Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 206. tbl. 79. árg. FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Israelar láta arabíska fanga lausa: Auknar líkur á að gíslamálið leysist Reuter Einn af líbönsku föngunum, sem ísraelar létu lausa í gær, faðmar móður sína er hann kom til Beirút eftir fimm ára fangelsisvist. Rosh Hanikra, Marjayoun, Beirút. Reuter. ÍSRAELAR létu í gær 51 arabískan fanga lausan og sögðust vona að það auðveldaði Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna, að finna lausn á gíslamálinu. Hussein Musawi, hátt- settur leiðtogi íslömsku samtakanna Hizbollah, sagði að hann bygg- ist við að íslamskir heittrúarmenn, sem hafa vestræna gísia í haldi, myndu bregðast við þessu með því að láta einhverja þeirra lausa. „Ég býst við að fleiri fangar | fanga sinna lausa þangað til allir verði látnir lausir,“ sagði hann, væru fijálsir. en kvaðst ekki vita hvenær, þótt Perez de Cuellar fagnaði þess- líklegt væri að það yrði fljótlega. um tíðindum og sagði að samn- Hann sagðist telja að aðilarnir ingaumleitunum yrði nú haldið myndu skiptast á að láta hluta | áfram af enn meiri krafti en áður. Gorbatsjov vill ílytj a sov- éska hermenn frá Kúbu Moskvu. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, sagði í gær að Sovétmenn myndu bráðlega hefja viðræður um brottflutn- ing 11.000 sovéskra hermanna frá Kúbu. Forsetinn sagði þetta er hann ræddi við James Baker, utanrikis- ráðherra Bandaríkjanna, æðsta bandaríska embættismanninn sem hefur heimsótt Moskvu frá valda- ránstilraun sovéskra harðlínu- kommúnista í ágúst. Þessi yfirlýsing er áfall fyrir kommúnistastjórn Fídels Kastrós á Kúbu. Sovétmenn hafa þegar dregið úr efnahagsaðstoð sinni við Kúbveija en hún hafði skipt þá verulegu máli. Viðræður Gorbatsjovs og Bak- SAS: Launalækkun eða uppsagnir Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, frétlaritara Morgunblaðsins. STJÓRNENDUR SAS-flugfé- lagsins hafa gefið flugmönnum félagsins kost á því að velja milli 22% launalækkunar eða fjölda- uppsagna, því taki þeir ekki fyrri kostinum neyðist félagið til að leggja niður ferðir á ýmsum áætlunarleiðum, að sögn Berl- ingske Tidende. Launalækkun flugmanna á að spara SAS 310 milljónir danskra króna, jafnvirði 2,8 milljarða ÍSK, á ári. Fulltrúar flugmanna SAS hafa verið boðaðir til fundar í Stokkhóimi á mánudag þar sem ætlunin er að kynna þeim kröfur félagsins um launalækkun. ers virtust hafa verið sérlega vin- samlegar. Þeir skiptust á gjöfum að þeim loknum og Sovétforsetinn þakkaði Baker fyrir stuðning Bandaríkjastjórnar við sig þá þijá daga sem valdaránstilraunin stóð. Bandaríski utanríkisráðherrann þakkaði honum yfirlýsinguna um Kúbu, enda hafði vera sovéskra hermanna þar valdið úlfúð milli Bandaríkjamanna og Sovétmanna í þijá áratugi. Baker ræddi við Gorbatsjov á meðan hlé var gert á fundi Ráð- stefnunnar um öryggi og sam- vinnu í Evrópu (RÓSE), þar sem Sovétforsetinn notaði tækifærið til að biðja um efnahagsaðstoð við Sovétmenn. Bandaríkjastjórn hef- ur sagt að af hennar hálfu sé efna- hagsaðstoð meðal annars háð því hvort Sovétmenn séu reiðubúnir að ijúfa efnahags- og hernaðarleg tengsl sín við Kúbu. Um tíu vestrænir gíslar eru nú í Libanon, en fyrir um það bil mánuði var tveimur