Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 45
I ] MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991 45 Þorsteina Helga- dóttir - Kveðjuorð Fædd 7. ágúst 1910 Dáin 18. maí 1991 Við systkinin viljum minnast ömmu okkar Þorsteinu Helgadóttur með örfáum orðum. „Steina amma“, eins og við kölluðum hana, lést 18. maí síðastliðinn. Lát ömmu kom okkur mjög á óvart, því þótt alltaf megi búást við dauðanum þegar fólk hefur náð þeim aldri sem amma náði þá var hún amma alltaf svo hress og kát að okkur grunaði ekki að hennar tími væri kominn. Við systkinin eigum margar skemmtilegar og góðar minningar um Steinu ömmu enda engin logn- molla í kringum hana, hún var ákveðin kona með ákveðnar skoð- anir á öllum málum. Oft var því ansi heitt í kolunum þegar við kom- um til hennar og þjóðmál voru rædd. Það var gaman að tala við ömmu um mál líðandi stundar, hún var vel að sér í þjóðmálum og mjög pólitísk. Við systkinin höfðum oft gaman af að vera á móti hennar skoðunum og spunnust af því hinar skemmtilegustu umræður. Amma átti til að hneykslast eða reiðast ef henni fannnst skoðanir okkar óbilgjarnar en hló manna hæst. þeg- ar hún áttaði sig á að við vorum að gera að gamni okkar. Samband okkar við ömmu var samband vina. Steina amma hafði alltaf ráð- leggingar á reiðum höndum og vitn- aði oft í greinar sem hún sagðist hafa lesið máli sínu til stuðnings. Eitt sumar fyrir um 20 árum, vann elsta systir okkar með ömmu á Sil- ungapolli. Ömmu var meinilla við þann ferðamáta hennar að ferðast til og frá vinnustað á puttanum. Amma hafði hinar hroðalegustu lýsingar á örlögum putíaferðalanga fyrir henni í hvert'sinn sem hún fór eitthvað, og vitnaði óspart í blaða- og tímaritsgreinar. Eitt kvöld er amma var að koma úr fríi ætlaði hún að vera með Selfossrútunni að Silungapolli. Sigrún beið við þjóð- veginn til að taka á móti ömmu úr bænum. Rútan fór framhjá og ekki var amma með. Stuttu seinna stoppar vörubíll og út klöngrast amma, við stríddum henni auðvitað miskunnarlaust af hættum við puttaferðalög eftir þetta. Amma hafði góða kímnigáfu og hló mest sjálf að atvikinu. Við systkinin þökkum fyrir að hafa átt vináttu og þekkt svo stór- brotna og gáfaða konu sem amma var. Við þökkum henni samfylgdina og allar yndislegu góðu og kímnu minningarnar sem hún lætur eftir sig. Hennar er sárt saknað. Sigrún, Kristín, Kolbrún, Hörður, Gunnar og Erna. Gíslína H. Magnús- dóttir - Kveðjuorð Fædd 9. febrúar 1934 Dáin 22. maí 1991 Einu sinni, þegar ég var lítil stelpa, sagði einhver við mig að mér svipaði nú bara nokkuð til hennar Helgu móðursystur minnar. Það fannst mér hrós og því gleymi ég aldrei. Helga frænka mín var bæði góð og falleg í mínum augum og það var alltaf líf og fjör í kring- um hana. Það gustaði af henni hvar sem hún fór og hún gaf sér alltaf tíma til að tala við alla, hvort sem þeir voru stórir eða smáir. Helga hafði líka alltaf einhverju jákvæðu að miðla samferðamönn- um sínum, þó svo að ævi hennar hafi ekki alltaf verið dans á rósum. Enda leituðu ófáir til hennar ef eitt- hvað bjátaði á og fengu oftar en ekki plástur á sárin. Helga var búin að beijast lengi og hetjulega við erfiðan sjúkdóm og hefur síðustu árin þurft að vera meira og minna viðloðandi sjúkra- Fæddur 19. september 1895 Dáinn 27. maí 1991 Látinn er móðurbróðir minn, Pét- ur Ólafsson bóndi í Stóru-Tungu, Fellsstrandarhreppi, Dalasýslu. Pétur var sonur Olafs Péturssonar, áður bónda í Stóru-Tungu, og konu hans, Guðbjargar Helgu Jóhannes- dóttur. Pétur var næstelstur sinna systkina sem öll eru látin nema Inga, sem var yngst þeirra. Pétur kvæntist árið 1924 Guðrúnu Jó- hannsdóttur, merkiskonu, sem nú er látin. Pétur og Guðrún eignuðust fímm börn sem öll eru mannkosta- fólk. Elstur þeirra var Þorsteinn Biynjólfur, fæddur 12. júlí 1927, bóndi á Ytra-Felli, dáinn 11. des- ember 1988. Ólafur Guðbjöm, fæddur, 9. júní 1929, býr í Galtar- tungu, kvæntur Erlu Ásgeirsdóttur og eiga þau tvö uppkomin börn. Agnes Eyrún, fædd 9. apríl 1931, býr í Stóru-Tungu og á hún upp- komna dóttur. Jóhann Guðmundur, fæddur 20. apríl 1933, bóndi í Stóru-Tungu. Einar Gunnar, fædd- ur 25. júlí 