Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989 Sigmjón Hailbjöms■ son látinn SIGURJÓN Hallbjörnsson símvirkjameistari lést í Reykjavík laugardaginn 15. júlí 72 ára að aldri. Sigurjón fæddist 7. ágúst árið 1916. Hann hóf störf hjá Pósti og síma árið 1929, þá sem sendill. í ársbyijun 1933 hóf hann nám á verkstæði Bæjarsímans. Símvirkjaprófi lauk Siguijón 1. janúar 1945 og var þá skipaður símvirki hjá Landsímanum. Árið 1966 lauk hann símvirkja- meistaraprófi. Siguijón vann hjá Pósi og síma í 57 ár og lét af störfum fyrir aldurs sakir í árslok 1986. Siguijón var landsþekktur golf- leikari og heiðursfélagi í Golf- klúbbi Reykjavíkur. Hann keppti VEÐUR Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra: Alþjóðadeild ráðuneytisins sinnir verki heimasendiráða Utanríkisráðherra segir að alþjóðadeild utanríkisráðuneytisins muni hér eftir sinna stjórnmálasamskiptum við þau ríki sem ísland hefiir haft heimasendiherra hjá. Heimasendiráðin verða lögð niður síðar í sumar. Siguijón Hallbjörnsson. á landsmóti í golfi á hveiju ári í um hálfa öld og vann til margra verðlauna. Siguijón kvæntist Sigríði Sig- urðardóttur en hún lést á síðasta ári. Þau eignuðust 3 böm og eru tvö þeirra á lífi. ísland hefur haft heimasendi- herra hjá nokkrum fjarlægum Asíu- löndum, Mið-Austurlöndum og Afríkuríkjum og hafa Benedikt Gröndal og Hannes Jónsson gegnt þessum embættum, sem nú verða lögð niður. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra sagði við Morgun- blaðið, að stefnt væri að því að sinna þeim ríkjum sérstaklega, sem ís- lendingar hefðu mikil og vaxandi viðskipti við. Þannig væri unnið að stofnun sendiráðs í Japan, sem einnig sinnti Kóreu, en það réðist af niðurstöðum fjárlagaafgreiðslu fyrir næsta ár hvernig það gengi. „Það er á hinn bóginn talsvert viðamikið mál og ekkert víst að niðurstaðan verði sú að við opnum sendiráð með sendiherra heldur / DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær) gæti það verið með viðskiptafull- trúa,“ sagði utanríkisráðherra. Sú spurnig hefur vaknað hvort það gæti verið túlkað sem slit á stjómmálasambandi að leggja á þennan hátt niður heimasendiráð. Utanríkisráðherra sagði það af og frá og benti á að Danir, sem nú væru að endurskipuleggja sína ut- anríkisþjónustu, hefðu undanfarið lokað hveiju sendiráðinu á fætur öðru af sparnaðarástæðum. „Þeir gera það að sjálfsögðu með vísan til skipulagsbreytinga og halda stjórnmálasamskiptum í fyrsta lagi í gegnum utanríkisráðu- neytið og í öðm lagi með því að efla konsúla. Að því stefnum við einmitt," sagði Jón Baldvin. Hannes Jónsson baðst lausnar úr utanríkisþjónustunni sl. föstu- dag, í kjölfar þess að utanríkisráð- herra sagði honum upp embætti heimasendiherra. Á fréttamanna- • fundi sagði Hannes meðal annars að utanríkisráðherra væri að vinna skemmdarstarfsemi á utanríkis- þjónustunni með skipulagstillögum sínum. Jón Baldvin sagði um þetta, að breytingar á skipulagi utanríkis- þjónustu yrðu ekki ræddar við Hannes Jónsson í fjölmiðlum. Þær yrðu ræddar innan ráðuneytis, í ríkisstjórn og í utanríkismálanefnd, og þar hefði verið gerð fullnægj- andi grein fyrir þeim. Að öðm leyti sagði utanríkisráð- herra, að ummæli Hannesar Jóns- sonar á blaðamannafundinum væm ekki svaraverð. „Þessi maður hefur að eigin sögn verið starfslaus í nokkur ár. Það er út af fyrir sig viðurkenningar- vert að hann hefur tekið á sig rögg að segja af sér, en hann hefði mátt gera það fyrr, því sannleikurinn er auðvitað sá að hann hefur verið áskrifandi að kaupinu sínu,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Flugleiðir: Tilboð um 6,7 millj- arða lán til vélakaupa FLUGLEIÐIR hafa tryggt sér lánsrétt vegna kaupa þriggja nýrra flugvéla á næsta ári að jafiivirði um 6,7 miHjarða íslenskra króna. Það eru bankar í Bandaríkjunum og Japan sem standa að lánatilboð- inu. Um er að ræða fjármögnun á 90% kaupverðs vélanna. „Á .næsta ári fá Flugleiðir ríkisábyrgð," segir í frétt frá félag- 757-200- flugvélar til flugs á Norð- ur-Atlantshafsleiðum og eina 737-400- flugvél til viðbótar þeim tveimur sem keyptar vom til lands- ins á þessu ári og lánsrétturinn nú er tryggður vegna þeirra. Þá verður allur millilandafloti félagsins innan við eins árs gamall og sennilega hinn yngsti í Evrópu. Við tryggingu lántökunnar hafa Flugleiðir ekki þurft að leita eftir ábyrgðum frá ríkinu eða öðmm. Lánin yrðu tryggð með veði í vélunum. Kjörin