Morgunblaðið - 08.11.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.11.1989, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989 MORGUNBLAÐIÐ MJÐVIKUDAGUR 8. NOVEMBER 1989 19 JMfrfgtuilNlnfeife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Skipasmíðaiðnaður Sjávarútvegurinn er horn- steinninn í þjóðarbúskap okkar. Auðlindir sjávar eru megin undirstöður að þjóðar- tekjum, lífskjörum og efna- hagslegu fullveldi. Þessar auðlindir hafa á hinn bóginn nýtingarmörk, sem ekki má yfir fara, ef við viljum varðveita æskilega stofnstærð nytjafiska — þ.e. helztu lífsbjörg þjóðarinnar — til framtíðar. Fiskifræðilegar niðurstöður færa heim sanninn um, að helztu nytjastofnar eru full- nýttir, jafvel ofnýttir sutnir hveijir. Fiskiskipastóllinn er of stór — veiðigeta hans er of mikil — miðað við veiðiþol stofnanna. Þessvegna höfum við gripið til veiðitakmarkana. Við getum sótt þann afla, sem hyggilegt er að taka úr helztu nytjastofnum, með mun minni fiskiflota en nú er tit staðar, það er með minni til- kostnaði. Það á að vera keppi- kefli okkar að sækja þann afla, sem fiskifræðilegar stað- reyndir leyfa, með sem minnstum tilkostnaði og vinna í sem verðmætasta vöru. Stærð fiskiskipaflotans veldur því að nýsmíði fiski- skipa fyrir íslenzkan útveg verður mjög takmörkuð, ef nokkur, um sinn, þ.e. næstu árin. Það er máske megin- vandinn sem blasir við inn- lendum skipasmíðaiðnaði í næstu framtíð, þótt fleira komi til, eins og almenn rekstrarskilyrði framleiðslu- fyrirtækja, sem hafa hríðversnað síðustu misserin, m.a. vegna rangrar efnahags- stefnu stjórnvalda. Staða íslenzks skipasmíða- iðnaðar verður vart aðskilin frá stöðu sjávarútvegsins í heild, stöðu fiski- og farmskip- aútgerðar, og þeirri eftir- spurn, sem þaðan er að vænta um viðhald og nýsmíði. Nýsmíði verður, sem fyrr seg- ir, lítil sem engin í allra næstu framtíð, og meðan erlend sam- keppnisríki greiða niður skipa- smíði, eins og nú er gert víða, er líklegt að aðþrengdur út- vegur leiti í einhveijum mæli út fyrir landsteina með verk- efni. Hinsvegar er að því stefnt innan EB og trúlega einnig innan EFTA að afnema styrki til skipasmíða. Jslenzk skipasmíði kann því 4ð eiga framtíðarland á erlendum samkeppnisvettvangi, en ekki er raunhæft að reikna með umtalsverðri erlendri mark- aðssetningu hennar í allra næstu framtíð. Mikilvægt er engu að síður að varðveita þá umfangsmiklu verkþekkingu sem byggð hef- ur verið upp á löngum tíma í íslenzkum skipasmíðaiðnaði og öðrum iðnaði og tækniþjón- ustu er tengist sjávarútvegi og auka við hana á tímum örrar þróunar á sviði þekking- ar og tækni. Viðhaldsþörf farm- og fiskiskipa, sem er viðvarandi, kallar áfram á þjónustu af þessu tagi. Það er mikils virði fyrir sjávarút- vegsþjóð að hægt verði að mæta viðhaldseftirspurn hér eftir sem hingað til á heima- slóðum. Talsmenn íslenzks skipa- smíðaiðnaðar telja og að stjórnvöld geti sitt hvað gert til að styrkja samkeppnisstöðu greinarinnar. Meðal þess sem þeir hafa nefnt og fram hefur komið í umræðum á Alþingi síðustu daga má nefna: 1) Útvegsmenn og opinberir sjóð- ir semji ekki um nýsmíði skipa eða viðhaldverkefni erlendis án undangengins útboðs, þar sem innlendir aðilar keppi á jafnréttisgrundvelli hvað varð- ar meðferð tilboða og fjár- magnsfyrirgreiðslu. 2) Að til- boð verði metin á viðskiptaleg- um grundvelli áður en lán- veitingar eru ákveðnar. 3) Settar verði staðlaðar reglur um útboð, veðskilmála og til- boð í skipaiðnaðarverkefni. 