1941, íslenskufræðingur og starfsmaður við Ámasafn, kvæntur Kristrúnu Ólafsdóttur og eiga þau tvo syni. Pétur var stórbrotin persóna sem deildir. Oft hefur þótt tvísýnt um að Helga myndi snúa heim aftur, en hún sýndi fram á það ítrekað, að allt virðist vera hægt ef viljinn er fyrir hendi. Óbilandi kjarkur og bjartsýni á lífið hélt henni gangandi mun lengur en veikburða líkaminn var í raun fær um. Helga var aldr- ei tilbúin að gefast upp fyrr en í fulla hnefana og hún hefur eflaust ætlað sér að hafa betur í þessari hinstu baráttu sinni við manninn með ljáinn. En enginn ræður sínum nætur- stað og nú hefur góður Guð veitt þjáðum líkama hennar hvíld. Hvað svo sem tekur við að loknu þessu jarðlífi, þá efast ég ekki um það eitt augnabiik, að vel hefur verið tekið á móti henni Helgu frænku minni þegar hún skildi við þennan heim; sem okkur hinum er sýnileg- ur. Eg vona bara að hún sé nú, eins og hún svo oft óskaði sér, frjáls eins og fuglinn og sátt við sitt hlut- skipti. seint mun gleymast þeim sem hon- um kynntust. Hann var konungur í sínu ríki enda höfðingi heim að sækja. Elsti sonur minn, Pétur, var eitt sumar hjá þeim hjónum Guð- rúnu og Pétri í Stóru-Tungu. Hann minnist þeirra með hlýju og þakk- læti og bar hann mikla virðingu fyrir Pétri bónda. Ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til barna, barnabarna og tengdabarna og aldraðrar systur. Með hlýju í huga vil ég kveðja frænda minn, Pétur Ólafsson, með ósk um að hann sé búinn að hitta Guðrúnu sína aftur. Guðbjörg Elín Þórarinsdóttir Nú hefur bjartsýnishljómsveitin hennar Helgu leikið sitt síðasta lag. Við sem eftir sitjum getum fátt annað gert en haldið merki hennar hátt á lofti og leikið áfram á sömu nótum. Ég og litla fjölskyldan mín þökk- um Helgu fyrir samfylgdina og sendum dætrum hennar og fjöl- skyldum samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Kristín Alexíusdóttir Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Pétur Olafsson, Stóru- Tungu - Minning Minning: Ámi Bjömsson Fæddur 13. desember 1908 Dáinn 31. maí 1991 Tengdafaðir minn, Árni, er lát- inn. Hann lést í Landspítalanum eftir stutta sjúkrahúsdvöl. Að hans ósk hefur jarðarförin farið fram í kyrrþey. Árni var alla tíð hægur maður og orðvar. Aldrei féll eitt einasta styggðaryrði af vörum hans. Hann var einnig hjálpsamur mjög, þeim er til hans leituðu. Laghentur var hann, eins og sjá mátti í sveitinni fyrir norðan, þar sem hann og kona hans, Guðríður, dvöldust meira og minna undanfarin sumur. Einnig hafði Árni mikinn áhuga á skóg- rækt seinni árin og eru þær ófáar plönturnar sem farið var með í sveitina og gróðursettar þar. Afa- drengurinn Árni var yfirleitt með í sveitinni og voru þær margar stund- irnar sem þeir nafnarnir eyddu þar saman. Bjartasti tími ársins er runninn upp. Árni var farinn að huga að störfum sumarsins, hvað skyldi gróðursett og hverju þyrfti að dytta Fegrunar- átak í Bessa- staðahreppi Myndasýning hefst 17. júní UM síðustu helgi lauk miklu fegr- unarátaki í Bessastaðahreppi. Þar lögðu fram krafta sína öll félaga- samtökin í hreppnum og sveitar- stjórn. Um 70% hreppsbúa tóku þátt í þessu átaki og fylltu 70 gáma af rusli fyrir utan ótal bíl- flök og stærri hluti. Best.u þakkir eru færðar öllu þcssu fólki og óskir um að hin 30% hreppsbúa hreinsi til við byggingar sínar hið fyrsta. I samvinnu við skólastjóra og kennara Álftanesskóla var efnt til myndasamkeppni meðal skólabárna um „Hreint og fagurt umhverfi". Forseti íslands, frú Vigdís Finnboga- dóttir, afhendir verðlaun fyrir bestu myndimar 17. júní kl. 13.00 'í Iþróttahúsinu. Allar myndirnar í samkeppninni verða til sýnis í félags- heimilinu á þjóðhátíðardaginn. (Fréttatilkynning) Honda 1 Civic 3ja dyra 16 ventla Verð frá 815 þúsund. GREIÐSLU SKILMÁL AR FYRIR ALLA. WHONDA VATNAGÖRÐUM 2A, RVÍK., SÍMI 689900 að, en þá kom kallið eina sem eng- inn fær umflúið. Því skógræktarátaki sem Árni hóf er þó ekki lokið, heldur mun fjölskylda hans taka við þar sem frá var horfið. Minningin um góðan mann lifir. Jóna Kristjánsdóttir ÞETTfl El MAMMA OKKAL ...BIDDU FYRil OKKVR! HÁSKÓLABÍÓ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.