Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRÉÍiy DÁQUfe - 2Q. ’ SEPTEMBER 1989 B 3 KNATTSPYRNA Arnar Grétarsson. Arnar semur við Rangers Arnar Grétarsson, knattspyrnu- maðurinn efnilegi úr hjá Breiðabliki, verður næstu tvö árin hjá skoska liðinu Glasgow Rangers. „Ég fer út á laugardaginn og skrifa þá undir tveggja ára samning við félagið," sagði Arnar í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann .sagðist vera laus allra mála hjá félaginu eftir tvö ár og gæti því farið hvert sem er eftir það. Arnar, sem er 17 ára og bróðir Sigurðar Grétarssonar hjá Luzern, dvaldi hjá Rangers í fyrra og síðan lék hann með unglingaliði félagsins á móti í Hollandi í vor og stóð sig vel. „Ég geri mér ekki miklar vonir um að komast í aðalliðið strax, en ég ætti að geta bætt mig sem knatt- spyrnumaður á þessum tíma. Þetta hefur verið draumur hjá mér lengi,“ sagði hann. Amar heldur utan ásamt unnustu sinni á laugardaginn og ætla þau að reyna að finna sér íbúð í Glasgow. Mm FOLX ■ DÓMARAR í leik Njarðvíkur og Leverkusen í kvöld og leik KR og Hemel annað kvöld, koma frá Svíþjóð og írlandi. Eftirlitsdómari verður Kristbjöm Albertsson. Hann mun fylgjast með syni sínum, Jóhannesi Kristbjörnssyni, sem leikur með Njarðvíkingum í kvöld. ■ KR erfyrsta íslenska liðið sem tekur þátt í Evrópukeppni félags- liða. Þessi keppni er sú yngsta og hófst ekki fyrr en 1972. Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem þijú íslensk lið taka þátt í Evrópu- keooni HANDKNATTLEIKUR HM U-21 ASPANI „AIK gekk upp á Spáni“ - sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formaður Handknattleikssambansins. ísland í 5. sæti „ÞAÐ hefur verið mikið lagt í þetta lið undanfarin fjögur ár, en árangurinn sýnir að af- reksstefna HSÍ er rétt — allt gekk upp á Spáni. Við erum eina Norðurlandaþjóðin, sem hef ur tryggt sér sæti í næstu lokakeppni, sem verður í Grikklandi 1991, og ég á von á að þetta lið verði uppistað- an íhópnum 1995 og jafnvel fyrr,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, við Morgunblaðið eftir að ís- land hafði unnið Frakkland 24:21 og hafnað í 5. sæti á HMU-21 áSpáni. Frakkar komust í 3:0, en Is- lendingar náðu að jafna um miðjan hálfleikinn og höfðu yfir í hléi, 15:12. Sami munur hélst út leikinn og sigurinn aldrei í hættu. Héðinn Gilsson gerði sjö mörk, alls 48 í keppninni og varð næst markahæstur. Þorsteinn Guðjóns- son skoraði sex mörk, Sigurður Bjamason 4, Konráð Olavson 3, Halldór Ingólfsson 2 og Sigurður Sveinsson 2. Bergsveinn Berg- sveinsson byijaði í markinu, en Sigtryggur Albertsson tók við í seinni hálfleik og stóðu báðir sig vel. „Eins og í öðmm sigurleikjum var þetta sigur liðsheildarinnar,“ sagði Jón. „Allir markverðimir stóðu sig vel í mótinu, vamarleik- urinn kom vel út. Okkar menn voru smávaxnari en aðrir en sneggri og tæknin var yfir meðal- lagi“, bætti hann við. Sovétmenn sigraðu í keppninni, unnu Spánveija 23:17 í úrslita- leik. Júgóslavía vann Vestur- Þýskaland 23:22 í keppni um þriðja