Morgunblaðið - 12.01.1991, Blaðsíða 1
frgmiMitMft
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1991
BLAÐ
Það verður
að vera viss
uppreisn
í manni
- segir Arngunnur Ýr Gylfadóttir sem
opnar sýningu á Kjarvalsstöðum í dag
í FRÆGU Uóði yrkir William Blake til sjúkrar rósar, og vera
kann að fólki sem leggur leið sína á Kjarvalsstaði á næstunni
finnist sem rósin sú sé komin þar upp á vegg. í dag opnar
myndlistarkonan Arngunnur Ýr Gylfadóttir einkasýningu; og
ekki bara á máluðum rósum, heldur einnig sölnuðum, og ýmsu
fleiru; marmara, röntgenmyndum, hári, holskurðum, trékössuin
með tiósi, purpurarauðum oggrænum litum, svo eijthvað sé
nefnt. Þetta er þriðja einkasýning Arngunnar á íslándi, áður
sýndi hún í Nýlistasafninu 1987, og listsalnum Nýhöfn 1989, og
auk þess hefur hún tekið þátt í samsýningum í Evrópu og San
Fransisco; þar sem hún býr og starfar.
Arngunnur Ýr nam við Mynd-
lista- og handíðaskóla ís-
lands 1982 til 1984, hélt
þá til San Francisco og
lauk þaðan prófi úr málaradeild
1986. Síðan hefur hún málað af
kappi ytra og sýnt á milli, auk þess
sem hún dvaldist í Amsterdam
síðastliðinn vetur. „San Francisco á
orðið mikið í mér, það fann ég þeg-
ar ég kom aftur þangað frá Hol-
landi. Þetta er yndælisstaður, og
mér finnst ég vinna mjög vel þar.
Svo er veðrið líka alltaf svo gott,
sumarið stóð alveg fram í miðjan
desember!" segir Arngunnur Ýr og
hlær. „Sjálfsagt verð ég þar næstu
misserin, en annars ákveð ég bara
þegar að því kemur hvoit það verði
til frambúðar.
í fyrra langaði mig að skipta um
umhverfi, fór til Amsterdani, og
áttaði mig þar á því að þetta var í
raun afskaplega lítil breyting. Hlut-
irnir eru svo keimlíkir á Vesturlönd-
um. Held að næst þegar ég ætla
SJÁ NÆSTU SÍÐU