Morgunblaðið - 27.10.1989, Blaðsíða 2
2
Gsei aaaoT>io .ts auoAciuTgcVi qigauhvkjdhom
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1989
Síldarkaup Sovétmanna;
FYRIRTÆKIÐ Sovrybflot, sem sér um saltsfldarkaup Sovétmanna,
hefur einungis fengið gjaldeyrisheimild til kaupa á hluta þeirrar salt-
síidar sem viðskiptabókun íslendinga og Sovétmanna fr'á árinu 1985
gerir ráð fyrir, eða 200-250 þúsund tunnúr á ári.
Verið er að vinna að því að gjald- und tunnur af hausskorinni og slóg-
eyrisheimild Sovrybflot verði aukin dreginni saltsfld fyrir 16,6 milljónir
og því er fyrirsjáanlegt að samn-
ingaviðræður um þessi kaup, sem
nú fara fram í Moskvu, dragist á
langinn. Sovésku fjárlögin eru af-
greidd í nóvember og því þarf
Sovrybflot að fá undanþágu til kau-
panna.
Sovrybfiot keypti héðan 150 þús-
Atlantslax
fær greiðslu-
stöðvun
Laxeldisstöðinni Atlantslaxi
hf. í Grindavík hefur verið veitt
greiðslustöðvun til allt að þriggja
mánaða. Fyrirtækið er að byggja
stóra strandeldisstöð á Stað vest-
an við Grindavík. Atlantslax hf.
er þriðja strandeldisstöðin á
Reykjanesi sem fær greiðslu-
stöðvun. Hinar eru íslandslax og
Lindalax.
Sigurgeir Þorgilsson, stjórnar-
formaður Atlantslax, segir að ekki
hafi tekist að ljúka uppbyggingu
stöðvarinnar, þannig að hún gæti
skiiað eðlilegum tekjum. Því hafi
orðið örðugleikar með að standa í
skilum með kostnað og lánVegna
uppbyggingar og rekstrar.
Greiðslustöðvunartíminn yrði not-
aður til að bæta úr þessu, meðal
annars með því að fá aukið hlutafé
innanlands og utan. Hann tók það
fram að stöðin hefði verið tiltölulega
ódýr í byggingu, kostaði nú 230
milljónir, og að félagið ætti vel fyr-
ir skuldum.
Atlantslax er með seiðaeldi í
Sandgerði og er einnig með fisk í
stöðinni í Grindavík, þó að fram-
kvæmdum sé hvergi nærri lokið.
Sjö einstaklingar eiga hlutafélagið.
Bandaríkjadala (1,03 milljarða
króna á núvirði) árið 1988.
Eldey hf. var
veitt greiðslu-
stöðvun í gær
ELDEY HF. fékk í gær greiðslu-
stöðvun til þriggja mánaða, en
félagið á skipin Eldeyjar-Boða og
Eldeyjar-Hjalta.
Jón Norðfjörð, stjórnarformaður
Eldeyjar hf., sagði í samtali við
Morgunblaðið að 40 milljóna króna
hlutafé Eldeyjar hf. væri uppurið.
Hann sagði að Keflavíkurbær væri
stærsti hluthafmn í fyrirtækinu en
bærinn hefði lagt fram 10 milljóna
króna hlutafé.
Undir þungu fargi
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Mesta mildi var að enginn slasaðist þegar krani valt á fólksbíl á bryggjunni á Neskaupstað á miðviku-
dag. Óhappið varð þegar verið var að lyfta loðnudælu. Bílnum hafði verið lagt á bryggjunni og var hann
mannlaus. Kranastjóranum tókst að stökkva út úr krananum þegar hann valt og sleppa ómeiddur. Eins og
sjá má er fólksbfllinn gjörónýtur og kraninn er töluvert skemmdur.
