Morgunblaðið - 24.10.1991, Blaðsíða 12
MORGUXBLADH) FIMMTLDÁfrUR áÍ1 OKTÖBER' ÍÓ91
K'12
Þakklátur Islending-
um fyrir aðstoðina
við þróunarlöndin
- segir Heitor Gurgulino de Souza,
rektor Háskóla Sameinuðu þjóðanna
menntun sem nýttist þróunarlönd-
unum, og litið væri á verkefni Jarð-
hitaskólans sem mjög vandaðan og
mikilvægan lið í þessari starfsemi
háskólans. Hvað varðaði þjálfun
nemenda Jarðhitaskólans þá væri
um að ræða ímynd þess sem háskól-
inn ætti að gera, og skólinn væri
mjög stoltur af verkefninu, sem
væri mjög fullkomið og nyti alþjóð-
legrar viðurkenningar. „Jarðhita-
skóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna
hefur gert íslandi kleift að leggja
af mörkum einstakt framlag til
samfélags þjóðanna og til aðstoðar
þróunarlöndunum. Ég vil þakka rík-
isstjórn íslands og Orkustofnun fyr-
ir þeirra framlag við að hrinda
þessu verkefni í framkvæmd og
viðhalda því,” sagði de Souza.
Að sögn Ingvars Birgis Friðleifs-
sonar, forstöðumanns Jarðhitaskól-
ans, hafa þeir umsækjendur sem
sótt hafa um nám við skólann og
uppfyllt öll sett skilyrði ætíð verið
mun fleiri en komist hafa að hveiju
sinni. Hann sagði að mikill áhugi
væri fyrir því að í framtíðinni yrði
einhverjum nemenda skólans gert
kleift að dveljast hér við nám í eitt
ár til viðbótar þeim sex mánuðum
sem námið við skóiann tekur og
ljúka mastersgráðu í jarðhitafræð-
um, en það yrði þá gert í samráði
við Háskóla íslands þar sem Há-
skóli Sameinuðu þjóðanna veitti
ekki háskólagráður. Um þetta hefði
lengi verið rætt, en staðið hefði á
ijárveitingúm til að koma þessu í
kring.
Morgunblaðið/Þorkell
Styrkþegarnir þrettán, sem í ár útskrifuðust frá Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna, ásamt aðstandend-
um skólans. -Heitor Gurgulino de Souza, rektor Háskóla Sameinuðu þjóðanna, er fyrir miðju i fremri
röð, en vinstra megin við hann á myndinni er Ingvar Birgir Friðleifsson, forstöðumaður Jarðhitaskól-
ans, og hægra megin er Jakob Björnsson, orkumálastjóri. Lengst til vinstri í aftari röð er Lúðvík S.
Georgsson, starfsmaður Jarðhitaskólans.
13. starfsári Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna lokið:
Hefur útskrifað yfir 100
nemendur frá 22 löndum
ÞRETTÁNDA starfsári Jarðhit-
askóia Sameinuðu þjóðanna í
Reykjavík lauk með skólaupp-
sögn síðastliðinn mánudag, en
þá útskrifuðust þrettán styrk-
þegar frá níu löndum eftir sex
mánaða sérhæft nám í jarðhita-
fræðum hér á landi. Rektor
Háskóla Sameinuðu þjóðanna,
Heitor Gurgulino de Souza, var
viðstaddur skólaslitin, en þetta
er í fyrsta sinn sem rektor há-
skólans heimsækir Jarðhitaskól-
ann á Islandi.
Frá því Jarðhitaskólinn tók til
starfa árið 1979 hafa alls 106 styrk-
þegar frá 22 löndum útskrifast frá
skólanum eftir sex mánaða nám,
en að auki hafa liðlega 30 nemend-
ur dvalið hér á vegum skólans í
skemmri tíma. Jarðhitaskólinn er
rekinn samkvæmt samningi milli
Háskóla Sameinuðu þjóðanna í
Tókýó og Orkustofnunar fyrir hönd
íslenska ríkisins. Fjárframlög koma
frá Háskóla Sameinuðu þjóðanna
og íslenska ríkinu, en litið er á fram-
lag íslands sem hluta af þróunarað-
stoð íslendinga. Kennarar við Jarð-
hitaskólann eru sérfræðingar hjá
Orkustofnun, Háskóla íslands og
verkfræðistofum í Reykjavík, en
forstöðumaður skólans er Ingvar
Birgir Friðleifsson jarðfræðingur.
Aðalstöðvar Háskóla Sameinuðu
þjóðanna eru í Tókýó í Japan, en
mestöll kennsla og rannsóknir á
vegum háskólans fer fram í stofn-
unum tengdum honum víðs vegar
um heim, en Orkustofnun er eina
tengdastofnun háskóians á íslandi.
Nemendur Jarðhitaskólans hafa all-
ir lokið háskólanámi í jarðvísindum
eða verkfræði og unnið við jarðhita-
rannsóknir í nokkur ár í heimalönd-
um sínum áður en þeir koma til
Islands til framhaldsnáms, og eru
margir nemendur skólans frá fyrri
árum nú leiðandi sérfræðingar í
jarðhitarannsóknum í heimalöndum
sínum. Styrkþegarnir sem útskrif-
uðust að þessu sinni komu frá E1
Salvador, Filipseyjum, Júgóslavíu,
Kenya, Kína, Nicaragua, Póllandi,
Tékkóslóvakíu og Thailandi.
