Morgunblaðið - 17.02.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.02.1990, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1990 Minning: Jóhanna B. Illuga- dóttir, Gautlöndum Vorið 1917 komu þrjár glæsilegar konur af Suðurlandi í kaupavinnu norður í Mývatnssveit. Þá var „lengra" milli Mývatnssveitar og Reykjavíkur en nú er. Ein þessara kvenna hvarf ekki aftur til síns heima heldur settist að hjá Önnu Jakobsdóttur og Jóni Gauta á Gaut- löndum, sem þá voru nýgift og að hefja búskap. Þessi kona var Jó- hanna Björg Illugadóttir, sem í dag er borin til grafar að Skútustöðum í Mývatnssveit. Jóhanna Björg fæddist 16. mars 1891. Foreldrar hennar voru: Illugi Jóhannsson, Eiríkssonar frá Vöglum í Eyjafirði og Bjargar Eiríksdóttur frá Litlutungu í Bárðardal. í svokall- aðri Mýrarætt (kennd við Mýri í Bárðardal) koma saman ættir Jó- hönnu og beggja foreldra minna. Illugi flutti ásamt foreldrum sínum suður að Haga í Hreppum með Ás- mundi á Stóruvöllum. Móðir Jóhönnu hét Guðbjörg Gísladóttir bónda í Bitru í Flóa. Illugi og Guðbjörg bjuggu fyrst á Höfða í Oddgeirs- hólahverfi. Þegar Jóhanna var tveggja ára fluttu foreldrar hennar að Laugum í Flóa og þar ólst hún upp. Sex böm Guðbjargar og Illuga komust til fullorðinsára: Gísli, f. 1887. Hann dó á besta aldri frá konu og ungri dóttur, Guðbjörgu, sem nú býr á Selfossi. Sigurveig, f. 1888. Jóhanna, f. 1891. Margrét, f. 1893. Anna Jóna, f. 1895 og Sigur- geir, f. 1898. Hann dó ungur. Syst- umar giftust ekki og eiga ekki af- komendur. Þær eru nú allar látnar. Illugi á Laugum var efnalítill bóndi með stóran bamahóp. Hann stundaði því sjóróðra jafnframt bú- skapnum, svo sem algengt var, bæði frá Eyrarbakka, Stokkseyri og Suð- umesjum og var langdvölum fjarri heimili sínu. Guðbjörg og bömin sáu um bú- skapinn með tilstyrk afanna. Jó- hanna minntist þeirra sérstaklega. Hún dvaldi stundum hjá Gísla í Bit- m. Hann var fróður og bókhneigður og gaf systkinunum bækur. Heima á Laugum naut hún umhyggju Jó- hanns afa síns er þar bjó hjá þeim. Hann kenndi henni komungri að lesa og fóðraði hana á ljóðum og sögulegum fróðleík. Ómæld iestrar- löngun og fróðleiksfýsn fylgdu henni æ síðan. Óll vom þau systkinin bráð- vel gefin en þau fengu ekki svo mikið sem barnaskólamenntun hvað þá meira. Foreldrar þeirra, sem bæði vora gáfuð og fróð, kenndu þeim og fræddu sífelldlega. Jóhanna og systur hennar töldu þó, að mest hafi kennt þeim Jóhann afi þeirra. „Kennsla" hans fór fram við dagleg störf, t.d. í fjósi, svo sem lestur, reikningur og skrift. ^Kennslubæk- ur“ vom Eddukvæði, Islendinga- og Biskupasögur, Árbækur Espólíns, annálar og fleiri þess háttar bók- menntir. Jóhanna var jafnan fáorð um sinn hag og enginn leyfði sér að ganga nærri henni um það efni eða önnur. Hún lét aldrei orð falla í þá vem, að hún hefðu nú kannski verið hæf til mennta. En við sem þekktum hana vissum að það var hún. Hraðnæm á allt þekkingarefni er bar fyrir augu hennar og eym og varðveitti það í óbrigðulu minni. Hún hafði efnivið og hneigð til hárra mennta en lífstími hennar léði ekki slíkum kostum kvenna færi á að njóta sín. Jóhanna vann heimili sínu fýrir lítið eins og flestir unglingar gerðu og einnig utan þess eftir þörf- um. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt hana nefna hvaða ár hún fór nokkum veginn alfarin að heiman. En hún var þá ung að ámm, 16 eða 17 ára. Hún fór í vist til Reykjavík- ur eins og margar stúlkur fyrr og síðar. Hún vanr. hjá Klemens Jónssyni landritara og einnig hjá Önnu dóttur hans og Tryggva Þórhallssyni. Hún bar langvarandi tryggð til þeirra. Hún minntist einnig á vem sína hjá frú Finsen, ekkju Finsen póstmeist- ara í Reykjavík. Illugi faðir Jóhönnu og Klemens Jónsson voru systkinasynir. Ég býst við að Jóhanna hafi í einhverju not- ið þeirrar frændsemi. Þess þurfti raunar ekki við, því Jóhanna naut sjálfrar sín og mannkosta sinna hvar sem fór alla ævidaga. Guðrún Borg- ijörð, systir Klemensar, gerði sér títt um Jóhönnu, gaf henni eftir- minnilegar gjafir og rækti við hana frændsemi. Það hafa einnig gert sumir afkomendur Klemensar Jóns- sonar. Heimili Klemensar landritara og Önnu Mariu Schiöth, seinni konu hans, var talið til heldri og betri heimila í Reykjavík. Jóhanna minnt- ist þess jafnan með hlýju og virð- ingu. Þar vom húsgögn fögur og vönduð. Þegar sólskin var sterkast um hádaginn lét húsfreyjan breiða dagblöð yfir húsgögnin til þess að verja þau upplitun. Þetta vora dönsk dagblöð og af þeim lærði Jóhanna að lesa dönsku og það svo vel að fram á efri ár var hún nokkurn veg- inn j afnvíg á íslenskt og danskt ófag- legt lestrarefni. Með svipuðum hætti aflaði hún sér nokkurrar lestrargetu í ensku en glataði henni vegna æf- ingaleysis. Jóhanna lét ekki fram hjá sér fara þá menningarviðburði er gerðust í Reykjavík. Hún sá allar leiksýningar, hlýddi á þá fáu tónleika er fram fóru, sótti opinbera fyrir- lestra er þá voru helstu „uppákom- ur“ í Reykjavík og las obbann af því lestrarefni er gefið var út. Þann- ig gerði þessi fluggáfaða kona lífið að samfeildum skóla þótt hún settist aldrei á skólabekk. Jóhanna fylgdi tísku síns tíma í klæðaburði. Hún átti peysuföt sniðin samkvæmt hon- um, þau gengu ýmist úr eða í tísku með ámnum, og vandaðan upphlut með tilheyrandi kvensilfri. Hún var í rauninni skartkona og bjóst mjög vel. Seinna er við systurnar vildum bögglast við að sauma á hana kjóla lét hún enga meinbaugi þeirra á sig fá, svo fremi sem ermarnar sneru rétt í handveginum og sagði að þeir mundu lagast í þvotti. Svona fráieit var hún því að láta aðra hafa fyrir sér. Við sættum okkur auðvitað ekki við slíkt. Vil vildum hafa hana skart- konu eins og fyrmm. Það hefur sumum þótt spurnar- efni, hvers vegna Jóhanna tók sig upp frá Reykjavík vorið 1917 og réðst í vinnu norður í Mývatnssveit ásamt kunriingjakonum sínum, Sigríði Magnúsdóttur og Viktoríu Guðmundsdóttur. Það er reyndar ofur skiljanlegt. Þær vom allar gáf- aðar atgerviskonur er vildu sjá sig um í landinu og kynnast nýju fólki. Einasta leið efnalítilla kvenna, og raunar einnig karla, til þess var að fara til vinnu sem víðast um landið enda var það alsiða fram undir síðari heimsstyijöld. Það er mér meiri ráðgáta, hvað olli því að Jóhanna settist að hjá foreldrum mínum á Gautlöndum. Hún var fáorð eða eiginlega-þögul um það eins og svo margt annað er hana sjálfa varðaði. Mér dettur í hug, að henni hafi mnnið ti! rifja það hlutskipti foreldra minna að vera að hefja skuldum vafinn búskap og faðir minn svo heilsulaus að hann gat sjaldnast gengið að vinnu og var