Frumvarp til lánsfjárlaga 1990:
Heildarlántökur 1990
/
flörutíu milljarðar króna
Skuldir í árslok 1990 53% af landsframieiðslu þess árs
Samkvæmt frumvarpi til láns-
fjárlaga fyrir árið 1990, sem lagt
var fram á Alþingi í gær, verða
heildarlántökur opinberra aðila,
opinberra Iánastofiiana og at-
vinnufyrirtækja 39,7 milljarðar
króna á næsta ári. í lánsfjáráætlun
og lánsQárlögum 1989 voru sam-
svarandi lántökur áætlaðar 36,8
milljarðar króna, en stefiia hins-
vegar í um 50 milljarða.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að er-
lendar lántökur ríkissjóðs, opinberra
aðila og fyrirtækja verði 21,4 millj-
arðar króna 1990, en innlendar lán-
tökur 18,3 milljarðar. Greiðslur af
löngum erlendum lánum eru áætlað-
ar 24,4 milljarðar (afborganir 10,4
milljarðar og vextir 14,0 milljarðar).
Hreinar erlendar lántökur til langs
Jón Baldvin ánægður með viðbrögð franska utanríkisráðherrans við sjónarmiðum EFTA:
Bauð íslendingiun samstarf um
undirbúning ráðherrafundar
JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og formaður EFTA-
ráðsins, sagði að loknum fundi sínum með Ronald Dumas, utanríkis-
ráðherra Frakka, í París í gær, að hann væri afar ánægður með
viðbrögð Frakka við sjónarmiðum EFTA. Dumas hefði ekki séð neitt
því til fyrirstöðu að í árslok yrði hægt að taka ákvörðun um að efna
til eiginlegra samningaviðræðna bandalaganna snemma á næsta
ári. Franski utanríkisráðherrann bauð Islendingum samstarf milli
landanna, sem fara með formennsku í EB og EFTA, þ.e. Frakklands
og íslands, um undirbúning sameiginlegrar yfirlýsingar ráðherra-
fundar EB og EFTA í desember. Dumas lagði til að Jón Baldvin
kæmi til Parísar í byrjun desember til að hefja það verk, og þekkt-
ist Jón boðið.
tíma eru því áætlaðar 11 milljarðar
króna.
Áætluð innlend lánsfjáröflun 1990
er í meginatriðum þessi: 1) Sala
spariskírteina 6 milljarðar króna,
2) Verðbréfakaup lífeyrissjóða
10.985 milljónir króna, 3) Önnur
lánsfjáröflun 1.340 m.kr. Innlendar
afborganir lána eru áætlaðar 8.775
milljónir króna.
Aætluð erlend lánsfjáröflun skipt-
ist þannig: 1) A- og B-hluti ríkis-
sjóðs 1.370 m.kr., 2) Fyrirtæki með
eignaraðild ríkissjóðs 3.400 m.kr.,
3) Sveitarfélög 400 m.kr., 4) Opin-
berir lánasjóðir 4.000 m.kr., 5) At-
vinnufyrirtæki 12.200 m.kr. (skip og
flugvélar 9.500 m.kr., annað 2.700
milljónir).
Erlendar langtímaskuldir jukust
um 12% á árinu 1989 í erlendri
mynt. A sama tíma minnkaði lands-
framleiðslan um 2,8%. Hlutfall er-
lendra lána hækkar úr 41,3% af
landsframleiðslu í 50,4% á Iíðandi
ári, eða tæp 9%.
I forsendum lánsfjáráætlunar
1990 er gert ráð fyrir 13% hækkun
á meðalgengi erlendra gjaldmiðla og
um 6% aukningu erlendra lána.
Skuldahlutfallið í árslok 1990 er
áætlað 53,1% af vergri landsfram-
leiðslu ársins.
