Morgunblaðið - 16.12.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.12.1989, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1989 4- Blökkiimamialeiðtog- ar í S-Afríku náðaðir Jóhannesarborg. Reuter. FUNDUR UTANRÍKISRÁÐHERRA NATO Kjell Magne Bondavik, utanríkisráðherra Noregs (t.v.), Manfred Wörner, framkvæmdastjóri NATO, og James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi utanríkisráðherra NATO-ríkja í Brussel í gær. íslendingar boða til ráð- stefiiu um mengunarhættu Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði í Brussel í gær að Islendingar hygðust boða til hringborðsumræðna í Reykjavík snemma á næsta ári um mengunarhættu í Norður-Atlantshafi af völd- um umferðar kjarnorkuknúinna skipa og kafbáta. Umhverfismálaneftid Atlantshafsbandalagsins (NATO) verður boðið að sitja ráðstefnuna. Áfrýjunarréttur Suður-Afríku náðaði í gær fimm blökkumenn sem dæmdir voru í 5-12 ára fang- Búlgaría: Lofa breyttri stjórnarskrá Sófíu. Reuter. LEIÐTOGAR kommúnistaflokks Búlgaríu hétu því í gær að innan mánaðar yrðu gerðar stjórnar- skrárbreytingar sem fælu í sér að valdaeinokun flokksins yrði aflétt formlega líkt og víða austantjalds. Þúsundir manna gengu um götur Sófíu, höfuðborgar Búlgaríu, í gær, annan daginn í röð. Fjörutíu þúsund manns komu saman á fimmtudag í borginni og kröfðust umbóta. Petar Mladenov, leiðtogi landsins, kom þá út á svalir þinghússins og ávarpaði mannfjöldann. En tæplega heyrðist í honum vegna þess að mannfjöldinn kallaði á móti: „Afsögn!“ og „Mafía!“. Við svo búið sagði Mladenov: „Ef þið trúið okkur ekki þá gæti það leitt til mikils harmleiks," og sneri aftur inn. Santiago. Reuter. KRISTILEGI demókratinn Patricio Aylwin vann yfirburða- sigur í forsetakosningunum í Chile á fímmtudag og tekur við völdunum af Augusto Pinochet hershöfðingja, sem stjórnað hef- ur landinu harðri hendi undan- Saab-Scania selur til Gen- eral Motors Stokkhólmi. Reuter. SÆNSKA fyrirtækið Saab-Scania ætlar að selja bandaríska fyrir- tækinu General Motors helming hlutafjár í fólksbifreiðaverksmiðj- um sínum. Tkpið á fólksbifreiða- framleiðslu sænska fyrirtækisins er áætlað 1,8 milljarðar sænskra króna (17,6 milljarðar ísl. kr.) á þessu ári. Að sögn forsvarsmanna Saab- Scania verður stofnað nýtt fyrirtæki um fólksbifreiðaframleiðsluna og kaupir General Motors, sem þekkt er fyrir bílasmíði, helming þess á 600 milljónir dala (37,2 milljarðar ísl. kr.). Nýja fyrirtækið mun heita Saab Automobile og verður í Troll- hattan í Svíþjóð. Þar verða fram- leiddir Saab 900 og 9000 auk nýs eðalvagns sem settur verður á mark- að á næsta ári. elsi í fyrra eftir langvarandi rétt- arhöld. Komst rétturinn að þeirri niðurstöðu að við meðferð málsins hefði hæstarétti landsins orðið á réttarfarsleg mistök. Blökkumennirnir fimm voru á sínum tíma sakaðir um landráð en þeir voru sagðir forsprakkar mikilla mótmæla um land allt gegn stjórn hvítra manna á árunum 1984-86. Réttarhöldin stóðu í þtjú ár. Þeir afplánuðu dómana í Robben Island fangelsinu skammt frá Höfðaborg og voru látnir lausir strax í gær. Stjórnvöld í Suður-Afríku sögðu í gær, að samþykkt Sameinuðu þjóð- anna um aðskilnaðarmál frá því í fyrradag, væri stórgölluð og skrítin. Allsheijarþingið samþykkti ályktun um ástandið í Suður-Afríku þar sem þess var krafist að pólitískir fangar yrðu tafarlaust látnir lausir, starf- semi bannaðra samtaka yrði leyfð, neyðarástandslögum