Morgunblaðið - 20.10.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.10.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989 EFTA Norðmenn hafiia hugmyncl- inni um tollabandalag JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðlierra og formaður Ráðherra- nefndar EFTA, átti í gærmorgun fund í Osló með Kjell Magne Bonde- vik, nýjum utanríkisráðherra Noregs um afstöðu nýju stjórnarinnar til þess starfs sem þegar hefur farið fram til undirbúnings samningavið- ræðna EFTA og Evrópubandalagsins sem að líkindum fara fi’am á næsta ári. Utanríkisráðherra kvaðst í samtali við Morgunblaðið í gær ekki telja að fyrirvarar norsku ríkisstjórnarinnar sem Bondevik hefði kynnt honum á fúndinum myndu flækja það starf sem þegar hefði ver- ið unnið. „Ég var reyndar hæstánægður þegar Bondevik sagði mér að embættismenn Noregs hefðu engin fyrirmæli fengið um breytingar í þessum efnum, en þeir sitja á fundum í dag og á morgun," sagði Jón Baldvin. Jón Baldvin sagði að Bondevik liefði vísað til stefnuyfirlýsingar norsku ríkisstjórnarinnar. Þar kæmi fram að ríkisstjórnin hafnaði hug- myndinni um toliabandalag í tillögum starfshóps um fríverslun með vörur. Auk þess hefði komið fram að norska ríkisstjórnin áskildi sér rétt til þess að hafa takmörkunarvald um inn- streymi erlends vinnuafls til Noregs, ef á reyndi. „Ég sagði ráðherranum af þessu tilefni að hvorugur þessara fyrirvara yllu nokkrum vandkvæðum," sagði ráðhen'a. Um vöruviðskiptin væri það að segja að í könnunarviðræðun- um hefðu aðilar orðið sammáia um að setja fram tillögur um tvo kosti: annars vegar um útvíkkun á fríversl- unarsamningum, þannig að þeir tækju til flestra vöruflokka fyrir utan landbúnaðarafurðir, sem fæli þá enn í sér landamæraeftirlit og hins vegar hefði verið lagt til tollabandalag, sem hefði þá kosti að allir tollar á svæði þessara 18 ríkja yrðu afnumdir, en jafnframt þá skuldbindingu að ríkin myndu þá samræma ytri tolla sína í viðskiptum við þriðja aðila. Ráð- herra kvaðst hafa sagt hinum norska starfsbróður sínum að á þessu stigi máls væri ástæðulaust að kveða fastara að orði um þetta, því það myndi ekki reyna á það fyrr en sest væri að samningaborðinu á næsta ári. Varðandi seinni fyrirvarann um erlent vinnuafl, sagði Jón Baldvin að takmörkunarákvæði í þeim efnum yllu ekki vandkvæðum. Slík tak- mörkunarákvæði væru í gildi að því er varðaði Evrópubandalagið, sér- staklega hvað varðaði kröfuna um að hafa vald á tungumáli viðkom- andi þjóðar. Hann hefði bent honum á fyrirvara okkar íslendinga, sem væri samskonar og væri í gildi að því er varðaði norræna vinnumarkað- inn. Reuter Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra kemur til fúndar við hinn nýja, norska starfsbróður sinn, Kjell Magme Bondevik í Osló í gærmorgun. Víglundur Þorsteinsson, formaður FII: Opnun peningamarkaðar for- senda afiiáms lánskjaravísitölu VÍGLUNDUR Þorsteinsson, for- maður Félags íslenzkra iðnrek- enda, segist telja að það sé höfuð- nauðsyn að rjúfa einangrun íslenzka Ijármagnsmarkaðarins, Einar Oddur Kristjánsson formaður VSI: Verðtrygging launa útilokuð EINAR Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitendasambands íslands, segist telja vérðtryggingu launa útilokaða. Eigi að vera