„Fundurinn var haldinn í fram-
haldi af fundi okkar með Andriessen,
varaforseta framkvæmdastjórnar
EB, og hafði sama tilgang; að gera
Dumas rækilega grein fyrir mati
EFTA á stöðú könnunarviðræðna við
EB eins og þær standa nú,“ sagði
Jón Baldvin í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagðist hafa rætt við
Dumas um tengslin milli þeirrar
útvíkkunar á sameiginlegu efnahags-
svæði, sem að væri stefnt með þess-
um viðræðum, og þeirrar hraðfara
þróunar, sem ætti sér stað í Mið- og
Austur-Evrópu. „Við lítum svo á að
raunar megi líta á viðræður EFTA
og EB sem þátt í samrunaþróun í
Vestur-Evrópu og að Vestur-Evrópu-
ríkin verði betur í stakk búin að
leggja lið þeirri þróun í átt til vald-
dreifmgar í efnahags- og atvinnu-
málum og lýðræðis í stjómmálum,
sem nú vex fiskur um hrygg með
degi hveijum í Ungveijalandi, Póll-
andi og jafnvel Austur-Þýzkalandi,"
sagði Jón Baldvin.
Að sögn Jóns Baldvins lét Dumas
það skýrt í ljósi á fundinum að sá
árangur, sem náðst hefði í könnunar-
viðræðum EFTA og Evrópubanda-
lagsins, væri tvímælalaust yfirgrips-
meiri og víðtækari en menn hefðu
almennt gert sér vonir um fyrirfram.
Ráðherramir ræddu einnig vænt-
anlega heimsókn Mitterrands Frakk-
landsforseta hingað til lands 7. nóv-
ember. Enn er nokkur óvissa um það
hvort Dumas kemur til Reykjavíkur
til viðræðna við íslenzka ráðamenn,
þar sem umræður um utanríkisþjón-
ustuna verða í franska þinginu á
sama tíma. Dumas mun þó reyna
af fremsta megni að koma.
Fundinn í París sátu, auk ráð-
herranna, þeir Albert Guðmundsson,
sendiherra í París, Einar Benedikts-
Reuter
Ronald Dumas býður Jón Baldvin Hannibalsson velkominn í franska
utanríkisráðuneytinu í gær.
son, sendiherra hjá EB, og Georg
Reisch, aðalframkvæmdastjóri
EFTA.
í dag er óformlegur ráðherrafund-
ur EFTA-ríkjanna í Genf, þar sem
rætt verður um stöðu viðræðnanna
við EB og fjallað um framhaldið. Þar
mun Hannes Hafstein, ráðuneytis-
stjóri í utanríkisráðuneytinu og for-
maður stjórnarnefndar EFTA, flyija
inngangsræðuna um niðurstöður
starfshópa EFTA og starfslok stjórn-
amefndarinnar. Utanríkisráðherra
mun:skýra frá viðræðum sínum við
Dumas og Andriessen. Jón Baldvin
sagði að búast mætti við að í fundar-
hléi yrðu ræddar orðsendingar, sem
borizt hefðu frá ríkjum í Mið- og
Austur-Evrópu, sem sýnt hefðu
áhuga á samstarfi við EFTA. Þannig
hefði ungversk sendinefnd þegar
komið á sinn fund og óskað eftir
nánara samstarfi. í gærkvöldi átti
Jón Baldvin að hitta sendinefnd frá
Júgóslavíu, sem einnig vill koma orð-
sendingu á framfæri.
Blönduvirkjun:
Kjarasamn-
ingur felldur
STJÓRN og trúnaðarmannaráð
Verkalýðsfélags Austur-Húna-
vatnssýslu felldi í gær með öllum
greiddum atkvæðum kjarasamn-
ing virkjunarstarfsmanna, sem
félagið er aðili að. Áður höfðu
samningarnir verið felldir í alls-
herjaratkvæðagreiðslu meðal
starfsmanna við Blönduvirkjun.
Vaidimar Guðmannsson, formað-
ur verkalýðsfélags Austur-Húna-
vatnssýslu, sagði að næsta skref í
deilunni væri að boða fund trúnað-
armanna verkalýðsfélaga á svæðinu
á mánudag. Enn hefðu ekki komið
nein viðbrögð frá vinnuveitendum.
Full gjaldeyrisheimild
hefur ekki enn fengist