Morgunblaðið - 17.07.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.07.1990, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 1990 Sigrún Jónsdóttir á Rangá - Minning Látin er Sigrún Jónsdóttir á Rangá í Kaldakinn í Suður-Þingeyj- arsýslu. Hún var til grafar borin á Þóroddsstað laugardaginn 7. júlí, að viðstöddu miklu fjölmenni. Geng- in er merk og mæt kona, sannköll- uð héraðsprýði. Með hrærðum huga minnist ég vinkonu minnar, sem lést um aldur fram, og þykir mér sem héraðsbrestur hafi orðið við fráfall hennar. Mestur harmur er þó kveðinn að manni hennar og fjöl- skyldu. Sigrún fæddist 17. nóvember 1923 á Halldórsstöðum í Reykja- dal. Foreldrar hennar voru hjónin Jón bóndi á Hömrum í Reykjadal Friðriksson b. og landpósts á Helga- stöðum í Reykjadal Jónssonar b. á Kraunastöðum í Aðaldal Jónssonar og kona hans, Friðrika Sigfúsdóttir b. á Halldórsstöðum í Reykjadal Jónssonar af Reykjahlíðarætt, og k.h„ Sigríðar Jónsdóttur b. á Hellu- vaði í Mývatnssveit Hinrikssonar. Föðursystkin Sigrúnar voru: Emelía húsfreyja á Halldórsstöðum, Júlíana hjúkrunarkona og húsfreyja í Reykjavík, g. Haraldi leikara Björnssyni, Sigrún húsfreyja í Vallakoti í Reykjadal, Halldór smið- ur í Kópavogi, Jónas bóndi á Helga- stöðum og Valgerður húsfreyja í Danmörku. Móðursystkin Sigrúnar voru: Jón Aðalsteinn bóndi á Halldórsstöðum, Sigurður Bjarklind kaupfélagsstjóri á Húsavík, kv. Huldu skáldkonu, Kristjana húsfreyja á Landamóts- seli og Akureyri, Pétur kaupfélags- stjóri á Borðeyri, Þóra húsfreyja á Einarsstöðum í Reykjadal og María húsfreyja á Helgastöðum. Sigrún ólst upp á heimili foreldra sinna á Hömrum ásamt systkinum sínum, en þau eru: Jón Aðalsteinn múrari, húsvörður á Laugum í Reykjadal, kv. Elínu Ingu Jónas- dóttur frá Helluvaði, Sigríður hús- freyja á Fáskrúðsfirði, g. Kára Norðfjörð. Valgerður húsfreyja á Hömrum, g. Benóný bónda þar Arnórssyni frá Húsavík. Unnur húsfreyja á Húsavík, g. Helga smið Vigfússýni, og Þórdís húsfreyja í Hamraborg í Reykjadal, d. 1971, g. Illuga bifw. Þórarinssyni frá Borg í Mývatnssveit. Sigrún hlaut í vöggugjöf flesta þá kosti, sem menn mega prýða. Hún var ágætum gáfum gædd, ein- staklega vel máli farin og hafði leiftrandi frásagnargáfu, svo að unun var á að hlýða. Hún hafði ríka kímnigáfu, var glöð og glæddi and- rúmsloftið hvar sem hún kom, ekki hvað síst með dillandi hlátri sínum sem hreif viðstadda með. Hún setti svip á umhverfi sitt og til hins síðasta gladdi hún og huggaði alla sem hún mátti. Svo sem margir ættmenn hennar hafði hún ríka tónlistargáfu, en fram úr öllum gáfum hennar skaraði þó íðilfögur söngrödd, silfurskær og hljómmikil, sem hreif hvern þann er á hlýddi. Ekki leikur minnsti vafi á því að Sigrún hefði getað náð langt á því sviði, hefði hún lagt fyrir sig söng- nám og starf. En hún kaus sér annað hlutskipti, sem víst er að varð henni og fjölskyldu hennar til mikillar gæfu. Sigrún giftist þann 29. júlí 1945 Baldvini Grana Baldurssyni. For- eldrar hans voru Baldur Grani, bóndij oddviti og kunnur hagyrðing- ur á Ofeigsstöðum í Kinn Baldvins- son og f.k.h., Hildur Friðgeirsdóttir frá Þóroddsstað. Sigrún og Baldvin reistu sér nýbýlið Rangá á þriðjungi Ófeigsstaða og hafa búið þar síðan rausnarbúi í nábýli við Baldur og s.k.h., Sigurbjörgu Jónsdóttur frá Litluströnd í Mývatnssveit, og dótt- ur þeirra, Svanhildi, og mann henn- ar Einar Kristjánsson frá Finnsstöð- um í Kinn. Má segja um bæina Ófeigsstaði og Rangá, að þeir hafi staðið um þjóðbraut þvera, því að gestrisni og rausn