Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 22
8& e8ei aaaöTxo ,ei huoaciutmmih QieAjanuoHOM 22 ....—“ MORGUNBLAÐin TTMMTUDAGUR ie. OKTOBERrl989-- Ríkisendurskoðun um ríkisreikninga Gjöld byggingarsjóðanna 1.570 milljónir fram ór íjárlögum GJÖLD Byggingarsjóðs ríkisins urðu um 1.305 milljónum króna hærri 1988 en fjárlög sögðu til um og gjöld Byggingarsjóðs verkamanna urðu 261,5 milljón- um hærri. Gjöld sjóðanna fóru því samanlagt um 1.570 milljón- um króna fram úr fjárlögum. Mesti munur kom fram á vaxta- gjöldum. Tekjur Byggingarsjóðs ríkisins fóru 612 milljónum fram úr fjárlögum og Byggingarsjóð verkamanna vantaði 105 milljón- ir til að ná fjárlögum. Ríkisend- urskoðun fer hörðum orðum um rekstur sjóðanna í athugasemd- Rekstrarkostnaður sjóðanna fór 146,8 milljónir króna fram úr Ijár- lögum, eða um 70,6%, og má að hluta rekja það til stöðugilda urn- fram heimildir. 39,24 stöður voru heimilaðar, en 55,75 stöðugildi greidd, eða 16,51 fleiri. Fjárfestingar voru fyrir 138,4 milljónir króna, en heimildir voru fyrir 15 milljónum. Stærsti hluti þessara útgjalda, 119,1 milljón, var vegna kaupa á hluta húseignarinn- ar við Suðurlandsbraut 24. í athugasemdum segir meðal annars: „Ljóst er að frávik í rekstr- argjöldum og fjárfestingum bygg- ingarsjóðanna verður ekki fjár- magnað öðru vísi en með því að veija minni fjármunum til lánveit- inga. Ríkisendurskoðun leggur á það áherslu að Húsnæðisstofnun ríkisins miði ávallt starfsemi sína við .útgjaldaheimildir ijárlaga. Nauðsynlegt er að stjórnendur fylgist náið með útgjöldum. Stefni í að þau fari fram úr fjárheimild ber að sækja um aukafjárveitingu. Fáist hún ekki strax þarf að grípa til viðeigandi spamaðarráðstafana, enda er það hlutverk fjárveitinga- valdsins, en ekki stjórnenda ein- stakra stofnana að ákveða hvert umfang starfseminnar skuli vera á hverjum tfma.“ Aðalskrifstofa for- sætisráðunéytisins Launakostnaður 50% fram úr fjár- lögum HEILDARGJÖLD aðalskrifstofii forsætisráðuneytisins námu á síðasta ári 62,6 milljónum króna, sem er 35,4% umfram fjárlög. Launakostnaður skrifstofunnar fór 10,1 milljón króna fram úr fjár- lögum eða sem nemur 50%. Stafar þetta annars vegar af fjölgun starfsmanna umfram áætlanir ijár- laga og hins vegar af fráviki í yfir- vinnu og stjómar- og nefndarlaun- um. Ríkisendurskoðun vekur sérlega athygli á háum rekstrar- og við- haldskostnaði bifreiða forsætis- ráðuneytisins og telur nauðsynlegt að taka þennan lið til gagngerrar endurskoðunar. Arðsúthlutun ríkisbankanna: Ekki ákvörðun flármálaráð- herra RÍKISENDURSKOÐUN vekur í skýrslu sinni athygli á því að það sé ekki í verkahring fjármála- ráðherra að ákveða arðsúthlut- un ríkisviðskiptabanka heldur viðkomandi bankaráða. í skýrslunni er enn fremur bent á að sameignar- og hiutafélög sem ríkissjóður eigi hiut í séu ekki B- hluta stofnanir í skilningi laga 52/1966 og verði því að telja kröfu ríkissjóðs um ráðstöfun hagnaðar fyrirtækja þessara og stofnana sé utan þeirra marka sem felist í 54. gr. laga nr. 52/1966. Póstgíróstofan: 40 milljóna ósótt orlofsfé í SKÝRSLU Ríkisendurskoðun- ar kemur fram að hjá Póstgíró- stofunni eru ósóttar ávisanir að upphæð 38,9 milljónir króna vegna orlofsáranna 1973-1988. Ríkisendurskoðun bendir á að samkvæmt lögum eigi orlofsfé sem orlofsþegi hefur ekki sótt innan árs frá lokum oriofsárs að renna í lífeyrissjóð hans sem aukaiðgjaid. Ósótt orlofsfé hafi hins vegar aldr- ei verið afhent viðkomandi lífeyris- sjóðum. Er greint frá því í skýrsl- unni að Ríkisendurskoðun hafi bent félagsmálaráðuneytinu á að nú þegar þurfi að taka þetta mál til athugunar. Þann 1. maí 1989 átti Póstgíró- stofan 75,9 milljónir króna ósóttar hjá launagreiðendum vegna van- greidds orlofs og hafa þá þegar tapaðar skuldir verið afskrifaðar, en Ríkisendurskoðun hefur heimil- að afskriftir _að upphæð 22,3 