Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 19
19 ________________MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1991_ * VIL FREKAR EN BÍÐA DAUÐANS Ragnar Guðmundsson bóndi á Nýhóli í Fjallahreppi sóttur heim Texti og myndir Skúli Unnar Sveinsson HVAÐ gerir tæplega sjötugur bóndi, sem hefur búið ó sama bænum í 64 ór, þegar honum er gert að bregða búi? Ragnar Guðmundsson, bóndi ó Nýhóli í Fjallahreppi, segir lítið annað framundan en tilgangsleysi og leiðinlega bið eftir dauðanum. Hann hefði miklu frekar viljað halda ófram að moka skít eins og hann hefur gert alla sína ævi. Ragnar bóndi á Nýhóli er 68 ára gamall og hefur búið á Nýhóli í Fjallahreppi, eða Hólsfjallahreppi eins og hann er oft nefndur, í 64 ár og verið með sjálfstætt bú frá því 1970. Hann er allt annað en ánægður með að þurfa að bregða búi, sjö árum fyrr en hann hafði hugsað sér. „Ég var búinn að ákveða að hætta búskap þegar ég yrði 75 ára en nú kemur þessi tilskipun að sunnan og ég verð að hætta alveg næsta haust. Það er auðvitað mjög mikil eftirsjá þegar maður er látinn' hætta svona. Ég hef verið við bú- störf alla mína ævi" og nú tekur ekkert við nema tilgangsleysi því það er ábyggilega ekki gaman að bíða dauðans þegar maður er við góða heilsu eins og ég er,” sagði Ragnar þegar blaðamaður heim- sótti hann á dögunum. „Þetta væri kllt annað ef maður væri heilsu- veill,” bætti hann við. Ragnar hafði 140 kindur í fyrra- vetur en nú er hann aðeins með tíu kindur, fimm geitur og eitt hross og næsta haust neyðist hann til að hætta búskap og flytjast á brott. Hann hefur mest verið með rúmlega 200 kindur auk þess sem hann hef- ur verið með geitur í mörg ár og nýtt mjólkina úr þeim. Verð að hætta og bíða dauðans „Þeir voru að tala um að ég mætti vera með 20-30 kindur á afgirtum bletti en það er auðvitað engin leið að vera með svo lítið bú og því er ekkert fyrir mig að gera annað en hætta og bíða dauðans. Það getur varla verið skemmtileg iðja, ég vildi miklu frekar vera úti að moka skít eins og ég hef gert alla ævi og var að gera þegar þig bar að garði,” sagði Ragnar. Hann var að stinga út úr ijárhúsinu þeg- ar blaðamaður renndi í hlaðið og taldi það hollara en margt annað sem menn tækju sér fyrir hendur nú til dags. Það var síðasta vetur að fjórum bændum á Hólsfjöllum var tjáð að þar ætlaði Landgræðslan að girða og landið ætti að gera fjárlaust. Tveir bændanna hafa þegar hætt búskap, Gunnlaugur Olafsson á Grímsstöðum og Sverrir Möller í Hólsseli, sem vár næsti bær við Nýhól. Gunnlaugur er fluttur til Egilsstaða og Sverrir flutti bú sitt að Efra-Lóni á Langanesi. Ragnar og Bragi Benediktsson í Gríms- tungu II eru enn að, en aðeins til næsta hausts. Hross ómissandi í mýrlendi Ragnar telur óþarft að girða landið og telur raunar að ef engum skepnum verði beitt á landið skemmist það. „Það eru nokkrir blettir á þessu svæði sem eru illa farnir af uppblæstri og þessa bletti hefði þurft að girða í hvelli og vernda, en þeir hjá Landgræðslunni mega ekki heyra á þetta minnst, þeir vilja bara girða sem mest og telja sig bjarga öllu með því. Eg tel mig þekkja landið hér nokkuð vel eftir 64 ár og ég er sannfærður um að það eyðileggst ef hætt verður að beita fé og hross- um á það. Mýrarnar fúna og eyði- ieggjast