Meira Leita Titlar Greinar Fréttir Um vefinn Algengar spurningar
skrá inn Íslenska Føroyskt Kalaallisut Dansk English

Morgunblağiğ


og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .



Skoğa síğu í nıjum glugga  Skoğa texta í nıjum glugga  Beinn tengill á şessa síğu
Innskráğir notendur geta bætt einstaka síğum viğ vinnusvæği sitt:
Bæta síğu viğ bókamerki



Styrktarağili:
Árvakur - Árvakur hf.





şú şarft ağ vera meğ DjVu Browser Plugin til ağ skoğa şessa síğu


get DjVu Browser Plug-in



Morgunblağiğ

				Tæplega 4% halli er nú á

rekstri frystitogaranna

MORGUNBLAÐIÐ EÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1989

- segir Sveinn Hjörtur Hjartarson hagfræðingur LÍÚ

„FRYSTITOGARAR eru nú reknir með 3,7% tapi, miðað við venjuleg-

ar bókhaldsaðferðir, en samkvæmt ársreikningum var 3,3% hagnað-

ur á rekstri þeirra árið 1988," sagði Sveinn Hjörtur Hjartarson,

hagffræðingnr Landssambands íslenskra útvegsmanna, í samtali við

Morgunblaðið. Hann sagði að hins vegar væri opinbert álit Þjóð-

hagsstofhunar að frystitogarar væru reknir með hagnaði miðað við

6% árgreiðsluaðferð.

Sveinn Hjörtur sagði að fyrir

nokkrum árum hefði verið um-

frameftirspurn eftir sjófrystum

fiski. íslenskum og erlendum frysti-

skipum hefði hins vegar fjölgað

verulega undanfarin ár og meira

jafnvægi hefði komist á viðskipti

við þau.

Hann sagði að íslenskir frystitog-

arar hefðu verið 3 eða 4 árið 1985.

Nú væru þeir hins vegar yfir 20

talsins og íslensk frystiskip hefðu

veitt 70 þúsund tonn í fyrra. Sunn-

lensku frystiskipin hefðu veitt mikið

af karfa en verðfall hefði orðið á

honum í Japan í fyrra. Að vísu

VEÐUR

hefði verðið hækkað aftur en væri

þó ekki orðið jafn hátt og það var

áður. Auk þess væri þorskkvótinn

10%_minni en í fyrra.

„Áhafnir frystitogara fá greidd

90% af aflahlut strax eftir löndun,

samkvæmt kjarasamningum frá

árinu 1987. Nú eiga útgerðirnar í

erfiðleikum með að standa við þessa

samninga vegna þess að þær fá

seinna greitt fyrir sjófrysta fiskinn

en áður," sagði Sveinn Hjörtur.

Hann sagði að framlegð 13

frystitogara hefði verið 24,5% að

meðaltali í fyrra en nú væri hún

20,5%.   Það  væri  ekki  nægilega

hátt hlutfall, þar sem fjármagns-

kostnaðurinn væri 24 til 25%. Fyrir

3 til 4 árum hefði 28% framlegð

frystitogara ekki þótt óeðlileg.

Hann sagði að framlegð ísfisktog-

ara væri nú 18 til 19%, sem væri

gott miðað við undanfarin ár.

Sveinn Hjörtur sagði að frysti-

togararnir fengju hvorki endur-

greiddan uppsafnaðan söluskatt né

greiðslur úr verðjöfnunarsjóði fisk-

iðnaðarins.

„3,3% af tekjum frystihúsanna

eru greiðslur úr verðjöfnunarsjóðn-

um og 1,7% af tekjum þeirra er

endurgreiddur uppsafnaður sölu-

skattur. Frystiskipunum er því mis-

munað," sagði Sveinn Hjörtur. „Það

hefur verið sagt að frystiskipin séu

ekki í verðjöfnunarsjóðskerfinu en

frystihúsin hafa ekki greitt í sjóðinn

undanfarin ár og greiðslur úr hon-

um hafa verið teknar að láni erlend-

/ DAG kl. 12.00:

Heimild Veðurstofa Islands

(Byggt á veðurspá kl  16 15 i gær)

VEÐURHORFUR I DAG, 11. AGUST

YFIRLIT í GÆR: Um 600 km suður af Reykjanesi var vaxandi 978

mb. lægð, sem hreyfðíst austur. Heldur kólnaði í veðn.

