Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 4
np • 4. f ■ B _____________ ’ _____________MORGUNBLAÐID IAUGARDAGUR 14. OKTÓBBR 1989 A ....— 1 - A RISAVÆNGJUM Stefán Axel sýnir á Kjarvalsstöðum „Þetta byrjaði allt í sjúkrabíl á leið til HafnarQarðar. Það var allt fullt á fæðingardeildum hér í Reykjavík. Svo ég fæddist í Firðinum. Kannski má segja að þessi byrjun hafi verið táknræn fyrir það sem konia skyldi, því þegar ég er spurður hvaðan ég sé, veit ég eiginlega ekki hvort ég á að segja „alls staðar“ eða „livergi". Fjölskyldan mín var stöðugt að flytja milli staða. Ég var aldrei lengur en tvö ár i skóla á hverjum stað, yfirleitt eitt ár, þangað til á unglingsárum að ég flutti til Húsavíkur og var þar í fimm ár.“ Stefán Axel á vinnustofu sinni £ Rotterdam að er Stefán Axel Valdi- marsson, sem lýsir æsku sinni, en nú stendur yfir sýning á verkum hans í austursal Kjarvalsstaða. Ég spyr hversvegna hann hafi alltaf verið að flytja. „Pabbi var verslunar- stjóri og hélt alltaf að grasið væri grænna hinum megin við fjallið. Einu sinni fórum við meir að segja alla leið til Bandaríkjanna, til Fresno í Kaliforníu. Móðursystir mín bjó þar og maðurinn hennar var að koma upp hjólhýsahverfi. Við fórum til að hjálpa honum að byggja þetta upp. Eftir eitt og hálft ár leist okkur ekki lengur á þetta, pökkuðum niður og héldum heim, með ekkert nema ferðatöskur, og á víxlum. Þetta var stór fjölskylda. Við erum ijórir bræð- urnir. En fljótlega eftir að við komum heim aftur, fluttum við til Húsavík- ur. Áður en það gerðist náði ég þó að fara í nokkra kvöidtíma í mynd- list hjá Hring Jóhannessyni. En ég átti ekkert við myndlistina meira á þessum árum. Fór í Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist þaðan 1977.“ Þá hefurðu auðvitað drifið þig í myndiistina? „O-nei. Ég fór að vinna hitt og þettá'næstu þijú árin. Var á sjónum — á síld og loðnu. Svo húsvörður í Krummahólum uppi í Breiðholti í eitt ár. Síðan var ég í byggingavinnu og að iokum í fiskvinnslu í Færeyjum í eitt ár. Ég vildi ekki fara í myndlist fyrr en ég gæti verið alveg viss um að ég gæti unnið við þetta — og haldið það út. Svo vissi ég ekkert hvoit ég hefði hæfileika. Svo ekki fór ég í Myndlista- og handíðaskólann fyrr en 1980. Þaðan lauk ég námi frá málaradeild 1984. Síðan lá leiðin til Hoilands, í Jan van Eyck Akademi í Maastrich. Þessi akademía er ekki skóli i klassískum skilningi, heldur það sem kalla mætti „verkpláss". Maður fær vinnustofu og þeir borga 40% af efniskostnaði, en gjöldin hjá þeim eru nánast engin. í regium skólans stendur að um 40% af nem- endum skuli vera útlendingar, sem þýðir að um 10 erlendir myndlistar- menn komast þarna inn á ári hveiju. Til dæmis eru yfirleitt þrír til fjórir íslendingar þarna í senn.“ Já, Holland virðist vera gósenstað- ur fyrir myndlistarmenn. Að hvaða leyti eru viðhorf Hollendinga til myndlistar ólík viðhorfum Islend- inga? „Rökin á bak, við fjármögnun myndlistaruppeldis eru öðruvísi. Hol- lendingar hafa svo miklar tekjur af ferðamönnum sem koma til að skoða listasöfnin þeirra og gömlu meistar- ana; Rembrandt, Van Gogh og Frans Halls. Hollendingar taka vissa pró- sentu af tekjum frá ferðaiðnaði, til að byggja upp myndlistarnám — í þeirri von að hægt sé að halda þess- ari hreyfingu áfram.