Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1991 17 verður hann efniviður í framleiðslu sjúkrahússins, rétt eins og um sjúkl- ingaverksmiðju sé að ræða. Hversu oft er það ekki að dagurinn líður án þess að einn einasti starfsmaður (sjúkraliði, hjúk: unarfræðingur, læknir) hafi haft tíma til þess að. setjast niður og ræða við sjúkling- inn á forsendum hans, gefið skjól- stæðingnum þann tíma sem hann þarf og á rétt á? Fyrir sjúklinginn geta mannleg samskipti í hálftíma eða klukkutíma á dag verið lykillinn að vellíðan og þar með ein af meg- inforsendum þess að hann treysti sér heim og geti útskrifast. En mannaflastuðull hagræðingar- sveina fjármálavaldsins gerir ekki ráð fyrir þessu. Það að tala við sjúkling og sýna mannlega hlýju er samkvæmt þeim mælikvarða sennilega ekki markviss vinna held- ur bruðl með dýran vinnukraft. Hvað er til ráða? Athugasemdir án tillagna um úrbætur eru nöldur. Og af nöldur- seggjum er nóg. Að sjálfsögðu eru öngvar allsherjarlausnir á vandan- um til. Nema ef væri að eggja nú valdamenn lögeggjan svo að þeir taki nú ærlega til hendinni og leysi vanda sjúkrahúsanna í samráði við starfsfólk og sjúklinga! Góð sam- vinna er forsenda þess að lausn náist. Neðanskráðar eru nokkrar hug- myndir sem fram hafá komið í umræðum meðal samstarfsmanna, sumar fornar, aðrar nýjar. En þær eiga það sameiginlegt að of lítið hefur orðið úr framkvæmdum! ★ Auka mjög heimahjúkrun og heimahlynningu sjúkra og auð- velda þeim þannig að vera heima. Langt er síðan sýnt var fram á að það er að jafnaði ódýrast og best að vista sjúklinga í heimahúsi, þar sem aðstandendur bera meginþung- ann af umönnuninni. Heimahjúkrun víða um land hefur unnið ómetan- legt starf í þessu efni, sem hljótt er um. Hjúkrunarfræðingar þar hafa fyrst og fremst sinnt sjúkling- um með ellisjúkdóma og gert það að verkum að margir þessara sjúkl- inga hafa getað verið heima, þrátt fyrir veruleg mein. Það er reynsla Heimahlynningar Krabbameinsfé- lagsins að það séu afar fá vanda- mál varðandi hjúkrun og líkn sem ekki er unnt að leysa í heimahúsi, til dæmis þegar um er að ræða sjúklinga með krabbamein eða al- næmi á lokastigi. Það er og reynsla annarra þjóða að þannig sé málum farið um ýmsa aðra sjúkdómaflokka (t.d. öndunarfærasjúkdóma). Aukin áhersla á heimahjúkrun og heima- þjónustu frá læknum og öðrum heilbrigðisstéttum myndi geta létt mjög álagið á sérdeildum sjúkra- húsanna og þar með gætu þær sinnt. hlutverkum sínum betur. Hins veg- ar er greiður aðgangur að sjúkra- rými ein meginforsenda góðrar heimahjúkrunar, enda oft sá þáttur sem mestu ræður um hvort ættingj- ar treysta sér til að sinna sjúklingi heima. ★ Fjölga nyög sjálfstætt starf- andi hjúkrunarfræðingum og semja við þá um hjúkrun þeirra sjúklinga sem Heimahjúkrun annar ekki. Hópar slíkra gætu tekið sig saman og sérhæft sig í heimahjúkr- un ákveðinna sjúklingahópa og sinnt þeim í samvinnu við heimilis- lækni og sérfræðinga sjúklings. Reynsla Heimahlynningar Krabba- meinsfélagsins af sérhæfingu er mjög góð. ★ Fjölga langleguplássuin, sem til þess eins eru ætluð að veita sérhæfða þjónustu ellisjúkum og fólki með langvinna sjúkdóma. ★ Viðurkenna í verki að mann- legi þátturinn í sjúkragæslunni kostar peninga, enda verður hann fyrst útundan, þegar spar- að er. ★ Umbuna því starfsfólki sem vinnur á deildum þar sem skort- ur er á vinnukrafti, með því að láta það njóta þess sem skorturinn „sparar" í