sæti, Svíþjóð vann Rúmeníu 30:24 og hafnaði í 7. sæti, Kórea vann Ungveijaland 38:29, Aust- urríki varð í 11. sæti, vann Pól- land 28:24, en síðan komu Tékko- slóvakía, Alsír, Egyptaland og Bandaríkin í sömu röð. KORFUKNATTLEIKUR Stórveldin í eina sæng! Sovétmaður og Bandaríkjamaður í fyrsta sinn samherjar í Evrópukeppninni Útlendingarnir í liði KR, Jonathan Bow og Anatólíj Kovtoúm. KNATTSPYRNA Guðmundur og Atli til Dusseldorf Víkingarnir Guðmundur Hreiðarsson og Atli Einarsson eru dveljast nú í Vestur-Þýskalandi þar sem þeir kanna aðstæður hjá 4. deild- arliðinu Tura Diisseldorf. Atli Eðvaldsson lék með þessu liði og það mun vera fyrir milligöngu hans að Víkingarnir fóru til Dússeldorf. Atli og Guðmundur verða úti í viku og munu kanna aðstæður hjá liðinu. Gangi allt upp munu þeir leika með liðinu í vetur. BADMINTON / EVROPUKEPPNI FELAGSLIÐA KR-INGAR mæta enska liðinu Hemel Hempstead í Evrópu- keppni félagsliða á fimmtudag- inn. Með liði KR leikatveir út- lendingar, Sovétmaðurinn Anatolíj Kovtoún og Banda- ríkjamaðurinn Jonathan Bow, sem KR-ingar fá lánaðan frá Haukum. Samkvæmt upplýs- ingum frá FIBA mun þetta vera í fyrsta sinn sem leikmenn þessara stórvelda eru sam- herjar í Evrópukeppninni í körfuknattleik og reyndar ólík- legt að slíkt haf i gerst á öðrum vettvangi, þarsem Sovétmenn hafa lítið leikið nema í heima- högum. KR-ingar leika á nýja heima- velli sínum á Seltjarnarnesi. Það verður fyrsti körfuboltaleikur- inn þar og jafnframt fýrsti Evrópu- leikurinn. Lið Hemel Hempstead er sterkt og í því eru tveir Bandaríkjamenn og margir enskir landsliðsmenn. Liðið hafnaði í 2. sæti en hefur yfirleitt verið ofarlega í deildinni. KR-ingar eru einnig með sterkt lið og sigraðu í Reykjavíkurmótinu, sem lauk um helgina. Liðið hefur fengið Kovtoum og Bow og einnig hafa bæst í hópinn Páll Kolbeinsson og Axel Nikulásson. Reyndar hafa KR-ingar ekki unnið mikil afrek í Evrópukeppninni, tekið þátt sex sinnum og tapað öllum tólf leikjun- um. „Ég er ánægður með liðið en það er slæmt að hafa ekki náð fleiri æfingum með Bow,“ sagði Anatólíj Kovtoúm. „Ég er nýr í liðinu- og tala ekki íslensku. Leikmenn hafa verið mjög hjálplegir og hrúgað á mig kennslubókum. Hinsvegar ætla ég fyrst að ná tökum á enskunni áður en ég reyni við íslenskuna," sagði Kovoúm. Kovtoúm hefur leikið þijá lands- leiki með sovéska landsliðinu og eru þá ekki taldir með vináttu- og æf- ingaleikir. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég leik með Sovétmanni og kannski fyrsta sinn í sögunni sem Banda- ríkjamaður leikir með Sovétmanni í keppni,“ sagði Jonathan Bow. „Það gekk nokkuð vel á fyrstu æfingunni og ég held að KR-ingar þurfi okkur báða. Það er ekki venj- an að menn leiki með tveimur liðum í Bandaríkjunum en mér líst vel á þetta,“ sagði Bow. Lið KR er nokkuð sérkennilegt. Liðið er íslenskt, þjálfarinn ung- verskur, einn sovéskur leikmaður og bandarískur lánsmaður. „Þetta er undarleg blanda, en ég held að þetta gangi upp,“ sagði Laszló