De Souza, rektor Háskóla Sam-
einuðu þjóðanna, sagði í ræðu sem
hann flutti við skólaslitin, að jarð-
hiti og nýting hans gæti verið til
mikilla hagsbóta fyrir þróunarlönd-
in, og í þessu sambandi hefði ísland
og Orkustofnun lagt umtalsvert af
mörkum til þess að bæta lífsgæði
hjá mörgum þessara þjóða. Hann
sagði að Háskóli Sameinuðu þjóð-
anna hefði sérstaka tilskipun hvað
varðar rannsóknir og framhalds-
„MIG hefur lengi langað til að
heimsækja ísland og kynnast af
eigin raun starfsemi Jarðhita-
skóla Sameinuðu þjóðanna, en
ég er mjög þakklátur íslensku
þjóðinni fyrir þann stuðning sem
hún hefur veitt Háskóla Samein-
uðu þjóðanna með því að aðstoða
þróunarlöndin á þessu sviði vís-
inda,” sagði rektor Háskóla
Sameinuðu þjóðanna, Brasilíu-
maðurinn Heitor Gurgulino de
Souza, í samtali við Morgunblað-
ið, en hann var viðstaddur þegar
Jarðhitaskólanum var slitið í
13. sinn.
„Mér er vel kunnugt um gæði'.
þeirrar starfsemi sem fram fer á '
sviði jarðhitarannsókna á íslandi,
og nemendur sem stundað hafa
nám við Jarðhitaskólann hafa tjáð
mér persónulega hve mikilvægt
það var fyrir þá að fá tækifæri til
að koma hingað og dveljast við
nám í sex mánuði, og fara síðan
að því loknu að takast á við vanda-
mál á þessu sviði í heimalöndum
sínum. Þess vegna vona ég að ríkis-
stjórn íslands, Háskóli íslands og
rannsóknastofnanir kanni með
hvaða hætti megi auka enn við
þetta verkefni og gera það þekkt-
ara út um allan heim, en þörfin
fyrir þjálfun vísindamanna á sviði
jarðhitafræða er víða mjög mikil,”
sagði de Souza.
Háskóli Sameinuðu þjóðanna
hóf starfsemi sína fyrir 16 árum,
og hefur skólinn í dag útskrifað
rúmlega 1.900 nemendur frá 115
löndum. Heitor Gurgulino de Souza
hefur verið rektor háskólans und-
anfarin fjögur ár, og nýlega var
hann skipaður rektor skólans í
ijögur ár til viðbótar. Hann sagði
16 ár ekki vera langan tíma í sögu
háskóla, en hann teldi þó að á
þessu tímabili hefði tekist að sýna
fram á að háskólamenn um ailan
Morgunblaðið/Þorkell
Heitor Gurgulino de Souza, rekt-
or Háskóla Sameinuðu þjóðanna.
heim gætu lagt sitt af mörkum til
þeirra mála sem Sameinuðu þjóð-
irnar og stofnanir þeirra fást við.
„Það gera þeir með því að leggja
fram hugmyndir sínar, rannsóknir
og þekkingu til að fást við þau
vandamál sem við er að etja í heim-
inum. Hvað viðkemur rannsóknun-
um sérstakléga, þá erum við með
þeim að fást við máiefni framtíðar-
innar, og vonandi getum við með’
rannsóknum öðlast þekkingu sem
þeir sem móta stefnuna hverju
sinni geta síðan notfært sér til að
vinna að iausnum aðsteðjandi
vandamála í heiminum,” sagði
hann.
Leikstjóri: Ásdís Skúladóttir
Leikmynd og húningar: Hlín Gunnarsdóttir
Lýsing: Lárus Björnsson
Tónlist: Þorkell Sigurbjörnsson
Leikarar: Árni Pétur Guöjónsson, Gunnar Helgason, Guðmundur Olafsson,
Guðrún Asmundsdóttir, Helga Þ. Stephensen, Helgi Björnsson, Jakob Þór Einarsson,
Jón Sigurbjörnsson, Magnús Jónsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Margrét Olafsdóttir,
Ragnheiður Tryggvadóttir, Saga Jónsdóttir, Sigurður Karisson, Steindór Hjörleifsson,
Þórey Sigþórsdóttir, Þröstur 1x0 Gunnarsson o.fl.
Frumsýning funmtud. 24. októbcr. Uppselt.
2. sýning föstud. 25. október. Grá kort gilda.
3. sýning sunnud. 27. október. Rauð kort gilda.
Miðasalan er opin daglega frá kl. 14-20 nema inanudaga frá kl. 13-17.
Auk þess er tekið á móti miðapöntunum í síina frá kl. 10-12 alla virka daga.
Sími 680680.
I
síðbuxum
eftir Björn Tli. Björnsson
Leikhv^slínan
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Borgarleikhús