Morgunblaðið - 13.09.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.09.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1990 13 eftirBjörn S. Stefánsson Þegar 200 sjómílna fiskveiðiland- helgi varð alþjóðlegur réttur fyrir frumkvæði fslendinga, var hafnað ævafornri reglu Rómarréttar um að fiskislóðir væru almenningur. Norski réttarsagnfræðingurinn Knut Robberstad telur að sam- kvæmt fornum norskum rétti hafi jarðirnar átt fiskveiðiréttinn í sjón- um úti fyrir, en í verstöðvum hafi útgerðarréttur verið takmarkaður við þau byggðarlög sem lágu að. Þetta hafí farið að breytast fyrir áhrif Rómarréttar um 1500 og loks farið svo á 19. öld að svo til öll fiski- slóð hafi orðið almenningur. íslendingar minnast þess hvernig komið var á fyrri hluta þessarar aldar með stórvirkan erlendan fisk- veiðiflota uppi við strendur og inni á fióum, síðast með sérstökum samningi Dana og Englendinga. Samkvæmt þessum skilningi Robb- erstads voru það þá ekki aðeins ein- stök ríki, sem Islendingar áttu í formlegum deilum við, sem töpuðu í landhelgismálinu, heldur vék forn Rómarréttur fyrir fomum rétti strandbúa. Evrópubandalagið Býr nú sjálft við 200 mílna fískveiðilandhelgi, en vill hafa hana af íslendingum. Það krefst þess að mega nýta mikilvæg- ustu auðlind íslands án þess að bjóða aðgang að nokkurri auðlind á móti. Það hefur í raun ekki sætt sig við þá réttarreglu sem varð alþjóð- leg við sigur íslendinga árið 1976. Gunnar H. Kristinsson gerir grein iyrir afstöðu Evrópubandalagsins í nýju riti sínu, Evrópustefnunni, m.a. með eftirfarandi athugasemdum (bls. 30); „Evrópubandalagið skaðaðist mjög verulega af alþjóðlegri viður- kenningu 200 mílna fískveiðilögsög- unnar, þegar strandríki fengu yfírr- áðarétt yfir stærstum hluta fískveið- iauðlinda. Sú endurskoðun hins upp- haflega sjávarútvegspakka banda- lagsins frá 1970 sem átti sér stað 1976—83 var nauðsynleg ekki síst vegna þess að almenn viðurkenning 200 mílna fiskveiðilögsögunnar olli því að bandalagsríkin höfðu miklu minni aðgang að fiskimiðum en áður og þess vegna allt of stóran flota. Við þær aðstæður var hætta á að reglan um jafnan aðgang ieiddi til gífurlegi-ar ofveiði, og hin nýja sjávarútvegsstefna gekk því út á að hindra að slíkt gæti komið fyrir, með því að skipta þeim afla sem til skiptanna var milli aðildar- ríkja bandalagsins. Innganga Spán- ar og Portúgals í bandalagið — en Spánn á stærsta fískveiðiflotann innan bandalagsins þrátt fyrir tak- markaðar auðlindir — var ekki látin breyta í meginatriðum því samkom- ulagi sem náðist innan bandalagsins 1983 um skiptingu fískistofna milli allt of stórs flota aðildarríkjanna. Hins vegar jók aðild Spánar mjög á þrýstinginn innan bandalagsins að afia fískveiðiheimilda innan lög- sögu annarra ríkja.“ Þótt bandalagið vilji endurheimta fiskyeiðiréttindi sem ríki þess áttu við ísland fyrir 1950, hafa fískimenn þess sjálfs ekki rétt til veiða hvar sem er á fiskislóðum þess. Þar sem það er þvert gegn almennri stefnu bandalagsins um almennan rétt til atvinnurekstrar, hlýtur það að vera verkefni ráðamanna þess að fylgja því máli eftir, þegar færi gefst. Eins og alkunna er, eru nú mörg erfið mál til úrlausnar í bandalaginu, og er ekki nema von að sum úrlausnar- efni verði að bíða, svo sem það að gera fískveiðislóðir bandalagsins að almenningi. Hvenær skyldi geta orðið breyt- ing þar á, svo að bandalagið geti fellt sjávarútveg sinn undir þá reglu „Vegna afstöðu Evr- ópubandalagsins til við- skipta við Island á sjáv- arútvegurinn tvo kosti, og er hvorugur góður.“ að réttur fyrirtækja til rekstrar sé hinn sami hvar sem þau kunna að vera skráð í bandalaginu? Það er vitaskuld auðveldara að koma slíkri reglu á, ef svigrúm sjávarútvegs bandalagsins ykist. Þar sýnist geta orðið tækifæri við inngöngu Noregs og íslands í bandalagið.