Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS „Það verður aldrei framar snú- ið til kommúnisma í Rúmeníu“ Afleiðingar hel- steftiunnar Til Velvakanda. Sannleikurinn mun gera yður fijálsa, sagði Páll postuli. Þetta sannast núna í Austur-Evrópu, þar sem fólkið hristir af sér hlekki kúg- unarinnar og helstefna kommúnis- mans hefur kvalið í áratugi. Trú Páls stendur enn, en trúin á komm- únismann er dauð. Munurinn á þessum trúarbrögðum er sá, að kommúnisminn byggist á mannfyr- irlitningu og alræðisvaldi. Nú er hægt að sjá afleiðingarnar af hel- stefnunni og nú loksins fær heimur- inn að kynnast ómennskum kjörum fólksins. Postular kommúnismans á Vesturlöndum komu því til leiðar að sannleikurinn um lífið í austur- blokkinni var útilokaður. Fjöl- miðlarnir voru í þeirra höndum og öll gagnrýni á Stalínismann var hér á landi kölluð Morgunblaðslýgi og nasismi. Út er komin bók í Rússlandi þar sem sagt er frá griðasáttmálanum sem þeir gerðu með sér Stalín og Hitler, enda báðir handhafar sósíal- ismans, bara sitthvor greinin á sama meiði. Stalín lét í té olíu handa Hitler svo hann gæti ráðist inn í Vestur-Evrópu sem þeir skyldu svo skipta á milli sín. Þetta fór svo að Hitler fór inn í Rússland og Banda- menn sigruðu og afmáðu nasis- mann. En Stalín ætlaði svo með hjálp Stalínistanna í Vestur-Evrópu að leggja undir sig Evrópu. Þegar hann stóð með pálmann í höndunum eftir Jaltasamninginn var það Truman sem sagði: „Hann er búinn að fá nóg.“ Og NATÓ var stofnað. Allir þekkja framhaldið, og það var ekki ættjarðar- eða frelsisþrá sem fékk íslendinga til að sgássera til Keflavíkur og kyija Island úr NATÓ, herinn burt. Það var áróður Stalínistanna. Hvar sést heims- valdastefna Bandaríkjanna? Þau eiga ekki lönd en þau björguðu Vestur-Berh'n. Nú er ekki lengur hægt að hafa frjálshyggjuna fyrir grýlu. Getur Ríkisútvarpið lofað okkur að heyra ævisögu Gralinu Vishev- skayu, sem lýsir lífinu í Rússlandi og er snilldarlega skrifuð. Eigum við énn að hlusta á rauðu tjöruna. Húsmóðir Varist fals- spámenn Til Velvakanda. Ég vil lýsa ánægju minni með Reykjavíkurbréf á liðnum aðfanga- degi. Það var sönn jólahugvekja. Einnig vil ég þakka fyrir viðvörun- ina sem birtist með stjömuspá Morg- unblaðsins 3. janúar. Með þessu skipar Morgunblaðið sér í röð fjölda ábyrgra dagblaða, sem ýmist birta alls ekki stjörnuspár eða láta viðvör- un fylgja um að stjörnuspáin sé ekki öruggt leiðarljós á lífsleiðinni. Þvi miður hefur þjóð okkar í of miklum mæli látið glepjast af spá- sögnum falsspámanna, sem gjarnan opinbera spádóma sína eftir að at- burðir gerast. Má hér minna á frels- isölduna í Austur-Evrópu sem fyrst varð vart í stjömuspádómum þegar múrarnir hrundu og hlekkirnir bmstu. Þessir heimssögulegu at- burðir sem skráðir verða stórum stöfum í mannkynssögunni, rúmuð- ust ekki heldur í kristalskúlum völ- vanna er þær skyggndust eftir at- burðum ársins 1989. Spásagnir völva og stjörnukort tölva reynast arðvænleg söluvara og því er reynt að auglýsa þessa iðju sem trúverðuga og helst „vísinda- lega“. Auglýsingaherferðin hefur borið þann árangur að meira að segja einn landsfeðra byggir vonir sínar um batnandi þjóðarhag á spá- dómum ónefndra spámanna. Þá er nú fokið í flest skjól fyrir viðkom- andi. I trúarlegum efnum hafa íslend- ingar sótt vatnið yfir lækinn, þegar þeir hafa leitað í spruhgna bmnna trúarbragða og á vit falsspámanna, í stað þess að teyga lifandi vatn Jesú Krists. Spádómar hans hafa reynst ábyggilegir og sannir. Það er ástæða til að minna á viðvömn þessa sanna spámanns: „Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðarklæðum en innra em þeir gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra skuluð þérþekkjaþá." (Mt. 7:15-16). Guðni Einarsson Glugginn nuglýsir Útsalan hefst í dag. Stórkostleg verðlækkun. Glugrginn, Kúnsthúsinu, Laugavegi 40. MYNDLISTA- OG HA NDÍÐA SKÓLI ÍSLANDS Myndlistanámskeið á vormisseri. KVÖLDNÁMSKEIÐ. Teikning fyrir fulloröna. (Aöaláhersla á módelteikningu) Fyrir byrjendur: Teikning I mánud. + fimmtud. kl. 17:30-19:30 Kennari: Kristín Arngrímsdóttir Teikning I þriöjud. + föstud. kl. 17:30-19:30 Kennari: Eyþór Stefánsson Teikning 1 þriöjud. + föstud. kl. 20:00-22:00 Kennari: Eyþór Stefánsson Fyrir lengra komna: Teikning II mánud. + fimmtud. kl. 20:00-22:00 Kennari: Kristín Arngrímsdóttir Teikning II miövikudaga kl. 19:20-22:00 Kennari: Auður Ólafsdóttir Námskeiðin hefjast mánudaginn 15. janúar n.k. og standa til aprílloka. Innritun á skrifstofu skólans næstu daga frá kl. 10 -12 og 13 -15. Skipholti 1, 105 Reykjavík, sími 19821. I I I BILATOfíG BETRIBÍLASALA NÓATÚN 2 -SÍMI621033 MMC Pajero langur ’87 Díesel. Silfurgrár. Stærri dekk og felgur. Skipti og skuldabréf. Ekinn 70 þús. Verð kr. 1.700 þús. UILAIUHU Mercedes Benz 190 E ’87 Gulur. Topplúga. Sportfelgur. Skipti og skuldabréf. Ekinn 17 þús. Verð kr. 1.700 þús. Nissan Sunny ’87 Hvítur. Gullfallegur bíll. Skipti og skuldabréf. Ekinn 27 þús. Verö kr. 550 þús. Toyota Corolla sp.ser. '87 Hvítur. Fallegur bíll. Ekinn 58 þús. Verð kr. 600 þús. Ford Econoliner XL 4X4 ’88 Silfurgrár. 7,3 I diesel. Læst drif. Spil. Ekinn 18 þús. Verð kr. 3.800 þús. Volvo 740 GL st ’86 Gullsans. Sjálfskiptur. Ekinn 50 þús. Verð kr. 1.150 þús. Honda Civic GL ’88 Rauöur. Sjálfskiptur. Vökvastýri. Ekinn 26 þús. Verð kr. 790 þús. BÍLATORG Audi 80 18S ’87 Hvítur. Vökvastýri. Ekinn 42 þús. VerÖ kr. 1.170 þús. AMC Wagoneer LTD ’87 Einn með öllu. Skipti og skutda- bréf. Ekinn 50 þús. Verð 1.950 þús. MMC L300 4X4 ’88 Silfurgrár. Skipti og skuldabréf. Ekinn 48 þús. Verð kr. 1.380 þús. Citroén AX 14 TRS '87 Silfurgrár. Ekinn 17 þús. Verð kr. 450 þús. Saab 900i ’88 Grænsans. Skuldabréf. Ekinn 34 þús. Verö kr. 1.170 þús. AMC Cherkee ’87 Silfurgrár. Sportfelgur. Ekinn 32 þús. Verð kr. 1.750 þús. Isuzu Trooper LS diesel '86 Blásans og silfur. Mjög gott eintak. Ekinn 66 þús. Verð kr. 1.450 þús. Gleðilegt nýtt ár Þökkum viðskiptin á liðnum árum BÍLATOfíG BETRI BlLASALA NÓATÚN 2 - SfMI 621033 Höfum kaupendur að nýlegum SAAB- Citroén- Subaru-bílum. og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.