Morgunblaðið - 30.12.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 30.12.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DEáEMBER 1989 33 Minning• Eyjólfíir Jónasson íSólheimum Það rennur morgnnljómi á Lax- árdalsheiði, þegar ég minnist tengdaföður míns, Eyjólfs Jónas- sonar í Sólheimum, Laxárdal, sem lézt í sjúkrahúsinu á Akranesi 19. desember sl. Þeir eru þar tveir. Og ríða norður yfir. Ómurinn af tali þeirra og óðu hófahljóðinu berst yfir og féð lætur truflast. Svo hægja þeir á og stoppa, setjast á þúfu og fá sér í nefið. Þá strýkur tengdapabbi hendi um svörð og dregur pela úr jörð. Hinn verður svo hissa, að hann er stund- arkom efins um að pelinn sé af þessum heimi og þá auðvitað ekki heldur ferðafélaginn eða slóð þeirra, sem er reyndar horfin. Hann hikar því við. En svo sér hann í augum hins, að þeir eiga lengri leið fyrir höndum. Og sýpur á. Og lífsglaður hlátur leggst yfir heiðina eins og þokuslæða. Svo standa þeir upp og fara á bak. Tengdafaðir minn situr teinréttur í hnakknum, hatturinn er á sínum stað og tærnar vísa út af fullkomnu kæruleysi. Svona er Eyjólfur í Sólheimum öruggur: Kór- ónulaus á hann hér ríki og álfur. Eyjólfur Jónasson fæddist á Gillastöðum í Laxárdal, Dalasýslu, 15. marz 1889 og var því á hundr- aðasta og fyrsta aldursári, þegar hann dó í sjúkrahúsinu á Akranesi 19. desember sl. Foreldrar Eyjólfs voru Jónas Guðbrandsson í Sól- heimum og kona hans, Ingigerður Sigtryggsdóttir. Eyjólfur gekk í skóla í Búðardal og Hjarðarholti, en 1914 reisti hann býli á Sval- höfða í Laxárdal, þar sem hann bjó í fimm ár. Þá fluttist hann í Sól- heima, þar sem hann bjó allan sinn búskap. Eyjólfur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigríður Ólafs- dóttir úr Lundarreykjadal í Borgar- firði. Þau áttu fjögur böm: Ölaf Ingva bónda í Sólheimum, sem kvæntur er Helgu Áslaugu Guð- brandsdóttur frá Lækjarskógi, Ingi- gerði, sem átti Jón Kristjánsson á Kjörseyri í Bæjarhreppi í Stranda- sýslu, GuðrúnUj sem átti Gunnar Sveinsson frá Álafossi í Mosfells- sveit, og Unu, sem giftist Eiríki Sigfússyni á Stóm-Hvalsá í Bæjar- hreppi. Þau Jón og Una em látin. Guðrún og Gunnar skildu. Síðari kona Eyjólfs var Ingiríður Guðmundsdóttir frá Leiðólfsstöðum í Laxárdal. Þau eignuðust tvö börn: Stein, sem kvæntur er Auði Skúla- dóttur, og Sigríði Sólborgu, sem er eiginkona undirritaðs. Þau Eyjólfur og Ingiríður skildu. Afkomendur Eyjólfs í Sólheimum telja nú tólf tugi. Eyjólfur í Sólheimum var kvæða- maður af lífi og sál, landskunnur hagyrðingur og hestamaður. Og Laxdælingar gerðu hann að heið- ursborgara sínum. Eyjólfur Jónasson var aldraður orðinn, þegar ég sótti hann fyrst heim í Sólheima. Hann átti 85 ára afmæli og ég var kominn til að biðja um hönd dóttur hans. „Láttu henni Siggu minni ekki leiðast," sagði hann. „Og ekki meira um það.“ Svo hélt afmælið sínu striki með fögnuði og söng. Því gleðin var Eyjólfi sönn lífsnautn og leiðindi það versta, sem yfir menn gat dunið. Hann sótti í gleðina, hvar sem hann gat. En hann gat líka glaðst með sjálfum sér. Og oft var hann öðrum til gleði. Mér er sagt, að áður hafi enginn sótt Eyjólf heim öðru vísi en að hann byði í útreiðartúr. Það vár hans bezta skemmtun og um leið það bezta, sem hann gat boðið öðrum. Og þá kvað Laxárdalurinn við af söng og hófahljómi. Eg reið aldrei út með tengdaföð- ur mínum. En hann sagði mér margar sögur, bæði útreiðarsögur og aðrar sögur. Og þegar Eyjólfur í Sólheimum sagði frá, þá skemmti hann bæði sjálfum sér og áheyrand- anum. Sú minning, sem þetta grein- arkorn byijar á, er til dæmis ekki