Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990 Minning: Ólafiir Ingi Jónsson prentsmiðjustjóri Með fáum orðum minnumst við góðs vinar okkar, Ólafs Inga Jóns- sonar prentsmiðjustjóra, sem lést á Landspítalanum á jóladag langt fyrir aldur fram, aðeins 44 ára gamall. Ekki verður hér rakinn uppruni né starfsferill, það gera aðrir, sem betur þekkja til. Við kynntumst þeim, hjónum, Óla og Sirrý, fyrir rétt tæpum 20 árum, þegar við bjuggum um tíma sem leigjendur í Vesturbergi 46, en þau höfðu þá fest kaup á íbúðinni á móti í sama stigagangi. Það kom af sjálfu sér að umgangur var tölu- verður þar sem börnin voru á svip- uðum aldri og tókst með okkur vin- átta, sem enst hefur ætíð síðan. Við minnumst ánægjulegra sam- verustunda með þeim hjónum og börnum þeirra, góðvildar og gest- risni húsbóndans svo og bjartsýni hans og hjartahlýju. Sérstaklega ánægjulegir voru endurfundir með- an á dvöl okkar erlendis stóð, þegar við komum heim í leyfi og var tek- ið með kostum og kynjum. Við fylgdumst í fjarlægð með hús- byggingunni á Seltjarnarnesi, upp- vexti mannvænlegra barna og komu sólargeislans, yngsta sonar- ins, Siguijóns, sem nú er aðeins 6 ára og á um sárt að binda. Það voru slæmar fréttir, þegar ljóst var á sl. vori, að Óli var hald- inn illkynja sjúkdómi og að horfur voru miður góðar. Þessu tók hann þó með aðdáunarverðri stillingu og hófst þá hetjuleg níu mánaða bar- átta við skæðan sjúkdóm, sem enn reynist örðugt að sigrast á þrátt fyrir miklar framfarir í krabba- meinslækningum. Meðferðin bar til að byija með góðan árangur og leit um tíma út fyrir að sjúkdómur- inn léti undan en þegar líða tók á haustið varð ljóst að þær vonir voru tálvonir einar. Þeir sem oft sátu við sjúkrabeð Óla dáðust að kjarki hans og æðruleysi, hann kvartaði ekki og lét ekki bugast og einnig að samstöðu þeirra hjóna og hvers megnug Sirrý var þegar mest á reyndi. Mikill er missir hans nán- ustu og þá sérstaklega eiginkonu og barna. Vandfundinn mun betri eiginmaður og faðir. Elsku Sirrý, Anna, Ingi Rafn og Siguijón, megi minningin um góðan dreng létta sorg ykkar. Gestur og Björg Þegar helstríði Ólafs Inga Jóns- sonar lauk aðfaranótt jóladags var endi bundinn á hetjulega baráttu. Lengi vonuðum við sem hann þekkt- um og umgengumst að baráttunni lyki með sigri hans; að bjartsýnin og lífsgleðin fengju yfirbugað þann grimmilega óvin sem við var að eiga. Sú von dvínaði þó eftir því sem lengra leið. Þó gátum við ekki fengið okkur til að trúa því að Óli Ingi yrði frá okkur tekinn í blóma t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, TORFI ÞORSTEINSSON, Haga, Hornafirði, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Skjólgarði, Höfn, mánudaginn 8. janúar. .... Born, tengdaborn og barnaborn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, FREYJA ÞORSTEINSDÓTTIR, Hvassaieiti 59, lést í Borgarspítalanum 7. janúar. Minningarathöfn fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. jan- úar kl. 16.30. Jarðsett verður á Dalvík. Sigurður Hjartarson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar, GUÐRÚN SNORRADÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, sem lést 31. desember, verður jarðsungin frá Langholtskirkju mánudaginn 15. janúar kl. 13.30. Inga Bjarnadóttir, Snorri Bjarnason, Björgvin Bjarnason, Bessi Bjarnason. t Ástkær móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalang- amma, HERDI'S GUÐMUNDSDÓTTIR Ijósmyndari, sem lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Hafnarfirði, mánudaginn 8. janúar verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 16. janúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Slysavarnadeildina Hraunprýði, Hafnarfirði. Guðmunda Guðbjartsdóttir, Magnús Guðbjartsson, Hallgerður Guðmundsdóttir, Katrin Guðbjartsdóttir Richards, Guðný Guðbjartsdóttir, Ásgeir Guðbjartsson, Sólveig Guðbjartsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Sveinn Guðbjartsson, Svanhildur Ingvarsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. lífsins, hann sem hafði miðlað svo miklu en átti þó svo margt ógert og ósagt. Fyrir okkur sem kennum í bókiðnadeild Iðnskólans í Reykjavík er dauði hans mikið áfail; þar fór ekki aðeins vinur og samstarfsmaður heldúr ekki síður' sá fagmaður sem einna gerst hafði kynnt sér nýjungar og framfarir í iðngrein sinni, fylgdist af lifandi áhuga með öllum tæknibreytingum og miðlaði þekkingu sinni til um- hverfisins. Kynni okkar Óla Inga hófust fyr- ir rúmum aldarfjórðungi þegar við vorum saman í námi undir handar- jaðri Guðmundar Benediktssonar, þáverandi prentsmiðjustjóra hjá Reykjaprenti, prentsmiðju Vísis. Hann hóf þar nám í maíbyijun 1963 og lauk sveinsprófi í setningu árið 1967. Þarna unnum við saman í rúm fjögur ár. Ymislegt kemur upp í hugann þegar þessara ára er minnst; græskulaus glettni og gamansemi nemanna sem kepptust um að hleypa gárum á tiltölulega kyrrt yfirborð vinnustaðarins; veiðiferðir, skemmtiferðir og knattspyrnuæf- ingar. Þarna var ýmislegt sér til gamans gert og nemarnir galopnir fyrir öllu sem gat orðið skemmti- legt. Leiðir okkar lágu alltaf saman öðru hveiju síðustu tuttugu árin, þótt við störfuðum hvor á sínum vettvangi hluta þess tíma. Meðan ég fór úr faginu um nokkurra ára skeið gerðist Óli einn fróðasti bóka- gerðarmaður hérlendis um nýjung- ar og framfarir í tækni. Það fór enda svo að hann vanh í fjölda ára við kennslu í setningu og umbroti við bókiðnadeild Iðnskólans í Reykjavík. Á þeim árum urðu gífur- legar framfarir í prentsmiðjum landsins; tölvuvæðingin helltist yfir og á skömmum tíma má segja að iðngreinin hafi tekið hvert tækni- lega heljarstökkið af öðru. Að svo miklu leyti sem unnt var að tengja skólann þessum framförum var Oli Ingi í fararbroddi; þar naut sín vel sú þekking sem hann hafði aflað sér. Þótt ÓIi hafi hætt kennslu fyrir nokkrum árum og snúið sér að öðr- um verkefnum sem einnig tengdust prentlistinni, var afskiptum hans af fræðslumálum iðngreinarinnar ekki lokið. Síður en svo. Hann var til dæmis einn frumkvöðla þeirra breytinga sem nú hafa verið gerðar á skipulagi, og þá ekki síður kennslu, setningar, umbrots og filmuvinnu sem ættu að hafa í för með sér mun fjölhæfari fagmenn. Raunar var hann fyrsti maðurinn sem nefndi þennan möguleika í mín eyru. Hann tók virkan þátt í því Sonur okkar, bróðir og frændi, FRIÐLEIFUR HEIÐAR HALLGRÍMSSON, Bjarnarhóli, Dalvik, lést á heimili sinu 31. desember. Útförin hefur farið fram frá Dalvíkurkirkju. Halla Arnadóttir, Vignir Þór Hallgrfmsson, Hanna Hallgrímsdóttir, Árni Hallgrímsson, Oddný J. Zophoníasdóttir og frændsystkini. Zophonías Antonsson, Snjólaug Rósmundsdóttir, Þröstur Jensson, Yvonne Hallgrfmsson, t Hjartkær fósturbróðir minn, ANDRÉS GUÐMUNDSSON frá Syðri-Gróf, til heimilis á Háaleitisbraut 93, sem lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 30. desember sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. janúar nk. kl. 15.00. Fyrir hönd vina og vandamanna, Guðfinna Jónsdóttir. t Systir okkar, GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR hjúkrunarkona, Sólheimum 23, Reykjavík, verður jarðsungin frá Langholtskirkju miðvikudaginn 10. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Baldína Árnadóttir, Guðbjörg Árnadóttir, Ásdfs Árnadóttir. t Útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR JÓHANNESDÓTTUR frá Garði, Skagaströnd, Hátúni 10b, verður gerð frá Fossvogskapellu föstudaginn 12. januar kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á líknar- stofnanir. Ægir Einarsson, Anna Benónísdóttir, Guðlaugur Óskarsson, Sigrún Ágústsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. starfi sem fylgdi þessum breyting- um, bæði skipulagsvinnu og gerð námsáætlana. Ég hafði vænst þess að fá að njóta þekkingar þessa gamla félaga og vinar í mörg ár enn. Fregnin um veikindi hans var því mikið áfall á sínum tíma þótt um skeið væri voninni gefið undir fótinn. Það brást. Nú er góður vinur og ljúfur drengur kvaddur hinstu kveðju á besta aldri. Eiginkonu hans, Sigríði Siguijónsdóttur, börnum þeirra þremur og ástvinum öðrum sendi ég einlægar samúðarkveðjur og bið þeim huggunar í harmi. Haukur Már Haraldsson Þann 4. janúar var kvaddur frændi minn, Olafur Ingi Jónsson, er lést á jóladag. Erfiðu sjúkdóms- stríði er lokið. Við fráfall frænda og vinar spretta minningarnar fram í hug- ann. Við ólumst að nokkru upp saman, svo mikill og náinn var sam- gangur milli heimilanna. Óli var mér að mörgu leyti eins og stóri bróðir, sem ég leit mjög upp til, og bar mikla virðingu fyrir. Hann hasl- aði sér snemma völl innan skáta- hreyfingarinnar, og valdist þar fljótlega til forystu, eins og víðar þar sem hann lagði hönd að verki á lífsleiðinni. Fannst mér ávallt að lífsviðhorf hans og breytni bæru vott þess anda bræðralags og rétt- lætis sem einkennir skátahugsjón- ina. Minnisstæðar eru ótal ferðir til Þingvalla og áhyggjulausir leikir æskunnar uppi í heiðinni og við vatnið. Eins þegar við rennum fyrir fisk rétt eftir lágnætti, þegar öil veröldin virðist sofa, og ekkert rýf- ur kyrrð sumarnæturinnar nema skvampið við kinnung bátsins, mar- rið í þóftunum og einmanalegt gargið í lóminum úti á djúpinu. Þá átti Óli alltaf ráð að gefa litla frænda, eins og hnút á öngul og aðstoð við að halda áralaginu. Hér eru hvorki raktar ættir né starfsferill, þessi litla grein er að- eins kveðja með hjartans þökk fyrir allt. Við fjölskyldan sendum Sirrý og börnunum okkar innilegustu ^sam- úðarkveðjur, einnig móður Ólafs, Helgu Guðjónsdóttur, og systur, Málfríði, og biðjum þeim blessunar guðs. Lárus Sigurðsson Kveðja frá Lionsklúbbi Seltjarnarness Þann 4. janúar kvöddum við Lionsfélagar á Seltjarnarnesi mæt- an félaga, Ólaf Inga Jónsson, sem lést á jóladag eftir hetjulega bar- áttu við erfiðan sjúkdóm. Ólafur Ingi var einn stofnfélaga klúbbsins þann 25. nóvember 1983. Frá upphafi tók hann þátt í klúbb- starfinu af fullum krafti og valdist til hinna ýmsu trúnaðarstarfa. Hann var trúr hugsjónum Lions- hreyfingarinnar og vandaður fé- lagi, sem hafði ávallt eitthvað gott til málanna að leggja. Það hefur verið höggvið stórt skarð í raðir okkar félaganna í Lionsklúbbi Seltjarnarness. Við þökkum Ólafi Inga samfylgdina, sem var alltof stutt. Eiginkonu hans, Sigríði Sigur- jónsdóttur, og börnunum þremur vottum við einlæga samúð okkar. Megi almáttugur Guð veita þeim styrk í djúpri sorg. Lionsklúbbur Seltjarnarness Kransar, krossar og kistuskreýtihgar. Sendum um allt land. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, ÁMheimuin 74. sími 84200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.