ef ekki er beitt á þær og þær hafa gert það undanfarin ár eftir að fólki og búpeningi fækkaði hér í sveitinni. Það er ómissandi að hafa hross þar sem mýrar eru, til að halda þeim við, en nú á að loka þessu alveg,” sagði Ragnar og Morgunblaðið/SU S Geiturnar voru fegnar að komast út og þær tóku vel á móti Ragn- ari bónda enda hugsar hann vel um þær. Ragnar var að stinga út úr fjárhúsinu og keyrði skítinn í hjólbörum. Hann vill frekar fá að moka skít en bíða í tilgangsleysi eftir dauðanum. bætti því við að margir væru ósátt- ir við að mega ekki beita fé á land- ið enda væri gott og fjölbreytt fóð- ur þar fyrir skeppnurnar. Því má skjóta hér inní að hið landsþekkta Hólsfjallahangikjöt er af þessum slóðum. Hvað verður nú um það? „Það verður auðvitað ekk- ert Hólsfjallahangikjöt þegar allt fé er farið af Hólsfjöllum,” svarði Ragnar. Ef ég væri 10 árum yngri Hann telur það i og með fram- taksleysi þeirra sjálfra að svo er komið sem komið er. „Þetta er í og með framtaksleysi hjá okkur að láta vaða svona yfir okkur. Við höfum ekkert gert til að stöðva þetta og hinir ganga auðvitað á lagið þegar svo er. Það vantar ekki viljann hjá mér að halda áfram að búa en ég lét undan. Ef ég væri tíu árum yngri hefði ég líklegast ekki látið undan, heldur haldið áfram búskap.” Sé ekki ljósin á næsta bæ „Búskapurinn hefur gengið vel þó svo ég búi einn. Ég var lengi vel með ráðskonu og svo hafa verið strákar hjá mér á sumrin. Það er mannfæðin hér í sveitinni sem veg- ur þyngst í ákvörðun minni að bregða búi núna. Það hefur verið gott að leita til nágrannana þegar eitthvað hefur bjátað á, en nú er orðið svo langt á milli bæja að ég sé ekki lengur ljósin á næsta bæ,” sagði Ragnar og það er gi’einilegt að honum er mikil eftirsjá að bú- störfunum enda eðlilegt þar sem hann hefur búið á sama bænum í 64 ár. Nýhóll er 11 km frá Grímstungu og Grímsstöðum á Fjöllum en að Hólsseli, sem var næsti byggði bær við Nýhól, eru 8 km. Ragnar sagði ekkert mál að skjótast á milli bæja, ekki einu sinni yfir vetrarmánuðina. „Ég er enga stund að renna mér þetta á vélsleðanum og stundum hreyfi ég ekki bílinn svo mánuðum skiptir.” Geitamjólk en helst ekki kaffi Nú var komið að því að taka veðrið í útvarpinu. Ragnar fylgist mjög náið með því um land allt og skrifar hjá sér hitastig á flestum veðurathugunarstöðvum landsins. Hann segir veðráttuna á Fjöllum ágæta. „Hér er oft mikið logn en svo blæs auðvitað hressilega á milli eins og annars staðar á okkar landi,” segir hann um leið og hann skenkir gesti geitamjólk á meðan hellt er á könnuna. Sjálfur drekkur Rangar helst ekki kaffi. „Ég drekk aðeins kaffi þegar ég er gestkomandi einhvers staðar, svona fyrir kurteisis sakir,” segir Ragnar og hellir mjólk, geita- mjólk að sjálfsögðu, í glas fyrir sig. Stórkostleg svik við okkur Talið berst aftur að fyrirhuguð- um aðgerðum Landgræðsiunnar. „Landgræðslan verður að ljúka við að girða svæðið fyrir næsta vor áður en bændur við Öxarfjörð sleppa fé á fjall. Ef girðingin verður ekki tilbúin, sem ég efast um að hún verði, þá eru það stórkostleg svik við okkur. Allt okkar fé er skorið vegna þess að landið á að vera fjárlaust en svo er öðru fé sleppt á landið,” sagði Rangar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.