SPÁ: Norðaustanátt. Súld eða ngning við norður- og norðaustur-

strondina, en annars þurrt að kalla. Bjart veður verður víða á Suð-

ur- og Vesturlandi, en þó hætta á síðdegisskúrum í uppsveitum.

VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:

HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðaustan- og aust-

anátt og fremur kalt í veðri. Þurrt a'vestanverðu landinu, en víða

rigning eða skúrir í öðrum landshlutum, einkum norðaustanlands.

TÁKN:

O

Heiðskírt

Lóttskýjað

Hálfskýjað

Skýjað

Alskýjað

*,   Norðan, 4 vihdstig:

*     Vindörin sýnir vind-

stefnu og fjaðrírnar

vindstyrk, heil fjöður

er 2 vindstig.

/  /  /

/  / / • / Rigning

/ /  /

*   / *

/  *  / # Slydda

/ * /

*   * #

*   *  * * Snjókoma

*   #  #

10" HHastig:

10 gráður á Celsíus

\J   Skúrir

*

V El

=   Þoka

=   Þokumóða

', ' Súld

OO   Mistur

—|-   Skafrenningur

IT    Þrumuveður

9	*£ilHF

%,	ði

%	1;\

T	?'   4

VEÐUR VÍÐA UM HEIM	

kl. 12:00	ígærað fsl. tíma

	hltl      veður

Akureyri	9   rigning

Reykjavík	9   skýjað

Bergen	14   rlgning

Helsínki	17   léttskyjað

Kaupmannah.	15    skýjað

Narssarssuaq	12   alskýjað

Nuuk	5    alskýjað

Osló	15   þokumóða

Stokkhólmur	16   léttskyjað

Þórshófn	10   skýjað

Algarve	22   þokumóða

Amsterdam	18   mistur

Barcelona	25    þokumóða

Berlin	17   skýjað

Chicago	18   heiðskírt

Feneyjar	18   skyjað

Frankfurt	14   þokumóða

Glasgow	8   léttskýjað

Hamborg	17   þokumóða

Las Palmas	vantar

London	18   rigning

Los Angeles	18   skýjað

Lúxemborg	15   þokumoða

Madríd	18   lettskýjað

Malaga	25   léttskýjað

Mallorca	23   léttskýjað

Montreai	17   heiðskirt

New York	20   léttskýjað

Orlando	23   alskýjað

París	24    léttskýjað

Róm	21    þokumóða

Vín	16   heiðskírt

Washington	19   skýjað

Winnipeg	vantar

is. Því má draga þá ályktun að

gengið sé rangt skráð gagnvart

frystitogurunum sem nemur að

minnsta kosti 5% af tekjum frysti-

húsanna," sagði Sveinn Hjörtur.

Jón O. Bárðarson for-

stjóri í Garðabæ látinn

JÓN Örnólfiir Bárðarson, for-

stjóri Silfurtúns hf., er látinn á

sjötugasta og öðru aldursári. Jón

fæddist 9. júlí 1918 að Ytri-

Búðum í Bolungarvík. Foreldrar

hans voru hjónin Bárður G. Jóns-

son, bóndi þar, og Sigrún K.

Guðmundsdóttir.

Jón lauk yerslunarprófi frá Versl-

unarskóla íslands 1939 og hóf

verslunarrekstur á ísafirði 1944,

fyrstu 5 árin með Guðmundi Péturs-

syni en síðan á eigin vegum allt til

ársins 1968. Útsölustjóri Áfengis-

og tóbaksverslunar ríkisins á

ísafirði frá 1949-67 og í Keflavík

frá 1967-85. Jón var einn af stofn-

endum Félags vestfirksra skreiðar-

framleiðenda. Stofnaði Þakpappa-

verksmiðjuna hf. í Garðabæ á sjötta

áratugnum ásamt bróður sínum,

Ragnari Bárðarsyni. Árið 1972

stofnaði hann Silfurtún hf. ásamt

fjölskyldu sinni en fyrirtækið varð

fyrst til að hefja endurvinnslu á

pappír á íslandi og framleiðir nú

eggjaumbúðir og þakpappa ásamt

fleiru.

