Morgunblaðið - 25.05.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
115. tbl. 79. árg.
LAUGARDAGUR 25. MAI 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sjávarútvegsmál:
Brundtland býður
íslenskum ráð-
herrum til viðræðna
Vínarborg. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
GRO HARLEM Brundtland, forsætisráðherra Noregs, bauð Davíð
Oddssyni forsætisráðherra og Jóni Baldvini Hannibalssyni utanríkis-
ráðherra til viðræðna um deilurnar við Evrópubandalagið (EB) í sam-
ingunum um Evrópska efnahagssvæðið á óformlegum fundi sem ráð-
herrarnir áttu í Vínarborg í gær. íslensku ráðherrarnir hafa þegið
boðið og gert er ráð fyrir að fundurinn verði í Ósló innan tveggja
vikna. Davíð Oddsson sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki væri
hægt að sætta sig við að Norðmönnum og íslendingum væri att saman
í viðræðunum við EB um greiðari aðgang fyrir sjávarafurðir inn á
markaði EB.
Miklar vangaveltur hafa verið um
það í samningaviðræðunum hversu
langt samstaða Norðmanna og Is-
lendinga næði í viðræðunum við EB.
Reiknað hefur verið með þvi að Is-
lendingar fengju einhvers konar
sérlausn undir lok samningavið-
ræðnanna og Norðmenn þá eitthvað
minni ívilnanir. Davíð Oddsson sagði
að full samstaða væri á milli Norð-
manna og íslendinga um áherslur í
sjávarútvegsmálum og sú afstaða
væri studd undanbragðalaust af öll-
um aðildarríkjum Fríverslunar-
bandalags Evrópu (EFTA). Davíð
sagði að á fundinum í Noregi yrði
farið yfir stöðuna í viðræðunum og
á hvaða hátt Norðmenn og íslend-
ingar gætu unnið saman á loka-
sprettinum. Hann sagði að stefnt
væri að sameiginlegri lausn fyrir
Norðmenn og Islendinga en skoða
yrði undir lokin hvernig heildarjafn-
vægi í samningunum yrði fyrir ein-
stök aðildarríki hans. Davíð lagði
áherslu á að íslendingar og Norð-
menn ættu í þessu máli sameigin-
lega hagsmuni og eitt skyldi yfir
hvora tveggju ganga.
Það virðist hins vegar skilningur
margra embættismanna í viðræðun-
um að samstaða íslendinga og Norð-
manna sé um kröfurnar, Islendingar
stefni hins vegar á sérstaka lausn
sér til handa. Þá er spurt hvort Is-
lendingar verði tilbúnir til að hafna
tilboði frá EB ef það nær ekki til
Norðmanna að sama skapi. Jón
Baldvin Hannibalsson hefur sagt við
blaðamenn að á lokasprettinum
verði aðrir hagsmunir en sjávarút-
vegur Norðmönnum mikilvægari,
þess vegna sé ólíklegt að til árekstra
komi á milli þeirra og Islendinga
um þessi efni.
Samkvæmt heimildum í Vínar-
borg behti Brundtland á að aðild
Noregs að EB hefði ekki orðið að
veruleika á sínum tíma vegna þess
að ekki hefði verið tekið nægilegt
tillit til sjávarútvegshagsmuna
þeirra.
Sjá fréttir af leiðtogafundi
EFTA á bls. 20-21.
Reuter
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Davíð Oddsson forsætisráðherra á leiðtogafundi EFTA
í Vínarborg í gær.
ísraelar hyggjast flytja
alla gyðinga frá Eþíópíu
Addis Ababa. Reuter.
ÍSRAELAR byijuðu að flylja eþíópska gyðinga frá höfuðborg Eþíópíu,
Addis Ababa, í gær. Fyrirhugað er að flytja þá 18.000 gyðinga sem
eftir eru í Eþíópíu til ísraels á næstu dögum. Bandarísk stjórnvöld
upplýstu í gær að þau hefðu aðstoðað ísraela við að skipuleggja fólks-
flutningana. Ennfremur hefðu þau skorað á ísraela að búa hinum
nýju borgurum ekki samastað á hernumdu svæðunum, vesturbakka
Jórdanárinnar og Gaza-svæðinu.
Benjamin Netanyahu, aðstoðarut-
annkisráðherra ísraels, sagði í gær
að það væri fagnaðarefni að geta
tekið vel á móti gyðingunum frá
Eþíópíu eftir 2.200 ára aðskilnað.
Hann sagði að ekkert vandamál yrði
að finna þeim samastað í ísrael,
a.m.k. ekki í samanburði við þá erfið-
leika sem fylgja því að háþf milljón
sovéskra gyðinga flyst til ísraels á
næstu árum að því er talið er.