Nemeth, þjálfari KR. ■ HEMEL Hempstead, liðið sem mætir KR í Evrópukeppni félags- liða^hefur yfirleitt verið ofarlega í ensku deildinni. Fyrir nokkram árum vann liðið tvö ár í röð. Þá var besti maður liðsins Bandaríkja- maður að nafni Paul Stewart sem lék með ÍR fyrir nokkram áram. Á þeim tíma var David Tittmus þjálf- ari liðsins en hann tók síðar við enska landsliðinu en er nú kominn aftur til Hemel. Lið TBR sem tók þátt í Evrópukeppni félagsliða á Spáni. Frá vinstri: Guðmund- ur Adolfsson, Lovísa Sigurðardóttir, formaður TBR og fararstjóri, Árni Þór Hallgrímsson, Þórdís Edwald, Broddi Kristjánsson, Guðrún Júlíusdóttir, Huang Wicheng, þjálfari og leikmaður og Elísabet Þórðardóttir. Utlendingalausir Njarðvflcingar Njarðvík mætir Leverkusen í kvöld TBR komst í undan- úrslit TBR komst í undanúrslit í Evr- ópukeppni félagsliða í badmin- ton sem fram fór í Sanjavier á Spáni um helgina. Enska liðið Headingley varð Evrópumeist- ari, sigraði sænskt lið í úrslit- um,4:3. m Islendingar komust í undanúrslit með því að vinna Austurríki, 7:0, Belga, 6:1 og Svisslendinga, 6:1. í undanúrlsitum lék TBR við sænskt lið og tapaði 2:5. Broddi Kristjáns- son og Árni Þór Hallgrímsson unnu í tvíliðaleik karla og Árni Þór og Elísabet Þórðardóttir í tvenndar- leik. Svíar léku síðan til úrslita við Englendinga og töpuðu þar naum- lega 3:4. „Við erum mjög ánægð með ár- aiígurinn, en þetta var í fjórða sinn sem TBR nær að komast í undanúr- slit keppninnar," sagði Lovísa Sig- urðardóttir, fararstjóri íslenska liðs- ins. Hún bætti því að keppnistað- staðan og skipulagning Spánveija hafi ekki verið upp á það besta. Alls tóku 20 lið þátt í mótinu og voru íslendingar nú með í níunda sinn. Fyrsti Evrópuleikurinn í körfu- knattleik fer fram í kvöld. Bik- armeistarar Njarðvíkur taka á móti vestur-þýska liðinu Bayer Leverk- usen í Njarðvík kl. 20. Njarðvíkingar leika án útlend- ings. Mike Clarke var rekinn fyrir skömmu. Liðið hafði hug á að fá Tommy Lee, leikmann IR, til liðs við sig, en tíminn var of naumur. Njarðvíkingar hafa því engan út- lendinga en leyfilegt er að nota tvo útlendinga. Bayer Leverkusen hefur sjö sinn- um orðið v-þýskur meistari, síðast 1986. Liðið hefur sjö sinnum orðið bikarmeistari, síðast í vor. Meðal- hæð liðsins er 1,99 m og stærsti leikmaður liðsins, og jafnframt sá stærsti sem hefur komið hingað, er 2,20 m. Liðið hefur tvo Banda- ríkjamenn, miðheija og bakvörð og í liðinu eru fimm leikmenn sem hafa leikið með vestur-þýska lands- liðnu og einn með því enska. Tveir landsliðsmenn era í liði Njarðvíkur, Teitur Örlygsson og Friðrik Ragnargson. Þá eru fjórir aðrir leikmenn sem leikið hafa með landsliðinu, Helgi Rafnsson, ísak Tómasson, Jóhannes Kristbjörnsson og Kristinn Einarsson. Njarðvíkingum hefur gengið vel í haust og liðið sigraði nokkuð ör- ugglega í Reykjanesmótinu. Þó má búast við því að róðurinn verði þungur, enda vestur-þýskur körfu- knattleikur betri en sá íslenski.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.