Eftirlifandi eiginkona hans er

Salóme Margrét Guðmundsdóttir

verslunarmaður. Þau hjónin eignuð-

ust þrjá syni og eru tveir á lífi, Örn

Bárður Jónsson, sóknarprestur í

Grindavík, og Friðrik Ragnar Jóns-

son flugvélaverkfræðingur og flug-

maður hjá Flugleiðum. Uppeldis-

sonur hans er Grétar Guðmundur

Steinsson búsettur l' Svlþjóð.

Morgunblaðið/BAR

Unglingarnir sem standsettu húsnæði fyrir nýju lögreglustöðina í

Breiðholti ásamt þeim Jóni H. Hrafiissyni lögregluflokkstjóra og

Jóni Þ. Þorbergssyni, varðstjóra, sem ásamt Arnari Bjarnasyni

munu starfa við nýju stöðina; Magnúsi Einarssyni aðstoðaryfirlög-

regluþjóni og Böðvari Bragasyni lögreglusljóra.

Ný lögreglustöð

opnuð í Breiðholti

LOGREGLUSTOÐ var opnuð í

Drafharfelli 14 í Breiðholti í

gær. Þrír lögreglumenn munu

hafa þar aðsetur. Fyrstu um sinn

verður stöðin opin frá klukkan

11-19 virka daga en einnig er

fyrirhugað að hún verði opin á

helstu álagstímum, svo sem að

kvöldlagi um helgar. Lögreglu-

mönnunum þremur er uppálagt

að leggja aðaláherslu á gangandi

eftirlit og að efla tengsl lögreglu

og íbúa Breiðholtshverfa en aðr-

ar deildir lögreglunnar munu

einnig sinna þar óbreyttu eftir-

liti.

Húsnæði lögreglustöðvarinnar í

Drafnarfelli er í eigu Iðnaðarbank-

ans en eigendur fyrirtækja í Fella-

görðum áttu frumkvæði að því að

stöðin var sett á laggirnar og lögðu

til aðstöðu og það efni sem þurfti

til innréttinga. Þá greiða fyrir-

tækjaeigendurnir húsaleigu lög-

reglustöðvarinnar fyrst um sinn.

Reykjavíkurborg greiddi laun ungl-

inga úr hverfinu sem fengu sumar-

vinnu við að standsetja húsnæðið.

I fréttatilkynningu frá lögregl-

unni segir að það sé von hennar

að íbúar Breiðholtshverfa sýni

þessu framtaki velvilja og nýti sér

möguleikan á auknum tengslum

lögreglu og þeirra, báðum til hags-

bóta. Þá segir að hér sé um tilraun

að ræða með breytt fyrirkomulag

löggæslu í borginni þar sem meðal

annars sé horfttil grenndarlögreglu

svo sem hún er skipulögð á hinum

Norðurlöndunum. Stefnt sé að því

að skoða framhaldið að fenginni sex

mánaða reynslu.

Sterling-þotan

til Kaupmanna-

haftiar í gær

VIÐGERÐ á þotu danska flugfé-

lagsins Sterling, sem hlekktist á

hér á landi í fyrradag, lauk í

gærmorgun eftir næturlanga

vinnu. Vélinni var flogið aftur til

Kaupmannahaftiar um hádegið í

gær.

Vélinni af Boeing 727-200-gerð

hlekktist á í flugtaki frá Keflavíkur-

flugvelli á miðvikudagsmorgun og

mjótt þótti á munum að stórslys

hlytist af. Viðgerð hófst um kvöldið

og lauk snemma í gærmorgun. Að

sögn flugvirkja Flugleiða var þetta

ekki fullnaðarviðgerð en nægileg

til að fljúga mætti vélinni utan.

Sterling-flugfélaginu verður sendur

reikningur fyrir viðgerðinni. Áhöfn-

in> sem kom með vélinni hingað á

miðvikudag beið hér meðan gert

var v'ð vélina.


i»

í


>

i

í

Ríkið yfir-

tekur starf-

semi heilsu-

gæslustöðva

RIKIÐ yfírtekur starfsemi heilsu-

gæslustöðva í landinu um næstu

áramót. Verður þá þeim starfs-

mönnum stöðvanna sagt upp,

sem ráðnir eru af sveitarfélögum,

en ríkið mun bjóða þeim sam-

bærileg störf.

