Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991 19 Fjárhagsstaða Hitaveitu Reykjavíkur rædd í borgarráði: Fullyrðingu um að draga verði úr framkvæmdum mótmælt Lagt til að kjömir fulltrúar skipi bygginganefndir stórra framkvæmda LÖGÐ hefur verið fram í borgarráði útskrift úr gerðabók stjórnar veitustofnana, þar sem greint er frá fjárhagsstöðu Hitaveitu Reykjavíkur. Þar leggur Gunnar Kristinsson hitaveitustjóri til, að heimiluð verði 450 milljóna króna lántaka til greiðslu skulda og að það lán verði endurgreitt á tveimur árum. I bókun Sigrúnar Magnús- dóttur á fundi borgarráðs s.l. þriðjudag kemur fram að þrátt fyrir lántöku verði að draga úr framkvæmdum Hitaveitunnar. í bókun borgarráðsmanna Sjálfstæðismanna er þeirri fullyrðingu mótmælt. Þá lagði Katrín Fjeldsted fram tillögu um að bygginganefndir verði skipaðar kjörnum fulltrúum þegar um stórar framkvæmdir á vegum borgarinnar er að ræða. I bókun Sigrúnar Magnúsdóttur segir: „Fjárhagsstaða hjá þessu öfluga fyrirtæki borgarbúa hefur breyst mikið síðasta ár. Þrátt fyrir 450 milljón króna lántöku núna verður að draga saman allar fram- kvæmdir, viðhald og endurnýjun lagna. Hin dýra bygging, Perlan, er því mikill baggi á Hitaveitunni. Onákvæmni hönnuða og ráðgjafa varðandi fjárhagsáætlun er ámælis- verð, sérstaklega keyrði úr hófi núna við lokaáfanga hússins.“ í sameiginlegri bókun Kristínar Á. Ólafsdóttur og Elínar G. Ólafs- dóttur segir: „Svo virðist sem ekki verði hjá lántöku Hitaveitu Reykjavíkur komist ef gæta á ör- yggis dreifikerfisins með því að ljúka stórum áfanga Suðuræðar-á næsta ári. Hitt er svo augljóst að þörfin fyrir þessa lántöku er til orð- in vegna ótrúlegs klúðurs og ábyrgðarleysis þeirra aðila sem tóku ákvarðanir um framkvæmdir við „Perluna" án nokkurs tillits til samþykktar áætlana sem fyrir lágu. Eftirlit æðstu embættismanna Hita- veitunnar og Reykjavíkurborgar virðist gjörsamlega hafa brugðist í þessu tilfelli þar til nýr borgarstjóri tók í taumana. Við hörmum að þetta makalausa klúður skuli kosta fyrir- tæki Reykvíkinga, HR, lántöku- kostnað til viðbótar gífurlega háum byggingarkostnaði „Perlunnar".“ I bókun borgarráðsmanna Sjálf- stæðisflokksins vegna þessa máls kemur þetta fram: „Samkvæmt framkvæmdaáætlun HR 1992 til 1995, sem lögð var fyrir borgarráð í dag, er gert ráð fyrir framkvæmd- FLEXON VESTUR-ÞYSKUR HÁGÆÐA DRIFBÚNAÐUR FLUTNINGSKEÐJUR Allar stœrðir Hagstœtt verð Vlð veitum þér allar tœknilegar upplýsingar LANDSSMIÐJAN HF. Verslun: Sölvhólsgötu 13 SIMI (91) 20680- FAX (91) 19199 um við veitukerfi Hitaveitunnar fyrir 740 milljónir á næsta ári, sem er 38% aukning frá þessu ári. Þá er gert ráð fyrir verulega auknum framkvæmdum og endurnýjun við veitukerfíð á næstu árum, enda er fjárhagsstaða Hitaveitunnar mjög traust þó taka þurfi nú lán til að- eins skamms tíma vegna sérstakra framkvæmda að undanförnu. Sú staðhæfing í bókun S.M. að draga verði saman allar framkvæmdir hjá fyrirtækinu vegna lélegrar fjár- hagsstöðu er því ekki sannleikanum samkvæm.“ í tillögu Katrínar Fjeldsted um að kjörnir fulltrúar skipi bygginga- nefndir þegar um stórar fram- kvæmdir á vegum borgarinnar er að ræða, er bent á að þannig sé staðið að málum við byggingar fyr- ir aldraða og hafi gefið góða raun. Afgreiðslu tillögunnar var frestað. Skrifstofutækni Fyrir aðeins kr. 5.000" á mánuði. Námið kemur að góðum notum í atvinnuleit. Einungis eru kenndar námsgreinar sem nýtast þegar út á vinnumarkaðinn er komið. Til dœmis: Bókfærsla Tölvubókhald Ritvinnsla Tollskýrslugerð Verslunarreikningur Verðið miðast við skuldabréf til tveggja ára. ^ Tölvuskóli Islands Sími: 67 14 66, opið til kl. 22 SERUTGAFA TAKMARKAÐUR FJÖLDI □ Stuðarar, vatnskassahlíf, hliðarlistar, hurðahandföng og útispeglar, allt í sama lit og yfirbyggingin □ Heilir hjólkoppar □ Rafstýrðir og rafhltaðir útispeglar □ Vindkljúfur á framstuðara □ Sætaáklæði / gólfteppi - ný gerð □ Vindkljúfur að aftan (Lancer stallbakur og Colt) □ Sportstýrishjól A MITSUBISHI MOTORS A MITSUBISHI MOTORS MITSUBISHI C0LT-EXE MITSUBISHI LANCEB stallbakur-EXE MITSUBISHI LAMCER hlaðbakur-EXE ALLIR MED 12 VENTLA HREYFIL MEÐ FJÖLINNSPRAUTUN ALLIR MEÐ AFLSTÝRI - ALLIR MED HVARFAKÚT ÞRIGGJA ÁRA ÁDYRGD HVARFAKÚTUR MINNI MENGUN m HEKLA LAUGAVEGI 174 SÍMI 695500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.