Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAI 1991

15

Neikvæð áhrif fjöl-

miðla á mótun barna

eftirHelgu

Birgisdóttur

Ég get ekki lengur orða bundist

jrfir vali ríkissjónvarpsins á bíó-

myndum og tillitsleysi forráða-

manna þess gagnvart áhorfendum

og þá sérstaklega börnum. Bíó-

myndir með grófu ofbeldi og öðrum

hryllingi verða sífellt algengari á

skjánum og í fæstum tilvikum er

vakin athygli á því að myndirnar

séu varhugaverðar börnum. í

kvikmyndahúsum gilda reglur um

aldurstakmarkanir og því sætir það

furðu að sýna grófa ofbeldismynd

í sjónvarpinu án nokkurar aðvör-

unar. Slík mynd væri að öllum lík-

indum bönnuð innan 16 ára í kvik-

myndahúsum. Ég er hrædd um að

með þessu áframhaldi geti mörg

ung og viðkvæm sálin skaddast og

fái brenglaða mynd af því hvað

teljist eðlileg samskipti manna á

milli.

Tvö dæmi vil ég nefna um mynd-

ir sem alls ekki voru við hæfi barna.

Önnur þeirra var bandarísk mynd

sem sýnd var nokkru fyrir jól og

var hún fyrri bíómynd á laugar-

dagskvöldi. Sjö ára sonur minn fékk

að horfa á hana, enda vissum við

ekki nema þetta væri rólyndis mynd

með úrvalsleikurum. Áður en varði

birtist atriði á skjánum af hrottaleg-

um kynferðisglæp og morði. Áhorf-

andanum birtist mynd af líki ungrar

konu sem hafði verið bútuð í tvennt

og sýndi myndavélin okkur nokkuð

ýtarlega mynd af líkamsbútunum

Tónlistarfélagið:

Píanótónleikar

Rudolfs Firkusnys

TEKKNESKI píanóleikarinn

Rudolf Firkusny heldur tónleika

í Islensku óperunni laugardaginn

18. maí á vegum Tónlistarfélags-

ins í Reykjavík og hefjast þeir

kl. 14.30.

Rudolf Firkusny fæddist í Morav-

íu. Hann kom fyrst fram í Prag

árið 1922, en framhaldsnám stund-

aði hann m.a. hjá píanóleikaranum

Vilem Kurz og tónskáldinu Joseph

Suk við Tónlistarakademíuna í Prag

og einnig var hann nemandi Arthur

Schnabel. Verkið Fantasie et Toccc-

ata eftir Bahuslav Martinu sem flutt

verður á tónleikunum á laugardag

er tileinkað Rudolf Firkusny.

Á efnisskránni eru Bagatellur

efti Beethoven, Sónata í a-moll eft-

ir Schubert, Sónata I.X. 1905 eftir

Janácek, Suite bergamasque eftir

Debussy og fyrrnefnd Fantasía og

tokkata eftir Marinu. Aðgöngumið-

asala verður við innganginn.

tveimur sem lágu nokkra metra

hvor frá öðrum. Lögreglumennirnir,

sem kvaddir höfðu verið á vett-

vang, stóðu glottandi yfir neðri

hlutanum, gerðu grín að hinni látnu

og höfðu orð á því að „hún hefði

kerti uppi í gleðigöngunum". Við-

brögð mín við þessu voru eins og

oft áður, að taka fyrir augun á

stráknum og slökkva á sjónvarpinu

(ég er komin í nokkuð góða þjálfun

með hraðann).

Ég bara spyr: Erum við íslend-

ingar orðnir jafn dofnir fyrir ofbeldi

og hryllingi og fyrrnefndir lögreglu-

menn? Látum við bjóða okkur svona

þegjandi og hljóðalaust? Hverju

veldur svona val? Eru ofbeldismynd-

ir ódýrari en aðrar myndir eða er

ekkert eftirlit haft með því hvað

sýnt er? Þessar myndir eru oft léleg-

ar og óvandaðar og er líkt og til-

gangslaust ofbeldi sé notað til að

„krydda" þær. Því ekki að hafa

góðar myndir, sem öll fjölskyldan

hefur gaman af, a.m.k. sem fyrri

mynd á laugardagskvöldi? Það er

leiðinlegt að þurfa að aðskilja börn-

in frá foreldrum þegar fjölskyldan

vill hafa það notalegt saman fyrir

framan sjónvarpið.

