Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA FRJALSAR IÞROTTIR / STIGAMOTI BUDAPEST Sigurður Einarsson hafnaði í 3. sæti í spjótkasti á mjög sterku stigamót í Búdapest í gær. Sigurður kastaði 81,84 metra og er það besti árangur hans á svo stórum móti og næst lengsta kast hans. Sigurður þriðji í Búdapest Kastaði 81,84 metra sem er næst besti árangur hans. Einar í 4. sæti Sigurður Einarsson hafnaði í 3. sæti á stigamóti alþjóða frjálsíþrótta- sambandsins í Búdapest í gær. Sigurður kastaði 81,84 metra, rúmum hálfum metra lengra en Einar Vilhjálmsson sem hafnaði í 4. sæti með 81,32 metra. Það var Bretinn Steve Backley sem sigraði. Hann kastaði 85,86 metra og er það breskt met og næst 'lengsta kast í heiminum í ár. í 2. sæti hafnaði Viktor Jevsjúkóv frá Sovétríkjunum en hann kastaði spjótinu 82,18 metra. Þeir Einar og Sigurður skutu mörgum frægum köppum ref fyrir rass, þ.á.m. finnska heimsmeistaranum Seppo Ráty og heimsmethafanum tékkneska Jan Zelezny. Þetta er næst besta kast Sigurðar en persónulegt met hans er 82,10 metrar. Þetta er besti árangur hans á svo stóru móti, enda keppni í spjótkasti mjög hörð og valinn maður í hveiju rúmi. ■ Helstu úrslit/C6 Morgunblaðið/Einar Falur Úlfar Jónsson fagnar sigri í meistaraflokki karla. Úlfar og Kar- en meistarar □ lfar Jónsson og Karen Sævarsdóttir sigruðu á Landsmótinu í golfi sem lauk á Hólmsvelli í Leiru á laugardaginn. Úlfar sigraði örugglega í meistaraflokki karla, hafði sex högga forystu á Ragnar Ólafsson sem hafnaði í 2. sæti. Karen hafði nokkra yfirburði í meistaraflokki og notaði þrettán höggum færra en Steinunn Sæmunds- dóttir sem hafnaði í 2. sæti. Sjá/ C4, C5, C6 og C7. KORFUKNATTLEIKUR Lakers út úr myndinni - segir Pétur Guðmundsson sem meiddist aftur Pétur Guðmundsson segist hafa gefið upp alla von um að komast aftur á sanining hjá Los Angeles Lakers í NBA-deildinni. Pétur lék með lið- inu í sumarbúðum en meiddist í hásin og gat ekki leikið með liðinu. „Ég held að ég geti afskrifað Lakers eftir þetta. Þegar ég meiddist misstu þeir áhugann enda liklega haldið að ég væri algjör hrak- failabálkur,“ sagði Pétur. Þess má geta að í gær gekk Lakers frá samningi við júgóslavneska lands- liðsmanninn Vlade Divac. Hann leikur sömu stöðu og Pétur og er 2,13 metrar á hæð. Pétur meiddist í hné í fyrra og hefur ekkert get- að leikið á þessu ári. Hann var búinn að ná sér af þeim meiðslum þegar hann tognaði í hásin og verð- ur líklega að taka sér frí fram á haust. „Forráðamenn Milwaukee Bucks hafa þó enn áhuga og ég lék með þeim daginn áður en ég fór heim. Þeir eru með eina lausa stöðu og ég vonast til að komast í æfingabúðir með þeim í haust. Ég verð bara að ná mér og sýna hvað í mér býr. Ég held að minnsta kosti að ég sé búinn með minn kvóta af meiðslum," sagði Pétur. HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI Laugardalshöllin ólögleg? Uppfyllir ekki skilyrði Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, fyrir leiki í Evrópukeppninni Alþjóða handknattleikssam- bandið, IHF, hefur gefið út nýja reglúgerð um íþróttahús fyr- ir leiki í Evrópukeppninni í hand- knattleik. Samkvæmt þessari reglugerð, sem er mjög ítarleg, er Laugardalshöllin ólögleg og nýja íþróttahúsið í Garðabænum líklega eina löglega húsið á landinu. Kjartan Steinbach, hjá HSÍ, sagði þó að íslensku liðin gætu líklega leikið í Höllinni í vetur en eftir það þyrfti sennilega að sækja um undanþágu. Þá er það nokkuð ljóst að Valsmenn geta ekki leikið sína Evrópuleiki í íþróttahúsinu að Hlíðarenda. Þessi listi frá IHF tekur til flest atriði i venjulegu íþróttahúsi svo sem auglýsingar, búningsaðstöðu, línur á vellinum, fjarlægð áhorf- enda, tímaverði, lýsingu og margt fleira. Að sögn Kjartans er það eink- um tvennt sem erfitt verður að breyta í Laugardalshöllinni. „í þessari reglugerð segir að mörkin verði að vera að minnsta kosti tvo metra frá vegg og það gæti orðið svolítið erfitt. Einnig „línusalatið" á vellinum en IHF segir að þar megi aðeins vera handboltalínur. Þessi atriði verður líklega erfiðast að uppfylla,“ sagði Kjartan Stein- baeh. „Við eigum eftir að mæla upp allan völlinn og munum senda niðurstöðurnar út til IHF og sjá hvað þeir segja. Ég efast um að við þurfum að fá undanþágu, að minnsta kosti ekki strax, og það eru mörg íþróttahús verri en Höll- in. Við höfurn einnig lagað ýmis- legt því við áttum von á reglugerð frá IHF,“'sagði Kjartan. Valsmenn verða líklega að Ieika sína leiki í Laugardalshöllinni eða í Garðabænum þar sem hús þeirra uppfyllir ekki öryggiskröfur. Stór- ar súiur eru of nálægt mörkunum og áhorfendur of nálægt hliðarlín- um. HSÍ getur líklega fengið undan- þágu fyrir Evrópukeppnina en þegar Heimsmeistarakeppnin verður haldin hér á landi 1995 verða öll íþróttahúsin að uppfylla þessi skilyrði. „Við verðum líklega að fá dúka á gólfin og lagfæra ýmiss smáatriði í þessum húsum. Annars hefur aldrei verið hugsað út í þessi mál hér á landi og kannski kominn tími til að við förum að gera það,“ sagði Kjart- an.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.