sífellt undir læknis hendi og hún hafi viljað styðja móður mína eftir föngum. Það væri líkast Jóhönnu og í samræmi við orð hennar og gerðir æ síðan. En eitt veit ég með vissu: Að meiri gæfa gat ekki hlotnast neinu heimili eða einstaklingi en að eiga hana að. Ég veit að ég má þetta mæla fyrir hönd látinna foreldra minna svo og okkar systkinanna og enn fremur vegna einkareynslu minnar. Árið sem ég varð fjögurra ára og næsta systir mín ársgömul var faðir minn að mestu á sjúkrahúsi og móðir. mín hjá honum alian veturinn. Jóhanna sá um heimilið og okkur ásamt móð- ursystur okkar. Þá lagði hún grunn- inn að lestrargleði minni. Mest af þeim þulum og ljóðum er hún las og kenndi mér kann ég enn. Tveim- ur árum síðar eða sex ára gömul veiktist ég og lá við dauðans dyr frá því snemma vors og fram á vetur, fyrst heima og síðan á sjúkrahúsinu á Akureyri. Vegna umsýslu móður minnar á sínu stóra, annasama heimili og fæðingar þriðja barns kom það í hlut Jóhönnu að annast mig, bæði heima og á sjúkrahúsinu. Hún vék aldrei frá mér að nauðsynja- lausu, hvorki á nóttu né degi. Ég hef alltaf verið þess fullviss að ég á henni og Steingrími Matthíassyni lækni líf mitt að launa. Ég veit einn- ig með vissu að þessi ómetanlega umhyggja Jóhönnu var ekki bundin við mig eina. Hún hefði verið hin sama við hvert okkar systkinanna sem er og ég hetd alla menn. Þann- ig var hún. Jóhanna gerði sér ekki tíðfömlt af bæ, hún lét aðra um það. Hún eignaðist marga góða vini, bæði meðal heimafólks, kaupafólks og gesta er jafnan héldu spurnum fyrir um hana og einnig meðal sveita- fólksins er virti hana vel. Haustið 1929 fór hún að heimsækja ættingja og sína gömlu tryggu vini í Reykjavík og á Suðurlandi eftir ell- efu ára aðskilnað. Ég man að allan veturinn lá í loftinu kvíðafull óvissa, sem enginn fékk sig til að orða, um það hvort hún kæmi aftur. Hún kom aftur um vorið og loftið fylltist fögn- uði. Þannig var það er hún kom heim eftir langa eða skamma fjar- vem. Ég minnist m.a. í því efni orða Hildar Ásvaldsdóttur mágkonu minnar þegar Jóhanna fór í tveggja mánaða dvöl til Akureyrar misseri eftir að Hildur flutti í Gautlönd. Þegar við höfðum kvatt Jóhönnu sagði hún: „Ég er strax farin að hlakka til þegar hún kemur aftur.“ Þetta segir æði mikið um þær báðar. Öll mín bemskuár var fjölmennt starfslið á heimili foreldra minna. Ég veit að þau litu á Jóhönnu sem kjölfestu þess þótt ekki væra höfð um það mörg orð. Það hefði henni ekki líkað. 10. febrúar 1934 andaðist móðir mín. Banamein hennar var lungna- bólga. Á deyjanda degi bað hún Jó- hönnu fyrir börn sín og heimili og hún tók það allt að sér orða- og æðrulaust, þá og æ síðan. Þá vorum við systkinin 7, 8, 11 og 14 ára. Á Gautlöndum var, eins og fyrr getur, mannmargt, gestkvæmt og erilssamt. Mér er og mun ætið verða óskiljanlegt hvernig Jóhanna fór að því að anna daglegum og langvinn- um kvöðum og kröfum þessa stóra heimilis er varð að vera sjálfu sér nóg um flesta hluti, eins og þá gerð- ist, þó að hún hefði oft stúlku sér til aðstoðar áður en við systurnar komum til skjalanna. Fas Jóhönnu var svo stillt og hreyfingar fum- lausar að maður tók ekki eftir hröð- um og hiklausum handtökum hennar við verk fyrr en því var lokið. Þetta var eflaust lykillinn að afköstum