Morgunblaðið - 23.05.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.05.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 113. tbl. 79. árg. FIMMTUDAGUR 23. MAI 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Líbanonsstjórn markar stefnuna: Náið samstarf við Sýrlendinga ísraelar telja öryggi sínu ógnað og kristnir Líbanir fordæma ákvörðunina Beirut. Reuter. ELIAS Hrawi forseti Líbanons og Hafez al-Assad Sýrlandsforseti undirrituðu í gær samning um náið samstarf ríkjanna í efna- hags-, öryggis- og utanríkismálum. Samkvæmt skilmálunum má stefna Líbana framvegis ekki ganga í berhögg við stefnu Sýrlend- inga en þeir mega þó að búa við frjálst markaðskerfi og lýðræði. ísraelar fordæma samninginn og segja hann ógna öryggi sínu. Leiðtogi krist- inna Líbana, Nasr- allah Butros Sfeir, fordæmdi einnig I samninginn. Hann sagði stjóm Hraw- is, þar sem stuðn- ingsmenn Sýr- lendinga eru í | miklum meiri- hluta, ekki hafa Hafez al-Assad neinn rétt til að undirrita slíkan samning og færa landið þannig í reynd undir yfirráð Sýrlands. Sfeir sagði að svo hlyti að fara þegar ekkert jafnræði væri með samningsaðilum. Sýrlendingar sendu her til Líban- ons árið 1976 er stjórnvöld í Beirut báðu um aðstoð við að bijóta á bak aftur vopnaða herflokka múslima og kristinna. Um 40.000 manna sýrlenskt lið hefur nú töglin og hagldirnar í tveim þriðju hlutum landsins. Er Frakkar réðu löndun- um báðum var litið á þau sem eitt stjórnsvæði. ísraelar hafa hernumið um 15 km breitt líbanskt land við mörk ríkjanna um árabil til þess að geta haft hemil á palestínskum skærulið- um er notfærðu sér upplausnina í borgarastríðinu í Líbanon, settu þar upp eigin herbúðir og gerðu árásir inn í ísrael. ísraelsstjórn segir nýja samninginn ógna öryggi landsins og herliðið á landræmunni verði ekki dregið á brott. Assad hélt því fram í gær að óbilgjörn afstaða ísraela kæmi í veg fyrir að samningar tækjust um frið- arráðstefnu í Mið-Austurlöndum. „Tii hvers að halda ráðstefnu þegar Israelar neita að slaka til?“ sagði forsetinn. James Baker, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sem gert hefur ítrekaðar tilraunir til að koma á ráðstefnu deiluðaðila kvaðst í gær orðinn vondaufur um að þær bæru árangur. Lík Rajivs Gandhis á viðhafnarbörum á heimilj hans í Nýju-Delhí í gær, við höfðalagið er mynd af leiðtoganum. Á innfelldu myndinni er Sonia Gandhi, ekkja forsætisráðherrans fyrrverandi. Sljórn indverska Kongressflokksins: Ekkju Gandhis boðið að taka við leiðtogastöðimni Nýju-Delhí, Colombo, Hong Kong. Reuter, Daily Telegraph. LÖGREGLA í Nýju-Delhí varð að beita táragasi til að halda aftur af æstum syrgjendum sem reyndu að komast að kistu Rajivs Gand- his, leiðtoga Kongressflokksins indverska og fyrrverandi forsætis- ráðherra landsins, er hún var borin inn í hús leiðtogans í borginni í gær. Stjórn Kongressflokksins kaus í gær Soniu Gandhi, ekkju leiðtogans myrta, í embætti flokksleiðtoga en ekki er ljóst hvort hún samþykkir að taka við því. Talsmaður flokksins vék sér undan því að svara er spurt var hvort Sonia yrði forsætisráðherraefni flokksins. Ákvörðun flokksforystunnár I samið sig að siðum Indveija eftir þykir miklum tíðindum sæta. Sonia að hún giftist Gandhi árið 1968. Gandhi, sem er 42 ára gömul, er Hún hefur ekkert haft sig í frammi ítölsk að þjóðerni en hefur mjög | í stjórnmálum en er þó talin hafa Skæruliðar í Eþíópíu nálg- ast óðum höfuðborgina Addis Ababa. Reuter. J SKÆRULIÐAR í Eþíópíu sækja hratt fram til höfuðborgarinnar, Addis Ababa, og er óttast, að til mikilla blóðsúthellinga geti komið verði barist um hana. í gær höfnuðu þeir vopnahléstilboði stjóraarinn- ar en fulltrúar tveggja helstu fylkinganna kváðust þó mundu taka þátt í friðarviðræðum í London í næstu viku. Mengistu Haile Mariam, fyrr- um einvaldur í Eþíópíu, sem flúði land á þriðjudag, er kominn