Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA f* 1990 ■ MIDVIKUDAGUR 18. APRÍL BLAÐ ijjiljjjj ' 111 KORFUKNATTLEIKUR Torfi Magnússon tekur við landsliðinu „Viljum fá íslenskan þjálfara," segir Kolbeinn Pálsson, formaður KKÍ. TORFI Magnússon tekur við íslenska landsliðinu í körfuknattleik í vor og leysir af hólmi ungverska þjálfarann Laszlo Nemeth, sem stjórnað hefur liðinu undanfarin tvö ár. Ekki hefur verið gengið frá samn- ingnum, þar sem Torfi er erlendis, en samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins verður það gert fljótlega. Stjórn KKÍ ákvað að endurnýja ekki samninginn við Nemeth og ganga til samninga við Torfa en ástæðan fyrir því var sú að Nemeth þótti of dýr. að er mikill vilji hjá stjórninni að fá íslenskan þjálfara og það hefur mik- ið að segja. Auk þess að fjárhagsstaða körfuknattleikssambandsins ekki mjög góð og Laszlo Nemeth einfaldlega of dýr fyrir okkur/' sagði Kolbeinn Pálsson, for- maður KKI. „Þegar við beindum sjónum okkar að innlendum þjálfurum kom í raun aðeins Torfi til greina. Hann er menntað- ur íþróttakennari, hefur þjálfað í úrvals- deildinni og var einn besti leikmaður okk- ar. Laszlo hefur unnið gott starf og við erum honum þakklátir. En eins og staðan er í dag höfum við einfaldlega ekki ráð á því að halda honum,“ sagði Kolbeinn. Toi-fi tók við þjálfun Hauka í úrvals- deildinni um áramótin og þjálfaði liðið til vors. Honum var boðið að halda áfram með liðið en ákvað þess í stað að taka við landsliðinu. „Miklar framfarir“ „Ég hef alltaf litið á mig sem atvinnu- mann og því get ég ekki annað en tekið þessu þegjandi. Hinsvegar hefði ég viljað halda áfram með liðið enda kominn af stað með ákveðin verkefni," sagði Laszlo Nemeth. Hann sagðist ekki halda áfram hjá KR þar sem liðið hefði ekki efni á erlendum leikmanni og þjálfara. „Ef ég hefði fengið að ráða hefði Sig- urður [Hjörleifsson] tekið við liðinu. Hann hefur verið aðstoðarmaður minn í tvö ár og veit hvað ég hef verið að gera. Ég er þó alls ekki að segja að Torfi sé ekki góður kostur og ég efast ekki um að hann eigi eftir að ná árangri. Ég á góðar minningar frá íslandi og fyrir þjálfara er ísland draumaland. Ahuginn og metnaðurinn er gífurlegur og leikmenn leggja mikið á sig til að ná árangri. Ég hef eignast marga vini og ég á eftir að fylgjast með landsliðinu í fram- tíðinni. Það hefur verið gaman að þjálfa hér og ég tel mig hafa séð miklar framfar- ir og þarmeð er takmarkinu náð,“ sagði Laszlo Nemeth. liðinu af Laszlo Nemeth. HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ Svíar óska eftir sam- starfi við íslendinga bjóðast til að koma til íslands júní í sumar og aftur á næsta ári BENGT Johansson, þjálfari heims- meistara Svía í handknattleik, kom að máli við Þorberg Aðalsteinsson, nýráðinn landsliðsþjálfara íslands, í gær og óskaði eftir samstarfi á breiðum grundvelli. Johansson sagðist vera tilbúinn að koma með sænska liðið til íslands í sumar og einnig í maí á næsta ári og leika þá þrjá til fjóra leiki auk þess að æfa með íslenska liðinu. orbergur sagðist í samtali við Morg- unblaðið vera mjög ánægður með boð sænska þjálfarans. „Það eru flestir þjálfarar í Evrópu sem hafa áhuga á samstarfi við Svía þar sem þeir