hennar. Það gefur augaleið að Jóhanna átti sér fáar frístundir. Með ein- hveijum hætti bjó hún sér þó ætíð ráðrúm til þess að hlusta á útvarp, lesa og fræðast. Enda var hún svo fjölfróð og jninnug að til fádæma mátti telja. Á heimilinu var það jafn- an viðkvæðið, ef einhvern hlut vant- aði, vísu til að kveðast á, ætt að manni, fangtal kúnna eða jafnvel heiti á tónverki: „Við skulum spyija Jóhönnu." Það taldist til tíðinda ef stóð á svari. Jóhanna var hlédræg og óhlut- deilin um annarra ráð. Eg hygg, að henni hafi fundist sér vera ábóta- vant um mennt og verðleika til þess að hlutast til um svokallað uppeldi þeirra barna er hún var kvödd til að annast eða hafa á einhvern hátt hönd í bagga með. Þau voru við systkinin, síðar einnig systkinabörn mín svo og öll dvalarbörnin á Gautl- öndum, bæði sumur ogjvetur. Eigi að síður finnst flestum í þessum stóra hópi, að háttsemi og áhrif Jó- hönnu séu snar þáttur í uppvexti þeirra. Hún gaf án skilyrða. Hún virti sannleikans orð. Hún lagði eng- Vilhelm Steinsson bóndi - Minning Fæddur 31. mars 1909 Dáinn 6. febrúar 1990 Á lífsleiðinni verða margir ein- staklingar á vegi okkar um mislang- an tíma þó, þessi einstaklingar skilja mismikið eftir í hugum okkar. Einn þessara einstaklinga sem varð á vegi okkar, og okkur varð vel til vina, þótt kynnin yrðu stutt og aldur- inn farinn að segja til sín, var Vil- helm Steinsson frá Fögmbrekku, sem okkur langar til að minnast í nokkmm orðum. Við vomm svo heppin að fá afnot af sumarhúsinu hennar Hrafnhildar dóttur Vilhelms í lautinni góðu í túninu á Fögru- brekku fyrir um það bil tólf ámm. Þá lá beint við að banka upp hjá Vilhelm og Eyjólfi sem tóku vel á móti okkur. Vilhelm var þá orðinn ekkjumaður og bjó með yngsta syni sínum, sem sá um búið með föður sínum. Okkur fannst gaman að taka í hrífu og vera með þeim í heyskapnum, fara í fjósið. Og gefa heimalningunum, fannst syni okkar það allra skemmti- legasta. Svo var boðið í kaffi og pönnukök- ur, pönnukökurnar hans Vilhelms vom ekki neitt venjulegar pönnukök- ur, þær bráðnuðu upp í manni. Það var gaman að setjast niður í róleg- heitum eftir kaffið og hlusta á Vii- helm, hann hafði frá mörgu að segja frá fyrri tíð, hann var minnugur á menn og málefni og sagði skemmti- lega frá. Eins var hann vel heima í þjóðmálum líðandi stundar. Já, við erum oft búin að vera í sumarhúsinu hennar Hrafnhildar og alltaf komið til Vilhelms og einnig þegar leið okkar lá framhjá Fögmbrekku stoppuðum við ætíð til að heilsa upp á Vilhelm, þá var alltaf tekið loforð um að koma við í bakaleiðinni og þiggja kaffi og pönnukökur, þá voru gjarnan fleiri ijölskyldumeðlimir með í ferð, sem ennþá róma góðu pönnukökurnar hans. Seinni árin var heilsa hans orðin léleg og hann orð- inn þreyttur og slitinn, því vitum við að hvíldin er honum kærkomin. Við kveðjum Vilhelm með þakklæti og virðingu, börnum hans og öðmm ættingjum sendum við samúðar- kveðjur. Amfiríður og Haukur Það er enginn vandi að vera hetja, þegar allt leikur í lyndi. Þá fyrst, þegar erfiðleikar steðja að, reynir á- manninn og dug hans til að mæta þeim með djörfung og vinna bug á þeim með skapfestu og sálarstyrk. Það er þessi þáttur í skapferli íslenska bóndans, öðmm fremur, sem er undirstaða íslensks þjóðlífs gegnum aldimar, allt