Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B 25. tbl. 78. árg. MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1990 Prentsmiðja Morgxinblaðsins If"1 M,\RKtT -BRITA' Búlgaría: Kommúnistar vilja mynda þjóðsljórn Sofíu. Reuter. PETAR Mladenov, leiðtogi kommúnistaflokksins í Búlgaríu, lagði til í gær að mynduð yrði samstjórn allra stjórnmálaflokka landsins, sem færi með völdin fram að frjálsum kosningum i maí. Hann fór einnig hörðum orðum um fyrirrennara sinn, Todor Zhívkov. Upplausn Mikil skálmöld er í Kosovo-héraði í Júgóslavíu og kemur daglega til átaka milli lögreglunnar og íbú- anna, sem eru flestir af albönsku bergi brotnir. Krefjast þeir umbóta og aukinnar sjálfstjórnar en íKosovo héraðið er nú hluti af lýðveldinu Serbíu. í gær kost- uðu rósturnar sex manns lífið og hafa alls 22 týnt lífi síðustu vikuna. Hér er verið að bera einn mann- anna til grafar. „Þremur mánuðum fyrir kosn- ingarnar lýsir Kommúnistaflokkur Búlgaríu því skýrt yfir að hann vill mynda þjóðstjórn, sem gæti leitt þjóðina út úr þrengingunum,“ sagði Mladenov á flokksþingi kommún- ista í Sofíu. Talsmaður stjórnarinn- ar, Evgení Alexandrov, sagði að flokksleiðtoginn væri reiðubúinn að mynda bráðabirgðastjórn með öll- um flokkum landsins. Hann bætti Danmörk: Minni afli en meiri út- flutningur MEIRA en annar hver fiskur sem Danir flytja út hefúr áður verið fluttur til landsins. Kom þetta fram í dagblaðinu Börsen fyrir nokkrum dögum en þar sagði, að þótt afli danskra fiskimanna hefði minnkað ár firá ári, hefði fiskútflutningur aukist um 55% á 10 árum. Árið 1979 fluttu Danir inn 208.000 tonn af óunnum físki en 396.000 tonn á síðasta ári eða um það bil það sama og þeir veiddu sjálfír. Fyrir liðlega áratug var fiék- útflutningurinn 327.000 tonn en var 506.000 tonn í fyrra og eru þá mjöl og lýsi undanskilið. Fiskinn kaupa Danir aðallega í Grænlandi, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Hollandi og fleiri löndum og gjaldeyristekjurnar af útflutn- ingnum vaxa ár frá ári þrátt fyrir að hlutur innflutta físksins vaxi stöðugt. 1979 fluttu Danir út fisk og fisk- afurðir fyrir rúma 34 milljarða ísl. kr. og keyptu fisk fyrir 13 milljarða en í fyrra keyptu Danir óunninn fisk fyrir tæpa 60 milljarða ísl. kr. en útflutningstekjurnar voru þá um 114 milljarðar kr. þó við að semja þyrfti um slíkt í hringborðsviðræðunum, sem hófust á milli stjórnar og stjórnarandstöðu fyrr í mánuðinum. Talsmenn stjórn- arandstöðunnar hafa sumir tekið þessu tilboði vel enda hafa þeir sjálfír nefnt þessa hugmynd í við- ræðunum við stjórnvöld. Mladenov var í átján ár utanríkis- ráðherra í stjórn Todors Zhívkovs og fór hörðum orðum um forvera sinn á flokksþinginu. „Zhívkov er tortrygginn og sjálfselskur, geð- veikur og gjörsamlega sneyddur öllum andlegum hæfileikum," sagði flokksforinginn. Þessi harðorða gagnrýni er sögð benda til þess að nýju valdhöfunum sé mjög í mun að sýna kjósendurri fram á að flokk- urinn hafi vent sínu kvæði í kross. Viðræður Míkhaíis Gorbatsjovs og Hans Modrows: ■jf. % Segja sameíníngu þýsku ríkjanna vera hugsanlega Moskvu, Austur-Berlín. Reuter. MIKHAIL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, sagði i gær, að enginn efaðist um réttmæti hugmyndarinnar um sameinað Þýskaland en lagði áherslu á, að sameiningarmálið yrði leyst með ábyrgum viðræðum austurs og vesturs en „ekki útkljáð á götunum“. Hans Modrow, forsæt- isráðherra Austur-Þýskalands, sem kom í gær til Moskvu til viðræðna við Gorbatsjov og aðra sovéska ráðamenn, sagði einnig, að möguleik- inn á sameinuðu Þýskalandi blasti við þótt enn væri of snemmt að ákveða hvenær af sameiningu yrði. Gorbatsjov gaf þessa yfirlýsingu á fundi