millj- ónir króna. Óvíst er um innheimtu 75,9 milljónanna. Embætti forseta Islands: 21%umfram fjárlög EMBÆTTI FORSETA íslands fór á síðastliðnu ári 21% fram úr fjárlögum. Heildarútgjöld námu 53,9 milljónum. Stærstu fravikin frá fjárlögum eru vegna yfirstjómar (11 millljón- ir) og fálkaorðan 440 þúsund. Þá voru í ijárlögum veittar 11,7 millj- ónir til viðhalds, en kostnaður nam 7.4 milljónum króna. Alþingi: 25% fram úr jQárlögum ALÞINGI, fjárveitingarvaldið, fór 25% fram úr fjárlögum, en heildarútgjöld vegna þess á ár- inu 1988 námu 458,5 milljónum. Stærstu frávikin er í liðnum „önnur rekstrargjöld" eða 72,6 milljónir. Skrifstofu- og alþingis- kostnaður fór um 49,5 milljónum króna fram úr fjárlögum, viðhald 6 milljónir og stofnkostnaður 27,5 milljónir umfram fjárlög. Ríkisendurskoðun hefur lagt til breytt stjómskipulag þingsins, fjár- mál og bókhaldsstjóm verði styrkt og starfsmannamál samræmd. Ríkisábyrgð á launum vegna gjaldþrota: Meira en þre- földun frá flár- lögum FRAMLÖG vegna ábyrgðar ríkisins á launaskuldum gjald- þrota fyrirtælya fór langt fram úr fjárlögum á síðasta ári. Fjár- veiting til þess nam 23 milljónum en kostnaðurinn varð í raun 79,2 milljónir. Ríkisendurskoðun leggur til eft- irfarandi aðgerðir til að takmarka útgjöld ríksins: Akvæði verði sett í lög um hám- arksábyrgð ríkissjóðs á einstökum kröfum. Tímamörk ríkisábyrgðar verði stytt. Laun verði ekki greidd á upp- sagnarfresti, nema því aðeins að starfsmaður sé atvinnulaus. Lengd uppsagnarfrests samkvæmt þessu verði takmörkuð. Kannað verði hvort einhver úr- ræði séu fyrir hendi sem tryggja að gjaldþrota fyrirtæki komi fyrr til gjaldþrotaskipta en nú tíðkist. Viðmiðunartímabil sem ríkis- ábyrgð miðist við verði eitt í stað þriggja nú. Komið verði í veg fyrir þá fyrir- höfn sem því fylgir að endurgreiða tekjuskatt sem áður var dreginn af launþega. Athugað verði hvort hagkvæmt sé að fela Launaskrifstofu ríkisins eða skiptaráðanda uppgjör á laun- akröfum. Haldið verði betur um þær kröf- ur sem ríkissjóður leysi til sín. Lögreglu- og dómgæsla: 322,6 millj. fram úr flárlögum STOFNANIR þær sem hafa með höndum dómgæslu og lögreglu- mál fóru á árinu 1988 322,6 millj- ónir fram úr fjárlögum. Stærstan hluta fráviksins má rekja til lau- nagjalda. Ríkisendurskoðun greinir frávik- in í tvennt: annars vegar sé um að ræða fleiri starfsmenn og meiri yfii-vinnu og annars vegar meiri launahækkanir. Stöðugildi eru rúmlega 120 fleiri en gert var ráð fyrir og yfirvinnu- stundir 165 þúsund fleiri en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Ríkisendurskoðun segir viðkom- andi stofnanir ekki virða þann ramma sem þeim sé settur í fjárlög- um hvað varðar fjölda starfsmanna og vinnuframlag þeirra og að fjár- lög séu ekki í samræmi við raun- verulegan rekstur stofnana, þar sem tillögur þeirra hafi við gerð fjárlaga verið skornar niður á óraunhæfan hátt. Úr þessu tvennu þurfi að bæta. Vegagerð ríkisins: Athugasemdir við 400 milljóna lántöku í SKÝRSLU Ríkisendurskoðun- ar kemur fram að stofnunin hafi gert athugasemdir við það að Vegagerð ríkisins hafi tekið bráðabirgðalán til að fjármagna vegaframkvæmdir, en þessi Ián námu 400 milljónum króna árið 1988. í skýrslunni segir að öll lán til framkvæmda séu tekin samkvæmt ákvörðunum alþingismanna við komandi kjördæma eða með sam þykki þeirra. Er það álit Ríkisend- urskoðunar að Vegagerð ríkisins sé ekki heimilt að fara út í aðrar framkvæmdir en þær sem rúmist innan innan fjárlaga og vegáætlun ar hvers árs. Stofnunum sé óheim ilt að taka innlend lán eða stofna til skulda innanlands nema til þess séu heimildir í sérstökum lögum eða fjárlögum og eigi fjármálaráðu neytið að annast allar lántökur ríkissjóðs og stofnana í A-hluta ríkisreiknings. Geðsjúkir hafa orðið útundan Morgunblaðið/Þorkell Frá „neyðarfundi" um ástandið í málefnum geðsjúkra, sem