fram á þennan dag og við mættum minnast með þakklæti oftar en raun ber vitni, því á þessu byggist sjálfstæði okkar sem einstaklinga og styrkurinn til að standa á eigin fótum og bjarga sér, þótt á móti blási. Þetta er dýrmætur arfur, sem okkur ber að meta. Þessar hugleiðingar eru mér efst í huga, þegar ég minnist tengdaföð- ur míns, Vilhelms Steinssonar, bónda að Fögrubrekku í Hrútafírði, sem borinn er til moldar frá staðar- kirkju í dag, en hann andaðist á sjúkrahúsinu á Hvammstanga þann 6. febrúar sl. Vilhelm Steinsson fæddist á Bjargshóli í Núpsdal i Miðfirði þann 31. mars 1909, sonur hjónanna Val- gerðar Jónsdóttur og Steins Ás- mundssonar, sem þar bjuggu þá, en bjuggu lengst af að Litla Hvammi þar í sveit. Ríkidæmi var ekki á heimilinu, því að barnahópurinn var stór og þar á bæ lærðist fólki snemma að bjarga sér og standa á eigin fótum, og það er þessi þróttmikla sjálfs- bjargarviðleitni sem einkennt hefur afkomendur Valgerðar og Steins æ síðan og komið fram í dugnaði, heið- arleika og reglusemi. Systkinin voru þrettán talsins. í dag eru á lífi þau Áslaug, f. 1907, Kristín, f. 1910, Ágúst, f. 1912, Herdís, f. 1914, Gunnhildur, f. 1919, Halldór, f. 1920, og Fjóla, f. 1923. Látin eru, auk Vilhelms, Friðjón, f. 1907, Eyjólfur, f. 1911, Sigrún, f. 1916, Jónas, f. 1918, og Skúli, f. 1924. Á heimili foreldra sinna gekk Vil- helm að öllum bústörfum og öðlaðist dýrmæta reynslu, sem fylgdi honum er hann hleypti heimdraganum um tvítugt og hóf búskap ásamt heit- konu sinni, Iðunni Kristjánsdóttur (f. 24. júní 1913, d. 10. nóvember 1979). Árið 1932 settust þau að á Dalgeirsstöðum í Vesturárdal og þar fæddist þeim sonurinn Valgeir árið 1933. Á næsta ári, 1934, flytjast þau að Fossi í Hrútafirði, og þar eru fæddar dætur þeirra tvær, Þuríður Sveinbjörg, f. 1937, og Hrafnhildur, f. 1940. í Hrútafirðinum undi Vilhelm hag sínum, þótt hann flytti sig um set, fyrst að Óspaksstaðaseli, sem hann keypti árið 1941, en þar bjó hann til ársins 1943, er hann keypti Fögmbrekku og bjó þar æ síðan. Þau Iðunn slitu samvistir eftir nokk- urn búskap að Fögrubrekku og flutt- ist hún þá þaðan. Þann 16. sept. 1954 gekk Vilhelm að eiga Hóimfríði Þorfinnsdóttur (f. 18. nóv. 1921, d. 22. sept. 1980), ættaða úr Keflavík. Bjuggu þau alla sína búskapartíð á Fögrubrekku. Þar fæddust synir þeirra tveir, Guð- mundur, f. 1955, og Eyjólfur, f. 1956, svo og dóttirin Þórunn, f. 1959, en hún lést rúmlega árs- gömul. Þá gekk Vilhelm í föðurstað syni Hólmfríðar, Hafsteini Þorfinni Júlíussyni, f. 1946, og ól hann upp sem sinn eigin son. Búskaparárin að Fögrubrekku voru Vilhelm á margan hátt erfið og markaði heilsuleysi Hólmfríðar þung spor og reyndi mjög á mann- dóm þeirra feðga, sem þá kom svo glöggt í ljós. Afkomendur Vilhelms eru margir og mannvænlegir. Valgeir er búsettur í Kópavogi, kvæntur Sigurlaugu Þorleifsdóttur. Synir þeirra eru Stefán Þór, Tryggvi og Bragi. Sonur Tryggva er Kristján Steinar og dóttir Braga er Anna Eir. Þuríður, býr í Reykjavík, gift Baldri Hólmgeirssyni. Þeirra synir eru Hólmgeir og Birgir og Ragnar og sonur Hólmgeirs er Gísli Freyr. Hrafnhildur, býr í Reykjavík, gift Sigmundi Franz* Kristjánssyni. Þeirra börn eru Vilhelm Sigfús og Harpa Iðunn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.