Morgunblaðið - 21.06.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.06.1989, Blaðsíða 1
48 SIÐURB STOFNAÐ 1913 137. tbl. 77. árg. MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovéskt farþegaskip rekst á lagnaðarís við Svalbarða: Skipverjar berjastvið að halda Maxíni Gorkíj á floti Rúmlega 600 farþegar heilir á húfi effcir velheppnaðar björgunaraðgerðir Maxím Gorkíj rekst á ísjaka Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgtinblaðsins. Reuter. SOVÉSKA skemmtiferðaskipinu Maxím Gorkij var haldið á floti við Svalbarða með dælum í gærkvöldi eftir að hafa rekist á lagnaðarís um 150 sjómílur (280 km) suðvestur af eyjaklasanum aðfaranótt þriðju- dags. Skipið var í hringferð um Norðurhöf og lagði upp frá Akureyri á laugardag áleiðis til Svalbarða. Um borð var 379 manna áhöfii og 611 farþegar, flestir rosknir Vestur-Þjóöverjar, sem stigið höfðu um borð í Hamborg og voru á vegum ferðaskrifstofii sem leigði skipið. Er neyðarkall barst hófust umfangsmiklar björgunaraðgerðir. Norska gæsluskipið Senja kom á staðinn fjórum klukkustundum eftir slysið og bjargaði öllum farþegunum ásamt hluta áhafnarinnar. Lasburða fólk var flutt til Longyearbæjar með þyrlu. r500 km / í? r?'\4/6 •<sf Edinborg — 713/6’ fcHamborg 11/6 Slysið varð um hálfeitt-leytið á aðfaranótt þriðjudags og var Maxím Gorkíj þá á 17 sjómílna hraða. Skyggni var slæmt. Hiti var um frostmark á slysstaðnum, rigning og þoka, og fólkið yfirleitt lítt klætt, margir | náttkiæðunum einum. Flestir urðu að hírast í nokkrar stundir í björgunarbátum; allmargir úti á ísnum nokkra hríð, áður en Norðmennimir komu á vettvang. Skipverjar á Maxím Gorkíj reyndu að fylla upp í tvær miklar rifur á stjórnborðskinnungi skipsins með steypu og skipstjórinn taldi góðar horfur á að Maxím Gorkíj yrði bjarg- að. „Fyrst héyrðum við skell og sker- andi ískur , rétt á eftir heyrðum við í aðvörunarblístrunum," sagði einn farþeganna, Marianne Finne. Far- þegum var þegar skipað upp á þilfar og sagt að setja á sig björgunar- vesti. Skömmu síðar var þeim sagt að fara í björgunarbátana enda þá ljóst að mikill leki var kominn að skipinu. „Það var mjög kalt, ekki beinlínis hvasst, en rigning," sagði Finne. „Skipið hafði slagsíðu á stjórnborða og bógurinn reis hátt í loft upp.“ Hún sagði að nokkurs rugl- ings hefði gætt er ákveða skyldi í hvaða bát hver skyldi fara en örvænt- ing hefði ekki gripið um sig. Aldrað- ur farþegi lýsti því hvemig hann varð að bíða í björgunarbát, sem á íslandi MAXIM Gorkíj kom við á ís- landi áður en lagt var upp í siglinguna örlagaríku. Skipið lá í Sundahöfti sl. föstudag og hélt síðan til Akureyrar þar sem höfð var viðdvöl á 17. júní. Frá Akureyri hélt Maxim Gorkíj áleiðis til Svalbarða á laugardagskvöld eftir að nær 500 farþegar höfðu skoðað sig um á íslandi. Samkvæmt upp- lýsingum Ólafíu Sveinsdóttur hjá ferðaskrifstofunni Atlantik hafa margir íslendingar siglt með skipinu, einkum í suður- höfum á veturná. Sjá nánar um ferð Maxims Gorkíj til íslands á bls. 21. Reuter Norsk björgunarþyrla býr sig undir að bjarga farþegum úr björgunarbátum skemmtiferðaskipsins Maxíms Gorkíjs sem sjást innan um ísspangirnar. Bush grípur til refsiað- gerða gegn Kínverjum Peking. Reuter, Daily Telegraph. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti batt í gærkvöldi enda á sam- skipti aeðstu embættismanna Bandaríkjanna við kínversk sljórn- völd. Aður hafði hann hvatt Kínverja til þess að milda dauðadóma yfir ellefú kínverskum andófsmönnum og Javier Perez de Cuellar, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sendi Kínverjum sams Þyrlur og flugvélar sveima yfir sovéska skemmtiferðaskipinu Maxím Gorkíj sem rakst á ísspöng um 150 sjómílur suðvest- ur af Svalbarða skömmu eftir miðnætti á aðfaranótt þriðju- dags. hékk utan á skipssíðunni, í tvær stundir þar sem ísinn við skipið var svo mikill að ekki var hægt að láta bátinn síga. Hann gagnrýndi út- búnaðinn í bátnum og sagði að ekk- ert drykkjarvatn hefði verið í honum en nóg af áfengi. Farþegarnir og norsku björgunarmennimir báru þó sovésku áhöfninni vel söguna og sögðu að henni hefði að mestu tekist að koma í veg fyrir óþarfa hræðslu. TASS-fréttastofan sovéska sagði í gærkvöldi að áhöfn skemmtiferða- skipsins ætti enn í erfiðleikum en staðan væri „ekki vonlaus." Mjög hefði bætt úr að fá tvær öflugar dælur en skipveijar hefðu framan af aðeins haft eina dælu. Fréttastof- an sagði sovésk og norsk skip ásamt þyrjum aðstoða við björgunarstarfið. Enn er óljóst hvað olli slysinu en Maxím Gorkíj hefur um árabil farið í hringferðir til landa við Norður- Atlantshaf og er áhöfnin því vön að kljást við ísrek. Skipið er ekki styrkt sérstaklega til siglinga í ís en tals- maður skipaeftirlits í Hamborg segir það auðveldlega eiga að geta þolað að rekast utan í lagnaðarís sem þarna er að líkindum 2-3 metra þykkur. Þær upplýsingar fengust hjá Veður- stofu Islands að vestan- og suðvest- anátt hefði verið ríkjandi óvenju lengi á þessum slóðum og því væru dreifar af lagnaðarís mjög austarlega miðað við árstíma. Sjá ennfremur bls. 21: „Þúsund manns í sjávarháska ...“ konar askorun. „Forsetinn gaf í dag fyrirmæli um að endi yrði bundinn á sam- skipti æðstu embættismanna Bandaríkjanna við leiðtoga Al- þýðulýðveldisins Kína,“ segir í yfir- lýsingu frá Hvíta húsinu í Wash- ington. í þessu felst meðal annars að heimsókn Roberts Mosbachers, viðskiptaráðherra Bandaríkj anna, sem átti að heíjast 10. júlí, verður aflýst. „Gripið er til þessara aðgerða til að mótmæla harðneskjulegum hefndaraðgerðum kínverskra stjórnvalda gegn þeim sem barist hafa fyrir lýðræði í Kína,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni. Þar kemur einnig fram að Bandaríkja- stjórn hyggst beita sér fyrir því að alþjóðlegar fjármálastofnanir fresti ákvörðunum um frekari lán til Kínveija um óákveðinn tíma. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta, hafði áður skýrt frá því að Bush hefði afhent kínverska sendiherranum í Banda- ríkjunura áskorun um að dauða- dómarnir yfir ellefu kínverskum andófsmönnum yrðu mildaðir. Hann sagði að dómarnir gætu „að- eins ýft upp sár undanfarinna vikna“. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna sagði að de Cuellar hefði „af mannúðarástæðum“ einnig farið þess á leit við kínversk stjórn- völd að dómarnir yrðu mildaðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.