Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 1
112 SIÐUR B/C/D 209. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS VÆNGJAÞYTUR Morgunblaðið/RAX Carl Bildt, formaður Hægriflokksins í Svíþjóð; Mumim verða við völd allan tíunda áratuginn ^ Stokkhólmi. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. ÁTTA HUNDRUÐ þúsund sænskir kjósendur voru ekki enn búnir að gera upp hug sinn um hvað þeir ætluðu að kjósa síðustu dagana fyrir kosningar. Almennt er gert ráð fyrir því að jafnaðarmenn bíði ósigur og hljóti minna en 40% atkvæða í fyrsta skipti siðan 1928. Þrátt fyrir það gæti orðið mjótt á mununum, ekki síst vegna þess að tveir flokkar sem ekki hafa átt þingmenn áður gætu nú komið mönn- um að. Svíar reka fyrr- um KGB-mann á Islandi burt Stokkhólmi. Frá Steingrími Sigurgeirs- syni, blaðamanni Morgunblaðsins/ ÍGOR Leonídovítsj Níkíforov, yfirmað- ur sovésku leyniþjónustunnar (KGB) í Svíþjóð, sem vísað var úr landi á dögun- um, starfaði sem yfirmaður KGB á Is- landi á árunum 1979-84 áður en hann tók við stöðunni í Svíþjóð, að þvi er sænska blaðið Svenska Dagbladet skýrði frá í gær. Að sögn Svenska Dagbladet kom Níkíforov aftur til íslands í tengslum við leiðtogafundinn í Reykjavík í októ- ber 1986. Hann er sagður vera ábyrgur fyrir umfangsmikilli njósnastarfsemi Sovétmanna í Svíþjóð í lok síðasta ára- tugar og m.a. séð um iðnaðarnjósnir á sviði hátækni og fengið menn á mála hjá KGB. Sagt er að sænska utanríkis- ráðuneytið hafi samþykkt að Níkíforov hæfi störf í Stokkhólmi gegn ráðlegg- ingum öryggislögreglunnar. Áður hefðu Ástralir neitað að hann hæfi störf þar í landi. Sænska utanríkisráðuneytið til- kynnti fyrr í vikunni að ónafngreindum sovéskum sendiráðsmanni hefði verið vísað úr landi. Ástæðuna fyrir því að nafn hans hefði ekki verið gefið upp fyrr en nú segir Svenska Dagbladet tengjast heimsókn Stens Anderssons utanríkisráðherra til Moskvu í vikunni. Þar hitti hann m.a. Borís Pankín, ný- skipaðan utanríkisráðherra Sovétrílý'- anna, sem var sendiherra í Stokkhólmi þegar Níkíforov hóf þar störf. * Arangursrík bar- átta gegn áreitni KONA, sem hafði sagt af sér embætti prófessors í taugaskurðlækningum við Stanfprd-læknaskólann í Kaliforníu vegna kynferðislegrar áreitni starfs- bræðra sinna, hefur dregið afsögnina til baka þar sem gerðar hafa verið ráðstafanir til að bæta samskipti kypj- anna á vinnustaðnum. Konan er fimm- tug og hefur starfað við skólann í 25 ár. Hún lagði fram afsagnarbréf í maí og sagði að starfsbræður sínir hefðu komið fram við hana á niðurlægjandi hátt og nokkrir áreitt hana kynferðis- lega. Hún kvaðst hafa fengið sig fullsadda á því að vera kölluð „elskan“ í tíma og ótíma í stað þess að vera nefnd sínu rétta nafni, auk þess sem þeir væru sífellt að gefa henni undir fótinn í þeim tilgangi einum að niður- lægja hana. Henni fannst þó mælirinn fullur er stjórnendur skólans tilnefndu karlmann, þekktan fyrir að sniðganga konur og niðurlægja þær á vinnustaðn- um, sem yfirmann skurðlækningadeild- arinnar. Tilnefningin var dregin til baka og hún hætti við að hætta. Átta flokksformenn, auk Monu Sahlin vinnumálaráðherra, tóku þátt í rúmlega þriggja klukkustunda löngum umræðuþætti í sænska sjónvarpinu á föstudagskvöld. Fram að því höfðu aldrei fleiri en fimm tek- ið þátt í slíkum umræðum. Hinn mikli fjöldi þátttakenda, auk hins takmarkaða ræðu- tíma, gerði það að verkum að flokksfor- mennirnir áttu mjög erfitt með að koma af stað umræðu öðru vísi en í símskeytastíl. Mestur tími fór í umræður um umhverf- is-, fjölskyldu- og atvinnumál. „Við erum í miðri verstu atvinnuleysiskreppu í sögu Svíþjóðar," sagði Carl Bildt, formaður Hægriflokksins, en það að jafnaðarmönnum hefur ekki tekist að ná tökum á efnahags- málum hefur ekki hvað síst leitt til fallandi gengis þeirra. Ingvar Carlsson, formaður Jafnaðarmannaflokksins og forsætisráð- herra, ságði enga þörf á róttækum breyting- um til að koma málum í betra horf, líkt og borgaraflokkarnir leggja til. „Efnahagslífíð er á réttri leið,“ sagði Carlsson. Líklegt er að óákveðnir kjósendur eigi ekki auðveldara með að gera upp hug sinn eftir umræðurnar. Enginn einn þátttakandi skaraði ótvírætt framúr, en athygli vakti hve hin unga Sahlin skyggði á formann Jafnaðarmannaflokksins. Formaður Hægriflokksins virtist afslapp- aður og í góðu skapi daginn fyrir kosning- ar. Hann ræddi við blaðamenn í hádeginu og lagði mesta áherslu á að endurvekja yrði traust manna á því að fjárfesta í Svíþjóð. Einungis þannig væri hægt að koma aftur á hagvexti og skapa ný atvinnutæki- færi. „Jafnaðarmenn reyna að mála mjög fallega mynd af ástandinu. Hún er hins vegar fölsk. Það er raunar einstakt hve illa hefur árað í Svíþjóð undanfarið ár. Þessu verður að breyta en það verður erfitt ástand í einhvern tíma,“ sagði Bildt. Hann taldi að ef borgaraflokkamir kæm- ust til valda myndu þeim nægja þijú ár til að sýna að þeir væru á réttri leið í efnahags- málum. Það myndi samt taka nokkur kjörtímabil að ná stefnumálum þeirra fram í heild sinni. „En við munum verða við völd allan tíunda áratuginn," sagði formaður Hægriflokksins sigurviss. Sjá grein á bls. 14 og 15. LdGM&L io FRIIMSKfiGARINS MAKIDOHIA STUNIR í SJÁLfSTJEfH DROS 0G MEYJA HHHHI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.