Morgunblaðið - 07.09.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.09.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK 202. tbl. 79. árg. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Borís Pankín forsætisráðherra Sovétríkjanna: Eystrasaltsríkin tilheyra Sovétríkjunum ekki lengur Litháískur varðliði við varn- argirðingar fyrir utan þing- húsið í Vilnius, höfuðborg Litháens, fagnar fréttinni um viðurkenningu Sovétríkj- anna á sjálfstæði Eystrasalts- ríkjanna. Víggirðingar við þinghúsið hafa ekki enn ver- ið rifnar en þær voru reistar eftir aðgerðir sovéskra her- sveita í borginni í janúar sl. „VIÐ höfum mikinn hug á samvinnu við Sovétríkin en ekki með því að gerast aðilar að einhvers konar efnahagsbandalagi, eins og hugmyndin er að koma á laggirnar. Þetta er of náin samvinna að mínu áliti, auk þess held ég að hún yrði ekki til bóta þegar upp væri staðið. Við viljum taka upp venjuleg samskipti á viðskiptasvið- inu en höfnum því að þau séu bundin einhveijum pólitískum bræð- ingi,“ sagði Ramunas Bogdanas, talsmaður Vytautas Landsbergis Litháensforseta, í samtali við Morgunblaðið í gær eftir viðurkenn- ingu sovéska ríkisráðsins á sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Ráðið samþykkti einróma að viðurkenna sjálfstæði ríkjanna er það kom saman til síns fyrsta fundar í gær, að sögn Reuíers-fréttastofunn- ar. „Við höfum viðurkennt sjálfstæði þeirra. Eystrasaltsríkin til- heyra Sovétríkjunum ekki lengur," sagði Borís Pankín, forsætisráð- herra Sovétríkjanna, á blaðamannafundi eftir ríkisráðsfundinn. Með hinni sögulegu ákvörðun ríkisráðsins er lokið tveggja ára tilraunum Eystrasaltsríkjanna til að losna undan valdi Moskvustjórn- arinnar, en þau voru innlimuð í Sovétríkin árið 1940. Ákvörðunin er jafnframt óyggjandi sönnun þess að sovéska sambandsríkið, sem kommúnistaleiðtogar sögðu einatt að væri eilíft, sé að gliðna í sundur. Forsetar Eistlands, Lettlands og Litháens lýstu gleði sinni yfir ákvörðun ríkisráðsins og Anatolijs Gorbunovs, forseti Lettlands, sagði að réttlætið hefði sigrað. „Það er verið að skila fólkinu því sem það á, en var frá því tekið,“ sagði Gorb- unovs. Edgar Savisaar, forsætis- ráðherra Eistlands, sat ríkisráðs- fundinn og sagði Míkhaíl Gorb- atsjov Sovétforseta hafa óskað honum og eistnesku þjóðinni til hamingju með sjálfstæðið og vel- farnaðar. „Við erum reiðubúnir að gera samninga um viðskipti og hvað sem er við Sovétríkin, Rússland, Ukra- ínu, Kazakhstan eða önnur lýðveldi að því tilskyldu að þeir séu á grund- velli jafnréttis en við ætlum ekki að stökkva aftur inn í gamla fá- tækrahverfið. Við viljum viðskipti jafnt við ríki í austri sem vestri, vonumst til að geta orðið brú milli þessara hluta álfunnar. Sovétríkin er stór markaður og þau ráða yfir miklum náttúruauðæfum. Við vilj- um nýta okkur vestræna tækni og ódýrt vinnuafl, í Litháen, kaupa hráefni austan að og selja unna vöru á Vesturlöndum og einnig austur á bóginn. Aðild okkar að áðurnefndu efnahagsbandalagi myndi aðeins verða okkur fjötur um fót í þessari viðleitni,“ sagði Bogdanas. Unnið er að því í Eystrasaltsríkj- unum að leysa upp starfsemi ör- yggislögreglunnar KGB og víkingasveitir sovéska innanríkis- ráðuneytisins, svokallaðar svart- húfusveitir. Heimamenn hafa tekið