“ Eftir tveggja ára veru í akademí- unni, flutti Stefán Axel heim til ís- lands og tók með sér allar sínar myndir, engin námslán lengur og við tók sjómennskan. „Hinsvegar er þannig kerfi í Hollandi," heldur Stef- án Axel áfram, „að eftir tveggja ára veru þar, á maður sama rétt og Hoilendingar í styrkjakerfinu hjá þeim, þannig að áður en ég fór heim, sótti ég um styrk sem er ætlaður ungum myndlistarniönnum. En þar sem ég bjóst ekki við neinu, skildi ég engar myndir eftir. Um haustið hitti ég svo náunga sem sagði mér að einhver frá nefndinni hefði komið í akademíuna og verið að leita að mér. Honurn var sagt að ég væri farinn heim, svo ég hélt að allt væri afskrifað. Af einhverri rælni rauk ég þó af stað og hringdi til Hollands úr einhvetjum tíkallasíma í Sand- gerði; var með tíu metra af tíköllum. Ég náði í skottið á nefndarmönnum daginn áður en ákveða skyldi styrk- ina og sagði þeim að ég væri á ís- landi bara til að vinna mér inn pen- ing — sem var auðvitað hvít iygi — og þeir gáfu mér frest fram í janúar tii að koma út aftur með myndirnar mínár. Þetta símtal tók óratíma og á meðan beið öll skipshöfnin eftir að komast frá bryggjunni út á miðin. í janúar fór ég síðan aftur út til Hollands með verkin mín og naut til þess styrks frá flugfélaginu hér. Ég fékk aðstöðu til að setja þau upp í Ríkisakademíunni í Amsterdam, en nefndin vildi sjá þau í Maastrich. Ég varð því að taka þau öll niður og setja þau upp þar. Svo kom nefndin, skoðaði þau á föstudegi og á mánu- degi fékk ég svar frá þeim um að ég fengi styrk til eins árs. Þar með var ég aftur fastur í Hollandi og slapp frá síldinni. Þetta var styrkur til eins árs og þegar það ár var búið flutti óg til Rotterdam og hef verið þar síðan?“ Hvers vegna Rotterdam? „Það er von þú spyijir. Rotterdam er köld vinnuborg og er við sjó. Hún minnir mig mikið á lífið hér heima. Þetta er risastór hafnarborg, sem hefur þá kosti að maður getur unnið í friði. Amsterdam er einskonar kok- teilborg, þar sem fólk situr á kjaft- æði daginn út og inn. Rotterdam hefur hinsvegar verið dauð borg hvað menningfu snertir, ef frá er talið Boymans van Beuningen-safnið. En undanfarin tvö ár hafa þeir í Rotter- dam dælt peningum í menningarlífið í von um að geta keypt hjartað inn í borgina. Þarna fann ég vinnustofu í gam- alli verksmiðju. Borgin á hana og leigir hana út og nú eru þarna um tuttugu listamenn að vinna, hver með sitt stúdíó.“ Þú hefur ekki sýnt hér heima frá því 1985, en hefurðu sýnt eitthvað í Hollandi? „I fyrra var ég með einkasýningu í borg sem heitir Vlissingen í Hol- landi. Þeir höfðu valið sex unga að- ila sem höfðu hlotið sama styrk og ég árið 1987 og voru með sólósýn- ingu á verkum hvers og eins. í upp- hafi þessa árs komst ég síðan í kynni við galleríeiganda í Rotterdam og er með mjög sterkt gallerí — hefur reyndar rekið það í 20-25 ár. Hann var sérfræðingur í Cobra-hópnum á sínum tíma. Ég var mjög heppinn að komast í kynni við hann, því hann er rnjög vel íjárhagslega settur og rekur galleríið á núlli. Hann notar það sem kemur inn algerlega til að auglýsa þá listamenn sem eru á hans snærum. Hann er eins konar um- boðsmaður líka og planar fyrir mig sýningar, þótt ég hafi mjög fijálsar hendur hvað það varðar. Eg hef þó samráð við hann þegar ég skipuíegg mitt sýningahald." Ertu sestur að í Hollandi? „Kannski. Við getum sagt að ég verði þarna þangað til ég get ekki verið þar lengur. Þá kem ég heim og fer á sjóinn. Það er mjög hagstætt að vera í Hollandi, vegna þess að styrktarkerf- ið hjá þeim er svo sterkt. Þótt maður selji ekkert á maður alltaf möguleika á að fá_ styrk til að halda áfram að vinna. Á hveiju ári fær 20% umsækj- enda þann styrk sem ég fékk og hann er aðeins fyrir listamenn sem eru að hefja sinn feril. Og hann er geysilega hár. Síðan er annar styrk- ur, enn hærri, fyrir listamenn al- mennt. Að auki er mýgrútur af styrkjum til afmarkaðra verkefna, en það ríflegir að maður getur lifað einhvern tíma á þeim.