til Zimbabwe þar, sem hann á búgarð. Skæruliðar Eþíópsku byltingar- hreyfingarinnar, EPRDF, voru í 55 km fjarlægð frá Addis Ababa í gær og sóttu hratt fram. Mættu þeir engri mótspyrnu af hálfu stjórnar- hersins en leifar hans hafa verið að safnast saman í höfuðborginni. Lýstu leiðtogar EPRDF yfir, að ekk- ert lát yrði á sókninni fyrr en friðar- samningar hefðu verið undirritaðir eða stjórnin farin frá. Búist hafði verið við, að flótti Mengistus yrði til, að skæruliðar hægðu á sókninni en svo virðist sem foringjar þeirra ráði ekki lengur ferðinni, nú þegar lokasigurinn er í augsýn. Fulltrúar EPRDF og EPLF, Frelsisfylkingar Eritreu, ætía þó að taka þátt í friðarviðræðum, sem hefjast í London á mánudag, en kváðust ekki gera sér neinar gylli- vonir um árangurinn vegna þess, að þótt Mengistu væri flúinn til eigna sinna í Zimbabwe væri sama stjórn- in við völd í Addis Ababa. Mikil spenna er sögð ríkja í höfuð- borginni og eru hermenn hvarvetna á verði við stjórnarstofnanir og aðr- ar opinberar byggingar. Hefur Erítrea . w... Asmara® ^H||r ! Tigray ,Pondar wotlo m r' G°Jam^Shoa V ' iWoliega S Addis Ababa--... EÞÍÓPÍA ... og sækja í átt / aö höfuöborginni.,,/ Héruö á valdi skólahald lagst niður og fólk keppist um að taka allt sparifé úr bönkum. haft veruleg áhrif á stefnu eigin- manns síns. Hann var á sínum tíma gagmýndur harkalega fyrir að gift- ast útlendingi en ekki indverskri stúlku af hástétt brahmína eins og hefðir buðu honum. Sonia nýtur einkum stuðnings ungra manna í flokksstjórninni en ljóst er að marg- ir álíta að með hana í fararbroddi geti Kongressflokkurinn hlotið stór- aukið fylgi vegna samúðar almenn- ings í garð ekkjunnar. Fyrsta um- ferð þingkosninganna í Indlandi hefur þegar farið fram en ákveðið var í fyrradag að fresta hinum tveim, er áttu að verða síðar í vik- unni, til 12. og 15. næsta mánaðar. Ellefu manns, þ. á m. tvö börn, hafa týnt lífi og tugir hafa særst í mótmælum vegna sprengjutilræðis- ins sem varð Gandhi og 16 öðrum að bana á þriðjudag. Hann var þá á kosningaferðalagi í borginni Sri- perumpudur á Suður-Indlandi. Út- göngubann hefur verið fyrirskipað í nokkrum borgum. Enn er margt óljóst um aðdraganda tilræðisins. Að sögn breska útvarpsins BBC kannar lögregla þá tilgátu að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða. Kona, er rétti leiðtoganum blóm er hann var á leið að ræðupúlti, hafi ef til vill borið á sér sprengju innan- klæða. Leiðtogar tamíla í Sri Lanka, sem voru mjög andvígir Ieiðtogan- um, vísa því á bug að skæruliðar úr þeirra röðum hafi komið við sögu. Þarlend stjórnvöld hafa aukið gæslu til að hindra að tilræðismenn geti komist frá Indlandi yfir sundið til eyríkisins. Bálför Gandhis verður á morgun, föstudag, og mun 17 ára gamall sonur hans, Rahul, tendra bálköst- inn að sið hindúa. Sjálfur var Rajiv Gandhi þó ekki skráður hindúi; fað- ir hans, Feroze Gandhi, var af trú- flokki parsa. Forseti Indlands lagði blómsveig að kistu leiðtogans í gær og leiðtogar um allan heim hafa lýst hryggð sinni vegna morðsins. Sjá fréttir á bls. 26. Efnahagsstefna Póllandsstj órnar: Samstaða mótmælir Varsjá. Reuter. FÉLÁGAR í pólsku verkalýðs- samtökunum Samstöðu efndu í gær til mótmæla um allt Pólland gegn ríkisstjórn landsins sem að mestu er skipuð Samstöðufólki. 10.000 manns komu saman í miðborg Varsjár til að mótmæla ströngum aðhaldsaðgerðum stjórn- valda og verkamenn í iðnaðarhéruð- um í suðurhluta landsins lögðu nið- ur vinnu í námum, verksmiðjum og stáliðjum allt frá einni klukkustund upp í heilan dag. „Þátttaka í mótmælunum var eins og við höfðum gert okkur von- ir um. Við gerum ráð fyrir að stjórn- völd taki kröfur okkar til greina. Ríkisstjórnin sér að Samstaða getur enn virkjað félaga sína tii að- gerða,“ sagði talsmaður Samstöðu, Andrzej Adamczyk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.