sleppt, Breta og Bandaríkjamanni. Þá kröfðust mannræningjamir þess að ísraelar tækju næsta skref og slepptu hluta þeirra araba, sem eru í haldi í ísra- el, en talið er að þeir séu enn yfir 300. ísraelar kröfðust þess á móti að fá vitneskju um afdrif sjö ísra- elskra hemianna, sem hurfu í Líbanon, og í gær tilkynnti varnar- málaráðuneyti ísraels að því hefðu borist upplýsingar um tvo þeirra. Sagt var að annar hefði fallið fyr- ir fimm áram, en ráðuneytið vildi ekki gefa upp hvort hinn væri lífs eða liðinn. Talið er að a.m.k. einn hinna fimm, sem saknað er, sé á lífí. Fimm konur voru á meðal fang- anna sem látnir voru lausir í gær. Farið var með þau til stöðva sviss- neska Rauða krossins í Marjayoun, sem er _ á svokölluðu „hlutlausu svæði“ ísraela í Líbanon. Þaðan fóra 29 í bílum Rauða krossins til Líbanons, en hinir, sem eru búsett- ir á hlutlausa svæðinu, sneru til síns heima. ísraelar afhentu einnig Rauða krossinum lík níu líbanskra skæru- liða, sem féllu í átökum við ísra- elska herinn. Endurminningar Raísu Gorbatsjovu: Reykjavíkurfundurinn grund- völlur að gagnkvæmum skilningi Stokkhólmi. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, biaðamanni Morgunblaðsins. RAÍSA Gorbatsjova, eiginkona Mikhaíls Gorbatsjovs, forseta Sov- étríkjanna, segir í endurminningum sínum, sem komu út í Svíþjóð fyrir skemmstu að ef leiðtogafundurinn í Reykjavík hefði ekki verið haldinn hefði ekki heldur orðið af hinum leiðtogafundun- um, sem síðar komu, og engir samningar hefðu verið gerðir um eyðingu meðaldrægra kjarnorkueldflauga. í endurminningum sínum, sein eru í samtalsformi og bera heitið „Ég vona“, segir Raísa frá æskuárum sínum í Síberíu, námsárum og lífinu með Míkhaíi Gorbatsjov í fjörutíu ár. Fundirnir, sem urðu svo miklu uppbyggilegri og árangursríkari en sá í Genf, hefðu ekki verið haldnir. Það hefði ekki verið gerð- ur neinn samningur um eyðingu meðaldrægra eldflauga. Og ekki náðst sá sjaldgæfi, gagnkvæmi, mannlegi skilningur og það bræðralag milli sovésku og banda- rísku þjóðanna sem sást svo greinilega í desember 1987 í Washington, í New York 1988 og Washington, Minnesota, og San Francisco 1990. Bræðralagí nafni friðar og vináttu." Gorbatsjova víkur einnig stutt- Raísa Gorbatsjova segir að eft- ir leiðtogafundinn í Genf í nóv- ember 1985 hafi verið tekin upp á ný vísindaleg, menningarleg og efnahagsleg samskipti milli stór- veldanna. „Síðan kom október 1986, ísland, Reykjavík. Hve mik- ið er ekki búið að skrifa um þenn- an sovésk-bandaríska leiðtoga- fund og spennuna í kringum hann! Já, við fengum svo sannarlega að upplifa hana, en við minnumst og gerum okkur grein fyrir mikilvægi þess fundar — án hans hefðu fundimir í Washington 1987 eða Moskvu 1988 ekki komið tij. Vinur Gorbatsjov-þjónanna, Júríj Andropov, tekur mynd af þeim á ferðalagi. lega að samskiptum sínum við Nancy Reagan, eiginkonu Ron- alds Reagans Bandaríkjaforseta, sem misjafnar sögur fóru af. Seg- ir hún skort á samræmingu nokk- urra prótókollsreglna vera orsök þeirra sögusagna sem mátti fínna í bandarískum fjölmiðlum af ágreiningi milli hennar og Nancy. „Eg tók þessar vangaveltur ekki alvarlega og geri það ekki heldur núna,“ segir Raísa Gorbatsjova.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.