Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
Sjallinn aug-
lýstur til sölu
ÓSKAÐ hefur verið eftir tilboð-
um í Sjallann á Akureyri, eign
þrotabús Veitingahússins Alfa-
bakka 8 hf., en þeim ber að skila
til bústjóra þrotabúsins í síðasta
lagi á mánudag, 13. mai.
Um er að ræða 80,8% fasteignar-
innar við Glerárgötu 7, alls 1.472
fermetrar að stærð. Brunabótamat
hennar er um 247,2 milljónir króna,
en fasteignamat tæplega 50 millj-
ónir. Húsið er byggt árið 1961,
endurbyggt árið 1982 og innréttað
að nýju að hluta. 1989-90. Auk
hússins, sem er tveir salir, annar
stór og hinn nokkuð minni og veit-
ingasalur í kjallara, er einnig um
að ræða allt innbú veitingahússins.
Tilboðum í Sjallann skal skila inn
til Rúnars Mogenssen bústjóra
þrotabúsins í síðasta lagi á mánu-
daginn 13. maí næstkomandi.
..♦
Vortónleikar
söngdeildar
Vortónleikar Söngdeildar
Tónlistarskólans á Akureyri
verða haldnir miðvikudagskvöld-
ið 8. maí kl. 20.30 í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju.
A fyrri hluta tónleikanna verða
flutt íslensk og erlend einsöngslög
en síðari hlutinn er tileinkaður 200
ára ártíðarminningu W.A. Mozarts.
Fluttir verða dúettar og kvintettar
úr ýmsum þekktustu óperum hans,
svo sem Brúðkaupi Fígarós, Töfra-
flautunni, Don Gíovanni og Cosi fan
tutte.
Snjór í byggð
Iíjörk, Mývatnssveit.
HER í Mývatnssveit var
snjór niður í byggð í gær-
morgun, hiti rétt ofan við
frostmark og krap á vegum.
Á sunnudag fór að rigna
með norðanátt og síðdegis
gerði slyddu og síðar snjó-
komu. í gær hefur snjóinn að
mestu tekið upp hér næst
vatninu.
Þess má geta að krían sást
hér fyrst við Mývatn 2. maí
síðastliðinn.
Kristján
Háskólinn á Akureyri:
Þórunn hyrna fær-
ir bókasafninu gjöf
ZONTAKLÚBBURINN Þórunn hyrna afhenti Bókasafni Háskólans
á Akureyri á föstudag 65 þúsund krónur að gjöf til kaupa á ársá-
skrift á geisladisknum CINAHL eða gagnasafninu Cumulative index
to nursing and allied health literature.
Klúbburinn hefur ákveðið að gefa
bókasafninu gjafir í upphafi hvers
árs og var þettá sú fyrsta. Við sama
tækifæri var tilkynnt að klúbburinn
hefði ákveðið að veita verðlaun á
' hveiju ári til þess nemanda á fjórða
ári við heilbrigðisdeild sem sýnir
bestan árangur í námi.
Markhópur CHINAL gagna-
safnsins er fyrst og fremst hjúkr-
unarfræðingar, en einnig annað
starfsfólk við heilsugæslu auk
bókavarða á bókasöfnum sem
starfa á heilbrigðissviði. Efni úr 300
tímaritum er skráð reglulega, þar
með eru nánast öll hjúkrunarfræði-
tímarit á enskri tungu, auk fjöl-
margra tímarita í tengdum greinum
eins og iðju- og sjúkraþjálfun,
meina- og röntgentækni. I gagna-
safninu eru upplýsingar um mörg
hundruð bækur frá 30 helstu útgef-
endum bóka á sviði heilbrigðismála
í Bandaríkjunum.
Á geisladiskinum eru 110 þúsund
færslur sem hafa að geyma upplýs-
ingar frá árinu 1983 til dagsins í
dag. Annan hvern mánuð kemur
nýr endurnýjaður diskur og hefur
þá færslum yfir efni sem gefíð hef-
ur verið út á tveim undangengnum
mánuðum verið bætt við. Þannig
er tryggt að notendur hafa alltaf
aðgang að nýjustu upplýsingum
hveiju sinni.
Notendum bókasafnsins er heim-
ilt að leita upplýsinga á geisladisk-
inum á eigin spýtur og sér að kostn-
aðarlausu.
(Fréttatilkynning)
Rafmagnsmál í Eyjafirði:
Framkvæmdir til að bæta
raforkudreifingu standa yfír
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Nágrannar í vorverkum
Kristlaug Guðmundsdóttir notaði blíðviðrið fyrir helgina til
að vinná í garðinum sínum, en nágranni hennar á Eyrarvegin-
um, Frímann Guðmundsson, fylgdist með. Margir fóru að
dæmi Kristlaugar og sinntu vorverkum í görðum sínum, en
veðrið var sérlega gott á föstudag og laugardag. Gróður tók
vel við sér í mikilli rigningu á sunnudaginn.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Ingólfi Árnasyni
rafveitustjóra á Norðurlandi
eystra:
„Á Akureyrarsíðu Morgunblaðs-
ins laugardaginn 27. apríl sl. er
frétt frá Benjamín Baldurssyni Ytri-
Tjörnum, Eyjafjarðarsveit, um
„ófremdarástand í rafmagnsmál-
um“. Það er haft eftir Jóni Eiríks-
Atvinnulífið að lifna við:
Mikil fækkun á atvinnu-
leysisskrá á Akureyri
MJÖG hefur fækkað á atvinnu-
leysisskrá á Akureyri, en um
Skógræktarfélag Eyfirðinga:
Framleiðir hálfa
milljón plantna
UM HÁLFRI milljón trjáplantna verður sáð á vegum Skógræktarfé-
lags Eyfirðinga í sumar og er það töluverð fjölgun frá fyrri árum,
en nýtt gróðurhús sem byggt var í vetur gerir skógræktarmönnum
kleift að framleiða þetta magn.
síðustu mánaðamót voru 170
skráðir atvinnulausir í bænum,
en voru 216 um mánaðamótin
mars og apríl.