síður en sögunni sjálfri tengd kátínu sögumannsins, sem oftar en ekki braust út í hlátrasköllum og hams- lausum handsveiflum. Viljandi lifði hann ekki öðru vísi, en að hafa gaman af því. Stöku var kastað fram og öllu fórnað til að ná gleðinni á sitt vald. Sérhver hugdetta nýtt til að bifa burt harmagrettu. Glatt líf með sprett- um. Það var hans líf. Og öðru vísi mátti það ekki vera hjá öðrum. En gleðin getur verið tillitslaus eins og sorgin systir hennar. Og auðvitað voru fleiri en ein hlið á Eyjólfi. En ég held, að meðal- mennska hafi ekki verið til í honum. Hann var allt, sem við erum flest, bara meiri og stærri. Þess vegna var nálægðin við hann ekki alltaf auðveld. Eyjólfur sagði mér einu sinni, að hann hefði aldrei kviðið ferð. Og fór hann þær þó margar. Og marg- víslegar. Hins vegar sagðist hann hafa fundið fyrir einhvetjum kitlum, sem hurfu svo, þegar komið var vel af stað. Og þá tók ferðalagið hann tökum, sem losnuðu ekki fyrr en í áfangastað. Ferðin á Akranes fyrr á þessu ári var líka svona. Nú duldist tengdaföður mínum hreint ekki, að tími hans væri skammtaður í þessu lífi, þótt hann hlyti stærri sneið en flestir aðrir. Það þótti honum bara við hæfi. Hitt var svo jafnsjálfsagt og á skeiðvellinum, að menn kæmu í mark. Það var bara að rista fram úr keppinautunum á brautinni. Eyjólfur var með kitlum, þegar ég heimsótti hann fyrst í sjúkrahús- ið á Akranesi. Svo hurfu þær. Og þegar við hittumst síðast, þá skildi ég hann þannig, að hann væri kom- inn vel af stað. Og nú er Eyjólfur farinn. Og heiðin kemur á móti honum og legg- ur sig til fyrir hann, eins og ung- hross, sem allt á til. Hún er héma blíð. Þarna stríð. Eg sé tengdaföður minn taka hana í fangið. Og þann- ig ber hann á brún á beinagrindinni ljósu. Eyjólfur Jónasson verður jarð- sunginn frá Hjarðarholtskirkju í Laxárdal í dag, laugardaginn 30. desember. Blessuð veri minning hans. Freysteinn Jóhannsson Minning Sigríður Sigurðar- dóttirfrá Unhóli Fædd 17. mars 1901 Dáin 18. desember 1989 Nú er elsku amma okkar dáin eftir erfíð veikindi. Amma fæddist að Þúfu í V-Landeyjum en fluttist ung með foreldrum sínum, Sigurði Guðnasyni og Guðfinnu Sveins- dóttur, að Háarima í Þykkvabæ og var hún elst tíu systkina. Árið 1925 giftist hún Pálmari Jónssyni sem lést árið 1971. Þau bjuggu allan sinn búskap að Un- hóli og eignuðust þau fjögur börn. Þau eru Sigurfinna, Kristjón, Lára og Una. Margar góðar minningar vakna og söknuðurinn er sár, en vitneskjan um að hvíldin var henni kærkomin og þjáningum hennar lokið veita-okkur huggun. Guð tók hana í sinn faðm eins og hún um- vafði okkur með kærleik sínum og blíðu. Við minnumst hennar sívinnandi sátt við lífið og tilver- una. Það var ekki í hénnar anda að kvarta þó oft væri erfitt. Hún hugsaði fyrst og fremst um aðra, bæði menn og málleysingja. Þeir sem minna máttu sín áttu öruggt skjól hjá henni. Hún var mjög trúuð kona og treysti guði, og vitum við að það hefur hjálpað henni í erfíðum veik- indum hennar. Síðustu tvö árin þurfti amma oft að dvelja á sjúkrahúsi og alltaf var hún jafn þakklát fyrir þær heim- sóknir sem hún fékk, en fannst allt- af of mikið fyrir sér haft. Aldrei gleymdi hún að biðja góðan guð að blessa okkur eins og við nú biðj- um guð að varðveita hana. Minningin um ömmu mun alltaf lifa í hjörtum okkar. Með tryggð til máls og manna á mátt hins góða og sanna þú trúðir traust og fast. Hér er nú starfsins endi. í æðri stjómar hendi er það, sem heitt í hug þú barst. (Einar Benediktsson) Sigríður, Gísli og Garðar. Elskulega langamma okkar, Sigríður Sigurðardóttir, er látin. Hún