4) Að bankar veiti sambærilegar ábyrgðir vegna skipaiðnaðar- verkefna innan lands og veitt- ar eru þegar verkefni eru unn- in erlendis. 5) Að atvinnuleysi hafi aukizt svo undanfarið hér á landi að ekki sé á það bæt- andi með lokun vinnustaða hundruða manna. Iðnaðarráðherra hefur boð- að að hann muni leggja fram á haustþingi skýrslu um stöðu og framtíð íslenzks skip- asmíðaiðnaðar. Margþættur vandi atvinnugreinarinnar verður að vísu ekki leystur með skýrslugerð af þessu tagi eða opinberri forsjá. Fróðlegt verður engu að síður að líta, hvers konar stefnumörkun skýrslan geymir, en mótuð atvinnustefna hefur ekki verið sterka hlið núverandi ríkis- stjórnar. HEIMSÓKN FRANCOIS MITTERRANDS FRAKKLANDSFORSETA TIL ISLANDS Kvennaskólastúlkur sungu við Ráðherrabústaðinn: Velkominn til ís- lands, Mitterrand! Rambouillet, einkaþota Francois Mitterrands Frakklandsforseta af gerðinni Falcon 900, lenti á Reykjavíkurflugvelli á hádegi í gær, nánar tiltekið klukkan 12.04. Forsetinn, sem er fremur lágvaxinn, 73 ára gamall, var klæddur dökkbláum ullarfrakka, ljósum jakkafót- um og var með rauðröndótt bindi. Á móti forsetanum tóku Steingrím- ur Hermannsson forsætisráðherra og Guðmundur Benediktsson, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins. Við landgang flugvélarinnar heilsuðu sendiherra Frakklands á íslandi, Jacques Mer, og Sveinn Björnsson prótókollstjóri Mitterrand. íslenskir lögregluþjónar stóðu lieiðursvörð á flugvellinum. Frá Reykjavíkurflugvelli var Ráðherrabústaðarins við Tjarnar- haldið rakleiðis í 14 bifreiða lest til götu. Mitterrand og Steingrímur Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra: „Dýrmætt tækifæri til að gera grein fyrir sérstöðu okkar“ Francois Mitterrrand. Morgunblaðið/Þorkell sátu hlið við hlið í fjórðu bifreið- inni, svörtum Mercedes Benz númer R 4123, ásamt túlki og bílstjóra. Aftast í bílalestinni var sjúkrabif- reið til reiðu. Fyrir utan Ráðherra- bústaðinn var samankominn fríður flokkur ungra stúlkna úr fyrsta frönskuáfanga í Kvennaskólanum sem söng BJenvenu en Islande! (Vel- kominn til íslands!) Mikil þröng skapaðist í Ráðherra- bústaðnum í upphafi fundar Mitt- errands með íslénskum ráðamönn- um. Steingrímur Hermannsson heyrðist láta þau orð falla á meðan verið var að taka myndir að hér á Islandi væru tvær sjónvarpsstöðvar, ein ríkisrekin og ein í einkaeigu. í Ráðherrabústaðnum var snæddur hádegisverður. Á boðstól- um var matur frá Óðinsvéum, reyktur lax og grafinn, ofnsteiktir humarhalar, gufusoðin smálúðuflök með rækjufarsi og skyr í eftirmat! Auk Mitterrands, Steingríms Her- mannssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra voru viðstaddir Hannes Hafstein, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneyt- isins, Þorsteinn Ólafsson, efnahags- ráðunautur forsætisráðherra, Elisa- beth Guigou, ráðgjafi Mitterrands í Evrópumálum, og Hubert Vedrine, talsmaður forsetans. Klukkan 14.40 lauk fundi Mitt- errands og íslensku ráðherranna. Tíu mínútum síðar hófst frétta- mannafundur á Hótel Sögu. Um það bil fjörutíu erlendir fréttamenn komu til landsins í gærmorgun í tilefni heimsóknar Mitterrands. Þeir komu með sérstakri flugvél frá París og héldu aftur til baka í gær- Morgunblaðið/Svem'r Frá blaðamannafúndinum. F.v. Einar Benediktsson, sendiherra í Brussel, Francois Mitterrand, Christoph- er Thiery, túlkur Mitterrands, Steingrlmur Hermannsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Sveinn Björns- son prótókollstjóri. kvöldi. Á fréttamannafundinum _ notuðu