Morgunblaðið - 24.03.1990, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.03.1990, Blaðsíða 6
6 p MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARZ 1990 Svnir úr fjarlægð Myndlist Bragi Ásgeirsson I^slenzkir málarar eru víða starfandi erlendis og hafa getið sér þar gott orð, og á meðal þeirra er Karólína Lárus- dóttir, sem búsett er í nágrenni Cambridge í Englandi. Þótt Karólína hafí í meira en tvo tugi ára dvalið erlendis, hefur hún þá sérstöðu meðal þeirra myndlistarmanna sem hleypt hafa heimdraganum, að sækja myndefni sitt að megin- hluta til ættlandsins. Þetta er nokkuð athyglisvert í Ijósi þess, að sitt listræna uppeldi hefur hún alfarið úr enskum listaskólum, sem þykja margir allnokkuð íhaldssamir og styðjast mjög við innlenda hefð. Listakonan sækir og gamla landið reglulega heim, og þá ferðast hún iðulega víðs vegar til að sanka að sér áhrif- um, þótt myndefnin tengist mestmegnis æskustöðvunum, því sem var í næsta sjónmáli, er hún óx úr grasi. Hitt gleymist þó engan veginn, að rannsóknum á íslenzkri myndlist og íslenzkri listasögu hefur ekki verið sérlega stíft haldið að nemendum íslenzkra listaskóla fram til þessa, ,svo að nemendur eru iðulega útlenzkari en allt út- lenzkt, er þaðan kemur. Kannski er það einmitt þess vegna sem íslendingum, sem hljóta listræna menntun sína ytra, verður meira hugsað til ættlandsins í fjarlægð í myndefnaleit sinni. Það er svo borðleggjandi, að islenzkum list- amönnum er gjarnt að leita til íjarlægðarinnar í myndefnavali, svo að hér má ætla að hlutimir hafi haft endaskipti en eru þó í fyllsta samræmi við íslenzkt manneðli. Karólína hefur að auki oftar haldið einkasýningar hér heima en ytra, þótt á því kunni senn að verða breyting, en draumur velflestra íslenzkra málara virð- ist hins vegar vera að sýna í útlandinu! Það hefur verið heilmikið af fólki í myndum Karólínu fram að þessu, jarðbundnu fólki, sv- ífandi fólki og fólki, sem hefur verið eins og áveðurs á mynd- fletinum. Hér hefur maður kennt ýmislegt af andblæ liðinna ára og þóst greina í senn hrepp- stjora, bændur og búalið, heima- sætur, kaupakonur og ósköp venjulegt fólk í hinum ýmsu út- gáftim. Hugnist íslenzkum listamönn- um að seilast dálítið í gullastokk eigin minninga svo og fortíðar- innar, þá ætti þá svo sannarlega ekki að skorta myndefni, sem eru jafn háleit og myndræn öllu því, sem hefur á sér útlend vöru- merki og hafíð er til vegs af steinríkum listpáfum. Á síðustu tímum algjörs frelsis í mynd- hugsun hafa listrýnendur annað tveggja beint sjónum sínum að sjálfri útfærslu myndanna eða hugmyndafræðilegu inntaki og þá iðulega með goðsögurnar í bakhendinni. Mannlífíð sjálft er goðsögnin i myndheimi Karólínu og þá helzt í agaðri og skynrænni út- færslu. Ljósbrigðin eru styrkur Karólínu og þannig séð liggja vatnslitirnir mun nær persónu hennar en olíulitirnir. Þessi sýning, sem byggist að meginhluta á vantslitum, er og tvímælalaust sterkasta framlag Karólínu á íslenzkum vettvangi fram til þessa. Og þótt undarlegt megi virð- ast þá vekja þær myndir einna mesta athygli, sem telja má í yfírstærðum í þessari tækni og