lést í Landspítalanum 18. desember síðastliðinn. Hún lang- amma var sérstök kona. Svo góð og fórnfús. Það mættu margir taka hana sér til fyrirmyndar. Alltaf var hún að hugsa til okkar. Allt fram á síðustu stundu sem hún var heima pijónaði hún handa okkur vettlinga og sokka sem eiga eftir að verma litlu hendurnar og fæturna okkar næstu árin. Nú söknum við hennar svo mikið. Öll sú hlýja og góðvild sem hún gaf okkur, vermir hjarta okkar og við munum alltaf minnast hennar. Síðustu mánuði var hún mikið hjá dóttur sinni, henni Unu ömmu okkar. Þá fengum við enn betur að kynnast henni langömmu okkar, þar sem styttra var að heimsækja hana í Reykjavík en að fara á heimaslóðir hennar í Þykkvabæn- um. Hún var oft með hugann á heimaslóðum og sagði okkur marg- ar sögur um kýrnar og hin dýrin í sveitinni. Henni þótt svo vænt um dýrin. Það löðuðust allir að henni langömmu okkar, bæði menn og dýr, svo góð var hún. Við þökkum langömmu fyrir þá blíðu og þá umhyggju sem hún sýndi okkur. Við biðjum góðan guð að gæta hennar vel. Blessuð sé minning hennar. Kveðja frá barnabarnabömum Mig langar að minnast móðurafa míns, Eyjólfs Jónassonar frá Sól- heimum, í nokkrum orðum, þó oftar en ekki hafi mér þótt orð vera óþörf, þegar kom til tjá'skipta okkar. Afi var sérstaklega tilfinninga- næmur og fann betur hug manna og dýra en nokkur annar, sem ég hef kynnst. Hann hafði annað gæðamat til lífsins en flestir sem •ég þekkti. Hann notaði okkar íslensku tungu eins og væri hann að leika á hljóðfæri með samspili söngs og orða. Oft hló hann dátt að mér, er ég horfði á hann opin- mynnt og skildi hvorki upp né niður í þeim glimrandi vísum, sem hann kvað fyrir mig. Frá öllum okkar samfundum hef- ur mér fundist ég koma ríkari í anda, og hefur eflaust verið svo um fleiri af öllum hans góðu vinum, en þeir urðu margir því afi var fýrst og fremst gefandi. Stórskáld voru meðal bestu vina afa og minnist ég ljóða sem honum voru flutt frá þeim við hátíðleg tækifæri. Afi las mikið á meðan augun entust honum og átti hann mikið af góðum bókum, en þegar bærinn í Sólheimum brann 1985 brunnu allar bækur hans og var það skarð fyrir skildi. Það urðu margar búsifjarnar, sem afi varð fyrir á sinni lífsins leið og báru krepptar hendur hans þess merki, að oft þurfti hann að takast á við óblíða náttúru lands- ins. Tvo húsbruna upplifði hann á Sólheimum. Afi varð aldrei ríkur af aurum, en af ást, barnaláni og vináttu manna og dýra var hann auðugur, og var hann vel að því kominn. Ekki get ég kvatt afa án þess að minnast þess hve mikið yndi hestar veittu honum alla tið og finnst mér kvæðið Fákar eftir Einar Benediktsson lýsa vel þeirri gleði og hugljómun, sem góður hestur getur gefíð. Til afa míns, sem nú kveður okkur með hundrað ár á herðum og sem bar með sér auð íslenskrar menningar i orði og æði, vil ég gera orð Einars að kveðjuorð- um mínum: Maður og hestur, þeir eru eitt, fyrir utan hinn skammsýna, markaða baug. Þar finnst, hvemig æðum alls Qörs er veitt úr farvegi einum, frá sömu taug. Þeir eru báðir með eilífum sálum, þá andann þeir lofi á tveimur málum, - og saman þeir teiga í loftsins laug lífdrykk af morgunsins gullroðnu skálum. Halldóra Gunnarsdóttir Læknar eru jafnan ófúsir að mæla eftir sjúklinga sína. Kemur það til af því eðli starfans, að allir skjólstæðingarnir eru jafn merki- legir í augum læknisins og vanda- mál þeirra lækninum jafn mikilvæg úrlausnarefni hveiju sinni. Mér er þó ljúft að gera undantekningu að þessu sinni, þegar vinur minn, Eyj- ólfur Jónasson í Sólheimum í Lax- árdal í Dölum, er til moldar borinn. Ég