Morgunblaðið - 03.10.1990, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 03.10.1990, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990 Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, ÞORBERGUR MAGNÚSSON, Melabraut 24, andaðist að morgni 2. október á Landakotsspítala. Laufey Sigurðardóttir, Sigurður Jónas Þorbergsson, Hafdís Þorgeirsdóttir. Elskulegur maðurinn minn og faðir okkar, JOHN HARMON GRANT, Faxabraut 2a, Keflavík, andaðist á heimili okkar sunnudaginn 30. september sl. Ingibjörg Benediktsdóttir Grant, John H. Grant, Benedikt Grant. Faðir okkar, + ALBERT ERLINGSSON kaupmaður, Grenimel 2, Reykjavík, lést mánudaginn 1 október. Auður Albertsdóttir, Kristín Erla Albertsdóttir, Erna Albertsdóttir. + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR BOGASON, Rauðalæk18, Reykjavík, lést aðfaranótt 2. október á Landakotsspítala. Ólöf Guðbrandsdóttir, Bogi Þórðarson, Ólöf Einarsdóttir, Bryndi's Þórðardóttir, Einar Stefánsson, Grétar Þórðarson, Katrin Jónsdóttir og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir, dóttir og stjúpdóttir, Ó. P. ANNA HALLGRÍMSDÓTTIR, Erluhólum 5, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum hinn 1. október síðastliðinn. Hreinn Sumarliðason, Sigurlina Hreinsdóttir, Reynir Hilmarsson, Ágústa Hreinsdóttir, Sigurður Ómar Sígurðsson, Jóna Margrét Hreinsdóttir, Sigurður Baldvin Sigurðsson, Hallgrímur G. Björnsson, Margrét Þorvaldsdóttir og barnabörn, v svo og fyrir hönd systkina og fóstursystkina. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, RUNÓLFUR GUÐMUNDSSON bóndi, Ölvisholti, Hraungerðishreppi, sem lést þann 27. september, verður jarðsunginn frá Hraungerðis- kirkju laugardaginn 6. október kl. 13.30. Sætaferð verður frá B.S.Í. kl. 12.00. Ögmundur Runólfsson, Heidi Runólfsson, Kjartan Runólfsson, Margrét Kristinsdóttir, Sveinbjörn Runólfsson, Lilja Júlíusdóttir og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma, langamma, og langa- langamma, MARGRÉT BJARNADÓTTIR frá Látrum, Aðalvík, Akurgerði 8, Reykjavík, sem lést á Borgarspítalanum 26. september sl., verður jarðsung- in frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 4. október kl. 13.30. Laufey Guðmundsdóttir, Sölvi Jónsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Bjarni Magnússon, Halldór Guðmundsson, Anna Jónsdóttir, Bjarnveig Guðmundsdóttir, Agnar Áskelsson, Kristján Guðmundsson, Sigríður Aðalsteinsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Oddgeir Steinþórsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Stefán Jónsson rit- höfundur - Minning Þegar hann féll eftir harða bar- áttu við illvígan vágest - féll snjór í fjöll — það kólnaði í veðri og einn- ig fannst mér kaldara í heimi hér eftir fráfall hans, og það er að von- um, því hans hlýja viðmót og glettni í bundnu og óbundnu máli var þess eðlis að það heillaði alla. Um nokkurra ára skeið höfum við hjónin átt því láni að fagna að hafa búið undir sama þaki og Stef- án Jónsson fyrrum fréttamaður og hans góða kona Kristjana Sigurðar- dóttir, er stóð við hlið hans í gleði og þraut þar til yfir lauk. Þau eru ótalin, en því miður allt- of fá, þau skipti sem við höfum rætt hins ýmsu málefni og það var ákaflega gaman og fróðiegt. Þekk- ing Stefáns á öllum mögulegum hlutum var með ólíkindum, frásagn- arlistin og gleðin óþijótandi. Það er því ekki að undra, að hann varð einn allra vinsælasti útvarpsmaður okkar og bera viðtöl hans við hina og þessa þess ljóst vitni. Það má enginn halda það, að hans frábæru viðtöl hafi verið unnin án fyrirhafn- ar, því að fötlun hans hindraði hann að nokkru, en þó ekki öllu, því að + Ástkær eiginkona mín, GUÐBJÖRG RUNÓLFSDÓTTIR frá Gröf, til heimilis f Hvassaleiti 56, Reykjavík, lést á Landspítalanum að kvöldi 1. október. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Kristinn Jónsson. + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRMANN JÓNSSON, Hraunbæ 124, verður jarðsunginn fimmtudaginn 4. október kl. 15.00 frá Foss- vogskirkju. Anna Benediktsdóttir, Díana Ármannsdóttir, Anna Dóra Ármannsdóttir, Brynjar Ármannsson, tengdabörn og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HARALDURKARLSSON, Látraströnd 50, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 5. október kl. 15.00. Ingibjörg Árnadóttir, Nanna Haraldsdóttir, Heimir Haraldsson, Edda Haraldsdóttir, Gunnar Guðmundsson, Ágúst Fjeldsted, Hermann Sigurðsson. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURRÓS GUÐMUNDSDÓTTIR frá Guðnabæ, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju fimmtudaginn 4. október kl. 14.00. Guðríður Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson, Kristín Jónsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Valur Jónsson, Guðrún Jónsdóttir, Pétur Elísson, Ingunn ívarsdóttir, Allan Sveinbjörnsson, Valmundur Eggertsson Elín Þóra Geirsdóttir, Davfð Aðalsteinsson og barnabörn. + Þökkum innilega hlýhug og samúðarkveðjur við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, KARLSJ. EIRÍKS. Helga Guðmundsdóttir, Guðmundur V. Karlsson, Eiríkur Karlsson, Guðborg Þórðardóttir og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför HELGU SIGURÐARDÓTTUR, Hraunbæ 68. Fyrir hönd aðstandenda, Sævar Snorrason, _ Unnur Ágústsdóttir, Þórunn Sævarsdóttir, ’ Sigurður Gestsson, Anna Kristín Sævarsdóttir, Jón Sigurðsson, Snorri Sævarsson, Magnhildur Sigurðardóttir, Sigrún Sævarsdóttir, Ágúst Sigurðsson. dugnaður hans og harka við sjálfan sig var með þeim hætti, að það hefði verið bókfært á skinn ef hann hefði verið uppi á söguöld. Það mun flestum kunnugt, að þessa fötlun hlaut hann á ungl- ingsárum þar sem fótur var tekinn af honum vegna misskilnings, hörð örlög þar, sem hljóta að hafa mótað hann mjög, en mótlætið mannvitið skapar segir Einar Benediktsson og er það svo sannarlega víst, að það hefur orðið raun á um Stefán Jónsson, en með hörku og seiglu vann hann hin ýmsu afrek og ég held að hann hafi sannað það með veiðiferðum sínum með byssu eða stöng og það við hin erfiðustu skil- yrði. Hann sagði við mig og hló, að það væri ansi slæmt þegar hann væri að vaða erfiðar ár að löppin vill fljóta upp eins og hann orðaði það. Það var ekki verið að kvarta um þetta heldur aðeins bent á þetta. Stefán var einn allra bezti flugu- veiðimaður hér, og það að veiða með flugu er toppur á stangveiði og toppurinn er þurrfluga. Hann naut veiða og hann kunni með veiði- tæki að fara og hlýhugur hans var þar einnig með og þetta varð að list. Stefán tók frábær viðtöl í útvarp- inu hér á árum áður og munu þau geyma nafn hans um aldir og mér þykir mikill fengur að því að eiga nokkur þeirra á segulbandi, en það var einnig annað sem hann gjörði af sinni alkunnu snilli, bækur hans um garpa samtímans eru unnar af snilld og hugur fylgir þar máli, en svo var einn garpur hversdagsleik- ans, sem sagði af munni fram sögu sína í útvarpinu, og það var Stefáni að þakka að svo varð. Þessi maður var bróðir meistara Þórbergs, Stein- þór á Hala. Þessa snilli í frásögn mun lifa um aldir. Þarna kom fram tækni þjóðarinnar í munnlegri geymd, sem ég held að hafí ekki verið metin sem vert er þegar hug- ur er leiddur að sagnahefð þjóðar- innar. Aðrir mér færari munu rekja stjórnmálaafskipti Stefáns, en þó get ég þess að honum rann til rifja það böl okkar, að hluti okkar góða lands skyldi hersetið af erlendum dátum, þar fínnst mér fara saman skoðun hans og þess manns er á þessari öld hefur bezt staðið á rétti okkar, og það þó við útsendara nazista væri að etja, og þar á ég við Hermann Jónasson. Ekki ætla ég að rekja lífshlaup Stefáns, það gjöra þeir sem gjörr þekkja til hans, en hann unni lífinu í þess margbreytilegu myndum og hann náði mikilli gleði með stöng og byssu á tréfæti og seinustu bók hans, sem íjallar um þetta, ættu menn að lesa, einkum ef þeim fínnst eitthvað bjáta á, það er ekki -auð- velt fyrir heilfættan mann að gjöra sér í hugarlund þjáningu þá sem fötlun hans hlýtur að hafa valdið. Nú þegar góður drengur er geng- inn er þjóðin að miklum mun fátæk- ari, en bót er að bækur hans og viðtöl munu lifa og halda á lofti nafni hans. Þegar við nú kveðjum okkar góða vin þökkum við frábæra viðkynn- ingu, minning hans mun lifa og að lokum kveðjum við hann með þess- ari fornu vísu úr Hávamálum. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Halldór Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.