Aðgerð ísraela nú minnir mjög á
það þegar 12.000 eþíópskir gyðingar
voru fluttir leynilega frá Eþíópíu til
ísraels á árunum 1984-1985. „Falas-
har“ eins og þeir kalla sig hafa ver- *
ið að flytjast til ísraels í smáum stíl
allt frá því Eþíópía og ísrael tóku
c-upp stjórnmálasamband árið 1989.
Talið er að Israelsstjóm hafi látið
stjórnvöld í Eþópíu fá vopn í skiptum
fyrir „falasha" en stjórnvöld í báðum
löndum hafa harðlega neitað slíkum
ásökunum.
Allir „falashar" hafa verið saman-
komnir í Addis Ababa síðan í ágúst
á síðasta ári. Flestir þeirra komu frá
Gondar-héraði í vesturhluta landsins.
ísraelar óttuðust að gyðingarnir yrðu
öðrum fremur fyrir barðinu á upp-
reisnarmönnum Eþíópsku byltingar-
hreyfingarinnar, EPRDF, ef þeir réð-
ust inn í höfuðborgina. Sjónarvottar
sögðust í gær hafa séð nokkur hundr-
uð gyðinga fara um borð í ísraelskar
risaþotur á flugvellinum í Addis
Ababa.
EPRDF, og helsti bandamaður
hennar, Frelsisfylking Eritreu,
EPLF, hafa hafnað beiðni Tesfayes
Gabre Kidan, starfandi forseta lands-
ins, um vopnahlé. Vestrænir stjórn-
arerindrekar í landinu segja að þótt
uppreisnarmenn virðist hæglega
geta brotið leifar stjórnarhersins á
bak aftur þá hefðu þeir ekki sótt nær
höfuðborginni. Þeir sögðu að fyrir-
ætlan uppreisnarmanna gæti verið
sú að halda að sér höndum til að
styrkja stöðu sina í samningaviðræð-
um við stjómvöld landsins sem hefj-
ast í Lundúnum nk. mánudag.
Sjá viðtal við íslending í Addis
Ababa á miðopnu.
Indland:
Gandhi kvaddur
Nýju Delhí. Reuter og The Daily Telegraph.
BÁLFÖR Rajivs Gandhis, fyrrum forsætisráðherra Indlands, fór
fram á bakka Jamuna-fljóts í Nýju Delhí í gær. Á sama stað voru
jarðneskar leifar móður leiðtogans, Indiru Gandhi forsætisráð-
herra, brenndar árið 1984.
í samræmi við hefðir Hindúa
tendraði Rahul Gandhi, sonur hins
látna, bálköstinn sem lík föðurins
var lagt á. Þó var vikið frá hefðum
um að einungis karlmenn tendri
bálið að því leyti að ekkjan Sonia
og dóttirin Priyanka hlóðu köstinn
ásamt Rahul.
Var líkfylgdin alls um tíu km
löng og hermenn gengu í farar-
broddi. Nokkrir unglingar hlupu á
undan þeim og hrópuðu: „Skjótið
skepnurnar sem gerðu þetta!“ en
fjölmiðlar sögðu að ekki hefði kom-
ið til óeirða í landinu. Verslanir
hefðu verið lokaðar og götur auð-
ar, óvenjuleg kyrrð ríkt víðast
hvar.
Helstu forystumenn Indveija og
um 40 frammámenn erlendra ríkja
voru viðstaddir athöfnina, þ. á m.
Karl, ríkisarfi Breta, og Dan Qua-
yle, varaforseti Bandaríkjanna.
Olafur Ragnar Grímsson alþingis-
maður var fulltrúi þingmannasam-
takanna Hnattrænt átak við at-
höfnina.
Sjá viðtal á bls. 21.
Reuter
Rahul Gandhi, tvítugur sonur Rajivs Gandhis, sést hér tendra
bálköstinn sem lík föðurins var lagt á í Nýju-Delhí í gær.
Grænland:
Þorskur-
innhorfinn
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKIR togarar veiða
nú við Svalbarða af því að þorsk-
urinn er horfinn af miðunum við
Grænland. Togarinn Polar Princ-
ess, sem er í einkaeign, hefur ver-
ið að veiðum við Bjarnarey við
Svalbarða í 14 daga og fengið 150
tonn af þorski.
„Þetta er dágóð veiði,“ sagði And-
ers Brons, útgerðarmaður togarans,
í viðtali við grænlenska útvarpið.
Togarinn ber 6-700 .tonn og verður
því áfram við Svalbarða að sögn
hans. Norska landhelgisgæslan hefur
tvisvar komið um borð í togarann til
að kanna skipsskjöl og möskvastærð.
Tveir fiskifræðingar sem stundað
hafa rannsóknir við Grænland á veg-
um landstjórnarinnar segja í nýrri
skýrslu að ekki verði um umtalsverða
þorskveiði að ræða þar um slóðir
fyrr en í fyrsta lagi eftir 1994. Góðu
þorskárgangarnir frá 1984 og ’85
séu horfnir til íslands og árgangarn-
ir þar á eftir hafi brugðist með öllu.