Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTOBER 1991 27 Hjartavemd - til almenningsheilla eftir Magnús Karl Pétursson Rannsóknarstöð Hjartavemdar hefur nú starfað í hartnær aldar- íjórðung. Stöðin er ein sinnar teg- undar í heilbrigðiskerfinu, þar sem höfuðáhersla hefur jafnan verið lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir í hjarta- og æðasjúkdómum. Láta mun nærri að um 80.000 einstakl- ingsskoðanir hafi verið gerðar á vegum stöðvarinnar og niðurstöður þeirra rannsókna sem fyrir liggja hafa ótvírætt leitt í ljós þá áhættu- þætti sem leiða til hjarta- og æða- sjúkdóma og hljóta að verða gmnn- ur þess forvamastarfs sem heil- brigðisyfirvöld munu byggja á í náinni framtíð. í rannsóknarstöð Hjartavemdar er nú verið að rannsaka tengsl ákveðinna áhættuþátta við líkam- lega og andlega sjúkdóma hjá öldr- uðum. Byggist sú rannsókn á hópi þátttakenda sem komið hafa reglu- lega í rannsóknir sl. 20 ár. Þessi rannsókn er einstök hér á landi og þótt víðar sé leitað. Meðal annars má nefna það að á rannsóknarstöð- inni hefur frá upphafi verið sýnd sú forsjálni að djúpfrysta blóðsýni „Hafinn er undirbún- ingur að næsta stóra rannsóknarverkefni Hjartaverndar sem beinast mun að ung-u fólki og áhrifum lífs- venja þeirra á heilsuf- ar.” frá þeim einstaklingum sem þang- að hafa komið, og er nú hægt að rannsaka þau með nútíma tækni. Hafinn er undirbúningur að næsta stóra rannsóknarverkefni Hjartavemdar sem beinast mun að ungu fólki og áhrifum lífsvenja þeirra á heilsufar. Verið er að at- huga hvort tengja megi þá rann- sókn fyrri rannsóknum með því að velja í úrtakshópinn afkomendur fólks í fyrri rannsóknarhópum og skoða þannig áhrif arfgengis á hjarta- og æðasjúkdóma. Ekki má heldur gleyma þeirri fræðslustarfsemi sem Hjartavemd hefur ætíð staðið fyrir með útgáfu tímarita og bæklinga um .hjarta- og æðasjúkdóma og vamir gegn þeim. Magnús Karl Pétursson Rannsóknarstöð Hjartavemdar er sjálfseignarstofnun og þær rann- sóknir sem hér hafa verið nefndar em að stærstum hluta kostaðar af sjálfsaflafé Hjartavemdar. Enda þótt mikið starf sé unnið í sjálf- boðavinnu í þágu samtakanna þá kostaði rekstur stöðvarinnar einnar 31 milljón á sl. ári en framlag ríkis- ins var rúmar 7 milljónir. A þeim tíma sem talað er um sparnað og aðhald í rekstri ríkisins er vert að benda á það mikla starf sem unnið er af sjálfseignarstofnunum á sviði heilbrigðismála og spara ríkinu og þar með skattborgurunum umtals- verðar fjárhæðir. Rannsóknarstöð Hjartavemdar er ein slíkra stofn- ana. Hún hefur allt frá stofnun notið sérstakrar velvildar og stuðn- ings almennings sem sýnt hefur vilja sinn í verki með peningagjöf- um og styrkjum. Happdrætti Hjartaverndar hefur nú um langt árabil skilað umtals- verðu fé sem öllu hefur verið varið í rannsóknastarfsemi. Enn einu sinni leitar Hjartavernd til almenn- ings með sölu happdrættismiða og enda þótt hart sé barist á þéim markaði treystir Hjartavernd því, að fólk kaupi heimsenda miða og stuðli þannig að áframhaldandi starfsemi rannsóknarstöðvarinriar. Höfundur er læknir á Landspítalanuni ogformaður Hjartavemdar. U SILFURLÍNAN, síma- og við- vikaþjónusta fyrir eldri borgara, er í þann mund að hefja vetrarstarf sitt. Starfið í vetur verður öflugra en í fyrra, sem meðal annars kemur fram í því að nú verður svarað símann alla virka daga frá kl. 14.00 til 18.00. Silfurlínan er samstarfs- verkefni Rauða kross íslands, Félags eldri borgara, Soroptim- ista og Bandalags kvenna í Reykjavík. Eldri borgarar geta hringt í línuna og rætt við sjálfboða- liða um það sem þeim liggur á hjarta í algjörum trúnaði. Þeir geta fengið upplýsingar um hvert á að snúa sér með erindi við hinar ýmsu stofnanir samfélagsins og jafnframt stendur þeim til boða aðstoð við stuttar