Morgunblaðið - 28.09.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.09.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBÓK 220. tbl. 79. árg. LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Bush Bandaríkjaforseti segir einstætt tækifæri vera tii afvopnunar vegna hruns kommúnismans: Boðar mestu fækkun banda- rískra kjamavopna til þessa Allar stýriflaugar Bandaríkjamanna á hafi fjarlægðar - Ollum skammdrægum kjarnorkuvopnum Bandaríkja- manna sem skjóta má af landi eytt - Hætt við áætlanir um MX-kjarnorkuflaugar á járnbrautarvögnum - Vill við- ræður um upprætingu allra langdrægra fjölodda flauga Washinjfton. Reuter, Daily Telegraph. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti flutti ávarp til þjóðar sinnar í nótt og boðaði viðtæka, einhliða fækkun á sumum sviðum kjarnorkuvigbún- aðar Bandaríkjamanna, á öðrum sviðum lagði hann til að samið yrði um gagnkvæma fækkun í vopnabúrum risaveldanna. Bush ræddi um hrun kommúnismans í Sovétríkjunum. „Nú er einstætt tækifæri til að breyta stefnu Bandaríkjanna og Sovétrílyanna í kjarnorkuvörnum," sagði hann. Forsetinn vill að samið verði sem fyrst um upprætingu langdrægra flauga sem borið geta fleiri en einn kjarnaodd. Hann sagði að Bandaríkin myndu hætta einhliða við áætlun um að koma 50 lang- drægum kjarnorkuflaugum af MX-gerð fyrir á járnbrautarvögnum en Sovétmenn ráða þegar yfir hundruðum slíkra vopna. Einnig yrðu allar stýriflaugar Bandaríkjamanna í kafbátum og ofansjávarherskipum fjar- lægð. _Bandarikin eiga um 400 stýriflaugar á skipum en Sovétríkin um 250. Ollum skammdrægum vopnum á skipum og þeim sem skjóta má af landi verður eytt eða þau tekin úr notkun og skoraði Bush á Sovét- menn að gera slíkt hið sama. Forsetinn sagði að langdrægar sprengjuflugvélar sem bera kjarn- orkuvopn yrðu ekki lengur í við- bragðsstöðu eins og verið hefur und- anfarin 24 ár. Háttsettur embættis- maður Bandaríkjastjómar sagði að þótt byqað yrði strax á þeim einhliða fækkunum sem Bush boðaði yrði hægt að taka sumar ákvarðanirnar aftur ef Sovétmenn svöruðu ekki í sömu mynt. Bush lagði til að viðræður hæfust milli Bandaríkjamanna og Sovét- Reuter Mongólar fagnaDalai Lama Dalai Lama, trúarleiðtogi búdd- ista sem hefur verið gerður útlægur úr heimalandi sínu, Tíbet, kom í opinbera heimsókn til Mongólíu í gær. Þetta er fyrsta heimsókn hans til lands- ins, en Mongólar hafa nánast tekið hann í guðatölu og hafa hann engu síður í hávegum en trúbræður þeirra í Tíbet. manna um samstarf á sviði stjórnun- ar kjamorkuvama, einnig um eftirlit með öryggi kjamaodda ásamt könn- un á aðferðum við geymslu, flutninga og eyðingu kjarnavopna. Um fækkun kjamavopna á höfunum sagði Bush: „Það sem máli skiptir er að undir venjulegum kringumstæðum verða engin skammdræg kjarnavopn um borð í skipum okkar.“ Forsetinn sagði að hraðað yrði framkvæmd START-samningsins þegar hann tæki gildi og Bandaríkjamenn myndu þegar gera óvirkar allar langdrægar flaugar á landi er samningurinn kvað á um en samkvæmt honum skyldi það gert á sjö árum. Jafnframt sagð- ist Bush hafa fyrirskipað að hætt yrði við að endurnýja skammdrægar árásarflaugar um borð í langdrægu sprengjuvélunum. Hann tók fram að áfram yrði tryggt að NATO réði yfir fullnægjandi kjarnorkuvopnum um borð í flugvélum í Evrópu. Bush sagðist hafa rætt tillögur sínar í gær við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta og Borís Jeltsín, forseta Rússlands, og hefðu viðbrögð þeirra verið jákvæð og lofað góðu. Leiðtog- ar vestrænna ríkja fögnuðu ræðu Bush í gær er efni hennar spurðist. „Frumkvæði Bush er upphafið að raunverulegum þáttaskilum í tak- mörkun kjarnorkuvígbúnaðar," sagði Francois Mitterrand Frakklandsfor- seti. Haft var eftir John Major, for- sætisráðherra Bretlands, sem Bush hefur haft samráð við um tillögur sínar, að þær lýstu „hugkvæmni." Embættismenn í Hvíta húsinu sögðu að Bush vænti þess að Sovét- menn kæmu til móts við Bandaríkin og eyddu SS-24 eldflaugum sínum sem staðsettar eru á