Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 12
98«í rrfOOÁ .98 aUOAtWAOtJ'AJ CÍKLyHKUÖMGM “MOKGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST-I989 12 * Asgeir S. Björnsson cand. mag. — Minning Á áttunda áratugnum urðu mikil tíðindi í kennaramenntun. Þá var Kennaraskóla íslands breytt í Kennaraháskóla (1971) og þriggja ára nám lögbundið. Þessu skrefi í löggjöf fylgdu margháttaðar breyt- ingar: Kennaranámið varð að skírgreina og skipuleggja upp á nýtt. Það var talsvert átak að færa kennslu úr föstum skorðum fram- haldsskóla upp á háskólastig. Stóðu þessi umsvif raunar fram undir lok áratugarins og gekk á ýmsu eins og oft vill verða á umbrotatímum. Því er þetta nefnt hér að við upphaf þessa áratugar lágu ieiðir okar Ásgeirs S. Björnssonar saman í húsi Kennaraskólans við Stakkahiíð og áttum við þar margt saman að sælda við íslenskukennslu og ýms önnur störf lengi síðan. Reyndar má segja að alla starfsævi sína hafi Ásgeir verið tengdur kenn- aramenntun að meira eða minna leyti. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri (1966) kenndi hann einn vetur við Reykja- skóla í Hrútafirði en eftir það lá leiðin. suður yfir heiðar og vorið 1968 lauk Ásgeir kennaraprófi í stúdentadeild Kennaraskólans. Þar með voru hafin tengsl hans við þessa stofnun. Árið eftir gerðist hann stundakennari við skólann og var settur til starfa haustið 1970. Upp frá því stundaði hann kennslu við skólann jafnhliða námi í íslensku við Háskóla íslands en þaðan lauk hann cand. mag.-prófi með íslensk- ar bókmenntir sem aðalgrein (1976). Hann var settur lektor við Kennaraháskólann haustið 1975 en hafði haft með höndum kennslu þar allt frá stofnun hans. Þessu starfi gegndi hann með litlum hléum til dauðadags. Það kom því í hlut Ásgeirs að taka þátt í þeirri endurskipulagn- ingu sem breytingin 1972 hafði í för með sér, einkum að því er varð- aði kennslu í íslensku og íslenskum bókmenntum. Kom brátt í ljós að þeim vanda var hann vel vaxinn og tók þátt í starfinu af lífi og sál. Hann var allra manna fljótastur að koma auga á meginatriði hvers mál og átti því auðvelt með að leggja skýrar línur. Ha,nn var maður hrein- lyndur og hreinskiptinn, mat hans á málefnum og mönnum óbrigðult. Samvinna okkar verður mér æ minnisstæð. Heilli og betri sam- starfsmann get ég ekki hugsað mér. Kennsla og skipulag hennar var ekki eina viðfangsefnið á þessum árum. Ljóst var að nauðsyn bar til að efla ranns’oknarstarf sem yrði kjöifesta í kennaramenntun á há- skóiastigi. Þar reið Ásgeir einna fyrstur á vaðið er hann hóf í sam- vinnu við nemendur sína að kanna lestrarvenjur barna og unglinga. Síðar lagði hann dijúgan skerf til undirbúnings og framkvæmdar á viðamikilli rannsókn á máltöku og málþroska. í kennslu sinni var Ásgeir fundvís á fijó viðfángsefni handa nemend- um sínum og átti auðvelt með að tengjaþau við kennslustarf í grunn- skóla. I umfjöllun sinni um þjóðsög- ur og ævintýri vann hann að mörgu leyti algert brautryðjendastarf. Auk þess sem hann kynnti þessa bók- menntagrein rækilega hafði hann forgöngu um að kennaranemar nýttu í kennslu þjóðsögur úr um- hverfi skólanna og aðstoðaði þá við að útbúa slík verkefni sem þeir reyndu í æfingakennslu sinni. Ilér var efni sem Ásgeir hafði brenn- andi áhuga á enda var hann allra manna fróðastur um þjóðsögur og íslenska sagnaskemmtun. Fornsög- um gerði hann svipuð skil. Sagna- listin var Ásgeiri hugstæð og hafði hann varið til þess miklum tíma að kanna hana og lögmál hennar. Hin síðari ár fræddi hann nemendur sína um þessi atriði og vandi þá við að segja sögu. Er gott til þess að vita að honum auðnaðist að ganga frá lítilli bók um þessi fræði. Ber hún nafnið „Eitt verð ég að segja þér...