hægt að af- nema lánskjaravísitölu þuríí að koma niður verðbólgu, varðveita verð- gildi krónunnar og halda innlendum kostnaðarhækkunum lægri en erlendis. Verkamannasambandið hefur ályktað um að náist ekki verð- trygging launa, verði að afnema verðtryggingu fjárskuldbindinga. „Eg er eindregið þeirrar skoðunar, þessu þjóðfélagi, og það fyrr en að verðtrygging fjárskuldbindinga sé aðferð til að lifa við verðbólgu. En það er fullreynt og aldeilís útilok- að að við getum lifað við svona mikla verðbólgu, hvernig sem við veltum málinu fyrir okkur. Mitt mat er það, að eigi ekki að fara mjög illa fyrir seinna, verðum við að hverfa frá verðbólgunni og menn verða að skilja að það er ekki hægt að fara einn hringrenn,“ sagð Einar Oddur. „Ef menn vilja hafa tryggari samninga, þá sé ég ekki neina að- ferð til þess á meðan við höfum þessa mynt, aðra en þá að stjórnvöld, aðil- ar vinnumarkaðarins og hver og einn leggist á eitt um að viðhalda verð- gildi þessarar myntar, íslenzku krón- unnar. Það er aðeins ein nothæf aðferð til þess; að kostnaðarhækkan- ir hér á Islandi verði í framtíðinni lægri en í viðskipta- og samkeppni- slöndum okkar, ekki svipaðar eins og sumir segja, heldur lægri. Þetta verður erfitt að horfast í augu við, en það verður ekki undan því vikizt, hvað sem það kostar." en einmitt sú einangrun hafi á ýmsum tímum leitt til alvarlegs misgengis í peningamáluin, fyrr á árum á kostnað spariljáreigenda, nú seinni árin á kostnað atvinnu- fyrirtækja. „Fyrsta skrefið í tengingu íslenzka peningamarkaðarins við hinn alþjóð- lega væri hægt að stíga strax. Það væri í því fólgið að leyfa íslenzkum spariíjáreigendum og íslenzkum lán- takendum að fijálsu vali að binda sparnað og lán við erlenda gjald- miðla. Síðan geta menn á næstu misserum stigið þau nauðsynlegu framhaldsskref sem þessu fylgja," sagði Víglundur. Hann sagði að sér hefðu þótt umræður um afnám lánskjaravísitölu undanfarið hálfhjákátlegar. „Þær hafa snúizt um það hvort unnt sé að afnema lánskjaravísitölu eftir að verðbólgan hafi verið í élns stafs tölu elnhveijum mánuðum lengur eða skemur. Það skiptir engu máli í mínum huga. Ég held að í Ijósi reynsl- unnar muni íslenzkt nafnvaxtakcrfi ekki njóta trausts sparenda, jafnvel þótt verðbólgan kæmist niðui fvrir 10% í eitt eða tvö ár. Lykillinn að þessu öllu saman er að rjúfa einangr- un íslenzka peningakerfisins. Þá eru menn búnir að byggja traust og ör- yggisventla, sem munu alltaf tryggja sparnaðinn í landinu og hindra það misgengi, sem ég nefndi,“ sagði Víglundur. „í þessari umræðu verð- um við líka að muna það að láns- kjaravísitalan er tæki, sem átti að laga íslenzkan peningamarkað að mikilli verðbólgu. Við verðum að komast burt frá þessari verðbólgu og þess vegna_ verðum við að ijúfa einangrunina. í beinu framhaldi væri hægt að hugsa sér að fella niður lánskjaravísitölu af öllum nýjum fjár- skuldbindingum. Gjaldeyristenging væri síðan hið nauðsynlega aðhald að íslenzku nafnvaxtakerfi, sem' myndi tryggja þáð að menn væiu hvorki með verri né betri kjör en í samkeppnislöndum okkar." Athugasemdir við utandagskrárumræðu eftir Guðmund Benediktsson í umræðu utan dagskrár á Al- þingi mánudaginn 16. október vék Pálmi Jónsson alþingismaður með þeim hætti