með austur-þýskum frétta- mönnum í tilefni af komu Modrows og er litið svo á, að með henni hafi hann í raun fallist á sameiningu þýsku ríkjanna. Hann lagði hins veg- ar áherslu á, að sameiningarmálið snerti evrópska og alþjóðlega örygg- ishagsmuni og því yrði að fara að öllu með gát og láta „þetta mikil- væga mál ekki ráðast á götunum". Pravda, málgagn sovéska komm- únistaflokksins, hafði í gær eftir fréttaritara sínum í Austur-Berlín, að sameining þýsku ríkjanna væri það mál, sem yfirgnæfði öll önnur í Austur-Þýskalandi, og sagði hann ennfremur, að samkomulagið um þjóðstjórfl í landinu væri eins og neyðaróp frá „umsetinni borg“. Þá er einnig haft eftir sovéskum emb- ættismönnum, sem fylgjast með austur-þýskum málefnum, að sam- einingarkrafan sé orðin svo sterk, að skynsamlegra sé að vinna með henni en móti. Modrow, forsætisráðherra Aust- ur-Þýskalands, átti í gær viðræður við Gorbatsjov og sagði á frétta- mannafundi að þeim loknum, að möguieikinn á sameiningu þýsku ríkjanna blasti nú við. Hingað til hefur hann og austur-þýskir komm- únistar talað um „sambúð studda samningum“ en á fréttamannafund- inum talaði Modrow um sameiningu ríkjanna í áföngum og kvaðst hafa rætt um það við Gorbatsjov. í Austur-Þýskalandi, framvarð- arríki Varsjárbandalagsins, eru 380.000 sovéskir hermenn og nú í vikunni var það haft eftir sovéskum embættismanni, að eitt mesta áhyggjuefni stjórnvalda varðandi hugsanlega sameiningu þýsku ríkjanna væri hvað gera ætti við hermennina og fjölskyldur þeirra. Eins og efnahagsástandið væri yrði nógu erfitt að finna þeim vinnu og húsnæði og hvað þá ef sovéska her- liðið í öðrum Austur-Evrópuríkjum yrði líka kallað heim. Norbert Walter, helsti hagfræð- ingur Deutsche Bank, stærsta bank- ans í Vestur-Þýskalandi, sagði í gær, að vegna innflytjendastraums- ins yrði hagvöxtur í Vestur-Þýska- landi meiri en flestir spáðu en að sama skapi ykjust þrengingarnar í Austur-Þýskalandi. Sagði hann, að austur-þýsk stjórnvöld ættu í raun ekki um annað að velja en æskja sameiningar ríkjanna í efnahags- og gjaldmiðilsmálum og taldi, að til þess kæmi strax á þessu ári. Orðrómur um afsögn Gorbatsjovs Moskvu. Reuter. Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN sagði í gær og kvaðst hafa eftir sovéskum heimild- um, að Míkhaíl Gorbatsjov hygðist segja af sér for- mennsku í kommúnista- flokknum en halda forseta- embættinu. CNN sagði, að Gorbatsjov hefði tekið mjög nærri sér þjóðaólguna í Sovétríkjunum og beitingu hersins í Azerbajdz- han og hefði því ákveðið að segja af sér formennsku í kommúnistaflokknum en vera áfram forseti. Fréttaskýrendur benda hins vegar á, að yfirlýs- ingar hans um Þýskaiandsmál- in bendi til annars en að hann sé á förum. James Baker, ut- anríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði í gær, að hér væri um að ræða orðróm og hann raunar ekki alveg nýjan. Reuter Stærsti skyndibita- staður í heimi I dag verður opnaður í Moskvuborg McDon- ald’s-hamborgarastaður og verður hann jafn- framt sá stærsti í heimi, tekur 700 manns í sæti og annar alls 15.000 manns á dag. í gær fengu sovéskir fréttamenn að bragða á hgrlegheitunum en þess má geta, að fyrir veitingarnar verður greitt með rúblum en ekki erlendum gjaldeyri. Allt hráefnið er rúss- neskt og hefur verið samið sérstaklega við bændur um ræktun nautgripanna, fóðrun þeirra og slátrun. McDonald’s hefur reist stóra verksmiðju fyrir utan Moskvu þar sem kjötið ertilreitt og annað, sem til þarf, en auk þess verður selt mikið til hótelanna í borginni. Starfsmenn skyndibitastaðarins eru 650 en alls sóttu 25.000 manns um þegar störfin voru auglýst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.