Annað dæmi vil ég nefna. Það

var stutt sjónvarpsmynd sem hét

„Feluleikur" og var sýnd 27. jan-

úar. Atriði í mynd þessari voru

vægast sagt mjög draugaleg og

hrollvekjandi. Ekki var tekið fram,

hvorki í blöðum né sjónvarpi, að-

myndin væri varhugaverð börnum

eða viðkvæmu fólki. Ég þakkaði

mínum sæla að sonur minn var

sofnaður, því ef hann hefði séð

hana, hefði hann líklegast ekki get-

að sofnað fyrir myrkfælni eða feng-

Helga Birgisdóttir

„Ég þakkaði mínum

sæla að sonur minn var

sofnaður, því ef hann

hef ði séð hana, hef ði

hann líklegast ekki get-

að sofnað fyrir myrk-

fælni eða fengið slæma

martröð."

ið slæma martröð.

Það hlýtur að vera lágmarks-

krafa að vara fólk við slíkum mynd-

um og kynna þær sem bannaðar

börnum líkt og gert er í kvikmynda-

húsum.

En.það er ekki nóg með að sjón-

varpsefni sem sýnt er á kvöldin sé

fullt af ofbeldi, heldur er mikið af

því efni sem ætlað er börnum það

einnig. Einkum á ég við teikni-

myndir þar sem persónurnar leysa

sín ágreiningsmál með því að koma

hver annarri fyrir kattarnef með

hinum skrautlegustu ofbeldisað-

ferðum. Sárin gróa ótrúlega fljótt

á þeim og engin varanleg örkuml

verða, ólíkt því sem gerist f raunver-

uleikanum. Skyldu öll börn geta

greint þarna á milli? Sem betur fer

er þó ekki allt í þessum dúr og er

ástæða til að hrósa barnaefninu á

sunnudögum. Áhrif sjónvarpsefnis

á börnin sér maður stax við horfun

þeirra á það. Ef teiknimynd er sýnd

sem einkennist af æsingi og of-

beldi, þá verða börnin oft æstari

en ella og upphefjast oft rifrildi og

stympingar þeirra á milli. Þannig

efni er ekki fræðandi né þroskandi

á nokkurn hátt og elur á ofbeldis-

hneigðinni sem við ættum með 511-

um tiltækum ráðum að bæla niður.

Ég vil einnig minnast á frétta-

flutning bæði blaða og sjónvarps,

sem sífellt verður nákvæmari og

um leið grófari. Fréttamyndir frá

stríðshrjáðum löndum eru oft yfir-

fullar af illa útlítandi líkum og virð-

ist manni stundum sem frétta- og

myndatökumönnum finnist mest

um vert að sýna sem mestan við-

bjóðinn. Nú er ég ekki hlynnt því

að útiloka raunveruleikann og

vernda börnin um of, en öllu má

nú ofgera. Hætt er við að börn, sem

alast upp við slíkar einhæfar hryll-

ingsfréttir sem eru samfara stríði

og valdabaráttu, finnist styrjaldir

vera eðlileg og raunhæf leið tíl

lausnar deilum manna eða þjóð-

anna á milli, lfkt og því miður ríkj-

andi kynslóðum finnst nú. Börnin

verða einnig óttaslegin en reyna

e.t.v. að flýja óttann með því að

gera stríðið að leik sín á milli og

teikna myndir af stríðsvopnum.

Fyrirmyndina fá þau í fjölmiðlum,

þar sem fréttamenn virðast njóta

þess að flytja sem nákvæmastar

tæknilýsingar af stríðstækjum og

vopnum. Manni finnst jafnvel að

ætlast sé til að fólk horfi aðdáunar-

augum á myndir af öllum tæknibún-

aðinum. Fjölmiðlafólk verður að

gera sér grein fyrir ábyrgð sinni

og hve mikil áhrif það getur haft

á skoðanamyndun barna og fullorð-

inna í þjóðfélaginu.

Höfundw er hjúkrunarfræðingur

og Ijósmódir.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52