tollgæslu í sínar hendur en fyrst um sinn verður landamæravarsla í höndum sameiginlegra sveita ríkjanna þriggja og Sovétríkjanna. Janis Dinevics, leiðtogi meiri- hlutans á lettneska þinginu, sagði í gær, að Lettar myndu neita að greiða Moskvustjórninni bætur fyr- ir sovéskar eigur í Lettlandi ef slíkar kröfur kæmu fram. „Við munum setja fram gagnkröfur og það er auðvelt að sýna fram á að það er sovétstjórnin sem skuldar Lettum en ekki öfugt,“ sagði Dinevics. Sovéskt blað sagði frá því í gær að Gorbatsjov og Borís Jeltsín, Rússlandsforseti, hefðu gert með sér samkomulag um að leggja nið- ur þá hefð kommúnista að efna til hersýninga á tyllidögum. Bandarískir sérfræðingar skýrðu Bandaríkjaþingi frá því í gær að Sovétmenn þyrftu á að halda a.m.k. tveggja milljarða dollara matvæla- og lyfjaaðstoð til þess að komast hjá matvælaskorti í vetur. Sjá „Ætlum ekki að stökkva aftur inn í gamla fátækra- hverfið" á bls. 23. Reuter Reuter Mótmæla kommúnisma íRúmeníu Þúsundir manna efndu til mótmæla í miðborg Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, í gær og kröfðust þess að starfsemi kommúnista yrði bönn- uð og kommúnistaleiðtogar sóttir til saka fyrir glæpi gegn þjóðinni á 40 ára valdatíma kommúnistaflokks landsins. Bush vill fresta lánafyrirgreiðslu til ísraela: Tefhim ekki friðar- möguleika í tvísýnu Washington. Reuter. GEORGE Bush, Bandaríkjaforseti, fór þess á leit við fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær, að dcildin frestaði um fjóra mánuði umræð- um um beiðni ísraela um 10 milljarða dollara lánafyrirgreiðslu. Forsetinn sagði það nauðsynlegt til þess að spilla ekki möguleikum á að koma í kring friðarráðstefnu fyrir Miðausturlönd. Bush sagði að ekki væri hægt að taka þá áhættu að eyðileggja þann árangur sem náðst hefði í tilraunum Bandaríkjamanna til þess að koma friðarráðstefnu fyrir Miðausturlöndum í kring. „Það er í þágu heimsfriðarins að fresta afgreiðslu málsins," sagði Bush. ísraelar hugðust fá 10 milljarða dollara aðstoð í formi ábyrgða til þess að byggja yfir um milljón sovéskra gyðinga sem búist er við að flytji til ísraels á næstu fimm árum. Vestrænir diplómatar og stjórn- málaskýrendur sögðu að búast mætti við hörðum deilum milli Bandaríkjastjórnar og stuðnings- manna ísraela á þingi vegna beiðni Bush. Forsetinn hefði í raun og veru hleypt af fyrsta skoti í deilum sem ættu eftir að verða illskeyttar. ísraelskir embættismenn og leiðtogar tóku fregninni um af- stöðu Bush illa og gagnrýndu for- setann harðlega fyrir tilraunir til að knýja ísraela til undirgefni í friðarumleitunum með því að veifa framan í þá nokkurs konar lausn- argjaldi sem þeir fengju ef þeir kyngdu sjónarmiðum Bandaríkja- stjórnar í friðarviðræðunum. Leníngrad verður Sanktí Pétursborg Moskvu. Reuter. Forsætisnefnd Æðsta ráðs Rússlands ákvað í gær að Leníngrad skyldi hér eftir nefnd Sankti Pétursborg að nýju. Rússneska byltingin hófst í borg- inni árið 1917 og var hún nefnd eftir Vladímír Lenín árið 1924. íbú- ar hennar samþykktu hins vegar í atkvæðagreiðslu fyrr á árinu að taka upp nafnið Sankti Pétursborg á ný. Nafnbreytingin var háð sam- þykki rússneskra stjórnvalda og tekur nú þegar gildi, samkvæmt rússnesku fréttastofunni Interfax.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.