Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.06.1989, Blaðsíða 4
4 MÍÍRGlMBLAÐIÐ1 FÖSTÚDÁGÍjá 2Í3. JÓNÍ 1Ö891 Sr. Olafur Skúlason settur inn í embætti biskups Islands á sunnudag NÝKJÖRINN biskup íslands, sr. Ólafur Skúlason, verður settur inn í embætti við guðsþjónustu í Dómkirkjunni í Reykjavík á sunnudag, 25. júní, kl. 10.30. Athöfnin hefst með skrúðfylkingu presta frá Alþingishúsi og verða flestir prestar landsins viðstaddir. Allmargir erlendir gestir verða við athöfnina. Frá Alkirkjuráðinu kemur Jean Stromberg, aðstoðarfram- kvæmdastjóri þess, frá Lútherska heimssambandinu dr. Erica Reichl, yfirmaður guðfræðideildarinnar þar. Biskupar koma frá Norðurlanda- kirkjunum, Christian Mörch frá Grænlandi, Eivind Vilhelm frá Fær- eyjum, Karl Gunnar Grape frá Svíþjóð, Frederik Grönningsæter frá Noregi, Herluf Eriksen frá Dan- mörku og Kalevi Toiviainen frá Finn- landi. Frá Lúthersku kirkjunni í Vesturheimi kemur Stefan biskup Guttormsson og Michael Hunter pró- fastur í Grimsby er fulltrúi erkibis- kupsins í Kantaraborg. Þá verður viðstaddur athöfnina Francis Step- hanos forseti Mekane Yesus-kirkj- unnar í Eþíópíu, en einmitt þar hafa íslendingar annast kristniboð um áratuga skeið. Við guðsþjónustuna mun kór Bú- staðakirkju, undir stjóm Guðna Þ. Guðmundssonar, frumflytja verk eft- ir Jón Ásgeirsson, sem hann tileinkar nýjum biskupi íslands og er við 33. vers í 119. sálmi Davíðs. Dómkórinn og Marteinn H. Friðriksson dómorg- anisti annast annan tónlistarflutning við guðsþjónustuna. Herra Pétur Sigurgeirsson annast altarisþjónustu ásamt Ólafi biskupi, sr. Hjalta Guðmundssyni dómkirkju- presti og sr. Jóni Einarssyni pró- fasti. Ritningarlestur annast sr. Áuð- ur Eir Vilhjálmsdóttir, sr. Guðmund- ur Þorsteinsson dómprófastur og sr. Sigurður Guðmundsson vígslubisk- up. Síðdegis á sunnudag verður bisk- upshjónunum Ebbu Sigurðardóttur og Olafi Skúlasyni fagnað með há- tíðartónleikum í Hallgrímskirkju. Þar flytja kór Bústaðakirkju, einsöngvar- ar og hljóðfæraleikarar ýmis kirkju- leg verk undir stjórn Guðna Þ. Guð- mundssonar. Tónleikarnir hefjast kl. 16.00 og eru allir velkomnir. Opna Kaupmannahafiiarmótið: Islendingum gengur sæmilega KARL Þorsteins er með 3 'Avinning eftir 5 umferðir í opna Kaup- mannahaftiarmótinu í skák, og Jóhannes Ágústsson er með 3 vinn- inga. Efstu menn eru með 4 vinninga. Karl gerði jafntefli við Bellin frá inga. Englandi í 4. umfer og Jóhannes 10 umferðir eru á mótinu og vann pólska alþjóðameistarann Ad- þarf líklega 6 vinninga til að ná amski. í 5. umferð unnu Karl og áfanga að alþjóðlegum meistaratitli Jóhannes báðir stigalága andstæð- og 8 vinninga í stórmeistaraáfanga. VEÐURHORFUR í DAG, 23. JÚNÍ YFIRLIT í GÆR: Skammt suðaustur af Jan Mayen er 998 mb lægð sem þokast austur og hæðarhryggur er yfir Grænlandi, einnig á leið austur. Fremur svalt verður í veðri, einkum norðanlands. SPÁ: Norðvestan 2—3 stig víðast hvar á landinu. Skýjað með köfl- um eða léttskýjað og þurrt að mestu. Hiti 6—17 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Austan og suðaustan átt. Skýjað að mestu um land allt. Rigning við suður- og austurströndina, annars úrkomulítið. Hiti á bilinu 8—15 stig. HORFUR Á SUNNUDAG: Norðaustan átt. Víða rigning eða súld á Norður- og Austurlandi, en þurrt og víða þjart veður á Suður- og Vesturlandi. Hiti 7—14 stig. TAKN: Heiðsk/rt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað A Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * -| 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V E' = Poka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyrl 6 skýjað Reykjavík 10 skúr Bergen 16 léttskýjað Helsinki 25 léttskýjað Kaupmannah. 