Sigrún Björnsdóttir forstöðu-
maður Vinnumiðlunar sagði að
atvinnulífið væri greinilega að
lifna, mikill straumur hefði verið
út af skránni síðustu vikur.
Um síðustu mánaðamót voru
170 á atvinnuleysisskrá, 99 karlar
og 71 kona. Um mánaðamótin þar
á undan voru 216 á skrá, en á
sama tíma á síðasta ári, þ.e. mán-
aðamótin apríl-maí voru 285 at-
vinnulausir á Akureyri og hafa
þeir aldrei verið fleiri á þeim tíma,
að sögn Sigrúnar.
. Hún sagði að langflestir iðnað-
armenn sem voru á skránni hefðu
fengið atvinnu, en flestir þeirra
sem byggju við atvinnuleysi væru
félagsmenn í Einingu og Iðju, auk
verslunannanna, eii 30 einstakl-
ingar úr Félagi verslunar og skrif-
stofufólks er atvinnulausir.
Hjá Vinnumiðlun er hafin
skráning í unglingavinnuna, en
unglingar fæddir á arúnum
1975-77 geta fengið atvinnu hjá
bænum í sumar. Skráning hófst í
síðustu viku og sagði Sigrún að
skráningin hefði gengið jafnt og
vel alla vikuna. Skráningu lýkur
10. maí næstkomandi, eða á föstu-
dag.
syni svínabónda á Arnarfelli. Sam-
kvæmt samtali við Jón Eiríksson á
þessi lýsing Benjamíns við ástand
eftir óveðrið í vetur en ekki eins
og ástandið er nú, þegar fréttin er
birt.
í óveðrinu eyðilögðust spennu-
stillar og það tók nokkurn tíma að
fá nýja í þeirra stað, en þeir voru
komnir í gagnið um miðjan febrúar.
Nú er það svo að þetta danska
sjálfvirka fóðurkerfi hentar ekki á
fremstu bæjum Eyjafjarðar og hefði
verið leitað álits okkar áður en kerf-
ið var keypt hefði verið hægt að
komast hjá erfiðleikum og kostnaði
sem bæði bóndinn og Rafmagns-
veiturnar hafa orðið fyrir.
Nú standa yfir framkvæmdir sem
munu bæta raforkudreifingu í Eyja-
firði. Verið er að leggja jarðstrengi
frá aðveitustöðinni við Akureyri
suður fyrir Kjarnaskóg og eins
austur yfir eylendið að Brúarlandi
þar sem þeir tengjast loftlínum.
Þetta mun bæta spennuástandið
nokkuð, einnig verða álmur sem
liggja þvert á ísingarátt teknar nið-
ur, en jarðstrengur lagður í þeirra
stað.
Enginn vafi er á að þessar fram-
kvæmdir munu styrkja dreifikerf-
ið.“
©'
INNLENT
Útgerðarfélag Akureyringa:
Aðalsteinn Svanur Sigfússon
starfsmaður hjá Skógræktarfélagi
Eyfirðinga sagði að í sumar yrði
- töluvert plantað í héraðinu á veg-
um bændaskóga. Fyrirhugað er
að planta um 160 þúsund plöntum
á þeirra veguiri í sumar sem er
veruleg aukning frá síðasta ári.
í Kjamaskógi verður nokkuð
um framkvæmdir að venju, gróð-
ursettar verða um 50-60 þúsund
plöntur í Naustaborgir og verður
þar með lokið víð það svæði, en
þar hefur verið gróðursett nokkur
undanfarin ár.
Skógræktarfélagið hefur staðið
í byggingaframkvæmdum í vetur,
m.a. var byggt 400 fermetra gróð-
urhús í Kjarnaskógi og vinná er í
fullum gangi við byggingu þjón-
ustu- og skrifstofuhúss sem lokið
verður við í sumar. Bygging gróð-
urhússins gerir félaginu kleift að
framleiða um það bil 150 þúsund
plöntum meira en áður og verður
framleiðsla sumarsins því um hálf
milljón plantna.
Hluthöfum hefur fjölgað um 830
HLUTHÖFUM í Útgerðarfélagi Akureyringa fjöigaði úr 770 í 1.600
eftir að hlutabréf að nafnvirði rúmlega 100 milljónir voru boðin út
á síðasta ári.
Hlutabréfin voru boðin út í
tvennu lagi, í fyrra útboðinu nýtti
131 hluthafi forkaupsréttar, en 471
aðili keypti hlutabréf á almennum
markaði. Seinna útboðið var í októ-
ber og keyptn forkaupsréttarhafar
öll bréfin, en kaupendur voru 397
talsins. Hlutabréf að nafnvirði
100.547,5 þúsund voru seld fyrir
303.941 þúsund, eða á meðalgengi
3,02.
* Félagið seldi hlutabréf fyrir Ak-
ureyrarbæ í desember síðastliðnum
að nafnvirði rúmlega 33 milljónir
króna, þau voru seld á genginu 3,6
og voru kaupendur 420 talsins.
Áður en hlutafjárútboðið fór af stað
voru hluthafar um 770, en voru
1.600 í apríl síðastliðnum, en hlut-
höfum hefur fjölgað um 830. Akur-
eyrarbær er sem fyrr stærsti hlut-
hafinn með:58,8% hlutafjárins.