þar er slík, að fágætt má telja. Átti Sigrún þar mikinn hlut að máli. Allir voru allt- af velkomnir og veittur ríkulegur beini. Ávallt var þar griðastaður þeirra er minna máttu sín, um lengri eða skemmri tíma. Sigrún var ávállt boðin og búin að leysa hvers manns vand'a og taldi þá ekki eftir sér fyrirhöfn, enda var dugn- aði hennar og hjálpsemi við brugð- ið. Má með sanni segja, að hún hafi ávaxtað vel sitt pund. Sigrún bjó manni sínum og börn- um fallegt og gott heimili, og ríkti þar eindrægni og hamingja. Sigiún og Baldvin eignuðust 5 börn. Þau eru: 1. Jón Aðalsteinn fæddur 1946 sendiráðsprestur í London, kvæntur Margréti ritara Sigtryggsdóttur rakarameistari á Akureyri Júlíus- sonar. Dætur þeirra eru Sigrún og Róshildur. Áður átti Jón soninn Ragnar Þór. Ragnar er kvæntur Helgu Björgu Sigurðardóttur á Húsavík Hákonarsonar og eiga þau soninn Arnar Aðalstein. 2. Baldur fæddur 1948, fyrr bóndi á Hnjúki I Kinn, nú bifreiðarstjóri á Húsavík, kvæntur Sigrúnu Aðalgeirsdóttur, bifrstj. þar Sigurgeirssonar. Börn þeirra eru Baldvin, heitbundin Guð- rúnu Brynjarsdóttur á Húsavík Halldórssonar og k.h., Ólafar Hallgrímsdóttur frá Sultum í Keldu- hverfi. Baldvin og Guðrún eiga son- inn Baldur. Ragnheiður gift Heiðari Gunnarssyni á Húsavík, börn þeirra eru Heiðrún og Friðrik. 3. Baldvin Kristinn fæddur 1950 bóndi í Torfu- nesi í Kinn, kvæntur Brynhildi kennara Þráinsdóttur skólastjóra á Skútustöðum Þórissonar. Börn þeirra eru Margrét og Þráinn Árni. 4. Hildur fædd 1953, hárgreiðslu- meistari á Húsavík, gift Garðari verslunarmanni Jónassyni Egils- sonar hagyrðings á Húsavík Jónas- sonar. Synir þeirra eru Jónas Grani og Unnar Þór. 4. Friðrika fædd 1961, aðstoðarmaður tannlæknis á Ilúsavík, var gift Gunnari málara Jóhannssyni. Þau slitu samvistum. Synir þeirra eru Jóhann Kristinn og Hilmar Valur. Sigrún tók mikinn þátt í fé- lagslífi og var þar ávallt í farar- broddi. Hún var í Kvenfélagi Þór- oddsstaðarsóknar, söng í kirkju- kórnum,’ lék í leikritum og fleira mætti telja. Síðast en ekki síst skemmti hún með söng sínum á samkomum og hvar sem menn voru saman komnir. Synir hennai' Baldur og Baldvin, Rangárbræður, hafa tekið upp merkið og syngja fyrir sveitunga sína og sýslunga. Börn Sigrúnar stóðu fyrir því 1972 að rödd hennar varðveittist á plötu. Æ oftar hugleiði ég það, hve mikils virði það er fyrir sveitir og héruð að fá að halda hæfileikafólki sínu og njóta krafta þess, í stað þess að allir haldi út í heim að leita frægðar og frama. Signán var sjálf sannfærð um að hún hefði valið rétt. Hún átti góða og hamingju- sama ævi við hlið góðs eiginmanns og fjölskyldu sem mátu hana að verðleikum. Góða ævi, þar sem hún gat sífellt miðlað öðrum og Iátið gott af sér leiða. Góða ævi í hérað- inu sem ól hana, meðal fólksins síns, sem mat hana sem vert var. Kynni mín af Sigrúnu eru eitt af því sem upp úr stendur þegar ég lít yfir farinn veg. Þó að vík hafi verið milli vina eftir að ég flutti aftur suður, átti ég vináttu hennar alltaf vísa. Ég sendi Baldvini og fjölskyld- unni innilegar samúðarkveðjur. Megi minningin um góða konu vera þeim styrkur. Guðrún Þórðardóttir Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingarog ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASQN HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI48. SIMI76677 Til greinahöfunda Minningarorð — ræður Aldrei hefur meira aðsent efni borizt Morgunblaðinu en nú og því eru það eindregin tilmæli ritstjóra blaðsins til þeirra, sem óska birtingar á