sendiferðir, smá viðgerðir og önnur viðvik sem sjálfboðaliðai% sjá sér fært að vinna. Silfurlínan varð til eftir að könnun var gerð meðal eldri borgara um víðhorf þeirra til sjálfboðaliðastarfa. Könn- unin leiddi í ljós svo ekki varð um villst að aldraðir telja þörf fyrir þjónustu af þessu tagi. Enda sýndi það sig í vor að talsvert var leitað til Silfurlínunnar þrátt fyrir litla kynningu. Um fímmtíu sjálfboðalið- ar hafa þegar sótt námskeið sem Fræðslumiðstöð Rauða kross ís- lands hélt fyrir þá sem vildu vinna fyrir Silfurlínuna. Með aukinni starfsemi vantar enn fleiri sjálf- boðaliða, sérstaklega í viðvikaþjón- ustuna. Silfurlínan er í húsakynnum Félags eldri borgara við Hverfis-^ götu 105 í Reykjavík. Kvikmynclahátíð Listahátíðar: Eitt af mörgum súrrealískum atriðum í nýjustu mynd Vestur- íslendingsins Guys Maddin. Erkiengill Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Erkiengill - „Archangel”. Sýnd í Regnboganum. Leik- stjóri, handritshöfundur og kvikmyndatökumaður Guy Maddin. Aðalleikendur Kyle McCullock, Kathy Marykuca, Ari Cohen. 90 mín. Kanada 1990. Ein af persónulegri myndum þessarar hátíðar er Erkiengill eftir Kanadamann af íslenskum ættum (auk þess má sjá falleg og notaleg nöfn einsog Herdís og Guttormsson í titlunuml), og átti sá fyndna og furðulega mynd á síðustu Kvikmyndahátíð. Erki- engill er stórdularfull, lýjandi til að byija með en smám saman ná undarleg stílbrögð Maddins til manns en útlit myndarinnar er harla óvenjulegt. Hún er svart/hvít og aukinheldur reynir leikstjórinn að ná áhrifum kvik- mynda frá fyrstu áratugum ald- arinnar með hráu yfírbragði, slæmum fókus, hvassri lýsingu, búningum, titlum á kaflaskiptum o.s.ft-v. Þetta tekst með ólíkind- um vel, myndmálið seytlar inní hugann og manni líður hálf ann- arloga þegar upp er staðið, og þá "í' 'il nokkurs unnið. Það er best að ætla sér ekki þá dul að reyna að skýra sögu- þráðinn sem er súrrealískur í anda myndar Davids Lynch, Er- aserhead, og í engu aðalhlut- verki. En sjálfur lýsir höfundur honum svo: „Stríðsharmleikur, harmleikur um mannskæða styijöld, angurvær frásögn af draumkenndri veröld löngu glat- aðrar ástar.” Hann er húmoristi karlinn. Það má flokka Erkiengil með tilraunamyndum, áhorfandinn upplifir sýnir og áhrif sem hann hefur ekki rejmt áður. Maddin er að þróa með sér mjög sér- stakan stfl, allavega um þessar mundir, sem hefur lukkast vel og verður forvitnilegt að fylgjast með honum í framtíðinni. Mun hann halda sig við tilraunir og kvikmyndahátíðir eða reyna sömu leiðir og Lynch? Hvað sem því líður og sumir telji Erkiengil erkivitleysu þá puntar hún mikið uppá Kvikmyndahátíð 1991. Myndir sýnd- ar í dag Heimkoman, Hetjudáð Daníels, Henry: Nærmynd af fjöldamorð- inga, Gluggagægirinn, Lögmál lostans, Freisting vampírunnar, Taxablús, Erkiengill. Sjáðu til Sjáðu til DAGUR LJÓSSINS 1991 Ljóstæknifélag íslands og Félag raftækjasala vekja athygli á nauðsyn góðrar vinnulýsingar á heimilum, sem eru fjölmenn- asti vinnustaður landsins. Kynning á Ijósfærum til vinnulýsingar á heimilum verður 12. til 19. október og sérstök ráðgjöf um lýsingu, sjónstarf og umgengni við rafmagn verður í eftirtöldum raftækjaverslunum: Rafbúð, í dag kl. 13-15, Bíldshöfða 16, þriðjudag og fimmtudag kl. 16-18. Ljós og orka, í dag kl. 13-15, Skeifunni 19, þriðjudag, fimmtudag og föstudag kl. 16-18. Rafbúðin, föstudag kl. 16-18. Auðbrekku 11, Borgarljós, í dag kl. 13-15 Skeifunni 8, og fimmtudag kl. 16-18. Rafkaup, í dag kl. 13-15, Ármúla 24, þriðjudag og föstudag kl. 16-18. Rafbúð, í dag kl. 13-15, Domus Medica, þriðjudag og föstudag kl. 16-18. Verið velkomin! Stuðning veita: Rafmagnseftirlit ríkisins, Sjónstöð Islands, Rafmagnsveita Reykjavíkur o.fl. DAGUR LJÓSSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.