Morgunblaðið - 20.12.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.12.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989 Starfsemi Stofiiunar Sigurðar Nordals eftir Úlfar Bragason í tilefni af aldarafmæli dr. Sigurð- ar Nordals prófessors, 14. september 1986, var komið á fót við Háskóla íslands menntastofnun sem ber nafn hans. Hlutverk stofnunarinnar er samkvæmt reglugerð „að efla hvar- vetna í heiminum rannsóknir og kynningu á íslenskri menningu að fornu og nýju og tengsl íslenskra og erlendra fræðimanna á því sviði.“ Stofnun Sigurðar Nordais er ætl- að að gegna hlutverki sínu einkum með þvi að afla gagna um rannsókn- ir tengdar íslenskri menningu; — bjóða erlendum fræðimönnum til íslands til að kynna rannsóknir sínar, afla gagna til þeirra eða til að stunda rannsóknir; — styrkja íslenska fræðimenn til að fara til annarra landa í því skyni að stunda rannsóknir í fræðum sínum og kynna þau; — gangast fyrir ráðstefnum, um- ræðufundum, námskeiðum og fyrir- lestrum um íslenska menningu; — hafa forgöngu um kennslu í íslenskum fræðum erlendis; — standa að útgáfu rita um íslenska menningu. Stofnuninni var valin stjórn 1986 til þriggja ára. í henni hafa setið Davíð Olafsson fv. seðlabankastjóri, formaður, skipaður af menntamála- ráðherra, dr. Jónas Kristjánsson for- stöðumaður Stofnunar Arna Magn- ússonar, tilnefndur af háskólaráði, og Svavar Sigmundsson dósent, kos- inn af heimspekideild Háskóla ís- lands. Stofnuninni var veitt byijunar- framlag á fjárlögum fyrir 1987. Á Míele ryksugan ® JÓHANN ÓLAFSSON & C0. HF. 43 Sundabrag 13 -104 Reykjavik - Sími £88 588 er vönduð og vinnur vel. Dýrgripur sem endist milli kynslóða Heimilistækjadeild SIEMENS Ódýrlr útvarpsvekjarar! RG 283 • FM og miðbylgja. • Vekur með útvarps- dagskrá eða síhækkandi suði. • Blundhnappur. • Svæfir (upp í 119 mín.). • Verð: 2790 kr. RG 281 • FM og miðbylgja. • Vekur með útvarps- dagskrá eða síhækkandi suði. • Blundhnappur. • Svæfir (upp í 119 mín.). • Verð: 3490 kr. SMITH &NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 miðju því ári var henni fengið aðset- ur í húsinu Þingholtsstræti 29 í Reykjavík sem ríkissjóður keypti í því skyni. Voru Hörður Ágústsson iistmálari og Leifur Blumenstein byggingafræðingur fengnir til að athuga ástand hússins og sögu þess. Húsið er tvílyft úr timbri og stendur á hlöðnum kjallara. Það er í svoköll- uðum sveitserstíl. Viðir þess voru keyptir tilhöggnir frá Noregi. Er húsið eitt hið elsta sinnar gerðar hér á landi en Jón Magnússon lands- höfðingjaritari, síðar forsætisráð- herra, pantaði það og lét reisa árið 1899. Hefur því ekki verið breytt að nokkru ráði síðan, Miklar viðgerð- ir þurftu að fara fram á húsinu þeg- ar stofnunin fékk það til afnota. Gerði Leifur Blumenstein áætlun um kostnað við þær en JBB teiknistofa sf. teiknaði húsið upp. í framhaldi af þessu var ráðist í að gera svo við Þingholtsstræti 29 að starfsemi stofnunarinnar gæti hafist þar. Hafði Leifur eftirlit með því verki ogöllum viðgerðum á húsinu síðan. Haustið 1987 réð stjóm Stofnunar Sigurðar Nordals þann sem þetta ritar til að veita stofnuninni forstöðu frá og með 1. janúar 1988. Á þeim tæpu tveimur árum sem stofnunin hefur nú starfað hefur verið leitast við að koma