frönsku blaðamennirnir tækifærið og spurðu Mitterrand um afstöðu franskra stjórnvalda til þeirra alþjóðamála sem hæst ber nú, m.a. fyrirhugaðs leiðtogafundar risaveldanna í byijun næsta mánað- ar og ástandsins í Líbanon. Mörg tungumál voru töluð á fundinum og eitt sinn svaraði Mitterrand blaðamanni, sem spurt hafði á ensku, án þess að bíða eftir því að spurningin væri túlkuð yfir á frönsku. Sagði forsetinn að fran- skir blaðamenn hlytu að vera orðn- ir vanir enskunni og „brátt verða þeir einnig orðnir sleipir í íslensku!" Klukkan 15.18 lauk blaðamanna- fundinum. Kl. 15.25 tók frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, á móti Mitterrand í embættisbústað forseta íslands á Laufásvegi 72. Fundur þeirra var nokkru lengri en gert hafði verið ráð fyrir, honum lauk kl. 15.55. Gert hafði verið ráð fyrir tuttugu mínútna spjalli en fundurinn stóð í hálfa klukkustund. Frá Laufásvegi var haldið út á Loftleiðahótel en á Reykjavíkur- flugvelli kvaddi Steingrímur Her- mannsson ásamt embættismönnum Mitterrand. Velheppnaðri heimsókn Frakklandsforseta lauk með því að flugvél hans hóf sig til flugs klukk- an 16.13. Morgunblaðið/Þorkell Við upphaf viðræðnanna í Ráðherrabústaðnum. Jón Baldvin Hannib- alsson, Francois Mitterrand og Steingrímur Hermannsson. Að baki þeim standa írá vinstri: Hannes Hafstein, ráðuneytisstjóri í utanríkis- ráðuneytinu, Þorsteinn Ólafsson, efnahagsráðunautur forsætisráð- herra, og Jón Sveinsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra. STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra sagði í sarntali við Morgunblaðið í gær, að lokn- um fundi hans og utanríkisráð- herra með Francois Mitterrand Frakklandsforseta, að þar hefði gefist mikilvægt tækifæri til þess að gera Frakklandsforseta grein fyrir sérstöðu okkar íslendinga. „Eg tel að þetta hafi verið mjög gagnlegur fundur. Hann var mjög opinskár og ég held sömuleiðis að Frakklandsforseti hafi verið mjög ánægður með fundinn,“ sagði Steingrímur. Forsætisráðherra sagði að Frakklandsforseti hefði á fundinum fengið svör við öllum þeim spurningum sem hann hefði haft um það hvernig málin gengju innan EFTA, „en ég tel ekki síður mikilvægt að þarna gafst dýrmætt tækifæri til þess að gera forsetan- um grein fyrir sérstöðu okkar ís- lendinga. Við fórum yfir hana nokk- uð ítarlega. Hann sagði við okkur að þeir hjá EB hefðu engan áhuga á því að um fulla aðild EFTA yrði að ræða að sinni að EB. Þeir hefðu nóg á sinni könnu, en þeir, a.m.k. Frakkar, skildu mæta vel sérstöðu okkar Islendinga, hvað varðar at- vinnu- og efnahagslíf, smæð og fjarlægð, að við yrðum að fá undan- þágu,“ sagði forsætisráðherra. Steingrímur sagði að Mitterrand hefði jafnframt ságt að ekki væri hægt að gera samninga sem væru ekkert nema undanþágur. „Okkur er því ljóst að við verðum að taka á okkar herðar einhverjar skyldur. Við getum ekki bara fleytt rjómann ofan af,“ sagði forsætisráðherra. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra: Skilningur Mitterrands á sérstöðu okkar hefiir stórpólitíska þýðingu JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra var nijög ánægður með fund þann sem hann og forsætisráðherra áttu í gær með Frakklands- forseta. „Það sýnir lógík Frakklandsforseta, að hann sagði: „Tómar undanþágur, enginn samningur. En samningur án undanþága — óhugsandi.