aflétt og her- sveitir kveðnar á brott frá hverfum blökkumanna. Pik Botha, utanríkisráðherra, sagði ályktunina tímaskekkju því hún væri samþykkt á sama tíma og unnið væri að verulegum umbótum fyrir blökkumenn og stjórnin í Pret- oríu hefði það að yfirlýstu markmiði að binda enda á aðskilnaðarstefn- una. farin 16 ár. Samkvæmt bráðabirgðatölum, sem birtar voru í gærmorgun, fékk Aylwin 55,2% atkvæða og hefur enginn unnið jafn stóran sigur í forsetakosningum í landinu á þess- ari öld. Hernan Buchi, fyrrum fjár- málaráðherra í stjórn Pinochets, fékk 29,4% atkvæða og kaupsýslu- maðurinn Francisco Javier Errar- uriz 15,3%. Þúsundir Chile-búa söfnuðust saman á götum höfuðborgarinnar, Santiago, til að fagna úrslitunum. Sigurvegari kosninganna ávarpaði þá og sagði að brýnt væri að sætta hinar stríðandi fylkingar í landinu til að hægt yrði að tryggja lýð- ræði í landinu. „Eg vil verða for- seti allra Chile-búa og til þess þarf ég stuðning allra,“ sagði Ayl- win, sem er 71 árs að aldri. Hann boðar engar breytingar á stjórn efnahagsmála en hefur lofað að bæta kjör hinna fátæku í landinu. Carlos Caceras, innanríkisráð- herra landsins, viðurkenndi ósigur stjómarinnar en óskaði sigurveg- aranum ekki til hamingju og þyk- ir það benda til þess að erfitt verði að koma á sáttum í landinu. Cacer- as fór hins vegar lofsamlegum orðum um Pinochet og stjórn hans, sem hann sagði hafa lagt grunninn að lýðræði og traustum efnahag í landinu. Fundi utanríkisráðherra NATO lauk í Brussel í gær. Jón Baldvin sagði að langstærsta málið hefði verið samþykkt sameiginlegra til- lagna NATO varðandi niðurskurð hefðbundinna vopna og heija í Evr- ópu en þessar tillögur voru formlega lagðar fram í Vínarborg á fimmtu- dag. Tillögurnar kveða á um risavax- inn niðurskurð á mannafla og eyði- leggingu tugþúsunda vopna. Ut- anríkisráðherra sagði tillögurnar byggðar á kenningunni um lágmark- sviðbúnað en framkvæmd þeirra á að tryggja að ekkert ríki á meginl- andi Evrópu ráði yfir vopnabúnaði sem geri því kleift að að gera skyn- diárás. Góðar horfur eru á að samn- ingur í þessa veru verði undirritaður á næsta ári og sömuleiðis ríkir al- menn bjartsýni um að takast megi að ljúka gerð samnings um fækkun langdrægra kjarnorkuvopna fyrir mitt næsta ár. Annað mál sem Jón Baldvin sagði að vakið hefði mikla athygli var áætlun sem samþykkt var fyrir hönd NATO-ríkjanna um að lofthelgi að- ildarríkja NATO og Varsjárbanda- lagsins verði opnuð. Sagði utanríkis- ráðherra áætlun þessa snúast um eftirlit með þeim vamarviðbúnaði sem eftir stæði er lokið hefði verið gerð afvopnunarsáttmálanna sem nefndir voru hér að framan. í þriðja lagi kvaðst Jón Baldvin vilja nefna ákvörðun um að NATO leggi fram verulega fjármuni til að kynna forystu- og fræðimönnum frá ríkjum í Mið- og Austur-Evrópu starfshætti og stofnanir lýðræð- isríkjanna á Vesturlöndum til að þeir geti betur gert sér grein fyrir hvernig lýðræði og þingræði er í raun framkvæmt. Utanríkisráðherra sagði að efna- hagsástandið í Sovétríkjunum væri þannig að ekki væri hægt að styðja það með sannfærandi rökum að um afturhvarf gæti ekki orðið að ræða. Stefna Vesturlanda hlyti að vera sú, eins og komið hefði fram með af- dráttarlausum hætti á fundi utanrík- isráðherranna, að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að styðja við bakið á umbótaöflunum. Hann sagði að í umræðum um hlutverk og til- gang NATO hefði