Morgunblaðið - 31.08.1991, Blaðsíða 1
EmiESl C A Z A L
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1991 BLAÐ
A KJARVALSSTOÐUM
Frá sýningu í Liége, Belgíu, 1989.
Morgunblaðið/Einar Falur
Philippe Cazal er einn þeirra frönsku listamanna sem
hvað mestrar athygli njóta um þessar mundir. Á þessu
ári eru verk hans þannig sýnd á einum sex einkasýn-
ingum og tíu samsýningum, og ein einkasýningin opnar á
Kjarvalsstöðum í dag. Cazal er sérstakur listamaður. Viðfangs-
efni hans eru listaheimurinn og listamenn, og allt það saman-
safn of klisjum og kenjum sem þar er að finna. Með Ijósmynd-
um sínum og óritunum býður hann áhorfandanum að ganga inn
í og uppgötva heim listarinnar, á samo hátt og auglýsinga-
stofa kynnir nýjar vörur. Og hann hefur gert auglýsingatækn-
ina að viðfangsefni og leggur mikið upp úr þróun ímyndarinn-
ar; sækir í glæsileikann og lúxusinn sem má finna í lífi nútíma-
mannsins. Rétt eins og hjá málara hefðbundinna málverka er
ekkert háð tilviljun í verkum hans; uppbygging, lýsing, búning-
ar, allt skal það ganga upp, vera fágað og aðlaðandi. Með
verkum sínum, hvort sem það eru myndirnar á veggjunum,
sýningarskrár eða boðskort, leitast Cazal þó við að skapa
sérstakan heim, og verkin hafa öll áritun hans; merki sem
auglýsingastofa hannaði, og einnig vörumerkið: Listamaðurinn
í umhverfi sínu. Hann hefur valið kampavínsglasið sem fylgi-
hlut, það er tákn munaðar og hverfuls augnabliks birtunnar
(á sýningunni eru seld nokkur glös með nafni listamannsins
ágreiptu), og gyllti skrautpappírinn sem hylur tappann og
hálsinn á kampavínsflöskum er sjálfstætt tákn fyrir list hans
og það sem hann er að fást við. Sýningin á Kjarvalsstöðum
er unnin í samvinnu við fjögur listasöfn í Frakklandi sem halda
sýningar á verkum Cazals á árinu.
LISTAMAÐURINN
í UMHVERFISÍNU