er það vegna margslunginnar beitingar vatnslitatækninnar. Að vísu má greina verur innan í sumum myndanna og er það ekki til skaða, en hinar standa einnig alveg fýrir sínu og ljóst má vera, að Karólína er mjög að sækja í sig veðrið og vísa'ég hér einungis til mynda eins og „Sjór“ (1), „Verur“ (6) og „Gulir steinar" (8). Allar þessar myndir sýna að Karólína þarf ekki endilega að leita til frásagnargáfunnar á myndfletinum til að ná mark- verðum árangri. Þær hinna minni mynda, sem einfaldleikinn og tærleikinn prýða, bera af að mínu mati svo sem „Straukona“ (17), „Ljón við borð“ (23), „Kvöldrómans" (31) svo og fleira í slíkum dúr. Það er helzt í tréristunum að segja má, að frásögnin virðist skipta meira máli en útfærslan, en sem grafík-listamaður er Karólína meira en vel gjaldgeng og þá einkum er hún nær að þróa beztu eðliskosti sína í ein- faldri, skýrri og blæbrigðaríkri útfærslu. Myndhyörf Inúlistum eru myndverkin ósjaldan allt í senn, málverk, lágmynd sem höggmynd, að við- bættri efnislegri dýpt. Kannski er svo ekki fráleitt að nota skilgreininguna mynd- hvörf á slíka tegund myndlistar, sem svo mjög hefur fjarlægst upphaflega skilgreiningu inn- byrðis hugtaka. Svona líkt og menn gefa orðum aðra merkingu en þau höfðu upphaflega. Myndverk hins unga og stór- huga Guðjóns Bjarnasonar flokkast ótvírætt undir þessa nýju tilhneigingu myndlistar- manna. Hann kemur mjög á óvart með flekum í yfirstærð, sem hann sýnir í austursal Kjar- valsstaða, svo og hliðarsal, fram til 25. mars. Að kalla þessi mynd- verk fleka er réttnefni, því að þetta eru öllu frekar smíðaðir flekar en dúkar, og í sumum verkanna hefur smíðayerkið veigamiklu hlutverki að gegna. Þá teljast og sum verkanna til hreinnar rúmtakslistar. Á einum stað skiptir það verki eftir endilöngu lóðrétt og ofar- lega lárétt, svo að minnir á kross og fær trúarlegt yfirbragð. Þá er eins og Guðjón vilji stundum opna málverkið með eins konar raufum eða gluggum eins og til að skírskota til háleitari vídda. Það er og heilmikið, sem minnir á trúarbrögð og helgilist í þessum verkum og er skírskot- unin í mörgum tilvikum hrein og bein, svo vísað sé til nafngift- anna, en í öðrum óbein eins og t.d. í myndinni, sem ber rétt og slétt nafnið „Samstilling“ (11) og hefur dularfullt grænt og nær gagnsætt yfírborð svo að minnir á eitthvað ofurfíngert og yfirskil- vitlegt. Áferðin virkar þá eins og fyrirheit um eitthvað dular- fullt, upphafíð og mikilfenglegt að handan og vil ég strax segja það álit mitt, að þetta sé ein Guðjón Bjarnason athýglisverðasta og best málaða mynd sýningarinnar. Guðjón hefur undanfarinn áratug stundað nám í New York og hefur meistaragráðu í mál- aralist og húsagerðarlist. Það kemur og fram í sumum mynd- verkanna, að byggingarmeistar- inn er ekki langt undan í mynd- hugsun hans. Guðjón kann sitt handverk og gengur hreint og óhikað til verks og stundum sést honum jafnvel ekki fyrir í ákefð sinni, þannig að liturinn er eins og utan á flet- inum og tengist ekki innri lífæð- um hans. Hann virðist hafa mik- inn áhuga á skrautlegu yfirborði og þannig notar hann silfur og gullbrons í