kynntist Eyjólfi fyrir rúmum áratug, hann þá á nítugasta aldurs- ári, en ég að stíga mín fyrstu spor sem læknir Dalamanna. Við urðum síðan samferða næsta áratuginn, og var hann lengst af þeim tíma elstur borgari í Dölum. Ekki man ég gjörla, hvert var tilefni okkar fyrstu kynna, en vera má, að Eyjólf- ur hafi komið í eina af sínum „kurt- eisisheimsóknum“ til okkar lækn- anna. Fór hann oftast árlega til Reykjavíkur að finna lækna „svona fyrir börnin mín“, en kom gjaman fyrst til læknis í Búðardal til að láta hann vita af ferðinni „fýrir kurteisis sakir“. Þurfti enga speking til að sjá á svipstundu, að hér fór maður óvenju ern til líkama og sálar. Það var sem hann væri miklu yngri en aldurinn sagði til um. Lundin var svo létt og fasið fjörmikið. Eyjólfur var sér- staklega kvikur í hreyfingum og fljótur til svara og hló svo dátt og smitandi að öllu skopi að hlátur hans var rómaður í öðmm lands- fjórðungum. Var það jafnvel sVo, að hlátri Eyjólfs var lýst sem nátt- úmundram af útlendum manni á bók. Trúi ég, að fjör Eyjólfs hafi notið sín bezt á hesti, enda var hann landsfrægur hestamaður og tilheyrði þeim hópi höfðingja í röð- um hestamanna, sem nú er að mestu horfinn af sjónarsviðinu. Hafði Eyjólfur jafnan marga til reiðar, þegar hann fór af bæ og neitaði sér sjaldnast um hestakaup, ef svo bar undir. Fór hann og víða norður um sveitir og eignaðist þar marga kunningja. Sólheimar era þannig í sveit settir, að skemmra er til byggða norðanlands en ann- arra byggða í Dölum. Mér varð fljótlega ljóst, að heilsa þessa manns var svo góð frá náttúr- unnar hendi, að læknisdómar mínir myndu þar litlu við bæta og bezt að gæta hófs í þeim efnum, ef vel ætti að fara. Kom það og á daginn. Heimsótti ég þó Eyjólf reglulega, en oftast mér sjálfum meira til upp- lyftingar og heilsubótar en honum. Var hann hafsjór af ýmsum fróð- leik og kunni urmul af vísum, bæði eftir sig og aðra. Var hin bezta skemmtun að sitja á spjalli við hann enda fæddur á liðinni öld og lifði sín manndómsár á morgni þessar- ar. Þó varð hann aldrei nátttröll í nútímanum, las mikið og fylgdist með tíðindum til hins síðasta. Ekki geri ég ráð fyrir, að íþrótta- iðkun hafi ráðið langlífi Éyjólfs. Miklu frekar hefur það verið hæfí- legt erfiðið í íslenzkri sveit og eðlis- lægur hæfileiki til að varpa af sér áhyggjum hversdagsins og gleðjast með vinum. Þó veit ég, að Eyjólfur stundaði eitthvað glímu á sínum yngri áram. Eitt sinn missti hann það út úr sér, að enginn hefði fellt hann nema einn, og var það Ólafur Thors, síðar formaður Sjálfstæðis- flokksins og forsætisráðherra. Glímdu þeir Olafur, þá drengir eða unglingar, í túnfætinum í Hjarðar- holti. Sagði Eyjólfur, að Ólafur hefði verið snarpur glímumaður og lagt sig, þó á þeim hafi verið þriggja ára aldursmunur. Ólafur var gestur fjölskyldunnar í Hjarðarholti enda vinskapur milli heimila þeirra séra Ólafs, prests þar, og Thors Jensens. Nú er þessi heiðursmaður, Eyjólf- ur í Sólheimum, fallinn í valinn eft- ir eitt hundrað ár og rúmu hálfu betur. Er það auðvitað gangur lífsins og árin fleiri, en við getum flest gert okkur vonir um að lifa. Kynnin af honum vora hveijum manni uppörvun og hvatning að taka öldran sinni af karlmennsku og láta ekki árin beygja sálina. Sigurbjörn Sveinsson t Systir okkar, EYRÚN GUÐNADÓTTIR, lést í Landspítalanum 18. desember sl. Útförin fer fram frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 3. janúar kl. 15.00. Guðmunda Guðnadóttir, Jón Guðnason, Lilja Guðnadóttir, Margrét Guðnadóttir, Eyjólfur Guðnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.