komið fram að vinnan að markmiðum bandalagsins hefði tekist sérlega vel allt frá því það var stofnað sem svar við ógnun hins sovéska herveldis. Atlantshafs- bandalaginu væri ætlað að koma í Ákveðið er að veija sem svarar 20 milljónum ísl. kr. til þessa verk- efnis sem verður á vegum upplýs- ingadeildar NATO en sú deild sinnir að mestu samskiptum við borgara aðildarríkjanna 16. Áætlunin sem er byggð á samþykkt leiðtogafund- ar NATO frá í maí í vor er í sam- ræmi við þá stefnu bandalagsríkj- anna að efla á sem breiðustum grundvelli samskipti austurs og veg fyrir styijöld, að tryggja öryggi og frið og bandalagið hefði staðist margar áraunir, tímabil kaida stríðsins og svæðisbundinna átaka. „Nú er svo komið að aðdráttarafl þeirra þjóðfélaga sem að bandalag- inu standa er ótvírætt og þjóðir Mið- og Austur-Evrópu leita til þessara ríkja sem fyrirmynda þess sem koma skal. Hugmyndafræði kommúnis- mans er gjörsamlega gjaldþrota," sagði utanríkisráðherra. Menn yrðu að -'gera sér ljóst að þeir stæðu frammi fyrir upphafi langs ferils breytinga sem ekki gerðust eins og hendi væri veifað. Hlutverki NATO væri því engan veginn lokið. NATO væri bæði varnarbandalag og pólitískt bandalag. Hlutverk þess hefði breyst yfir í það að samræma og stýra afvopnunarsamningum og að stilla saman sjónarmið aðiid- arríkjanna á vettvangi utanríkis- mála. vesturs. Styrkirnir nefnast á ensku „The NATO Democratic Institutions Fellowship“ og verða rannsókna og dvalarstyrkir til íbúa aðildarríkja Varsjárbandalagsins. A-Evrópubú- um hefur um árabil staðið til boða að sækja um rannsókna- og dvalar- styrki vísindasamstarfs NATO-ríkj- anna en fjöldi íslendinga hefur no- tið góðs af þeim. Skráningarnúmerin slegin hæstbjóðanda Fólk sem telur persónuleg skráningarnúmer á bíla sína ómissandi stöðutákn brá sér í jólainnkaup hjá uppboðs- fyrirtækinu Christie’s í London á fimmtudag og greiddi samtals 1,54 milljónir sterlingspunda (ríflega 152 millj. ísl. kr.) fyrir númer á 74 ökutæki. Vinsælust reyndust númer sem mynda sérnöfn. Fulltrúi ónefnds kaupanda borgaði 176.000 pund (1.742.000 kr.) fyrir númerið „1A“ og kona nokkur keypti númerið „JUL 1E“ í jóla- gjöf handa dóttur sinni á 37.000 pund (366.000 ísl. kr.). „Allir í fjölskyldunni eiga persónuleg númer,“ sagði konan, „og ég vona að þetta númer komi dóttur minni skemmtilega á óvart; það fer á BMW-inn hennar.“ Það er samgönguráðuneytið sem stendur fyrir þessari sölu á óútgefnum númerum allt frá árinu 1903, er skráning- ar hófust „og arðurinn gengur til skattgreiðenda,“ sagði aðstoðarsamgönguráðherrann. Meðal númera sem fóru á tugi þúsunda sterlingspunda voru „1 RON“, „ANN 1E“, „Buy 1T“ og „BR A1N“. Stuðningsmenn stjórnarandstöðuflokka í Chile fagna sigri i gær er ljóst var að frambjóðandi stjórnarandstöðunnar, Patricio Aylwin, hefði borið sigur úr býtum í forsetakosningunum, sem fram fóru á fímmtudag. Forsetakosningarnar í Chile: Aylwin vinnur yfirburðasigur Styrkir til rannsókna á lýðræðisskipulaginu Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Utanríkisráðherrar ríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) sam- þykktu á fundi sínum í Brussel í gær að styrkja embættis- og fræði- menn frá Austur-Evrópuríkjunum til að kynna sér lýðræðislega stjórnskipan aðildarríkja bandalagsins. Styrkirnir verða auglýstir til umsóknar í byrjun næsta árs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.