sumar myndirnar og jafnvel ekta blaðagull í aðrar. Þessi árátta gerandans kemur manni stundum í opna skjöldu og hefur frekar fráhrindandi áhrif við fyrstu kynni, því að hér hefur einhvem veginn ekki átt sér stað nægileg geijun til að gera ferlið sannfærandi. Vafalítið eru í þessum mynd- um heilmikil áhrif frá ýmsum þáttum listflóru New York- borgar svo og Þjóðveijans Ans- elms Kiefer, en sá leggur mikla áherslu á dýpt og fyllingu í myndum sínum ásamt beinni skírskotun til nútímans, sögu þjóðar sinnar og goðsagna fortíð- arinnar. Það var og einmitt mikil sýn- ing á verkun Kiefers á MOMA fyrir tveim árum, og hvað er eðlilegra og skiljanlegra en að ungur fullhugi í listinni láti hrífast og verði fyrir áhrifum? Að öllu samanlögðu var ég sáttastur við myndir hnitmiðaðs og samfellds ferils svo sem kem- ur fram í áðurnefndu myndverki svo og „Sjálfsmynd" (1), „Töfra- hringurinn“ (81) og „Fílabeins- tumar“ (88). Upphenging hinna mörgu myndeininga á endavegg er snjöll hugmynd og lyftir sýn- ingunni, gefur henni auknar víddir, en það er hins vegar allt annar handleggur að geta sér til, hvernig þessar einingar njóti sín einar og sér. Hér er hraustlega gengið til verks og af mikilli sköpunargleði og má meira en vera að sá grunn- ur sem hér hefur verið lagður eigi eftir að reynast höfundinum giftudijúgur í framtíðinni. Halldór Laxness í Þýskalandi ____Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Guðrún Hrefiia Guðmundsdóttir: Halldór Laxness in Deutschland. (201 bls.) Peter Lang, Frankfurt a.M., Bern, New York, PariS 1989. Útgáfuna annaðist prófessor Bernhard Gilenke. Hér er um að ræða bók sem að stofni til er lokaritgerð höfundar til magistersgráðu við háskólann í Kiel í V-Þýskalandi og er áttunda bindið í ritröðinni Beitrage zur Skandinavistik („Framlag til norrænna fræða“). Meginviðfangsefni höfundar er að gera grein fyrir viðtökum á ritverkum Halldórs Laxness í Þýskalandi, hvemig þau hafa þar verið skilin og metin. Rannsóknir sínar byggir Guðrún Hrefna á þýskum ritdómum sem birst hafa um bækur Halldórs gegnum árin. Það liggur í augum uppi að hér hefur verið um ærinn starfa að ræða, sérstaklega hlýtur að hafa verið erfítt að finna einstaka ritdóma, dreifða í misþekktum blöðum. En af bókfræðihluta ritgerðarinnar má vera ljóst að alúðlega hefur verið unnið, hann einn nær yfir tæpar 60 blaðsíður. Viðfangsefnið lætur lítið yfir sér en býður í raun upp á frjóar vangaveltur vegna þess að á þessari öld hafa viðtökur á verkum Halldórs verið á fáum stöðum fjölbreytilegri en í Þýskalandi. Því ræður m.a. hugmynda- legur kollhnís þjóðarinnar frá nasisma til kommúnisrría og kapítalisma. Eins er hitt merkilegt að bækur hans hafa verið þýddar og gefnar út á þýsku á afar löngu tímabili, allt frá 1936 til dagsins í dag. Hér gefst hvorki rúm né tími til að gera grein fyrir aðferðafræði höfundar né ná- kvæmum niðurstöðum. Aðeins skal tiplað á því sem mesta forvitni vekur hjá þessum blekbera. Það er ómaksins vert fyrir íslenska les- endur að hugleiða hvort útlendingar „skilji“ eitt og annað í verkum Halldórs. Svo dæmi séu tekin, hvert úr sinni áttinni: Er viðbúið að þýskir iesendur kynnist Uglu, Jóni Hreggviðssyni og Ólafi Kárasyni „eins og“ íslenskir lesendur? Spurningin svarar sjálfri sér líklegast neitandi, þessar persónur hljóta um margt að skírskota til annarra fyrir- bæra hjá erlendum lesendum en hjá okkur. Ekki þar með sagt að skilningur annarra þjóða sé endilega þrengri eða beinlínis skakkur, oft á tíðum einfaldlega annar. Rannsókn Guðrúnar Hrefnu sýnir að þý- skir útgefendur hafa gengið að því vísu að verk Halldórs hefðu nógu víðtæka skírskot- un til að vera gefín út í Vestur- og Austur- Þýskalandi á þeim tíma þegar vestrið og austrið voru hvergi ósættanlegri en einmitt í þessum ríkjum tveim. Ekki er víst að þeir hafi alltaf metið aðstæður rétt. Þótt bækur Halldórs hafi fjölþætta skírskotun er við- komandi menningarsamfélag — í þessu til- viki klofið Þýskaland, bæði sögulega og hugmyndalega — ekki ævinlega tilbúið að veita sundurleitum blæbrigðum eins verks viðtöku. Lítum á nokkur dæmi. Árið 1951 birtist íslandsklukkan fyrst í þýskri þýðingu. Á þessum tíma fer áhugi á norrænum bókmenntum, sem og norrænni menningu yfirleitt, minnkandi á þýsku mál- svæði. Almennar hugleiðingar og varkámi í túlkun einkenna vestur-þýsku ritdómana um íslandsklukkuna, í einum þeirra er talað almennum orðum um að sagan fjalli um baráttuna gegn órétti, ómennsku og ofbeldi á öllum tímum, alls staðar. í A-Þýskalandi er skilningur bókmenntamanna á íslands- klukkunni allt annar en í V-Þýskalandi. Túlkun þeirra er hlutbundnari og trúrri textanum, Jón Hreggviðsson er gjarnan túlkaður sem samnefnari undirokaðra ís- lendinga. Um ekkert annað verk Halldórs hafa þýskir ritdómarar verið eins ósammála og Atómstöðina. Bókin kom út í þýskri þýðingu 1955, sama ár og skipting Þýskalands verð- ur staðreynd, NATO og Varsjárbandalagið orðin að veruleika. Austur-þýskir ritdómarar greindu verkið nákvæmlega og áttu skiljan- lega ekki erfitt með að túlka boðskap þess. Vestur-þýsku ritdómararnir veigruðu sér við að íjalla beint um efni verksins en drápu umræðunni á dreif með því að meta hvort sagan væri kommúnísk eða ekki. Einn bóka- rýnirinn gekk svo langt að stimpla Atóm- stöðina sem áróðursrit sem innihéldi veru- lega hættu fyrir hinn vestræna heim. 1961 kom Brekkukotsannáll út í V- Þýskalandi og ári síðar í A-Þýskalandi. Hérna verða greinilegar breytingar í afstöðu þýskra ritdómara á bókum Halldórs. V- þýskir ritdómarar verða fegnir því að pólitik- in er ekki eins nálæg og oft áður og eru þess vegna ófeimnari við að túlka þetta verk en mörg önnur. A-þýskir ritdómarar eru hins vegar dálítið vonsviknir, halda því samt fram að Halldór sé enn samfélags- gagnrýninn þótt slíkt standi að vísu ekki í forgrunninum. Með þessu verki hefur dreg- ið úr andstæðum áherslum í ritdómum A- og V-Þýskalands, örlögum aðalpersónanna sem og frásagnarhætti verksins eru gerð betri skil beggja vegna landamæranna en oft áður. Guðrún Hrefna fjallar í sérstökum kafla um viðbrögð þýskra gagnrýnenda við því þegar Halldór fékk nóbelsverðlaunin 1955. Viðbrögðin austan og vestan megin eru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.