greinum, að þeir stytti mál sitt mjög. Æskilegt er, að greinar verði að jafnaði ekki lengri en 2-3 blöð að stærð A4 í aðra hverja línu. Af sörhu ástæðum eru það ein- dregin tilmæli ritstjóra Morgun- blaðsins til þeirra, sem rita minn- ingar- og afmælisgreinar í blaðið, að reynt verði að forðast endur- tekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri greinar eru skrifað- ar um sama einstakling. Þá verða aðeins leyfðar stuttar tilvitnanir í áður birt ljóð inni í textanum. Ef mikill fjöldi greina berst blaðinu um sama einstakling mega höf- undar og aðstandendur eiga von á því að greinar verði látnar bíða fram á næsta dag eða næstu daga. Útfararþjónustan Sittti 679110 LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — slmi 681960 t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför KRISTJÖNU G. ÞORVALDSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Guðmundur E. Guðjónsson, Þorvaldur Guðmundsson, Þórdís Björnsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Guðný J. Ólafsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Bjargmundur Björgvinsson. t Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, ÖRN ARNDALEÐVARÐSSON, Silfurgötu 46, Stykkishólmi, sem lést 14. júlí sl., verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 19. júlí kl. 14.00. Eðvarð Lárus Árnason, Anna Lára Eðvarðsdóttir, Guðni Eðvarðsson, Eyþór Eðvarðsson, Kristján Arndal Eðvarðsson, Þórdís Ásgerður Arnfinnsdóttir, og fjölskyldut- Anna Ólöf Kristjánsdóttir, ívar Guðmundsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Rannveig Harðardóttir, Kristín F. Jónsdóttir, Gylfi Jónsson t Hjartans þakkir til þeirra mörgu, nær og fjær, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föð- ur okkar, tengdaföður, afa og bróður, BJARNA EINARSSONAR, frá Varmahlíð, Furugrund 68, Kópavogi. Starfsfólki hjartadeildar Landspítalans er þökkuð hlý umönnun og alúð. Sérstakar þakkir til söngstjóra og karlakórs Rangæingafélagsins í Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. María Sigurjónsdóttir, Ingibjörg Bjarnadóttir, Arndis Bjarnadóttir, Pétur Már Pétursson, Einar Sigurjón Bjarnason, Elín Þóra Sveinsdóttir, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Páll R. Guðmundsson, Ásmundur Bjarnason, Jóhanna Walderhaug, barnabörn og systkinin frá Varmahlíð. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför bróður okkar og frænda, KRISTINS BRYNJÓLFSSONAR bónda, Gelti, Grímsnesi. Borghildur Brynjólfsdóttir, Elínborg Brynjólfsdóttir, Guðmundur P. Kragh og systkini. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eig- inmanns míns, föður, tengdaföður og afa, KARLS JÓHANNS ÓLAFSSONAR framkvæmdastjóra, Brúnalandi 19. Guð blessi ykkur öll. Ragnheiður Guðmundsdóttir, Kristjón Haraldsson, Gerður Berndsen, Karl Friðrik Karlsson, Sigriður Jóhannsdóttir, Lilja Britta Karlsdóttir, Elías Haukur Snorrason, Kristín Erla Karlsdóttir, Pierre Serer, Eva Karlsdóttir, Ellert Austmann Ingimundarson og barnabörn. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, VILHJÁLMS H. A. SCHRÖDER, Hringbraut 92c, Keflavík. Sérstakar þakkir færum læknum og hjúkrunarfólki Landakotsspít- ala fyrir frábæra umönnun í veikindum hans. Einnig þakkir til Félags framreiðslumanna fyrir veitta aðstoð. Helga G. Vilhjálmsdóttir, Sigurður Gústafsson, Anna Vilhjálmsdóttir, Friða P. Vilhjálmsdóttir, Ásgeir Hölm, Vilhjálmur A. Vilhjálmsson, Jóhannes L. Vilhjálmsson, Guðrún St. Clair, Richard St. Clair, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.