“ — Listin að segja sögu“ og kom út síðastliðið haust. Kennsla af því tagi sem hér hef- ur verið lýst er kreijandi og tima- frek en Ásgeir S. Björnsson hugs- aði aldrei um fyrirhöfn eða vinnuá- lag. Hann spurði fyrst: Hvað er viturleg kennsla? Hvað eru skyn- samleg viðfangsefni og hvaða leiðir henta? Þetta er aðal góðs kennara og sérhlífni á þar ekki heima enda slíkt hugtak ekki til í orðabók Ás- geirs. Hann var slíkur eljumaður í starfi að þar átti hann fáa sína líka. Hér verða ékki tíunduð umfangs- mikil störf hans að bókaútgáfu en hann var um skeið útgáfustjóri hjá forlaginu Erni og Örlygi. Þar vann hann að stórvirkjum sem varða Ís- land og íslenska menningararfleifð. Áður hafði hann unnið að gerð lykil- bókar við „íslenska annála 1400— 1800“ ásamt Eiríki Jónssyni. Var það vandasamt verk. Þá er enn að nefna starf hans að máiefnum heyrnardaufra. Einkasonur hans var fæddur heyrnarlaus og viðbrögð Ásgeirs við þeirri reynslu sýna vel hver maður hann var. Hann og Sig- urveig kona hans hófu þegar að læra táknmál heyrnardaufra og bjuggu sig á allan hátt sem best undir að takast á við þann vanda sem hér var fyrir höndum. Þau ráku sig brátt á að skilningur samfélags- ins á slíkri fötlun var nokkuð tak- markaður. Hófst þá starf þeirra í Foreidra- og styrktarfélagi heyrn- ardaufra. Um tveggja ára skeið (1982—1984) var Asgeir formaður félagsins og var áhugasamur um að efla hag þess, einkum kynning- ar- og útgáfustarf. Síðar réðist hann í ásamt öðrum að láta þýða og staðfæra handbók: „Hvað er heyrnarleysi? Handbók handa for- eldrum og uppalendum". Er þetta hið gagnlegasta rit og Ásgeiri auðn- aðist að sjá það koma út fyrir jólin síðustu. Meginstarf Ásgeirs var þó tengt kennaramenntun. Hann hafði yndi af kennslu enda lék hún honum í höndum. Nemendur höfðu hann í hávegum og sóttust eftir leiðsögn hans. Hann gerði sér ljósa grein fyrir því að mikilvægt var að halda tengslum við grunnskólann, starfs- vettvang kennaranema. Hafði hann með höndum forfallakennslu nokkra vetur í grunnskólum í Reykjavík (1967—1970) og lengst af tók hann virkan þátt í að semja og dæma samræmd grunnskólapróf í íslensku. Hann var og fenginn til að vinna að nýrri námskrá í íslensku handa grunnskóla en hún kom út í bók á síðastliðnu vori. Við samstarfsmenn Ásgeirs við KHÍ hugðum gott til að hann hyrfi aftur að fullu starfi við Kennarahá- skólann sem enn stendur á vega- mótum. Ný lög hafa verið sam- þykkt fyrir skólann. Enn er þörf á endurskoðun og nýju skipulagi. Þar var mikils vænst af Ásgeiri því hann hafði trausta þekkingu á við- fangsefninu og haldgóða reynslui Hann hafði líka heilbrigðan metnað fyrir hönd þeirrar stofnunar sem hann hafði tekið þátt í að móta og vildi veg hennar sem mestan. Hér verður nú skarð fyrir skildi. Ungur og röskur maður er horfinn úr lið- inu. Ásgeir S. Björnsson var fæddur á Ytra-Hóli í Vindhælishreppi 12. desember 1943 og var því ekki fullra 46 ára er hann lést þann 20. ágúst sl. Foreldrar hans eru þau Björg Björnsdóttir og Björn Jónsson búendur á Ytra-Hóli og hjá þeim ólst Ásgeir upp og þar átti hann heimili lengi eftir að spor hans lágu suður yfir heiðar. Var hann jafnan bundinn æskuheimili og_ feðraslóð- um traustum böndum. í gamni — sem þó var blandið nokkurri alvöru — taldi hann sig jafnan vera í kaup- staðarferð hér syðra. En það teygð- ist úr kaupstaðarferðum og þar kom að Ásgeir kvæntist og stofnaði heimili suður á Seltjarnarnesi. Kona hans var Sigurveig Alexanders- dóttir og eignuðust þau einn son, Jón Bjarka. Ásgeir og Sigurveig slitu samvistum. Ekki rofnuðu tengsl við hún- vetnska sveit þó nýtt heimili með reisn og risnu kæmi til. Hygg ég að þau ár hafi verið fá að Ásgeir tók ekki þátt í heyskap á Ytra-Hóli á sumrum og aldrei lét hann sig vanta í fjallgöngur á haustum. Því fór þó fjarri að Ásgeir væri „upp- flosnaður sveitamaður á mölinni". Hann var fyrst og fremst sá víðsýni sannmenntaði Islendingur sem skildi vel að íslensk borg er sproti vaxinn að hluta til af dreifðri byggð og að rótunum má ekki gleyma. Stórbflasyníng um helgina ~ og nú er smíé um meira en bara greíÓslukjör Við bjóðum þért.d. 25% út og eftirstöðvará þremur árum á venjulegum lánskjörum banka. Gamla bílinn tökum við upp í nýjan. Þriggja ára ábyrgð á öllum okkar bílum. Umboðsmaður okkar á Akureyri verður einnig með sýningu á sama tíma — algjöra bombu. Munið að það borgar sig að líta við hjá okkur frá kl. 14-17 laugardag og sunnudag. Réttur bíll á réttum stað. Ingvar Helgason hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.