Morgunblaðið - 27.07.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27: JULÍ 1991
B 5
Yasumasa Morimura: Dóttir listasögunnar: A prinsessa; blönduð tækni, 1990.
eldur, 1989. Bakvið má sjá myndir eftii
en hann sagði að hinar myndirnar,
sem eru með dempraðri litum, væru
mun vinsælli í Japan og hofðuðu
meira til þarlendrar fagurfræði.
Það er einstakt tækifæri að fá
þessa sýningu hingað, og við hefð-
um aldrei getað lagt út í það á eig-
in spýtur. Þetta er vitaskuld lang-
stærsta sýning á japanskri nútímal-
ist sem hefur komið hingað, hún
tekur yfir allt húsið og mér finnst
hún njóta sín afskaplega vel hér.
Þessir stóru salir og hráir gangarn-
ir bjóða upp á skemmtilega umgerð
fyrir verkin.“
-1
Tomiaki Yamamoto: New York altaristafian (miðhlutinn); blönduð tækni, 1988.
í
Kaoru Hirabayashi: 51 hljóð - Kanji; akrýl og tré á striga, 1986.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sýning í
Gallerí
einny einn
s
IGallerí einn einn við Skólavörðustíg
stendur nú yfir sýning á olíumálverkum
Helga Arnar Helgasonar myndlistar-
manns. Helgi er fæddur 23. apríl árið 1960
og nam við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands á árunum 1982-1986. Hann erbúsett-
ur í Járna í Svíþjóð þar sem hann vinnur
að list sinni.
Helgi hefur haldið nokkrar einkasýning-
ar, þar á meðal í Gallerí Kretsen í Söder
Tálje árið 1990 auk þess sem hann hefur
tekið þátt í fjölda samsýninga.
- Hver eru tildrög sýningarinnar?
Þar sem ég hef búið lengi erlendis og
ekki heimsótt Island nema einu sinni á því
tímabili þá ákvað ég að reyna að koma hing-
að. Ég hef saknað landsins og nálægðarinn-
ar við hafið mikið og þá sérstaklega fjalla-
sýnarinnar því að þar sem ég bý byrgja trén
fyrir útsýnið að miklu leyti. Ég ákvað að
nota tækifærið jafnframt til þess að sýna
verk mín. Kannski er að finna í þessum
verkum mínum einhveija heimþrá.
- Á hvaða tímabili eru myndirnar unnar?
Ég byrjaði á skissubók á gamlaársdag
síðastliðinn á leið minni frá Járna til Lund-
ar. í reynd sæki ég efnivið þessara mynda
í þá bók. Myndirnar eru því allar unnar eft-
ir áramót.
- Er mikill munur á aðstöðu listamanna
í Svíþjóð og á íslandi að þínu mati?
Ja, ég held að það sé auðveldara að kom-
ast af í Svíþjóð, laun eru almennt betri og
orkan fer þá ekki eingöngu í það að vinna
fyrir salti í grautinn með einhveiju öðru en
myndlistinni.
Ég hef t.d. komið mér þannig fyrir að
ég hef ágæt laun og stuttan vinnutíma. Ég
bý á gömlu prestsetri í útjaðri Járna og þar
erum við tvær fjölskyldur sem rekum heim-
ili fyrir fimm þroskahefta karlmenn. Vinnu-
tíminn er mjög fijáls og því hef ég megnið
af tíma mínum til að sinna myndlistinni.
- Hvað heldurðu að hafi helst haft áhrif
á það að þú fórst út á myndlistarbrautina?
Ég hélt lengi vel að ég yrði sjómaður og
byrjaði snemma til sjós. Ég hafði aldrei
hugsað mér neitt annað en var þó alltaf
teiknandi.
Eftir nokkurra ára veru á sjónum þá
hætti ég og fór að vinna á Kópavogshæli.
Þar komst ég í kynni við ungan myndlistar-
skólanema sem hvatti mig til að þreyta inn-
tökupróf við Myndlista- og handíðaskóla
íslands.
Það var ekki fyrr en eftir prófið sem ég
fann að þetta var það eina sem ég gat hugs-
að mér að gera.
- Telurðu að vera þín á sjónum móti á
einhvern hátt verk þín?
Hún hefur átt stóran þátt í því að móta
mig sem manneskju og þar af leiðandi hefur
hún áhrif á allt sem ég geri.
Viðtal: Einar Örn Gunnarsson
- efi