Morgunblaðið - 05.10.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.10.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991 23 Bréfaskipti málnefndar og út- varpssljóra vegna textavarps HÉR á eftir fara bréfaskipti íslenzkrar málnefndar og útvarps- stjóra vegna textavarps. Komið hefur í Ijós að fæst sjónvarpsvið- tæki landsmanna eru búin til þess að taka við íslenzku texta- varpi, þannig að séríslenzkir stafir birtast brenglaðir á mörgum sjónvarpsskjám. II Bréf Islénskrar málnefndar frá 25. september er svohljóðandi: „Til útvarpsstjóra og útvarps- ráðs. Stjórn íslenskrar málnefndar hefur á fundi sínum í dag gert svohljóðandi athugasemd við fyrir- hugað textavarp Ríkisútvarpsins: Þó að Ríkisútvarpið sjálft hafi fullkominn búnað til sendingar kemst textinn ekki til skila svo að viðhlítandi sé því að þorri þeirra tækja, sem nú eru í notkun, er ekki til þess búinn að taka á móti sendingum textavarpsins með óbrenglaðri stafsetningu. Stjórn málnefndar vill beina því til stjórn- enda Ríkisútvarpsins að leitað verði lausnar á þessu vandamáli hið bráðasta." Svarbréf Ríkisútvarpsins, dag- sett í gær, 4. október, hljóðar svo:- I „Athugasemd yðar vegna meinbuga á textavarpi er fyllilega réttmætt og stjórnendum Ríkisút- varpsins sama íhugunarefni og yður. Það er deginum ljósara, að þorri þeirra sjónvarpsviðtækja, sem nú eru í notkun, „er ekki til þess búinn að taka á móti sending- um textavarps með óbrenglaðri stafsetningu“. Hér skulu því árétt- uð þau orð yðar, hve brýnt er, „að leitað verði lausnar á þessu vanda- máli hið bráðasta“. Ríkisútvarpið hefur jafnan kappkostað að standa vörð um íslenska tungu. Málfarsráðunaut- ur Ríkisútvarpsins er afbragð ann- arra manna í sinni grein og situr enda í íslenskri málnefnd. Sérfróðir menn og smekkvísir hafa þann starfa með höndum daglega að færa orðalag til betri vegar, áður en útvarpsfréttir eru fluttar hlustendum og íslenskir textar felldir að erlendum kvik- myndum í Sjónvarpinu. Fjölmargt annað væri auðvelt að rifja upp til staðfestingar einörðum vilja Ríkisútvarpsins í þessu efni. Allt er það kunnugt og mun vonandi vaxa fremur en lýrna, er fram líða stundir, enda kynni meira að vera í húfi nú en fyrr. Þetta er ritað í því skyni að ítreka þá eindregnu og eðlislægu samstöðu, sem Ríkisútvarpið og íslensk málnefnd eiga sín á milli. Að sjálfu leiðir, að enginn ágreiningur er um alvöru þeirra byijunarörðugleika, sem einkenna textavarp Ríkisútvarpsins. Þeir eru hveijum og einum óskapfelldir og gætu jafnvel talist háskalegir. III Hitt munu góðgjarnir menn þó virða til betri vegar, að hér er ein- mitt um að ræða byijunarörðug- leika. Textavaipið er tilrauna- starfsemi. Málsaðilar vita, að ný- lunda þessi er víðs Ijarri því að vera fullburða. Örðugt virðist vera að leysa vandann „hið bráðasta“. En sú kemur tíð, er sjónvarpstæki landsmanna upp til hópa verða þess albúin að nema textavarp með viðhlítandi hætti að því er til stafsetningar tekur. Þá eru byij- unarörðugleikar að baki og endan- legu markmiði náð. Þá má og ætla, að rótgróin alúð Ríkisút- varpsins við íslenska tungu komið til skila í vönduðu ritmáli. Auðvelt væri að nefna ýmis dæmi frá liðnum árum og áratug- um um tæknilegar fæðingarhríðir, sem talist gætu hliðstæðar þeim meinlegu hnökrum, er einkenna textavarp á frumstigi. Þau dæmi verða þó eigi rakin hér, né