eru heimsmeistarar. Að Johansson skuli koma til mín og bjóða mér samstarf að fyrra bragði er stórkostlegt. Ég tel að við verðum að nýta okkur þetta kosta- boð,“ sagði Þorbergur. Johansson hefur einnig sýnt áhuga á að vera með þjálfaranámskeið á íslandi í maí á næsta ári. Þorbergur kemur til íslands um aðra helgi og mun ræða við stjórn HSÍ um hugsanlegt samstarf við Svía. HANDKNATTLEIKUR „Mjög sáttur við tilboðiðf< Dusseldorf vill gera tveggja ára samning við Héðin Gilsson Héðinn Gilsson, landsliðsmaður í FH, leikur með vestur-þýska liðinu Dússeldorf næstu tvö árin. Félagið bauð honum tveggja ára samning og ger- ir hann ráð fyrir að ganga frá málunum innan skamms. „Ég er mjög sátt- ur við tilboðið," sagði Héðinn við Morgunblaðið. „Við ræddum málin, þeir gerðu mér ákveðið tilboð og ég tók samningsdrögin Héðinn Gilsson með mér heim til að skoða þau betur. Þetta er mjög hagstætt og í raun betra en ég átti von á, þannig að ekkert á að vera því til fyrirstöðu að ég gangi frá málinu fljótlega." Héðinn var í Dusseldorf frá fimmtudegi til sunnudags og skoðaði aðstæður. Essen hafði einn- ig sýnt áhuga, en hann heyrði ekkert frá meistur- unum og sagðist hafa gefið þá upp á bátinn. Undanúrslit bikarkeppninnar: Ólafur og Þorbjöm aftur íValsliðið? Valsmenn íhuguðu lögbann á leikinn gegn Stjömunni Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals, og Ólafur Bene- diktsson, fyrrum markvörður liðsins, taka líklega aftur fram skóna í kvöld og leika með liði Vals gegn Stjörnunni í Garðabæ í kvöld. Þrír af lykilmönnum liðsins, Jón Kristjánsson, Einar Þor- varðarson og Brynjar Harðarson eru í leikbanni og Vajsmenn verða því að kalla á Þorbjörn og Ólaf. í hinum leiknum í undanúrslitum mætast Víkingur og ÍBV í Laugardalshöllinni. Stjóm handknattleiksdeildar Vals fór fram á það við aganefnd HSÍ að hún endurskoðaði dóminn yfír þremenningunum. Valsmenn höfðu bent á 11. grein laga aganefndar því til stuðnings. Aganefnd hafnaði þessum rökum og staðfesti dóminn. Valur og HK höfðu reyndar áður farið fram á að leik liðanna í deildinni yrði flýtt en því var einnig hafn- að. Bjarni Ákason, sem kjörinn var formaður hand- knattleiksdeildar Vals á aðalfundH gær, sagði að margar hugmyndir hefðu komið fram. Éin þeirra hefði verið að fá lögbann á bikarkeppnina þar til málið hefði verið tekið fyrir að nýju. Hann sagðist þó ekki eiga von á að svo yrði gert og að Vals- menn myndi einfaldlega leika án þremenninganna. KNATTSPYRNA FH í markmannsleit Halldór Halldórsson frá í lengri tíma Halldór Halldórsson, fyrirliði 1. deildar liðs FH í knattspyrnu, leikur ekki knattspyrnu á næstunni. Hann fékk högg í æfingaleik í Portúgal í síðustu viku og kom í Ijós að milta var sprungið. Halldór er á sjúkrahúsi í Portúgal en er væntanleg- ur heim fýrir helgi ásamt Viðari Halldórssyni, sem varð eftir hjá honum. Þórir Jónsson, formaður knattspymudeildar FH, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að enginn vara- markvörður væri hjá félaginu í meistaraflokki og því væru menn þegar bytjaðir að svipast um eftir nýjum markmanni. „Við eigum fyrsta leik í deild- inni 20. maí og verðum því helst að ganga frá þessu fyrir helgi."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.