járnbrautar- vögnum. í ákvæðum væntanlegs START-samnings risaveldanna um fækkun langdrægra kjarorkuvopna, sem Bush og Gorbatsjov staðfestu til bráðabirgða í júlí sl. og vonast er til að undirritaður verði á næst- unni, er gert ráð fyrir að Bandaríkin og Sovétríkin fækki langdrægum vopnum um rúmlega 20%. Saman- lagt eiga ríkin um 22.000 vopn af slíku tagi. Ágreiningur vegna útgjalda til hermála hefur farið vaxandi í Banda- ríkjunum síðustu vikur. Öldungadeiid þingsins samþykkti á fímmtudags- kvöld að hafna beiðni stjómvalda um 225 milljón dollara (13 milljarða ÍSK) fjárveitingu til að þróa áætlunina um að koma 50 MX-flaugum, er borið geta tíu kjarnaodda hver og hægt að beina að jafnmörgum skotmörk- um, fyrir á jámbrautarvögnum. Þingmenn hafa einnig lengi deilt um það hvort kaupa skuli nýjar 75 B-2 sprengjuþotur er kosta 850 milljónir dollara (fimm milljarða ÍSK) hver vél. Annað deiluefni hefur verið smíði nýrrar gerðar árásarkafbáta af Sea- wolf-gerð. Framlög til B-2 sprengju- vélarinnar og hönnunar varnarkerfís gegn eldflaugum, sem byggist að nokkru á Geimvamaáætluninni svo- nefndu, sluppu naumlega í gegnum þingið. Sjá viðtal við Davíð Oddsson forsætisráðherra á baksíðu. Keuter George Bush, forseti Bandaríkjanna, á fundi með ráðgjöfum sínum í gær. Hann sagði þeim að hann myndi skýra þjóðinni frá víðtækum afvopnunartillögum í sjónvarpsávarpi sínu síðar um daginn. Átökin í Rúmeníu: Iliescu hvattur til að láta af forsetaembætti Búkarest. Reuter, Daily Telegraph. MIRON Cosma, leiðtogi rúmenskra kolanámumanna, skipaði í gær mönnum sínum að halda aftur til miðborgar Búkarest eftir að til átaka kom miili öryggisvarða og mótmælenda, þ.á m. nokkur hundr- uð námamanna, fyrir utan forsetahöllina. Þúsundir námamanna höfðu þegar lagt af stað til heimila sinna i Jiu-dalnum í vesturhluta landsins er Cosma sagði þeim að snúa við. „Námamennirnir fara ekki frá Búkarest fyrr en við komust að því hvað gerðist í raun,“ sagði Cosma. Sumir leiðtogar stjórnarandstöðunnar vilja að Ion Ili- escu forseti segir af sér eins og Petre Roman forsætisráðherra hef- ur þegar gert. Roman sendi frá sér yfírlýsingu í gær og hrósaði þar hernum fyrir að „vernda stofnanir ríkisins“ fyrir óróaseggjum. Þúsundir náma- manna, sem komu til Búkarest fyrr í vikunni, þröngvuðu á fimmtudag stjóm Romans til að segja af sér. Kröfðust þeir síðan að Ilieseu for- seti segði einnig af sér. Iliescu og Cosma áttu saman fund í gær þar sem forsetinn lofaði að laun yrðu hækkuð og vinnuaðstaða bætt. Einnig sagðist hann ætla að heim- sækja námamennina. sjálfur á mánudaginn. Um þtjú þúsund námamenn höfðust við í kringum forsetahöllina á meðan fundurinn stóð en að hon- um loknum skipaði leiðtogi þeirra þeim að halda heim á leið. Nokkur hundruð námamenn voru samt enn eftir er um fimm þúsund manna fylking verkamanna frá Búkarest, sem safnað hafði verið saman af verkalýðsfélögum, kom til forseta- hallarinnar. Hentu nokkrir úr hópn- um bensínsprengjum og steinum yfir múrinn sem umlykur forseta- höllina. Sveitir öryggislögreglu og hermanna réðust tH atlögu við mót- mælendurna með táragasi og kylf- um og hröktu mannfjöldann á burt. Verkalýðsfélög í borginni Timiso- ara, þar sem desemberbyltingin hófst 1989, efndu til útifunda þar sem lýst var stuðningi við náma- menn. Doina Cornea, einn þekktasti andófsmaður Rúmeníu á valdatíma Nicolae Ceausescus einræðisherra, hvatti í gær til allsheijarverkfalls til að steypa stjórn Endurreisnar- ráðsins er tók völdin þegar Ceau- sescu var hrakinn frá völdum og tekinn af lífi ásamt eiginkonu sinni. Cornea, sem sætti ofsóknum Ceauc- escu, lét ummæli þessa efnis falla í sjónvarpsviðtali. Hún sagði að upplausnarástandið í landinu væri fyrst og fremst Iliescu að kenna. Framkvæmdastjórn Endurreisnar- ráðsins hefur hvatt til að haldnar verði kosningar undir eins til að hægt verði að ná tökum á ástand- inu. Hafa nokkrir stjórnarandstöðu- hópar tekið undir þessi sjónarmið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.