- Vegna afstöðu Evrópubandalags- ins til viðskipta við ísland á sjávarút- vegurinn tvo kosti, og er hvorugur góður. Annar er að láta af hendi fískveiðiréttindi gegn lækkuðum tolli á unnum fiski. Hinn er að ját- ast undir hinn nýja Rómarrétt (Rómarsáttmálann) með inngöngu í bandalagið og eiga það þá undir stofnunum þess hvenær forn Róm- arréttur um fiskslóðir sem almenn- ingur verður að fullu endurreistur. í þessari stöðu virðist það vera í þágu hagsmuna Evrópubandalags- ins að láta allt kyrrt um sinn sem lýtur að því að opna fiskislóðir band- alagsins fyrir öllum fiskimönnum þess. Spánveijum og öðrum sem eru aðþrengdir með fiskveiðiflota sinn má þykja vinnandi að bíða og sjá hvað setur, ef ástæða er til að ætla að bilbugur sé á Norðmönnum og íslendingum á hvorn veginn sem færi, en það væri gegn grundvallar- reglu hins nýja Rómarréttar að heimila nýju aðildarríki lengur en til aðlögunar að halda yfirráðum yfir auðlindum sjávarins. Þessi mál yrðu enn auðveldari viðfangs fyrir bandalagið, ef ísland gerðist aðili að því og íslenzka ríkið hefði áður komið á sölu veiðileyfa. Með veiðileyfasölp ríkisins er réttur til fískveiða við ísland ekki veittur þeim sem byggt hafa afkomu sína sérstaklega á þeim, heldur er hann orðinn tekjulind ríkisins af auðlind sem hinn nýi Rómarréttur stefnir Björn S. Stefánsson að verði almenningur, eins og var í hinum forna Rómarrétti. Það er ólíklegt, að slík tekjuöflun eins ríkis af auðlind, sem bandalagið hefur þegar tekið sér ráðstöfunarrétt yfir og stefnt er að verði almenningur, geti samrýmzt þeim rétti. Ætli þætti ekki sjálfsagt í Brussel að Evrópubandalagið sjálft tæki til sín tekjurnar? Höfundurerdr. scient. ogstundar þjóðfélagsrannsóknir. IBM RISC System/6000 Enn kemur IBM keppinauluni sínuin í opna skjöldu, aö {þessu sinni meö nýn i fjölskyldu firnaöfluj»ra tölvuniiðstööva 04» vinnustööva, RISC Systein/6000, og nú eru möguleikarnir nánast ótakmarkaöir. js- Blomberq þvottavélar. 7 gerðir. Gott verð - greiðslukjör Elnar Farestvett&Co.hf BORGARTÚNI28, SÍMI622901. L*I6 4 stoppar vM dymar Þessar nýju tölvur byggja á nýrri POWER-hönnun (Perform- ance Optimization With En- hanced RISC), sem felur m.a. í sér að margir örgjörvar geta framkvæmt aðgerðir samtímis. Þannig er hraði minnstu vélar- innar í hópnum 27,5 MIPS (mill- jón skipanir á sekúndu), eða mun meiri en hjá öðrum sam- bærilegum tölvum á markaðn- um. Allt sem við kemur þessum tölvum er mjög fullkomið og ýmist hannað frá grunni eða endurhannað til að mæta af- kastakröfum RISC System/ 6000. Sem dæmi má nefna nýja og hraðvirka IBM microchannel braut, sem afkastar allt að 40 MB á sekúndu með möguleikum á tvöföldun og jafnvel fjórföldun þess hraða, nýja diska með að- gangstíma allt niður í 11,4 msek, ný segulbönd sem geta afritað allt að 2,3 GB á litlar spólur, geisladisk sem geymir allar handbækur með kerfinu, sam- tals 600 MB, og þannig mætti lengi telja. FYRSÍ OG FREMST SKAFTAHLÍÐ 24 REYKJAVÍK SÍMI 697700 VIÐURKENNDUR SÖLUAÐILI: TÖLVUMIÐLUN HF. SKEIFUNNI 11 SÍMAR: 688517, 37222 \wxm>ém MiWV:,.. í RISC System/6000 röðinni eru sex nýjar vélar. Þær má nota sem vinnustöðvar (t.d. fyrir teiknikerfi), sem netþjóna (t.d. sem skráamiðlara fyrir UNIX eða DOS vélar) og sem fjölnotenda- vélar (með tengingar fyrir fleiri en 500 tæki). Kerfið notar AIX 3, IBM útgáf- una af UNIX stýrikerfinu, sem hefur verið endurhannað til þess að nýta sér alla kosti RISC System/6000. Nú er cilveg sama að hverju þú vinnur: IBM er með tölvu fyrir Ng! l:/:t:l:/:/:l:f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.