Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
23
Verðjöfnunarsjóður sjáv-
arútveg’sins. Til hvers?
eftirEirík Tómasson
Undanfarið hafa verið miklar
umræður um Verðjöfnunarsjóð
sjávarútvegsins og eru skoðanir
mjög skiptar. Mér hefur þótt mega
líkja tilvist Verðjöfnunarsjóðs, í
gegnum árin, við ijölskyldu, þar
sem fyrirvinnan (sjávarútvegurinn)
hefur sveiflukenndar tekjur, og því
hefur makinn (ríkisvaldið), sem sér
um fjármál og heimilishald fjöl-
skyldunnar, komist að samkomu-
lagi við fyrirvinnuna um að þegar
tekjurnar eru góðar, þá verði ákveð-
in upphæð lögð fyrir í banka, eða
á annan tryggðan hátt, til að eiga
til mögru áranna. Þetta gengur eft-
ir í góðærinu.
En svo kemur að því að tekjurn-
ar minnka og grfpa á til peninganna
sem voru lagðir í banka og nota
átti á erfiðleikaárunum. Hvað kem-
ur þá í ljós? Fyrirvinnan hafði ekki
áttað sig á því í ánægju sinni yfir
að geta lagt fyrir til mögru áranna,
að maka sínum gat hún ekki treyst
betur en það að makinn hafði sleg-
ið lán útá bankainnistæðuna og
gott betur en það. Þar af leiðandi
var staðan sú, að í stað góðrar stöðu
þar sem bankainnistæður gátu
mætt minnkandi tekjum varð fjöl-
skyldan í heild að taka á sig minnk-
andi tekjur, safna skuldum og berj-
ast við að veijast lánardrottnum,
sem vildu fá skuldir sínar greiddar.
Slá þurfti ný lán til að greiða þau
gömlu.
Allir sem fylgst hafa með sam-
skiptum sjávarútvegsins og ríkis-
valdsins kannast við þessa lýsingu,
hvernig ríkisvaldið hefur aldrei get-
að staðist mátið þegar safnast hef-
ur í Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegs-
ins (fiskiðnaðarins áður), og eytt
þeim peningum með að yfirdraga í
Seðlabankanum, og þá margfalt á
við þær innistæður, sem fyrir hendi
eru. Síðan þegar til peninganna á
að grípa, þegar verð á sjávarafurð-
um lækkar, þá eru þeir ekki til og
taka þarf erlend lán. Á þennan
hátt hefur ríkisvaldið orsakað
„Sto’órn á fjármálum
ríkisins og- fjármálum
þjóðarinnar verður að
breytast til að sátt náist
um sparnað í sjávarút-
vegi í formi sveiflujöfn-
unarsjóða, sem fyrir-
tæki hafa á sínum snær-
um.“
þenslu (verðbólgu). Hver getur þá
láð þeim, sem starfa í sjávarútvegi,
þó að þeir treysti ekki á samskiptin
við ríkisvaldið þegar Verðjöfnunar-
sjóður er annars vegar? Hvers
vegna á sjávarútvegurinn að reyna
að leggja fyrir þegar því er öllu
sólundað annars staðar? Hafa ekki
heyrst tölur í þá veru að halli ríkis-
sjóðs á þessu ári verði allt að 12
milljarðar og þeir séu teknir að láni
í Seðlabankanum? Hvaða þýðingu
hefur þá 2-3 milljarða króna sparn-
aður í sjávarútvegi? Hvers vegna
þarf forsjárhyggja ríkisvaldsins að
vera svo mikil í sjávarútvegi? Má
frelsi ekki njóta sín þar, sem í öðr-
um atvinnugreinum? Talsmenn
„þjóðarsáttarinnar“ segja/að Verð-
jöfnunarsjóður sjávarútvegsins hafi
verið ein af forsendum þjóðarsáttar-
innar. Það má spyija þá að því
hvort þeir h'afi ekki gefið sér vit-
lausar forsendur að þessu leyti í
upphafi. Skiptir máli hvort sjávarút-
vegurinn notar peningana, sem
hann býr til, eða rikisvaldið, veldur
það ekki sömu þenslunni hvor aðil-
inn eyðir þeim? Hagnaður 10
stærstu fyrirtækja landsins utan
sjávarútvegs er ekki minni en það
sem hirt er af sjávarútvegi í Verð-
jöfnunarsjóð. Hefur það ekki
þennsluáhrif? Þarf ekki að hefta
þennan hagnað líka? Spyr sá sem
vantar svör. Auðvitað er það hygg-
inna manna háttur að geyma til
mögru áranna og auðvitað vill sjáv-
arútvegurinn vera með í því, með
því skilyrði að allir taki saman
höndum um það. Það hefur enga
þýðingu að einn aðili þjóðar-fjöl-
skyldunnar sé skyldaður til að
spara, þegar forsvarsmaður hennar
sólundar því jafnóðum, og gott bet-
ur. Sjávarútvegurinn hefur slæma
reynslu af því að vera skikkaður til
sparnaðar í góðærum í fonni inn-
greiðslna í Verðjöfnunarsjóð, sem
er í vörslu Seðlabankans, þar sem
ríkisvaldið hefur fijálsan og óheftan
aðgang. Stjórn á Ijármálum ríkisins
og . fjármálum þjóðarinnar verður
að breytast til að sátt náist um
sparnað í sjávarútvegi í formi
sveiflujöfnunarsjóða, sem fyrirtæki
hafa á sínum snærum. Getum við
frekar treyst nýrri ríkisstjórn ís-
lands, en þeim sem áður hafa setið,
í þessum málum? Það er brýnt að
ríkisstjórnin sýni svar við þessum
spurningum í verki.
Höfundur er framkvæmdastjóri
hjá Þorbirni hf. í Grindavík.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
VELLÍÐAN — ENDING — G sn
IfT
Kringlunni,
S. 689212.
Verð: 2.595,- 2.695,
Stærðir: 35-47
Litir: Svart - brúnt - hvítt
Póstsendum samdægurs
5% staðgreiðsluafsláttur
Toppskórinn,
Veltusundi,
s. 21212.
Flísar
Vutidaðar vörur á
betra verði.
Nýborg-#
Skútuvogi 4, sfmi 82470
★ Pitney Bowes
Frímerkjavélar og stimpllvélar
Vélar tll póstpökkunar o. fl.
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
Höfdar til
.fólksí öllum
starfsgreinum!
... rrimmtl I samvlnflu vta uraar m. ,
NIDURSUÐUVERKSMIOJAN OHA H/F, VESTURVÖR 12, KOPAVuu ■
FYRIR ÞA SEM EIGA SKILIÐ
ÞAÐ BESTA
irmeruð í