25 léttskýjað Narssarssuaq 9 léttskýjað Nuuk 1 þoka Ósló 26 skýjað Stokkhólmur 25 léttskýjað Þórshöfn 10 alskýjað Algarve vantar Amsterdam 21 rigning Barcelona vantar Berlín 26 skýjað Chicago 22 mistur Feneyjar 24 þokumóða Frankfurt 22 skýjað Glasgow 17 léttskýjað Hamborg 25 skýjað Las Palmas vantar London 16 skýjað Los Angeles 17 þokumóða Lúxemborg 11 þrumuveður Madrfd vantar Malaga vantar Mallorca vantar Montreal 24 skýjað New York 20 þoka Orlando 23 hálfskýjað Parls vantar Róm 25 hálfskýjað Vín 24 skýjað Washington 23 þokumóða Winnipeg vantar Morgunblaðið/Einar Falur Sr. Jónas Gíslason prófessor og nýtilnefndur vígslubiskup Skálholts- biskupsdæmis ásamt eiginkonu sinni Arnfríði Arnmundsdóttur. Sr. Jónas Gíslason prófess- or tilneftidur vígslubiskup SR. JÓNAS Gíslason prófessor, hefur verið tilnefiidur vígslubiskup í Skálholtsbiskupsdæmi og verður hann vígður á Skálholtshátíð 23. júlí næstkomandi. „Efst í huga er þakklæti til þeirra að ég fái að þjóna kirkjunni áfram sem hafa sýnt mér það traust og eins og hingað til,“ sagði Sr. Jónas tilnefnt mig vígslubiskup. Ég vona Gíslason. Fyrir liggur frumvarp um að stofnað verði embætti biskupa í Hólabiskupsdæmi og Skálholsbisk- upsdæmi undir stjórn biskupsins yfir íslandi. Sagðist Sr. Jónas vera tilbúínn til að setjast að í Skálholti ef að til þess kæmi. Á kjörskrá voru 109 en 104 tóku þátt í tilnefningunni. Sr. Jónas Gíslason, hlaut 38 tilnefningar, Sr. Sigurður Sigurðarsson 32 tilnefn- ingar, Sr. Sváfnir Sveinbjarnarson 28 tilnefndingar, Sr. Guðmundur Óli Ólafsson 3 tilnefningar og þau Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir og Sr. Heimir Steinsson eina hvert. Enginn flýr örlög sín TVÆR stúlkur á fjórtánda ári voru staðnar að því að hnupla bók í einni af verslun- um Hagkaups í Reykjavík nýlega. Þjófnaðurinn var kærður til lögreglu sem tók telpurnar til yfírheyrslu en bókin, sem heitir „Enginn flýr örlög sín“, er að nýju komin í hillur verslunar- , innaí. Olís: Kyrrsetning úrskurðuð í eignum fyrir 223 milljónir BORGARFÓGETI hefur úrskurðað, að kröfu Landsbankans, að kyrr- setning skuli fara fram í eignum Olís að upphæð tæpar 223 milljón- ir króna. Þetta er sú upphæð sem Olís gat ekki lagt fram trygging- ar fyrir sem Landsbankinn taldi hæfar af 438 milljón króna kröfii bankans. Við málflutning í málinu á mið- vikudag gerði Olís þá kröfu að trygging sú sem fógeti úrskurðaði að Landsbankanum bæri að leggja fram vegna hugsanlegs tjóns og miska sem Olís hlyti af málinu yrði hækkuð í 500 milljónir króna. Þessu hafnaði fógeti en við upphaf máls- ins hafði hann úrskurðað að Lands- bankanum bæri að leggja fram 30 milljónir króna í þessu skyni. Við málflutninginn kom Olís með ábendingar á eignir til tryggingar kröfu Landsbankans. Var þar bæði um fasteignir og lausafé að ræða og mat Olís þessar tryggingar um 800 milljónir króna. Landsbankinn hafnaði þessum tryggingum og vildi fá aðrar hæfari. Borgarfógeti frestaði áframhald- andi málflutningi málsins til þriðju- dags og mun nota frestinn til að athuga • hvort ábendingar Olís á eignirnar séu góðar og gildar. Jón Baldvin Hannibalsson: Gagnlegur fimd- ur með Rocard JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, hitti Michel Rocard, forsætisráðherra Frakklands, að máli í Stokkhólmi á þingi Alþjóðasam- bands jafnaðarmanna. Jón Baldvin tekur við formennsku í ráðherrar- áði EFTA, fríverslunarsamtaka Evrópu, um mánaðamótin og mun þá leiða viðræðumar við Evrópubandalagið (EB). Hann sagði að fundurinn með Rocard hefði verið gagnlegur og mikilvægur en viðræðumar hefðu verið þess eðlis að ekki væri ráðlegt að greina frá þeim að svo stöddu. „Tilgangurinn var af okkar hálfu Stokkhólmi. Að sögn Jóns Baldvins að fá upplýsingar um viðhorf for- mennskulands EB á seinni hluta árs- ins til EFTA og samningaviðræðn- anna sem framundan eru. Árangur þeirra viðræðna ræðst af því meðal annars hvort formennskulandið setur þau mál ofarlega í forgangsröðina innan EB,“ sagði utanríkisráðherra. Fundurinn með Rocard fór fram í var ákveðið að leita eftir þessum fundi með Roeard þegar utanríkisvið- skiptaráðherrar EFTA voru á vor- fundi sínum í Kristiansand á dögun- um. Auk Jóns Baldvins og Rocards sátu fundinn utanríkisviðskiptaráð- herrar Finnlands, Svíþjóðar og Nor- egs og kanslari Áusturríkis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.