Ríkið tekur yfir rekstur allra

heilsugæslustöðva í landinu um

næstu áramót, samkvæmt lögum

um verkaskiptingu ríkis og sveitar-

félaga, sem samþykkt voru á Al-

þingi í vor. Hefur heilbrigðisráðu-

neytið sent sveitarstjórnum bréf,

þar sem þeirn er bent á að segja

upp þeim starfsmönnum heilsu-

gæslustöðvanna, sem ráðnir eru af

þeim. Jafnframt er sagt, að ríkið

muni fyrir 1. október næstkomandi

bjóða þessum starfsmönnum sam-

bærilegar störf. Að sögn Eddu Her-

mannsdóttur, skrifstofustjóra í heil-

brigðisráðuneytinu, er gert ráð fyr-

ir því að allir starfsmenn stöðvanna

verði þar áfram, þar sem hér sé

ekki um að ræða neina uppstokkun,

hagræðingu eða samruna stöðva,

heldur eingöngu tilflutning frá

sveitarfélögunum til ríkisins.

Heilsugæslustöðvar, eða sel sem

rekin eru í tengslum við þær, eru

milli 70 og 80 í landinu, að sögn

Eddu Hermannsdóttur. Er stór hluti

starfsmanna heilsugæslustöðvanna

í landinu þegar á launaskrá hjá

ríkinu, svo sem læknar, hjúkrunar-

fræðingar, sjúkraþjálfarar og Ijós-

mæður en sveitarfélögin greiða laun

hinna.

Vesturgata 7:

Ibúðaverð

á bilinu 4 til

8 milljón-

ir króna

VERÐ íbúða í nýja hýsinu að

Vesturgötu 7 er á bilinu 4 til 8

milljónir króna. I húsinu eru 26

íbúðir sérhannaðar fyrir aldraða

og hafa þær allar verið seldar

að sögn Hjartar Hjartarsonar hjá

skrifstofu Reykjavíkurborgar.

íbúðirnar eru mjög misstórar,

þær minnstu eru 36 fermetrar að

flatarmáli en sú stærsta 82 fermetr-

ar. í húsinu eru 8 einstaklingsí-

búðir og losar verð hverrar íbúðar

4 milljónir króna. Verð íbúða sem

ætlaðar eru hjónum er um 6 milljón-

ir króna. Stærsta og dýrasta íbúðin

í húsinu kostar tæplega 8 milljónir

króna.

f

Hjartavernd:

Happdrætti í

tilefhi afmælis

HJARTAVERND, landssamtök

hjarta og æðaverndarfélaga, er

tuttugu og fimm ára á þessu ári.

í tilefiii afmælisins hefiir Hjarta-

vernd hleypt af stokkunum sér-

stöku afimælishappdrætti.

Frá upphafi hefur Hjartavernd

haft með höndutn mikla fræðslu-

starfsemi um einkenni, áhættuþætti

og megingerð hjarta- og æðasjúk-

dóma. Happdrætti Hjartaverndar

hefur löngum verið aðal fjáröflunar-

leið samtakanna. í tilefni afmælis-

ins hefur verið hleypt af stokkunum

sérstöku          afmælishappadrætti.

Verðmæti vinninga í afmælishapp-

drættinu eru 8.3 miljónir króna.

Bergshús flutt

á Arbæjarsafti

Unnið er að því að flytja ris

Bergshúss á Skólavörðustíg 10 í

Reykjavík á Árbæjarsafnið. Þar

mun fyrsta hæð hússins endur-

byggð í upphaflegri mynd. Alexíus

Árnason lögregluþjónn í Reykjavík

mun hafa reist þetta hús um 1870.

Það er kennt við Berg Þorleifsson

söðlasmið sem bjó þar frá 1885

til 1930. Einn leigjenda Bergs var

Þórbergur Þórðarson rithöfundur

sem bjó í risinu í fjögur ár, frá

1909 til 1913, en hann segir frá

dvöl sinni þar í Ofvitanum. Frá

1960 hefur verið rekin verslun í

húsinu, nú síðast leikfangaverslun.

Morírunblaðið/Arni Sæbere"

SPRENGI

VIKA!

Lengi hefur safnast í sprengipott hjá

íslenskum Getraunum og því ertil mikils að vinna.

Auk þess kostar röðin aðeins 10 kr.

Ert þú viðbúinn stórum vinningi á laugardaginn?

Láttu þá ekkert stöðva þig.

Getraunaseðillinn er líka fyrir þig.


r

-ekkibaraheppni

null