“ Sem fyrr segir hélt Stefán Axel síðast sýningu hér í Galleríi Borg 1985. Myndirnar á sýningunni á Kjarvalsstöðum hafa allar verið unn- ar eftir þá sýningu. Stefán Axel sýn- ir aðeins níu myndir nú — allar gríðarlega stórar. „Já,“ segir Stefán. „Það komu hérna litlir krakkar í gær að skoða og einn guttinn kom hérna inn, horfði á myndirnar og sagði: Veistu hvað ERRÓ er búinn að mála margar myndir — 128. Honum fannst þetta eitthvað fáar rnyndir." Á myndflötunum birtast skipsstefni og flugvélavængir — allt stórt í snið- unum og ég spyr Stefán hvort þetta sé heimþrá, flökkueðli, eða lífið í Rotterdam. Hann hlær, horfir hugsi á vængi sem breiða úr sér yfir hálfan vegginn í austursalnum: „Það má kannski segja að í grófum dráttum hafi form- in alltaf verið að einfaldast hjá mér, sem hefur þá ósjálfrátt kallað á stærra format, sem gefur mér þá meiri möguieika á að breyta mynd- efninu í sálrænt andrúmsloft.“ Þannig að flugvél er þá ekki,flug- vél og skip er ekki skip? „Nei, nei.“ En myndinar eru nokkuð dökkar. Ertu þunglyndur? „Nei, allsekki. Bara ekkert voða gamall.“ Á leiðinni út velti ég þessu fyrir mér og rámar þá í einhveija kenn- ingu ,um að myndlistarmenn vinni sig úr myrkri, yfir í ljósið. Það er að segja að þegar þeir eru ungir og óöruggir, máli þeir í fremur dimmum litum, en verk þeirra lýsist meir og meir með aukinni kunnáttu og þroska. Kannski er það þannig. Alla- vega eru tvær nýjustu myndirnar á sýningu Stefáns Axel nokkuð ljósar; vængirnir risastóru og guli turninn. Ég sný við og spyr: Meinarðu að hægt sé að segja um myndlistarmenn að þeir vinni við að finna ieiðina frá myrkrinu í ljósið? Hann flissar og segir: „Þú getur haft það þannig ef þú vilt,“ og auðvit- að er hægt að búa til kenningu úr hveiju sem er — það er þó satt. Viðtal/Súsanna Svavarsdóttir Vetrarstarf Kammermúsíkklúbbsins er nú hafið og verða fyrstu tónleikarnir haldnir í Bústaðarkirkju á morgun, sunnudagskvöldið 15. október. Á tónleikunum flytja fjórir hljóðfæraleikarar úr Sin- fóníuhljómsveit íslands, þau Szymon Kuran og Andrzej Kleina frá Póllandi og Sarah Buckley og Gary McBretney frá Bretlandi, þrjá strengjakvartetta eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Dmitri Shos- takovitch. zymon Kuran er vara- konsertmeistari Sin- óníuhljómsveitarinnar og leikur á fyrstu fiðlu í kvartettinum. Andrzej leikur á aðra fiðlu, Sarah á lágf- iðlu og Gary á knéfiðlu. Þau hafa ekki spilað saman opinberlega áður, en æft saman heima ánægjunnar vegna að sögn Szym- ons. Verkin sem flutt verða á tón- leikunum annað kvöld, eru Strengjakvartett í G- dúr, K. 387 og Strengjakvartett í B-dúr, K 458 eftir Wolfgang A. Mozart og Strengjakvartett nr. 10 í As-dúr op. 118 eftir Dmitri Schostako- vitch. Kammermúsíkklúbburinn fyr- irhugar að halda fimm tónleika í vetur. Þeir næstu verða í desem- ber með Blásarakvintett Reykjavíkur og Guðríði Sigurðar- dóttur píanóleikara. MEO Szymon Kuran, Andrzej Kleina, Sarah Buckley og Gary McBretney. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.