hnigin og sjúk á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, Sigríðar og Rúts, það var stórkostlegt að sjá hversu þau önnuðust hana af kær- leika og hlýju, og eins var samband- ið við hin bömin, tengdabörnin og bamabörnin, maður bókstaflega fann fyrir nærvem Guðs. Ingibjörgu tók það sárt er hún varð þess vör að samferðamennirnir færa villir vegar. Hún gróf ekki sitt pund, hún var á verði að áminna og leiðbeina og benda á hið eina sanna ljós, sem lýsir jafn vel þótt farið sé um dimma dalinn. Hún var svo heil og sönn í trú sinni og þjónustu, óþreytandi að benda á hinn stærsta sannleik. Nú er hún horfin okkur en minningin um góða og göfuga konu lifir. Innilegar samúðarkveðjur og blessunaróskir til barna hennar tengdabarna og bamabamanna. Að lokum þetta, eins og segir í II Timóteusarbr. 4.k.: Þú hefur barist góðu baráttunni, hefir fullnað skeið- ið, hefir varðveitt trúna. Og nú er þér geymdur sveigur réttlætisins, sem Drottinn mun gefa þér á þeim degi. Hann, hinn réttláti dómari. En ekki einungis þér heldur og öll- um, sem elskað hafa opinberun hans. Blessuð sé minning hennar. Unnur Guðmundsdóttir t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTJÁNS LUNDBERGS, Neskaupstað. Þorsteinn Kristjánsson, Björk Aðalsteinsdóttir, Sigurbergur Kristjánsson, Hafrún Kristjónsdóttir, Jóhann Kristjánsson, Ólöf Sigurðardóttir, Kristján Örn Kristjánsson, Aðalbjörg Einarsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, ömmu og langömmu, GUÐNÝAR ÓLAFSDÓTTUR, frá Sellátrarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahúss Patreksfjarðar fyrir góða hjúkrun og hlýhug í hennar garð. Una Sveinsdóttir, Ólafur Sveinsson, börn og barnabörn. Lokað Lokað í dag, miðvikudaginn 14. júní, frá kl. 13.00 vegna útfarar VALDIMARS JÓNSSONAR. Erlendur Blandon & Co., Skútuvogi 10F. Lokað Lokað í dag, miðvikudaginn 14. júní, vegna út- farar VALDIMARS JÓNSSONAR. K. Þorsteinsson hf., Skútuvogi 10E.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.