t.d. launaútgjöldum. Þetta þýðir að starfsfólk (deild), sem sparar, nýtur sparnaðarins! ★ Stjórnmálamenn taki á sjálfa sig ábyrgðina sem fylgir því að skera niður fé til nauðsynjamála eins og heilbrigðismála, en láti ekki sjúkl- ingum, fjölskyldum þeirra og heil- brigðisstéttum einum eftir að taka afleiðingum niðurskurðarins. Vald- amenn þurfa einfaldlega að kynna sér sjúkragæsluna milliliðalaust! ★ Auka til muna möguleika heilbrigðisstétta til framhalds- menntunar. Þannig gætu til dæm- is sjúkraliðar tekið að sér mun fleiri störf sem nú eru annars unnin af hjúkrunarfræðingum. Góð reynsla er af þessu annars staðar á Norður- löndum. ★ Greiða öllum heilbrigðisstétt- um mannsæmandi laun, en mis- nota ekki taumlaust mannkær- leika og furðulega mikið um- burðarlyndi þessa fólks. ★ Sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu og sérstaklega Reykja- víkurborg, fari að dæmi annarra sveitarfélaga og umbuni hjúk- runarfræðingum og öðrum þeim stéttum þar sem illa gengur að manna stöður. Allt of margir hjúk- runarfræðingar fást við önnur störf en hjúkrun af fjárhags- og fjöl- skylduástæðum. ★ Hvetja starfsfólk heilbrigðis- kerfisins og sér í lagi sérfræð- inga þess að horfa á kerfið í heild og í samhengi. Hollt er að minnast þess að þjóðarkakan er ekki óendanleg og það á að skipta henni niður fyrst og fremst eftir faglegum rökum en sfður pólitísk- um og alls ekki eftir hráum hug- myndum útlenskum. Það er mælikvarði á menningar- stig hvers samfélags hvernig það býr að þeim sem minnst mega sín. Og heilsugæsla og sjúkrahús eru þeim ætluð. Missum ekki sjónar af því! Höfundur er sérfræðingur á krabbameinsdeild Landspítalans ogannaraf tveimur læknum heimahlynningar Krabbameinsfélags íslands. SIEMENS Kæliskápur á kostaverði! KS 26V00 • 148 x 60 x 60 sm (hæð x breidd x dýpt). • 189 lítra kælirými. • 67 lítra fjögurra stjörnu frystihólf. Afborgunarveró: 55.900,- kr. SMrTH & NORLAND NÓATÚNI4-SÍMI 28300 FARKÐRT greiðslukort með fríðindum HYGGINN MAÐUR SPARAR - með Farkorti FARKORT er alþjóðlegt greiðslukort, gefið út af Félagi íslenskra ferðaskrifstofa og VISA ÍSLAND. FARKORTI fylgja sömu réttindi og venjulegum VISA-kortum, en að auki margskonar fríðindi heima og erlendis. Ferða/slysa- og farangurstryggingar og helmings afsláttur af forfallatryggingu. Afsláttur á fjölmörgum skemmtistöðum, veitingahúsum, hótelum og bílaleigum innanlands. Ódýrar öræfaferðir. Afsláttur á skoðanaferðum íslenskra ferðaskrifstofa erlendis. 7-10% afsláttur af tilteknum ferðum til helstu sumarleyfisstaða Evrópu. Þessar ferðir eru auglýstar með góðum fyrirvara. Á eftirtöldum stöðum innanlands njóta Farkortshafar afsláttar: VEITINGAHÚS: Gullni haninn, Pizzahúsið, Naust, Lækjarbrekka, Argentína, Sælkerinn og Sjanghæ í Reykjavík, Bakki á Húsavík, Hótel SKEMMTISTAÐIR: Hótel ísland, Hótel Borg og Danshöllin, Reykjavík, Krúsin ísafirði, Hótel Selfoss, Selfossi og Sjallinn, Akureyri. HÓTEL: Hótel Esja, Hótel Loftleiðir og Hótel Höfði, Reykjavík, Hótel Keflavík og Flughótel, Keflavík, Hótel KEA, Akureyri, Hótel Bláfell, Breiðdalsvík og Hótel Selfoss, Selfossi. BÍLALEIGUR: Bílaleiga ÁG, Bílaleiga Flugleiða og Bílaleigan Geysir, Reykjavík, Bílaleigan Höldur og Bílaleigan Örninn. Akureyri. ANNAÐ: Sinfóníuhljómsveit fslands og FARVÍS - tímarit um ferðamál. HYGGINN MAÐUR HEFUR FARKORT ALLTAF VIÐ HÖNDINA. o o o o o
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.