heldur tíundaðir augljósir kostir alvaxta textavarps. Kóstirnir munu raunar því að- eins koma í ljós, að Ríkisútvarpið kynni textavarpið og hvetji lands- menn þannig til að seilast eftir þeim fróðleik, sem bættur við- tækjabúnaður smám saman mun veita þeim. Þar af leiðir, ' að. Ríkisútvarpið sér ekki annað ráð vænna en halda fram stefnunni. Þrátt fyrir tímabundna annmarka. Allt orkar tvímælis, þá gert er, og svo er um þessa ákvörðun. En undan henni verður ekki vikist. IV Þyngsta áhyggjuefni íslensku- manna vegna textavarps í reifum varðar hugsanleg áhrif bjagaðrar stafsetningar á börn og ung- menni. Líklegt er þó, að annarleg tákn textavarpsins séu velflest svo ijarri öðru ritmáli, að stafsetning-. arkunnátta þoli engan hnekk af þeirra völdum. Þessi er skoðun málfarsráðunauta Ríkisútvarpsins meðal annarra. V íslenskt textavarp fetar fyrstu skrefin þessa dagana. Það er eink- ar reikult í spori, eins og þér bend- ið á og hér hefur verið hent á lofti. Göngulagið rekur rætur til tæknilegra misbresta. Fram- kvæmdastjori Sjónvarpsins gerði grein fyrir aðstæðum í bréfi, sem birtist í ijölmiðlum 21. september. Umsjónarmaður textavarps skýrði málið sama dag. Framkvæmda- stjóri tæknideildar Ríkisútvarpsins mun leggja enn ýtarlegra orð í belg á næstunni og segja frá nær- tækustu úrræðum. VI Að lyktum skal sú von í ljós látin, að hver og einn gefi sér tóm til að ræða torfærur textavarpsins af þeirri sanngirni og hófstillingu, sem einkennir -bréf stjórnar Is- lenskrar málnefndar. Enginn gerir lítið úr vandandum. En ótryggur árnaðarauki væri að mikla fyrir sér stundarþraut umfam það, sem efni standa til. Heimir Steinsson, útvarpsstjóri Kristín Geirsdóttir Litir og form í málverkum Kristínar KRISTÍN Geirsdóttir opnar í dag, laugardag 5. október, kl. 14. sína fyrstu einkasýningu á málverkum í Asmundarsal, Freyjugötu 41. A sýningunni eru 16 verk eftir Kristínu. Verkin segir Kristín vera hennar innri heim og tilfinningu sem hún vill miðla til annarra. „Þó að það sé gott að hafa tæknina á valdi sínu, skiptir hún ekki máli sem slík, en ég nota hana til að túlka það sem innra er. Ég fæ hugmyndir frá fólki og náttúrunni. Ég geng misjafnlega lengi með hugmyndimar í huganum og kem þeim svo frá mér. Vinnslu- tími hverrar myndar getur verið mis- langur. Mynd getur orðið til á á and- artaki og önnur á mun lengri tíma, jafnvel mánuði. Málverk eru t.d. til- finning, form, litur, hugmynd og dýpt og það er mjög mikilvægt að ná samræmi á milli þessara hluta. Málverk eru hugarástand sem heldur áfram í næstu mynd og það er aldr- ei nein niðurstaða.“ ÉiM [JSiTTItBOÐ! Nú um helgina er opið hús hjá verslunum RAFHA í Reykjavík og Hafnarfirði og hjá versluninni H-GÆÐI, Suðurlandsbraut 16. Þar kynnum við mikið úrval heimilistækja og innréttinga á sérstöku hausttilboðsverði. Opið í dag, laugardag, frá k\. 10-16 og á morgun, sunnudag, frá kl. 13-17. Tilboðið stendur aðeins til 12. október. ZANUSSI (Kuppersbusch) LÆKJARGÖTU 22, HAFNARFIRÐI, SIMI : 50022 BORGARTÚNI 26, REYKJAVÍK, SÍMI : 620100 C U I S I N E S SCHMIDT ELDHUS • BÖÐ • FATASKAPAR Um helgina seljum við jafnframt nokkrar innréttingar úr sýningarsal okkar á Suðurlandsbraut 16 með 30% afslætti. Lítið inn, sjón er sögu ríkari. H - GÆÐL. SUÐURLANDSBRAUT 16, REYKJAVÍK. SÍMI : 678787

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.