að starfsmannamálum í forsætisráðuneytinu, að ég kemst ekki hjá því að gera við það athuga- semdir. Hann talaði um ráðningar „póli- tískra aðstoðarmanna" ráðherra umfram heimild 14. gr. reglugerðar við stjórnarráðslög (svo!) í ýmsum ráðuneytum og krafðist þess að slíkum starfsmönnum yrði þegar í stað sagt upp. í upptalningu tíndi hann fyrst til starfsmenn í forsætis- ráðuneyti og sagði orðrétt: „Ég full- yrði að þessi ákvæði reglugerðarirm- ar eru n ú sniðgengin af einstökum ráðherra. Hæstv. forsætisráðherra hefur sinn aðstoðarmann svo sem hann hefur fulla heimild til. Hann hefur einnig nýlega ráðið blaðafull- trúa ríkisstjórnarinnar í stað Magn- úsar Torfa Ólafssonar sem að vísu ber starfsheitið „skrifstofustjóri" og eru þá tveir skrifstofustjórar í forsrn. Pá hefur hann einnig ráðið efna- hagsráðgjafa sem álitið hefur verið að væri efnahagsráðgjafí ríkisstjórn- arinnar en er nú titlaður efnahagsr- áðgjafi forsætisráðherra. “ Af orðum alþingismannsins verð- ur vart annað ráðið en að tveir síðasttöldu starfsmennirnir hafi ver- ið ráðnir í heimildarleysi og hafa orð hans borist um allt land um fjöl- fhlðla: 'Mrá.s:-var-i' forystugrein Morgunblaðsins í dag fjallað um ræðu Pálma og sett fram svofelld fullyrðing: „Hér skal staldrað við annað atriði sem Pálmi Jónsson gagniýndi réttilega, en það er út- þenslan í mannafla í kringum ein- staka ráðherra sjálfa og þó sérstak- lega í kringum þá Steingrím Her- mannsson og Ólaf Ragnar Grímsson.“ Erfitt er að sætta sig við málflutning af þessu tagi, því ekki hefði staðið á réttum upplýsing- um í forsætisráðuneytinu, ef eftir hefði verið leitað. Hið sanna er, að embættismönnum í ráðuneytinu hef- ur ekki íjölgað frá því 1980, þegar heimild var veitt til þess að ráða efnahagsráðgjafa í tíð stjórnar Gunnars Thoroddsens. Engin fjölgun starfsmanna hefur orðið í ráðuneyt- inu í forsætisráðherratíð Steingríms Hermannssonar, hvorki á árabilinu 1983—1987 né frá árinu 1988. Varðandi þá tvo starfsmenn, sem Pálmi víkur sérstaklega að í máli sínu, er rétt að eftirfarandi komi fram. Skipun skrifstofustjóra í for- sætisráðuneyti er á engan hátt tengd heimild til ráðningar aðstoðarmanns í 14. gr. stjórnarráðslaga. Fyrrum blaðafulltrúi. ríkisstjórnarinnar, Magnús Torfi Ólafsson, lét af starfi að eigin ósk hinn 1. mars sl. og losn- aði því sú staða. Til bráðabirgða sinnti aðstoðarmaður forsætisráð- herra fundarritun á ríkisstjórnar- fundum um nokkurra mánaða skeið, en það hafði blaðafulltrúi áður ann- ast. Var sá háttur á hafður annars vegar í spamaðarskyni og hins veg- ar var tíminn notaður til þess að - - kanna" hvernig stöðuheimildin - yrði- best nýtt. Niðurstaða skoðunar í forsætisráðuneytinu var sú að leggja bæri niður embætti blaðafulltrúa ríkisstjómar, enda hefur reynslan sýnt, að í samsteypuríkisstjórnum eins og hér tíðkast, er erfitt að ætla einum manni að axla hlutverk blaða- fulltrúa. Hafa einstakir ráðherrar iðulega kosið fremur að koma máium sínum sjálfir á framfæri. Blaðafull- trúi hafði hins vegar, eins og áður er sagt, einnig með höndum undir- búning ríkisstjórnarfunda og ritun fundargerða og var að sjálfsögðu nauðsynlegt að sinna því starfi áfram. Sú ákvörðun að leggja niður emb- ætti blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar var einmitt tekin með það í huga að nýta betur þá stöðuheimild, sem ráðuneytið hafði, og ráða í hans stað skrifstofustjóra í forsætisráðuneyti, sem gegni m.a. störfum ráðuneytis- stjóra í forföllum hans og annist undirbúning funda ríkisstjórnar og riti fundargerðir. Frá því var greint í ríkisstjórn hinn 15. júní sl. Lengi hefur verið talin þörf á því, að ráðu- neytisstjóri forsætisráðuneytis hafi sem staðgengil sinn mann með lög- fræðimenntun. Með þessum hætti var unnt að ráða hingað í ráðuneyt- ið slíkan mann, án nokkurrar fjölg- unar stöðuheimilda. Tekið skal skýrt fram, að þetta var gert í fullu sam- ráði við ráðninganefnd ríksins. Starf deildarstjóra í forsætisráðu- neytinu var síðan auglýst í Lögbirt- ingablaðinu í fullu samræmi við kröfur laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Ég tel það af hinu góða,-að meðal-umsækjenda Guðmundur Benediktsson „Erfitt er að sætta sig við málflutning af þessu tagi, því ekki hefði stað- ið á réttum upplýsing- um í forsætisráðuneyt- inu, ef eftir hefði verið leitað. Hið sanna er, að embættismönnum í ráðuneytinu hefur ekki fiölgað fráþví 1980, þegar heimild var veitt til þess að ráða eftia- hagsráðgjafa í tíð stjórnar Gunnars Thor- oddsen.“ var Helga Jónsdóttir lögfræðingur, sem þekkir vel til starfa hér, enda starfaði hún sem aðstoðarmaður for- sætisráðherra í þessu ráðuneyti á --árabilinu- -1983—1987--Gegndi.hún-. því starfi með mikilli prýði og því ákaflega eðlilegt, að slík starfs- reynsla leiði til þess, að hún sé gjald- gengur umsækjandi um embætti í Stjórnarráðinu. Um það má að sjálfsögðu deila að hafa í ráðuneyti, sem ekki er stærra en forsætisráðuneyti, tvo skrifstofustjóra. Sú ákvörðun var hins vegar tekin að endurskipu- leggja starfsemi þessa ráðuneytis, og skipta því í 2 skrifstofur, önnur annist m.a. lögfræðileg málefni og starfsmannamál og hin m.a. fjár- lagavinnu og tengsl við stofnanir, sem undir ráðuneytið heyra. Jafn- framt má benda á, að sú hefur orð- ið þróunin í Stjórnarráðinu allt frá því Ragnhildur Helgadóttir braut ísinn, þegar hún var menntamála- ráðherra, að skrifstofustjórum í ráðuneytum hefur fjölgað. Er nú svo komið að í nokkrum ráðuneytum eru 4 skrifstofustjórar, en í hinum smærri t.d. iðnaðarráðuneyti, sam- gönguráðuneyti og viðskiptaráðu- neyti eru þeir 2. • Hitt málið, sem ég vil taka upp eru hugleiðingar Pálma Jónssonar um, að efnahagsráðgjafi forsætis- ráðherra sé ráðinn án nokkurrar heimildar. Ætti hann að þekkja vel til þess máls, því að heimild fyrir þeirri stöðu hefur verið í forsætis- ráðuneyti frá því Gunnar Thorodd- sen forsætisráðherra fékk hana hinn 1. október 1980. Sú heimild hefur verið notuð allar götur frá því Þórð- ur Friðjónsson var ráðinn efnahags- ráðunautur forsætisráðuneytis í ríkisstjórn, sem Pálmi átti sæti í. Starfsheitið hefur þó verið nokkuð á reiki manna á meðal og i fjölmiðl- um, og- meira að segja í skjölum ráðuneytisins. Er að sjálfsögðu um sama starfið að ræða nú og byggt á sömu ráðningarþeimild, þótt starfsheitið sé ráðunautur forsætis- ráðherra í efnahags- og atvinnumál- um. Höfundur er ráðuneytisstjóri í _____ fQrsayisjáðuncytinu.___________j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.