húsnæði hennar í viðun- andi horf, kynna hlutverk hennar og starfsvettvang og sinna þeim verkefnum sem henni voru fengin með reglugerð eftir því sem fjárveit- ingar hafa leyft. Eftir tillögu hús- friðunarnefndar og stjómar Stofn- unar Sigurðar Nordals var Þing- holtsstræti 29 friðað í A-flokki frið*- aðra húsa með bréfi menntamála- ráðuneytisins 9. desember 1988. Þá hefur verið unnið að viðgerðum á húsinu og aflað til þeirra fjár frá ýmsum aðilum. Er nú búið að gera við skrifstofuhúsnæðið og upp ur næstu áramótum verður væntanlega unnt að taka í notkun íbúð í húsinu sem erlendir fræðimenn, er koma til landsins vegna starfa síns, geta fengið afnot af. Enn er þó eftír að lagfæra Þingholtsstræti 29 mikið, sérstaklega að utan. Aðeins þegar Viðtöl við skotveiðimenn Skyttur á veiðislóð efitir Eg-gert Skúlason og Þór Jónsson IÐUNN hefiir geflð út bókina Skyttur á veiðislóð eftir Eggert Skúlason og Þór Jónsson. í kynningu forlagsins á efni bókar- innar segin „íslenskir skotveiðimenn eltast við ýmsa bráð og því er á síðum bókarinnar víða drepið niður fæti í íslenskri náttúru. í orðum veiðimann- anna koma fram öil helstu sérkenni veiðidýranna; kænska og þrautseigja refsins jafnt og varkárni gæsarinnar. Þar má líka finna glögg merki um þá virðingu sem veiðimaðurinn ber fyrir bráð sinni og fyrir náttúrunni allri.“ Þeir veiðimenn sem segja frá í bókinni eru Ari Aibertsson, Snorri Jóhannesson, Markús Stefánsson, Sverrir Scheving Thorsteinsson, Magnús Kristjánsson, Sverrir Her- mannsson, Sólmundur Tryggvi Ein- arsson, Karl Bridde og Páll Magnús- son. PÉTUR TRYGGVI, gullsmiður SÖLUSÝNING GALLERÍIÐ Kænuvogí36, 104 Reykjavik, simi 678950. PÁLMAR KRISTMUNDSSON, arkitekt Opiðkl. 11-21 15.-23. des. Úlfar Bragason „Stoftiun Sigurðar Nor- dals hefiir leitast við að rækta garðinn sinn með því litla fjármagni sem henni hefiir verið skammtað í þeirri trú að máltækið sannist: Mjór er mikils vísir.“ þeim endurbótum er lokið getur ástand hússins talist gott og viðhald þess samboðið menningarstofnun. Um leið og starfsemi Stofnunar Sigurðar Nordals var kynnt hér á landi á sl. ári var fjölda háskóla og fræðimanna, sem fást við íslensk fræði erlendis, sent bréf um hana. Þá voru sóttir nokkrir fundir bæði austan hafs og vestan þar sem tæki- færi gafst til að segja frá starfsem- inni. Stofnun Sigurðar Nordals hefur nú um sjöhundruð einstaklinga og stofnanir í öllum heimsálfum á póst- fangaskrá sinni. Hefur verið aflað upplýsinga hjá þeim um kennslu og rannsóknir í íslenskum fræðum og stofnunin sendir þeim fréttabréf, m.a. um ráðstefnur, fundi, nám- skeið, bækur og tímariti á því fræða- sviði, tvisvar á ári. Stofnun Sigurðar Nordals hefur reynt að ýta undir umræður um stöðu íslenskrar menningar með því að gangast fyrir fundum um það efni tvívegis. Þá bauð stofnunin tíu erlendum fræðimönnum frá Evrópu og Ameríku neim I fyrrasumar til að fjalla um kennslu og rannsóknir í íslenskum fræðum og gera grein fyrir viðfangsefnum sínum ásamt nokkrum íslendingum. Á þessu ári stuðlaði stofnunin að því að þrír ís- lendingar sóttu ársfund Society for the Advaneement of Scandinavian Study í Salt Lake City í Bandaríkjun- um og fluttu þar erindi um fræði sín. Þá gekkst stofnunin í sumar fyrir alþjóðlegu námskeiði