Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.10.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B 236. tbl. 79. árg. FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Júgóslavía: Litlar líkur á viðræðum Króata og1 Serba í bráð Zagreb. Reuter. HARÐIR bardagar brutust enn út í Króatíu í gær og Franjo Tudjman, forseti lýðveldisins, sagði ólíklegt að hann myndi ræða við Slobodan Milosevic, forseta Serbíu, þótt hann hefði samþykkt það sólarhringi áður. Útvarpið í Króatíu skýrði frá því að barist hefði verið með sprengju- vörpum og stórskotaliðsvopnum í bæjum og þorpum í norðaustur- og miðhluta lýðveldisins. Að minnsta kosti sjö manns féllu. Serbneskir skæruliðar og liðsmenn sambandshersins gerðu til að mynda harðar stórskotaliðsárásir á bæinn Vukovar, sem barist hefur verið um í rúmar sjö vikur. Franjo Tudjman og Slobodan Milosevic samþykktu á þriðjudag fyrir tilstilli <Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta að reyna þegar í stað að binda enda á átökin og hefja friðarviðræður innan mánaðar. Tudjman sagði hins vegar í gær að ólíklegt væri að hægt yrði að efna til slíkra viðræðna í bráð. Forsætisráð Júgóslavíu, þar sem Serbar hafa bæði tögl og hagldir, lýsti yfir því að ákvarðanir, sem teknar verða í friðarviðræðunum í Haag, sem Evrópubandalagið stendur fyrir, væru marklausar þar sem ráðið tæki ekki þátt í þeim. Fulltrúar Króatíu, Slóveníu, Bosn- íu-Herzegovínu og Makedoníu hafa sagt sig úr ráðinu. Þá dró það mjög úr líkunum á því að friðarumleitanir bæru árangur að stjórnvöld í Króatíu lýstu yfir því í gær að umsátri um stöðvar Júgóslavíuhers yrði ekki hætt fyrr en brottflutningur júgó- slavneskra hermanna úr lýðveldinu hæfist. „Ljóst er að miklu fleiri munu bíða bana áður en friður kemst á í Júgóslavíu,” sagði vestrænn stjórnarerindreki í Belgrad. Bar- dagamir hafa kostað rúmlega þús- und manns lífið frá því í júní er Króatar lýstu yfir sjálfstæði. Myndir af Hoxha brenndar í Tírana Reuter Um 10.000 manns efndu til mótmæla við háskólann í Tírana, höfuðborg Albaníu, í gær, á afmælisdegi Envers Hoxha fyrrum einræðisherra landsins. Myndin var tekin er fólkið brenndi stórar myndir af Hoxha og arftaka hans, Ramiz Alia forseta, og dansaði við undirleik dúndrandi rokktónlistar. Fjöldi manna veif- aði einnig rauðum smáfánum sem merki kommúnistaflokksins hafði verið skorið úr. Daginn áður reyndu þúsundir manna að ryðjast um borð í skip í hafnarborgunum Vlora og Durres í þeirri von að komast úr landi. Til átaka kom milli þeirra og sveita hers- og lögreglumanna. Ráðstefna um frið í Miðausturlöndum: Bretar and- vígir stofnun Evrópuhers London. Reuter. BRETAR lögðust í gær gegn til- lögum Framjois Mitterrands Frakklandsforsetíi og Helmuts Kohls, kanslara Þýskalands, um að komið yrði á fót stórfylki land- hers á vegum Vestur-Evrópu- sambandsins (VES), eða Evrópu- her. Douglas Hurd, utanríkisráðherra Bretlands, sagðist ekki sjá neinn tilgang í að komið yrði á fót Evrópu- her. Það fæli einungis í sér tvíverkn- að þar sem honum væri ætlað að gegna í höfuðatriðum sama hlut- verki og Atlantshafsbandalagið (NATO), en aðildarríki þess hefðu nýverið ákveðið að halda starfsemi þess áfram og endurskipuleggja hana. í ráði er að John Major, forsætis- ráðherra Bretlands, ræði við Mitt- errand og Kohl í næsta mánuði og m.a. skýra þeim frá afstöðu Breta til tillögu þeirra um stofnun Evrópuhers. Sjá „Vestur-Evrópusambapd- ið ...” á bis. 22. PLO og Jórdanir semja um sameiginlegci sendinefnd Amman, Jerúsalem, Túnis. Reuter. Frelsissamtök Paiestínu (PLO) og jórdönsk stjórnvöld hafa náð samkomulagi um að senda sameiginlega nefnd á ráðstefnu um frið í Miðausturlöndum ef miðstjórn PLO fellst á að Palestínumenn taki þátt í henni. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddi við Hafez al-Assad, forseta Sýrlands, í tæpar 15 klukkustundir í gær og sagði að fundi þeirra loknum að enn benti flest til þess að hægt yrði að hefja ráðstefnuna fyrir mánaðarlok. Talsmenn PLO sögðu að ef af þátttöku Palestínumanna yrði myndi nefndin lúta yfírstjórn Hus- seins Jórdaníukonungs og Yassers Arafats, leiðtoga PLO. Jórdönsk stjórnvöld gerðu þó lítið úr hlut- verki PLO í nefndinni, en ísraelár hafa hafnað viðræðum við samtök- Mesta fjöldamorð í sögu Bandadkjaima 22 myrtir í skotárás í veitingahúsi Killeen, Texas. Reuter. MAÐUR, vopnaður sjálfvirkri skammbyssu, ók bifreið sinni inn í veitingahús í bænum Killeen í Texas í gærkvöldi og skaut 22 menn til bana og framdi síðan sjálfsmorð. Þetta er mesta fjölda- morð í sögu Bandaríkjanna. Maðurinn skaut á fólk, sem beið í röð eftir afgreiðslu, og framdi sjálfsmorð eftir að lög- reglumenn höfðu sært hann. Sjónarvottur sagði að morðinginn hefði ekið bifreið sinni í gegnum rúðu og setið í henni er hann skaut á fólkið. Skothríðin varaði í tíu mínútur. 18 manns særðust í árásinni, þar af nokkrir mjög alvarlega. Morðingjanum var lýst sem hvít- um manni á fertugsaldri. in. „Við erum ekki að semja um sameiginlega nefnd með PLO, heldur með fólki frá hernumdu svæðunum,” sagði Mahmoud al- Sharif, upplýsingamálaráðherra Jórdaníu. Hann sagði að tveir menn myndu fara fyrir nefndinni, annar Palestínumaður en hinn Jórdani, en bætti við að ekki hefði verið tekin lokaákvörðun um hveij- ir þeir yrðu. Gert er ráð fyrir að nefndin verði skipuð fjórtán Pal- estínumönnum og jafn mörgum Jórdönum. Samkomulagið um sameigin- lega nefnd er tilslökun af hálfu Palestínumanna, sem hafa hingað til viljað fá að senda sérstaka nefnd. Hussein Jórdaníukonungur sagði fyrr í vikunni að ef sameigin- leg nefnd yrði send á ráðstefnuna kæmi aðeins til greina að Jórdani yrði formaður hennar. Talsmenn PLO sögðu að James Baker hefði fallist á að Palestínu- maður og Jórdani deildu með sér formennsku í nefndinni. Miðstjóm PLO, sem er skipuð 95 mönnum, kom saman í gær til að ræða hvort Palestínumenn ættu að taka þátt í friðarráðstefnunni. Reuter Gyðingar, sem hafa sest að á hernumdum svæðum ísraela, mót- mæla hér komu James Bakers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til borgarinnar og friðarumleitunum hans í Miðausturlöndum. Lögreglu- maður reynir að stugga við þeim. Búist er við að stjórnin taki ákvörð- un um það eftir að James Baker hefur rætt við fulltrúa Palestínu- manna frá hernumdu svæðunum í Jerúsalem í dag. Nánir samstarfs- menn Arafats töldu að miðstjórnin myndi veita framkvæmdastjórn PLO umboð til að taka lokaákvörð- un í málinu. Farouq al-Shara, utanríkisráð- herra Sýrlands, sagði á blaða- mannafundi með Baker að Sýr- lendingar myndu taka þátt í ráð- stefnunni. Baker sagði að viðræður hans við Assad Sýrlandsforseta hefðu verið mjög gagnlegar. Að- eins væri ágreiningur um eitt at- riði, tímasetningu ráðstefnunnar. Bandaríkjastjórn vill að ráðstefnan verði sett 29. október í svissnesku borginni Lausanne. Um 2.000 gyðjngar frá her- numdum svæðum ísraela efndu til mótmæla í Jerúsalem í gær er James Baker kom til borgarinnar frá Sýrlandi. Hópar vinstrisinnaðra Israela gengu hins vegar um mið- borgina til að lýsa yfír stuðningi við friðarumleitanir utanríkisráð- herrans. Lögreglumenn meinuðu Palestínumönnum á vesturbakka Jórdanar og Gazasvæðinu að fara til Jerúsalem til að koma í veg fyrir'átök.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.