Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 44
VOLVO Besti vinur sjómannsms! LAUGARDAGUR 12. OKTOBER 1991 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. íslendingar eru heimsmeistarar í brids: Otrúleg tílfínning að veita Bermúdaskálinni viðtöku - sagði Björn Eysteinsson, fyrirliði íslensku sveitarinnar íslenska sveitin fagnar heims- meistaratitlinum eftir að hún kemur út úr spilasalnum þar sem sigurinn vannst á Pólverj- um. Taldir frá vinstri: Jón Baldursson, Guðmundur Páll Arnarson, Aðalsteinn Jörg- ensen, Þorlákur Jónsson, Órn Arnþórsson og Guðlaugur R. Jóhannsson. ISLENDINGAR urðu heimsmeistarar í brids snemma í gærmorgun eftir að hafa lagt Pólverja að velli, 415-376, í æsispennandi úrslita- leik heimsmeistaramótsins í Yokohama í Japan. „Þetta er ótrúleg tilfinning,” sagði Björn Eysteinsson, fyrirliði íslensku sveitarinnar þegar hann tók við verðlaununum, Bermúdaskálinni, fyrir hönd ís- lenska liðsins við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Islendingar eru að- eins sjötta þjóðin til að vinna heimsmeistaratitilinn í 40 ára sögu keppninnar. Islenska sveitin er auk fyrirliðans skipuð þeim Guðmundi Páli Arnar- syni, Þorláki Jónssyni, Jóni Bald- urssyni, Aðalsteini Jörgensen, Erni Arnþórssyni og Guðlaugi R. Jó- hannssyni. Þeir áttu erfítt með að trúa því að titillinn væri í höfn og sögðu að fyrirliðinn og hvernig hann skipuiagði æfíngar liðsins hefði haft mest að segja um árang- urinn. Bjöm sagði að það væri spila- mennska liðsins sem hefði unnið mótið. Íslenska sveitin byijaði á því að vinna sinn riðil í keppninni. Í átta liða úrslitum vann hún B-sveit Bandaríkjanna og í undanúrslitum lagði hún Svía að velli, en Pólverjar unnu fyrrverandi heimsmeistara, Brasilíumenn. Elín Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Bridgesam- bandsins, sem jafnframt er eigin- kona Jóns Baldurssonar, sagði að undanfarna daga hefði hún verið að hugsa um hvenær hún myndi vakna upp af þessum draumi. Hér- lendis óx áhuginn á mótinu með hveijum sigri Islendinga og Bridge- sambandið var með næturvöku í fyrrinótt þar sem fylgst var með úrslitaleiknum. „Allur bridsheimurinn fagnar þessum úrslitum,” sagði Ernesto d’Orsi, forseti Alþjóðabridssam- bandsins, þegar hann afhenti ís- lensku bridsmönnunum Bermúda- skálina. „íslensku spilararnir komu vel fyrir, spiluðu stórvel og hegðuðu sér á allan hátt eins og góðum íþróttamönnum sæmir. Og eins og þeir spiluðu í úrslitaleiknum hefði ekkert lið getað unnið þá,” sagði hann ennfremur. „Þetta eru stórkostleg tíðindi, bæði fyrir bridsmenn, eins og okkur suma, og alla þjóðina,” sagði Davíð Oddsson, forsætisráðherra. „Ég var mjög ákafur í áhuga mínum á þessu móti og frammistöðu liðsins og fylgdist mjög vel með eins og hægt var í gegnum blöðin og útvarp,” sagði hann ennfremur. Hann sagðist vera heimabrúks- maður í brids og spila einu sinni í viku. „Ég hef ákveðið að fara og taka á móti þeim á sunnudagskvöld- ið. Mér finnst menn oft hafa farið og tekið á móti góðum mönnum, sem eru að koma heim fyrir minna. Við eigum að vera stolt af brids- mönnum okkar. Þeir hafa sýnt al- veg stórkostlega festu, seiglu og hæfíleika,” sagði Davíð Oddsson. Sjá ennfremur fréttir á 22-23 og 25. bls. Morgunblaðið/Guðmundur Sv. Hermannsson Patreksfjörður: Eldur í 'geymslu- húsum ELDUR kom upp í tveimur geymsluhúsum á vegum Patreks- hrepps í úljaðri Patreksfjarðar- kaupstaðar um kl. 10 í gær- kvöldi. Slökkviliðið fór á staðinn og var búið að slökkva eldinn í öðru húsinu um miðnætti en enn logaði í öðrum enda hins hússins. Hjá iögreglunni á Patreksfirði fengust þær upplýsingar að tekist hefði að ná sprengjuefnum og gas- hylkum úr húsunum, sem eru sam- liggjandi, áður en eldur komst í þau. Annað sem í húsunum var, svo sem vélar og verkfæri í eigu hrepps- inSj er talið ónýtt. Ibúar nærliggjandi húsa létu vita "T af eldinum. Fjörutíu metrar eru frá skemmunum í næstu íbúðarhús en vindur stóð af íbúðarhúsunum. íslenzkur fjallgöngnmað- ur talinn af í Himalaja Tveir íslendingar fórust á sama fjalli 1988 ÍSLENZKS fjallgöngumanns hefur verið saknað í Himalajafjöll- um í Nepal síðan á miðvikudag. Maðurinn, sem var þrítugur að aldri, er talinn hafa hrapað í 6.400 metra hæð á fjallinu Pumo Ri og t.elja nepölsk yfirvöld hann af. Tveir íslenzkir fjall- göngumenn fórust á þessu sama fjalli fyrir þremur árum. íslendingurinn var í fylgd með sjö brezkum fjallgöngumönnum undir forystu þekkts skozks fjallamanns, Malcolms Duff. Þeir Duff komu til Katmandú, höfuð- borgar Nepals, 16. september og héldu þaðan • til norðurhluta landsins, þar sem þeir hugðust Fjallið Pumo Ri. Leiðangur Malcolms Duff fór upp hrygginn, sem ber við himin til hægri á myndinni. fara hefðbundna leið upp suð- austurhrygg Pumo Ri-fjallsins og klífa hinn 7.161 metra háa tind. Duff og tveir aðrir Bretar klifu tindinn fyrr í vikunni og komust áfallalaust aftur niður til efstu búða leiðangursins, í 6.200 metra hæð. Nepalska ferðamálaráðuneytið skýrði frá því í gær að íslenzki fjallamaðurinn hefði farið einn síns liðs á tindinn eftir að Bret- arnir höfðu klifíð hann. Í skýrslu nepalsks fylgdarmanns leiðang- ursins segir að svo virðist sem hann hafi runnið í snjónum í um 6.400 metra hæð á leiðinni niður aftur og horfið. Slysið átti sér stað um kl. þijú síðdegis á mið- vikudag, að sögn fréttaritara Reuters-fréttastofunnar í Kat- mandú, sem Morgunblaðið ræddi við í gær. Fréttaritari Reuters fékk þær upplýsingar hjá ferðamálaráðu- neytinu í Katmandú í gær að íslendingurinn væri talinn af. Samkvæmt skýrslu nepalska fylgdarmannsins hófu félagar hans leit þegar í stað, en ekki er vitað hvort hún hefur borið árangur. Er Morgunblaðið náði sambandi við hótel leiðangurs- manna í Katmandú, var sagt að Duff og fylgdarmenn hans væru andú til Pumo Ri og staðsetn- ingu fjallsins. ekki væntanlegir til borgarinnar fyrr en eftir nokkra daga. Pumo Ri er 48. hæsta fjall Nepals, og liggur við landamæri Nepals og Tíbets. Það er um 10 km vestur af Everest-fjalli, hæsta ijalli heims, í Himalaja-fjallgarð- inum. Fyrir þremur árum, í okt- óber 1988, týndust tveir íslenzkir fjallamenn, þeir Kristinn Rúnars- son og Þorsteinn Guðjónsson, á leiðinni upp hlíðar fjallsins og var þeirra leitað án árangurs. íslendingurinn, sem um ræðir, er þriðji fjallgöngumaðurinn, sem er talinn af á Pumo Ri á þessu hausti. Fimmtánda september fórust ungur Frakki og nepalskur fylgdarmaður hans í snjóflóði á sömu uppgönguleið. Ekki er hægt að birta nafn mannsins að svo stöddu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.