“ Þetta er einfaldlega kjarni málsins," sagði Jón Baldvin er hann var spurður um það að loknum fundinum hvernig hann mæti afstöðu Frakklandsforseta til þess að Islendingum verði veitt undanþága, hvað varðar tollfrelsi fyrir sjávarafúrðir innan EB-EFTA svæðisins, án þess að þurfa að veita erlendum aðilum aðgang að fisk- veiðilögsögu sinni, þegar og ef samningar um sameinað evrópskt efúahagssvæði hafa tekist. Jón Baldvin sagði í samtali við Morgunblaðið er hann var spurður hvort hann hefði reynt að tengja sérstöðu okkar í efnahagslegu tilliti við hernaðarlegt mikilvægi, vegna hnattstöðu landsins, í viðræðum sínum við Frakklandsforseta: „Nei, við höldum okkur náttúrlega við efnið í þessum viðræðum. Við erum hér sem formennskuland í Fríversl- unarbandalagi Evrópu (EFTA) að koma skilaboðum til Frakklands- forseta um umræðu- og samninga- svið EFTA og Evrópubandalagsins (EB). Það lýtur náttúrlega að þess- um viðskiptasamruna og samstarfs- verkefnum og þeim stofnunum sem við þurfum að koma upp sameigin- lega til þess að það gangi. Hins vegar lét forsætisráðherra Frakk- landsforseta í té minnisblað, þar sem hann gerði í stuttu máli grein fyrir sérstöðu íslands og megini'ök- um okkar fyrir því að þurfa að óska eftir sérstökum ráðstöfunum á nokkrum sviðum, sérstaklega að því er varðar auðlindanýtinguna. Þar var að sjálfsögðu vikið að þeirri staðreynd að íslendingar óska eftir því að fá staðfest það hlutverk sitt að þeir eru Evrópuþjóð. Við látum í ljós þá von að það sé skilningur á því í Evrópu að þar sé um gagn- kvæma hagsmuni að ræða og við viljum taka þátt í þessu samstarfi bæði á sviði efnahagsmála, menn- ingarmála og öryggismála," sagði utanríkisráðherra. „Að því er varðar sérstöðu ís- Iands, sem byggir ekki bara á und- anþágum, heldur á viðurkenningu á sérstöðu, sem Mitterrand kallaði „realitet", þá er sérstaða okkar þessi: Við erum eina þróaða landið Morgunblaðið/Þorkell Jón Baldvin Hannibalsson. í Evrópu, sem byggir atvinnulíf sitt í svona miklum mæli á fiskveiðum og fiskiðnaði, eða 75% af útflutn- ingstekjum okkar,“ sagði Jón Bald- vin, „Þetta þýðir að það eru ákveðn- ir erfiðleikar að því er varðar hina sameiginlegu fiskveiðistefnu Evr- ópubandalagsins gagnvart okkur, sem ekki á við gagnvart öðrum fisk- veiðiþjóðum. Hjá Norðmönnum er hlutfallið til dæmis ekki nema um 6%. Þetta þýðir því að við höfum sérstöðu og á þessum fundi kom fram að þessi mikli raunsæismaður og rómantíker í pólitík viðurkennir sérstöðu okkar og segir hana vera raunveruleikann. Mitterrand boðaði að hann myndi skrifa okkur bréf, þar sem hann lýsti skilningi sínum á sérstöðu okkar. Þegar forseti Frakklands tekur til orða á þann veg um sér- stöðu íslands, að hún sé auðskilin, að hún sé raunveruleikinn, og að hann muni rita okkur sérstaklega bréf til þess að staðfesta skilning sinn á því, felst í því, að áhyggjur manna þess efnis að þessi sérstaða kunni að vera hindrun í vegi samn- inga fara stórminnkandi,“ sagði Jón Baldvin. Utanríkisráðherra sagði að persónulegi þátturinn í þessu tilliti gæti beinlínis skipt sköpum. Rifjaði utanríkisráðherra í því sam- bandi upp heimsókn forseta Islands til Vestur-Þýskalands fyt'ir hálfu öðru ári. í viðræðum forsetans og þáverandi utanríkisráðherra, Steingríms Hermannssonar, við kanslara Vestur-Þýskalands, Helm- ut Kohl, hefði Kohl kveðið upp úr með það að Islendingar gætu treyst stuðningi Vestur-Þýskalands. „Slíkt skiptir ekki litlu máli, þegar þau orð eru sögð af kanslara Þýska- lands og sama er að segja um það þegar forseti Frakklands hefur fengið ítarlegar og greinargóðar upplýsingar, sem hann metur gild- ar, um sérstöðu íslands og hefur skilning á því hvaða vandamál þurfi að leysa til þess að íslendingar geti með góðu móti verið aðilar að samruna Evrópuríkjanna, þá hefur það stórpólitíska þýðingu.