Kiwanis- hreyfingin á Islandi stóð fyrir á Hótel Borg í gær. „Neyðarfiindur“ um málefiii geðsjúkra: - segir Ólafur Ólafsson landlæknir AÐ sögn Ólafs Ólafssonar landlæknis hefnr fólk sem haldið er langvinnum sjúkdómum, þar með taldir geðsjúkir, orðið útundan og misst af velferðinni í íslensku þjóðfélagi undanfarin 10-15 ár. Hann segir að samfara þeirri þróun að fleiri geðsjúkir dveljist utan sjúkrastofiianna, þá séu heimili nú síður í stakk búin til þess að annast veikt fólk en áður. Þetta kom fram á sérstökum „neyðarfundi" sem Kiwanishreyf- ingin á íslandi efndi til á Hótel Borg í gær um málefni geðsjúkra. Á fundinn var boðið alþingismönn- um, borgarfulltrúum, embættis- mönnum, íbúum sambýla og áfangastaða og starfsfólki í geð- heilbrigðiskerfinu. Markmið fund- arins var að vekja athygli ráða- manna og almennings á ástandinu í málefnum geðsjúkra, ekki síst hvað varðar húsnæðis og endur- hæfingarmöguleika, en næstkom- andi laugardag munu Kiwanismenn selja K-lykilinn til styrktar geðsjúk- um, og verður hagnaði af sölunni varið til byggingar verndaðra sam- býla í Reykjavík og á Akureyri. Geðsjúkir eiga erfiðast uppdráttar á vinnumarkaði Að sögn Elísabetar Guttorms- dóttur, deildarstjóra atvinnumiðlun- ar fatlaðra, eiga geðsjúkir erfiðast uppdráttar allra fatlaðra á almenn- um vinnumarkaði. Af 260 fötluðum, sem leitað hafa til atvinnumiðlunar- innar það sem af er þessu ári, á um þriðjungur við geðræn vanda- mál að stríða. Aðeins átta þeirra hafa fengið störf á almennum vinnumarkaði, og eru það allt tíma- bundin störf, en 33 hafa verið ráðn- ir í vinnu á vernduðum vinnustöð- um. „Atvinnurekendur virðast al- mennt vera smeykir við að ráða til sín fólk með geðræna kvilla, en mig grunar að ástæða þess sé með- al annars hræðsla og vanþekking á geðrænum vandamálum. Við erum að reyna að byggja upp góð tengsl við atvinnulífið og stefnum að því að færa sem flesta af vernduðum vinnustöðum í áframhaldandi starf í fyrirtækjum á almennum vinnu- markaði, en það sem þetta fólk þarf fyrst og fremst á að halda er skilningur atvinnurekenda og verk- efni við hæfi,“ sagði Elísabet. Utanríkisráðherra ræddi við jaftiað- armannaleiðtoga á Norðurlöndum um viðræður EFTA og EB: Anægðir með árangur undirbúningsstarfsins JÓN Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, ræddi í 'gær í Osló við leiðtoga jafiiaðar- mannaflokka á Norðurlöndum og forseta fjögurra alþýðusam- banda um stöðu Norðurland- anna í viðræðum Fríverslunar- bandalags Evrópu (EFTA) og Evrópubandalagsins (EB), en Islendingar fara nú fyrir við- ræðunum fyrir hönd EFTA. Jón Baldvin sagði að allir leið- togarnir hefðu lýst yfir mikilli ánægju með hver árangur þessa undirbúningsstarfs hefði verið hingað til. Það hefði verið sameig- inlegt mat manna að árangurinn væri betri en menn hefðu þorað að gera sér vonir um í upphafi. Allar tímaáætlanir hefðu staðist og engin óýfirstíganleg vandamál komið upp í starfi vinnunefnd- anna. „Menn töldu yfirleitt að EFTA hefði sýnt það í þessu starfi að betur hefði gengið að samræma stefnu og sjónarmið, heldur en ætla hefði mátt fyrirfram,“ sagði Jón Baldvin. Hann sagði að það hefði vakið sérstaka athygli hans að sænski forsætisráðherrann hefði látið rækilega í ljósi ánægju sína með skipulagningu og framkvæmd þessa starfs undir forustu íslend- inga, af því að þeim hefði í eina tíð verið eignaðar efasemdir um getu íslendinga til að veita þessu starfi forystu. Jón Baldvin hittir utanríkisráð- herra nýrrar norskrar ríkisstjórnar Kjell Magne Bondevik í dag að frumkvæði þess síðarnefnda og gerir honum grein fyrir stöðu við- ræðna EFTA og EB. Að sögn Jóns Baldvins kom fram í Noregi í gær að ekki mun verða um stefnu- breytingu að ræða hjá þessari ríkisstjórn varðandi viðræðurnar við EB frá stefnu ríkisstjórnar Verkamannaflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.