á þessum lánum em einnig góð og teíjast svipuð og ef þeim hefði fylgt mu. # „Þótt Flugleiðir hafi tryggf sér lánsrétt vegna vélakaupanna hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort þessi réttur verður nýttur. Einnig kemur til greina að fjármagna þær með öðmm hætti, til dæmis í gegn- um kaupleigu. Með lánatilboði sínu hafa bankamir sem hér um ræðir hins vegar lýst ákveðnu trausti á félaginu og það hefur tryggt fjár- mögnun þeirra hvaða leið sem verð- ur svo farin,“ segir ennfremur í fréttinni. VEÐURHORFUR í DAG, 18. JÚLÍ YFIRLIT I GÆR: Kl. 15 var suðaustanátt, kaldi eða stinníngskaldi og dálrtil rigning suðvestan- og vestanlands en hægari sunnanátt og að mestu úrkomulaust annars staðar. SPÁ: Suðvestanátt um allt land, kaldi eða stinningskaldi og súld með köflum eða skúrir á Suður- og Vesturlandi en hægari og úr- komulaust á Norður- og Austurlandi. Hiti 11-16 stig, hlýjast norð- austanlands VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestanátt, skúrir suðvestan- og vestanlands og líklega einnig á vestanverðu Norðurlandi. Annars staðar skýjað en úrkomulaust. Hiti 8-14 stig. HORFUR Á FIMMTUDAG :Fremur hæg suðaustanátt, rigning um sunnan- og austanvert landið, en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 10-16 stig. 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius \J Skúrir * . V Él EE Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur I —Skafrenningur R Þrumuveður TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað a Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vínd- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * # * * * * * Snjókoma * * * VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hltl 18 14 veður skýjaö þokumóða Bergen 10 súld á slð. klst. Helsinki 19 hálfskýjað Kaupmannah. 18 skýjað Narssarssuaq 9 skýjað Nuuk 2 þoka Osló 15 skýjað Stokkhólmur 16 skýjað Þórshöfn 12 skýjaö Algarve vantar Amsterdam 17 skýjað Barcelona 27 helðskirt Berlín 17 skýjað Chicago 17 mistur Feneyjar 26 þokumóða Frankfurt 20 léttskýjað Glasgow 19 skýjað Hamborg 15 skýjað Las Palmas 26 léttskýjað London 26 skýjað Los Angeles 18 léttskýjað Lúxemborg 18 alskýjað Madríd 34 heiðskírt Malaga 27 heiðskirt Mallorca 30 léttskýjað Montreal 19 léttskýjað New York 18 skýjað Orlando 26 léttskýjað Parfs 23 skýjað Róm 27 léttskýjað Vín 19 Skýjað Washington 19 þokumóða Winnipeg vantar Samtök um jaftirétti og félagshyggju: Viðræður við 5 ráðherra í gær STEFÁN Valgeirsson, alþingis- maður, segir að áframhaldandi stuðningur Samtaka um jafnrétti og félagshyggju við ríkisstjórnina sé kominn undir því, að hún bæti úr því sem aflaga hefur farið við framkvæmd stjórnarsáttmálans. Stefán og nokkrir aðrir fulltrúar samtakanna áttu í gær ftmd með fimm ráðherrum, þar sem farið var yfir ýmsa þætti sáttmálans og framkvæmd þeirra. Gert er ráð fyrir að framhald verði á þessum viðræðum og munu þeir Stefán og Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, hittast aftur fyrir næstu helgi. Þetta var þriðji fundurinn sem fulltrúar Samtaka um jafnrétti og félagshyggju eiga með ráðherrum í ríkisstjóminni í sumar. Stefán Val- geirsson, þingmaður samtakanna, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þessir fundir hefðu skilað nokkrum árangri og menn hefðu haft gott af því að skiptast á skoðun- um. Farið hefði verið yfir stjórnar- sáttmálann og hvernig þau mál standi, sem þar hafi verið lögð áhersla á. Sagði Stefán sum þessara mála ekki standa nógu vel, en önnur bet- ur. Stigin hefðu verið spor í rétta átt, til dæmis með því að jafna símkostnað og raforkuverð, en þau spor væru smá. Enn fremur sagðist hann vonast til þess að þau mark- mið sem stefnt hefði verið að með stofnun Atvinnutryggingarsjóðs út- flutningsgreina næðust með haust- inu. Varðandi vaxtamál sagði Stefán, að samkvæmt stjórnarsáttmálanum hefðu þeir átt að vera komnir niður í 6% fyrir síðustu áramót. Hins veg- ar væri staðan nú sú, að ef skuld- breytt væri hjá mönnum gætu raun- vextir farið upp í allt að 9,5%. Þetta væri algerlega óviðunandi. Enn fremur nefndi hann að úthlutun stjórnar Húsnæðisstofnunar ríkisins væri fáránleg og alls ekki í samræmi við stjórnarsáttmálann. Stefán Valgeirsson sagði að áframhaldandi stuðningur Samtaka um jafnrétti og félagshyggju við stjórnina væri undir því kominn að staðið yrði við ákvæði stjórnarsátt- málans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.