“ Morgunblaðið/Bjarni Fundur Francois Mitterrands og forseta Islands, frú Vigdísar Finnbogadóttur varð lengri en gert hafði verið ráð fyrir enda fór vel á með þjóðhöfðingjunum. Viðræður Frakklandsforseta við forseta íslands: >» Islendingar eiga vináttu Mitterrands vísa „FUNDURINN á íslandi tókst injög vel,“ sagði Francois Mitterrand Frakklandsforseti við blaðamann Morgunbláðsins um leið og hann steig upp í bíl sinn sem flutti hann út á flugvöll eftir að hann hafði kvatt forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur. Nánar vildi Mitterrand ekki fara út í það. Forseti Jslands tók á móti Frakk- landsforseta í bústað embættisins á Laufásvegi 72 og ræddust forsét- arnir við í hálftíma. Vigdís sagði að þau hefðu rifjað upp góð kynni Frakka og íslendinga, allt frá því að Jerome Napoleon kom til íslands 1855. Hún nefndi sem dæmi um vináttu Frakka við íslendinga að þeir sendu strax 1911 við stofnun Háskóla íslands franskan sendi- kennara til landsins. Forsetarnir hefðu rætt góða stund um það sem báðar þessar þjóðir hafa svo mikla tilfinningu fyrir, varðveislu tungu sinnar, því eins og þau töluðu um, gegnum tunguna eigi menn fortíð og.sögu. I sambandi við þau mál sem hann var kominn til að ræða á íslandi, málefni EFTA og EB, hefði Fran- cois Mitterrand sagt við forseta ís- lands, að íslendingar ættu vináttu hans vísa. Að lokum kvaðst Frakk- landsforseti vilja endurgjalda heim- sókn Vigdísar Finnbogadóttur til Frakklands 1983 og koma til ís- lands í opinbera heimsókn áður en langt um liði. Morgunblaðið/Þorkell Steingrímur Hermannsson. Steingrímur sagðist telja að allir væru sammála um að eiginlegar viðræður milli EB og EFTA myndu hefjast eftir 19. desember og þá myndi reyna á erfið samningsatriði sem m.a. tækju til stjórnunar- og ákvarðanaleiða: „EFTÁ hafnaryfir- þjóðlegum stofnunum. Þeir hjá EB segjast vel skilja það, en EFTA verður þá að setja fram tillögur um eitthvert skipulag eða kerfi, sem skilar sæmilegum árangri. Það er einmitt það mál sem við erum sam- mála Mitterrand um að verður hvað erfiðast í þessum viðræðum. Hann sagði- sem svo, að ef það mistæk- ist, þá væri þetta þar með búið, en mér fannst á honum í viðræðunum í dag að hann væri bjartsýnn á að þetta myndi takast. Hann lagði líka mikla áherslu á að það væri afar mikilvægt að þetta tækist, því við værum jú öl! hluti af litlum heimi,“ sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra. Steingrímur færir Mitterrand Landnámu: í von um að fundurinn sé upphafíð að nýju landnámi Steingrímur Hermannsson færði Francois Mitterrand Frakklandsforseta Landámu að gjöf. „I bókina var letrað eitthvað á þessa leið: í von uin að þessi fiindur reynist skref í átt til nýs og árangursríks landnáms í Vest- ur-Evrópu,“ sagði forsætisráð- herra. En Mitterrand voru færðar fleiri gjafir. Blaðamenn sem biðu fyrir utan ráðherrabústaðinn eftir að fundi Mitterrands og íslenskra ráðamanna lyki veittu því athygli að franskir öryggisverðir komu hlaupandi út með pakka undir hend- inni. Pakkinn var tekinn upp og grandskoðaður í hæfilegri fjarlægð frá ráðherrabústaðnum þar sem viðræðunum var að ljúka. Eftir því sem næst verður komist var það graflax sem starfsfólk á Óðinsvéum færði forsetanum að gjöf sem þurfti að meðhöndla af slíkri varfærni!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.