um íslenskt mál og menningu ásamt heimspekideild Háskóla íslands. Umsóknir um námskeiðið voru miklu fleiri en gert var ráð fyrir og unnt var að verða við. Um þijátíu stúdent- ar alls staðar að, þó einkum frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýska- landi, tóku þátt í því. Stofnun Sigurðar Nordals er ætl- að að annast þjónustu við íslenska sendikennara sem nú starfa á Norð- urlöndum, í Þýskalandi og í Frakkl- andi. Því miður hefur allt of lítið orðið úr þeirri þjónustu enn sakir fjárskorts. Þó hefur sendikennurum verið miðlað ýmsum upplýsingum sem koma mega þeim að notum í starfi og stofnunin hefur styrkt samningu á nýju kennsluefni í íslensku handa útlendingum. Þá hef- ur hún aðstoðað við undirbúning stúdentaheimsókna til landsins. Þennan þátt í starfsemi stofnunar- innar er annars bráðnauðsynlegt að efla enda er menningarkynning sendikennaranna ómetanleg. Þá berast stofnuninni margar fyr- irspurnir og beiðnir um kennslu- gögn, bækur, ritgerðir o.fl. Hefur verið leitast við að svara spurningun- um eftir bestu getu og verða við beiðnunum eftir því sem aðstæður hafa leyft. Hefur verið reynt að fylgja þeirri reglu að svara öllum eríndum fljótt enda kvarta útlend- ingar einatt undan því að hér á landí sé bréfum sinnt seint og illa. Nú er í undirbúningi að stofnunin og Málvísindastofnun Háskólans standi að mátþingi um íslenska mál- fræði í tengslum við norræna málvís- indaráðstefnu sem halda á hér í Reykjavík um miðjan júní á næsta ári. I lok júlí gengst stofnunin fyrir alþjóðlegri námstefnu um norræna goðafræði og Snorra-Eddu. Mun stofnunin bjóða erlendum fræði- mönnum til að taka þátt í hvoru- tveggja. Þá er gert ráð fyrir að halda næsta alþjóðlega sumamámskeiðið í ísjensku 1991. Á fjárlögum þessa árs voru Stofn- un Sigurðar Nordals veittar tæplega fjórar milljónir króna til launaút- gjalda, reksturs og viðgerða á húsinu Þingholtsstræti 29. Þetta er svipuð upphæð og eytt var í Evrópusöngva- keppni sjónvarpsstöðva af íslands hálfu. Á sl. ári voru fjárveitingar enn minni. Það gefur augaleið að ekki er unnt að stunda þróttmikla menningarkynningu fyrir þetta fé, jafnvei þótt hverri krónu sé velt fyr- ir sér og ekkert látið fara í súginn. Engu síður hefur nokkuð áunnist. Nu hefur verið safnað á einn stað miklum upplýsingum um kennslu og rannsóknir í íslenskum fræðum og komið á sambandi við stofnanir og fræðimenn á þessu sviði víða um lönd. Á grunni þeirra úpplýsinga og sambanda hefur fjölbreytt starfsemi hafist. Því miður er það fjármagn sem veitt er til kynningar á íslenskri menningu erlendis skorið við nögl, samstarf þeirra sem vinna að þess- um málum ákaflega lítið, engin heildarstefna mörkuð og allt skipu- lag fálmkennt. Ef nokkurt vit á að vera í menningarkynningu þurfa menn að hafa haldgóða þekkingu á því sem þegar hefur verið gert og ákveða að hvetju skuli stefnt en ekki ijúka í framkvæmdir af venju- legu íslensku fyrirhyggjuleysi. Stofnun Sigurðar Nordals hefur leit- ast við að rækta garðinn sinn með því litla fjármagni sem henni hefur verið skammtað í þeirri trú að mál- tækið sannist: Mjór er mikils vísir. Höfundur er forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Xordals.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.